24 stundir - 09.02.2008, Side 41
24stundir LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 41
Mikilvægast er að hlúa hvort að öðru og gleyma því ekki að halda áfram að fara á stefnumót
að minnsta kosti einu sinni í viku og gefa sér tíma hvort fyrir annað, það er eitt af því sem
gleymist í hinu daglega amstri. Eins að horfa á það góða í makanum, þakka fyrir og hrósa
honum en þetta held ég að sé eitthvað sem Íslendingar eigi almennt erfitt með. Ef manni
finnst maður ekki hafa neinn tíma þá er góð hugmynd að skoða hvað maður eyðir t.d. mikl-
um tíma í að drekka kaffi á dag, það er tími sem mætti kannski spara í eitthvað annað. Að-
allega er það þó að einsetja sér að ætla að eyða kannski klukkutíma saman eitt kvöldið þegar
börnin eru sofnuð, séu þau komin til sögunnar. Það þarf að setja þetta inn eins og stunda-
skrá. Það er ekki hægt annað þegar hraðinn er orðinn jafn mikill og nú tíðkast. Það skiptir
ekki mestu hvað við gerum saman, jafnvel að þrífa heimilið saman gæti verið nóg. Að gera
eitthvað saman þarf ekki að kosta neitt svo lengi sem það er sett upp eins og stefnumót. Loks
er mikilvægt að taka tíma til að hlusta hvort á annað og reyna þá að skilja hvort annað en
ekki dæma. Gréta Jónasdóttir, fjöl-
skyldu- og hjónaráðgjafi.
Ekki gleyma stefnumótunum
Til að viðhalda ástinni þarf að hlúa að
henni jafnt og þétt og smátt og smátt enda
gerir margt smátt eitt stórt. Það er ekki
nóg að muna bara eftir konudeginum, Val-
entínusardeginum og afmælinu heldur þarf
maður að vera meðvitaður á hverjum degi
og þakklátur fyrir það sem maður hefur.
Fólk ætti ekki að taka ástinni sem sjálf-
sögðum hlut, hún er eins og blóm sem þarf
að vökva, klippa og snyrta. Ástin kemur
ekkert bara, heldur þarf að hlúa að henni.
Mér finnst tímaleysi ekki vera neitt vanda-
mál, fólk á alltaf til tíma ef vilji er fyrir
hendi. Það þarf ekki endilega alltaf að vera
langur tími, bara nógur til að senda sms
eða hringja í eina mínútu. Klukkutímarnir
eru til líka en þetta er allt spurning um
hvernig fólk forgangsraðar. Ég vona og
held ekki að fólk sé hætt að yrkja hvert til
annars þó það hafi eflaust minnkað. Ef-
laust er það orðið klassískt en sumum kon-
um kynni að þykja það hallærislegt, það fer
allt eftir því hver á í hlut. Ef semja á ljóð er
mikilvægast að það sé einlægt og jú, um
leið fallegt.
Stefán Máni
rithöfundur
Margt smátt
gerir eitt stórt
Mér finnst vera þrennt sem skiptir máli til
að hlúa að ástinni. Í fyrsta lagi er það að vera
saman og þá að hlusta á hvort annað, lifa sig
inn í hvað hinn er að segja og sýna um-
hyggju og efla samkenndina. Þetta þýðir t.d.
að fólk slökkvi á gemsanum þegar það fer út
að borða saman og láti hann ekki áreita sig. Í
öðru lagi er mikilvægt að setja sjálfum sér
mörk og leggja áherslu á að stoppa sjálfan sig
af og halda sér í skefjum. Leyfa sér ekki að
vera með ágengni eða vera viðskotaillur við
hinn af því að maður er ekki upplagður. Að
tala ekki bara um sjálfan sig og gleyma hin-
um skiptir máli fyrir báða aðila að geta gert.
Í þriðja lagi er að ef ágreiningur kemur upp
þá ætti fólk að reyna að sópa honum ekki
undir teppið og láta sem ekkert sé heldur
reyna frekar að finna lausnir. Í sambandi er
afskaplega gott að reyna að safna ekki saman
smáágreiningi og smámálum sem maður er
eitthvað ósáttur við. Til að eiga gott sam-
band þá er mikilvægt að festa sig ekki í
hversdagslegum atvikum eins og að einhver
hafi verið pirraður. Gerið ekki úlfalda úr
mýflugu heldur fyrirgefið smámál og látið
þau ekki standa í vegi fyrir sambandinu.
Álfheiður Steinþórs-
dóttir sálfræðingur.
Að halda sér
í skefjum
Til að hlúa að ástinni er hvað mikilvægast
að koma hvort öðru á óvart og halda þann-
ig við ákveðnum rómans í sambandinu og
eins að tala saman. Ef allt annað klikkar þá
er að kveikja á kertum og opna rauðvíns-
flösku. Talandi um að hlúa að ástinni þá
þarf maður að gefa sér tíma þar sem það
fylgir því að halda við sambandinu. Mér
finnst gamaldags rómantík ekki vera púkó
þó svo að hún sé hins vegar dauð. Hvar eru
ástarbréfin á tímum bloggsins? Nú sendir
fólk ástar-sms. Hvar eru ástarljóðin? Nú
bloggar fólk um skemmtistaðasleikinn um
helgina. Með þessu má álykta að róm-
antíkin sé ekki jafn háfleyg eins og hún var.
Á sama tíma ættu netið og sms að hjálpa
okkur í dag þegar margir kvarta undan því
að hafa engan tíma þar sem hægt er að ná í
hvern sem er hvenær sem er á auðveldan
hátt. Það er auðveldara að skrifa sms og
segja að maður sé að hugsa til einhvers
frekar en að skrifa bréf en að þessu leyti er
ástin kannski um leið kaldari. Það væri
kannski bara ráð að prófa að slökkva á
tölvunni og skrifa eitt gott bréf til ást-
arinnar í lífi sínu, mér fyndist það vera al-
veg við hæfi.
Höskuldur Sæ-
mundsson leikari.
Rómantíkin ekki
jafn háfleyg
Hvernig maður hlúir að ástinni? Með
byssu. Nei, nei ég segi nú bara svona. Það
gerir maður með alúð en samt temmileg-
um skammti af ofbeldi, þetta er svona sitt
lítið af hverju-hugmyndafræðin. Það er
ekki til að eiga ekki tíma fyrir ástina því
maður gefur sér alltaf tíma fyrir hana að
sjálfsögðu. Ég er lítið fyrir að yrkja ást-
arljóð og flytja þau sem slík. Þó kemur
maður nú stundum með gullkorn dagsins
þó það sé alveg óþarfi að skjalfesta þau sér-
staklega. Síðan er mikilvægt að muna eftir
merkisdögum og þá skrifar maður fallegt
kort til elskunnar. Ég hef ekki enn þá skrif-
að ástarlag en kærastan mín læðist alveg
inn í texta hjá hljómsveitinni Reykjavík! Ég
held að það gerist nú oft hjá tónlist-
armönnum og algengt að það gerist hjá
mér. Það kemur örugglega að því einn dag-
inn að ég semji sérstakt ástarlag og hver
veit nema ég sé búinn að því? Það er
kannski bara falið í undirmeðvitundinni
einhvers staðar.
Bóas Hallgrímsson,
söngvari og kennari.
Kærastan læðist
inn í texta
Hvernig hlúir mað-
ur best að ástinni
nú til dags?
Þegar allir eru á þönum í vinnu og skóla virðist stundum gefast
lítill tími til að huga að makanum. Þó er mjög mikilvægt að hlúa
vel að ástinni eigi hún að halda áfram að loga skært. Öðru hvoru
er því kastað fram að rómantíkin sé dauð en því vilja ekki allir
trúa. Nú er kalt í veðri og einmitt um að gera að kúra sig upp að
elskunni sinni undir teppi og hafa það notalegt með kakóbolla
eða vínglas. Hér skýra viðmælendur frá því hvernig þeir telja best
að hlúa að ástinni.
LÍFSSTÍLLSPJALLIÐ
lifstill@24stundir.is a
Hvar eru ástarljóðin? Nú
bloggar fólk um skemmtista-
ðasleikinn um helgina.