24 stundir - 09.02.2008, Qupperneq 21
Til skammar Vill loka
Hegningarhúsinu
Ágúst Ólafur Ágústsson, vara-
formaður allsherjarnefndar,
heimsótti nýverið Litla-Hraun
ásamt öðrum nefndarmönnum til
að kynna sér aðstæður þeirra
fanga sem þar dvelja. „Það er al-
veg ljóst að það þarf meira fjár-
magn í fangelsismál. Dómar eru
að þyngjast og það er mikið fagn-
aðarefni. Hins vegar þarf kerfið að
bregðast við því að eftirspurnin
eftir fangelsisplássum er að aukast
og fjárveitingarvaldið þarf að
bregðast við því. Það er hluti af
grunnskyldum hvers samfélags að
hafa skikkanlega aðstöðu í fang-
elsum. Það skiptir máli að þeir
sem fara í afplánun komi betri
menn út. Annars er hætta á að
þeir fari aftur í sama farið. Það
gengur heldur ekki til lengdar að
vista tvo einstaklinga saman í
klefa og vonandi verður hægt að
bregðast við þessum aðstæðum
með byggingu nýs fangelsis. Það
er búið að vinna þarfagreiningu
fyrir nýtt fangelsi á Hólmsheiði og
nú vantar fjármagnið. Það þarf að
berjast fyrir því í fjárlögum að
þessir hlutir komist í lag. Mér
finnst komið að fangelsismálun-
um.
Undanþága Hegningarhússins
rennur út árið 2010 og ekki er
ljóst hvernig brugðist verður við
því. Ágúst Ólafur er ekki ánægður
með að húsið sé enn nýtt til að
hýsa fanga. „Það fyrirbæri er til
skammar og það ætti að vera búið
að loka því fyrir löngu.“
Fjárframlög til fangelsa þarf að auka
Ætti að vera lokað
24stundir LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 21.
FANGELSI Á ÍSLANDI
● Litla-Hraun Alls er pláss fyrir
77 fanga á Litla-Hrauni ef hver
þeirra fær að vera einn í klefa.
Fyrirhugað er að byggja við
fangelsið og mun fangaplássum
fjölga í 83. Það á að uppfylla
þarfir fangelsisins til ársins
2015 en nú þurfa fangar að tví-
menna í þremur klefum þar.
● Kvíabryggja Síðastliðið
haust var plássum fjölgað úr
fjórtán í 22. Fangelsið getur
þó einungis tekið á móti 20
föngum sem stendur vegna
fjárskorts.
● Fangelsið á Akureyri Fang-
elsinu hefur verið lokað tíma-
bundið vegna breytinga en
stefnt er að því að opna það að
nýju í mars og að þar verði
hægt að vista 10 fanga.
● Hegningarhúsið Fangelsið
var byggt árið 1874 en þar er
pláss fyrir allt að 16 fanga. Að-
stæður þar þykja ekki vist-
mönnum þess bjóðandi og er
fangelsið á undanþágu frá
heilbrigðisnefnd Reykjavíkur.
Þá hefur nefnd Evrópuráðsins
gegn pyntingum og ómann-
úðlegri meðferð í fangelsum
ítrekað gert athugasemdir við
fangelsið.
● Kópavogsfangelsi Í fangels-
inu í Kópavogi er pláss fyrir alls
tólf fanga. Allir kvennfangar
eru vistaðir þar ásamt sérvöld-
um karlkyns föngum. Fangelsið
er í grónu íbúðahverfi og þykir
henta illa sem vistunarmögu-
leiki fyrir fanga. Í frétt á heima-
síðu Afstöðu, félags fanga, er
sagt að fregnir hermi að þar séu
fangar einnig vistaðir tveir sam-
an í klefa.
● Hólmsheiði, draumur um
fangelsi Umræður um nýtt
fangelsi á Íslandi hafa staðið
áratugum saman en þarfa-
greiningu fyrir fangelsi á
Hólmsheiði var skilað í ágúst
síðastliðnum. Áður fyrr var
miðað við að það ætti að vera
risið árið 2010 en fram-
kvæmdir við byggingu þess
eru ekki í sjónmáli.
Samkvæmt hugmyndum um
fangelsið eiga að vera þar 64
vistunarrými fyrir fanga, og ef
það yrði byggt væri hægt að
loka bæði Hegningarhúsinu
og fangelsinu í Kópavogi.
HORFIN ÚRRÆÐI
● Byrgið og Vernd
Á árinu 2006 voru að meðaltali
6,5 fangar í afplánun vistaðir í
meðferð á hverjum degi. Ári
síðar hafði þeim fækkað um
þrjá og voru 3,5. Fækkunin er
rakin beint til þess að ekki var
lengur unnt að vista slíka fanga
í Byrginu en því var lokað í
byrjun síðasta árs eftir að upp
komu alvarlegar ásakanir á
hendur Guðmundi Jónssyni,
forstöðumanni þess.
Á Vernd voru vistaðir að með-
altali 17,4 fangar í afplánun á
dag árið 2006. Ári síðar voru
þeir 12,5, og hafði því fækkað
um fimm. Fækkunin er rakin
beint til þess að ekki er lengur
unnt að vista kynferð-
isbrotamenn á Vernd, en stjórn
Verndar hætti að taka við kyn-
ferðisbrotamönnum eftir að
Ágúst Magnússon, sem þá var
að ljúka fimm ára fangels-
isdómi vegna kynferðisbrota
gegn börnum á Vernd, var grip-
inn við að reyna að hitta 13 ára
stúlku í kynferðislegum tilgangi
en stúlkan var tálbeita Komp-
áss. Alls hófu 73 samfélagsþjón-
ustu í stað óskilorðsbundinnar
fangelsisrefsingar á síðasta ári,
eða tuttugu færri en árið 2006
þegar þeir voru 93.