24 stundir - 09.02.2008, Side 26
26 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 24stundir
Sú skýrsla, sem hinn svonefndi
,,stýrihópur“ Svandísar Svavars-
dóttur skilaði um REI-málið í
fyrradag, er vissulega skref í rétta
átt. Alltof mörg hneykslismál í ís-
lenskri stjórnsýslu hafa gufað upp
gegnum árin án þess að nokkurs
konar niðurstaða hafi fengist –
nema tilgangslaust þref sem engin
leið er fyrir almenning að átta sig á.
Það verður kannski í framtíðinni
talin merkasta arfleifð borgar-
stjórnartíðar Dags B. Eggertssonar
og félaga að hafa komið þessum
,,stýrihópi“ á laggirnar. Það verður
héðan í frá erfiðara fyrir valdhafa
sem nást með allt niðrum sig að
halda því fram að einhvers konar
rannsókn sé alveg ástæðulaus. Þeir
muni ,,axla ábyrgð“ í næstu kosn-
ingum.
Það hefur aldrei fúngerað þann-
ig á Íslandi, því miður.
En þrátt fyrir mjög jákvæðar
hliðar á skýrslu ,,stýrihópsins“ er
ljóst að ákveðnir gallar voru á
skýrslunni. Það var á sinn hátt göf-
ug hugmynd að fá alla stjórnmála-
flokkana í borginni til þess að taka
þátt í starfi ,,stýrihópsins“ og eiga
hlut að og bera ábyrgð á skýrsl-
unni, en um leið hlaut það að leiða
til þess að skýrslan yrði alltof út-
vötnuð.
Eins og við sjáum á muninum á
þeim drögum sem bárust í hendur
fjölmiðla og svo skýrslunni sjálfri.
Einhverjir (vafalítið sjálfstæðis-
menn) höfðu til dæmis gengist fyr-
ir því að þurrka út orðalagið að
REI-málið hefði borið einkenni
laumuspils.
Blæja loðmullunnar
Af hverju mátti ekki segja það?
REI-málið bar vissulega öll ein-
kenni laumuspils. Það veit það hver
einasti kjaftur í borginni. Skýrsla
,,stýrihópsins“ gjaldfellur ansi mik-
ið við að ekki skuli hafa mátt tala
hreint út.
Við getum altso ekki treyst þess-
ari skýrslu. Ekki fyllilega – við vit-
um ekki hvar blæju loðmullunnar
og spunans hefur verið brugðið yfir
sannleikann.
En ég ítreka að starf ,,stýrihóps-
ins“ var skref í rétta átt. Vonandi er
að stjórnmálaflokkarnir beri gæfu
til að átta sig á því að fólk í þessu
landi mundi taka fagnandi næsta
skrefi – að hér kæmist á hefð raun-
verulega óháðra rannsóknarnefnda
sem gætu farið yfir öll þau subbu-
legu hneykslismál sem hér dúkka
reglulega upp en koðna svo jafn-
óðum niður. Stjórnmálamenn sem
beittu sér fyrir slíkum rannsókn-
arnefndum myndu vissulega upp-
skera tregðu og fúllyndi ýmissa fé-
laga sinna sem kunna best við sig í
skúmaskotunum.
En almenningur myndi kunna
að meta það.
Vilhjálmur rúinn trausti
Og þótt skýrsla ,,stýrihópsins“ sé
ekki gallalaus og maður hafi
lúmskan grun að enn sé sitthvað
ósagt um REI-hneykslið allt, þá
hefur skýrslan þó þannig mikla
kost að hafa dregið saman meg-
inatriði málsins þannig að helstu
málsaðilar geta ekki vikið sér und-
an.
Og það verður að segjast eins og
er: Það verður einfaldlega ekki hjá
því komist að einhver axli ábyrgð á
því klúðri og þeim sjabbí vinnu-
brögðum sem viðhöfð voru í REI-
málinu.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson get-
ur til dæmis ekki komið fram og
staglað á því að hann hafi engin lög
brotið og þess vegna sé allt í fína.
Eins og bæði skýrsla ,,stýrihópsins“
sýnir ljóslega – og ekki síður prýði-
leg samantekt Helga Seljan í Kast-
ljósi á miðvikudag – þá er Vil-
hjálmur bókstaflega rúinn trausti.
Það tjóir lítt að tárast – því eins og
vitur kona sagði: ,,Hvernig á mað-
ur að hafa samúð með mönnum
sem gráta ekki nema þegar kemst
upp um þá?“ Hann ætlaði greini-
lega að reyna þá leið að vekja sam-
úð með því að hann hefði átt voða
erfitt og sætt einhverjum ,,árásum“
en ætti ,,góða fjölskyldu“ sem hefði
stappað í hann stálinu – það er
bara ekki það sem málið snýst um.
Absúrd tilhugsun
Öll framganga Vilhjálms í REI-
málinu er fyrir neðan allar hellur.
Og það er beinlínis absúrd sú til-
hugsun að hann eigi einhvern rétt á
því að verða aftur borgarstjóri eftir
eitt ár!
Hvað hefur hann unnið til þess?
Og meðal annarra orða – höktið
í Ólafi F. Magnússyni núverandi
borgarstjóra þegar hann var spurð-
ur um viðbrögð sín við skýrslu
Svandísar-hópsins benti nú ekki til
mikils skörungsskapar. Þeir Ólafur
F. og Vilhjálmur þrástagast báðir á
því að þeir muni ,,leggja sig alla
fram“, þeir muni ,,gera sitt besta“
og ,,láta verkin tala“. Það eigi ekki
og megi ekki gagnrýna þá af því
þeir muni ,,kappkosta“ að ,,vinna
fyrir borgarbúa“.
En ,,þeirra besta“ er ég smeykur
um að sé ekki nógu gott.
Enginn axlar ábyrgð
aIllugi Jökulsson skrifar um ,,stýrihóp“ Svandísar
Af hverju
mátti ekki
segja það?
REI-málið bar
vissulega öll
einkenni
laumuspils.
Það veit það hver einasti
kjaftur í borginni. Skýrsla
,,stýrihópsins“ gjaldfellur
ansi mikið við að ekki
skuli hafa mátt tala
hreint út.
,,Hvernig á maður að hafa
samúð með mönnum sem
gráta ekki nema þegar kemst
upp um þá?“