24 stundir - 09.02.2008, Page 22
Forseti Tsjads, Idriss Déby, hefur
beðið Evrópusambandið um að
senda sem fyrst herstyrk til
landsins til að vernda flóttamenn
frá Darfúr í Súdan.
„Ég bið Evrópusambandið og
Frakkland, af fyllstu alvöru, um
að senda gæslulið eins fljótt og
mögulegt er til að létta á byrði
okkar,“ sagði Déby.
Hundruð þúsunda hafa flúið
blóðug átök í Darfúr til Tsjads en
frestað hefur verið för frið-
argæsluliða til Tsjads vegna
ótryggs ástands þar.
Yfirvöld í Tsjad hafa sakað upp-
reisnarmenn, sem hafa hótað að
steypa forsetanum af stóli, um að
koma í veg fyrir að friðargæslu-
liðið komi á svæðið.
ibs
Beiðni um
hjálp frá
Tsjad
AFPVerslað á markaði Kveikt var í aðalmarkaðinum í N’djamena í átökum milli stjórnarliða og uppreisnarmanna.
Kosningabarátta Vegfarandi í Montreuil í Frakklandi tekinn talinn vegna komandi borgarstjórnakosninga.Búsáhöldum bjargað Gríðarlegur fjöldi heimila hefur eyðilagst í flóðum í Bólívíu.
22 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 24stundir
ÁSTANDHEIMSINS
frettir@24stundir.is a
Ég bið Evrópusambandið og Frakkland, af
fyllstu alvöru, um að senda gæslulið eins
fljótt og mögulegt er til að létta á byrði okkar.
Idriss Déby