24 stundir - 09.02.2008, Qupperneq 58
Hæ hæ ...
Ég hef aldrei sent eitthvað
svona áður svo ég veit ekki alveg
hvernig ég á að byrja, en vinkona
mín er að ganga í gegnum voða-
lega erfiða tíma núna og hún var
rétt í þessu að segja mér að hún
hefði hugsað um að fremja sjálfs-
morð um daginn, og ég er virki-
lega hrædd um hana. Hún hefur
glímt við þunglyndi í svolítinn
tíma en aldrei leitað sér hjálpar.
Ég reyndi að segja eitthvað við
hana en ég kann ekki alveg á
þetta svo ég sagði henni að tala
um þetta við mömmu sína en
hún er smeyk við það og þá sagði
ég að það væri kannski sniðugt
að hafa samband við sálfræðing
eða einhvern ráðgjafa, en hún
á ekki mikinn pening svo það
er ekki í myndinni sagði hún.
Ég veit ekkert hvað ég á að gera og
ég vil reyna að hjálpa henni en ég
veit ekki hvernig.
Getur þú gefið mér einhver
ráð um hvernig ég ætti að hjálpa
henni?
Komdu sæl og þakka þér fyrir
fyrirspurnina
Sjálfsvígsatferli er öll sú hegðun
sem tengist þróuninni frá vægum
sjálfsvígshugsunum og sjálfsvígs-
tjáningu að sjálfsvígstilraunum og í
sumum tilfellum sjálfsvígum. Sjálfs-
vígstal ber ávallt að taka alvarlega
og mikilvægt er að einstaklingur
sem tjáir sig um slíkt atferli fái að-
stoð sérfræðinga sem sinna slíkum
tilfellum sem fyrst til þess að hægt
sé að grípa inn í þá þróun sem er í
gangi og koma í veg fyrir sjálfsvíg.
Það sem þú getur gert til að hjálpa
vinkonu þinni er að spyrja hana um
líðan hennar og þannig fá hana til að
tjá sig frekar um það. Hvettu hana
til að segja einhverjum nákomnum
fullorðnum einstaklingi frá hugs-
unum sínum, einhverjum sem hún
treystir og getur stutt hana í því að
leita sér aðstoðar sem allra fyrst. Þú
getur jafnvel boðist til að vera með
henni þegar hún segir nákomnum
frá líðan sinni, eða boðist til að gera
það fyrir hana.
Líklega óttast hún viðbrögð sinna
nákomnu og veigrar sér þess vegna
við að tala um líðan sína. Það er
mikilvægt að hafa samband við fag-
aðila í tilfellum sem þessum. Göngu-
deildir geðdeildanna bjóða upp á
bráðaþjónustu og þangað er hægt að
leita án þess að eiga pantaðan tíma.
Göngudeildin 31E við Hringbraut er
staðsett á 1. hæð í geðdeildarbygg-
ingu við Hringbraut og er opin kl
8:30 til 16:30 virka daga. Bráðaþjón-
ustan er opin kl. 8:30 til 23:00 virka
daga og kl.
13:00 til 21:00 um helgar og alla al-
menna frídaga. Símanúmer deildar
er 5434050. Einnig er hægt að leita
til sérfræðinga á borð við heimilis-
lækna, presta eða hringja í hjálpar-
síma Rauða krossins 1717, allt eftir
því hvað fólk getur hugsað sér að
gera. Mikilvægast er að hún leiti sér
aðstoðar sem fyrst og fái sérfræðing
til að meta ástand sitt hvort sem hún
gerir það á eigin vegum eða með að-
stoð nákominna ættingja eða vina.
Gangi þér vel með vinkonu þína
Kveðja
Sigrún Ása Þórðardóttir
Ráðgjafi hjá femin.is
Sæl og blessuð!
Mig langar svolítið til að for-
vitnast um hvernig klamydía
myndast? Er búin að vera í föstu
sambandi síðan í febrúar og var
að fá öll þessi einkenni fyrir um
mánuði. Ég aldrei fengið þetta
áður og hann hefur aldrei verið
smitaður ...
Sæl og takk fyrir að leita til femin.is.
Klamydía getur verið einkenna-
laus svo það getur vel verið að hann
hafi smitað þig án þess hreinlega
að vita af því. Einnig getur verið
að þú sért búin að vera með sýking-
una í einhvern tíma án þess að gera
þér grein fyrir því. Yfirleitt koma
þó einkenni fram 1-3 vikum eftir
smit. Ef sýkingin er ómeðhöndluð
getur viðkomandi smitað aðra. Við-
komandi aðili verður kannski ekki
var við sýkinguna, þar sem það er
eitt af einkennum klamydíunnar
að fólk, og þá sérstaklega konur
getur verið með mallandi sýkingu
nánast án einkenna í langan tíma
Klamydíu veldur sýkillinn
Chlamydia trachomatis. Smitleiðir
eru kynmök og bein snerting við
sýkt svæði (s.s. þvagrásarop karla og
kvenna og innri kynfæri kvenna).
Meðferð er sýklalyfjagjöf fyrir
báða aðila og engin kynmök fyrr en
að meðferð lokinni. Unnt er að draga
úr hættunni á smiti með því að lifa
ábyrgu kynlífi og nota smokka.
Gangi þér vel
Soffía – Ráðgjafi hjá femin.is
Hjörtur Magni
Jóhannsson,
fríkirkjuprestur,
fæddur 18.04.1958
Guð er óháður kirkjustofnunum og trúarbrögðum.Guð er í þér
YFIRLÝSINGIN
Árvakur/Frikki
Hvernig smitast klamydía?
Sjálfsvígshugsanir
LIGGUR Á HJARTA
Sendið fyrirspurnir á netfangið: femin@femin.is – Merkt: Fyrirspurn til ráðgjafa vegna 24 stunda
Ég er 18 ára stúlka, frekar lítil
eða 155 cm og er núna 49 kg og er í
vandræðum með mataræðið. Þetta
byrjaði allt þannig að þegar ég var
13 ára greindist ég með flogaveiki
og veiktist mikið og varð að fara á
lyf. Ég var frekar feit þegar ég var
13 en svo þegar ég fór að taka lyfin
(Topimax) þá grenntist ég niður í
45 kíló. Það er komið eitt ár síðan
ég hætti á lyfjunum og ég er hrædd
um að ég muni þyngjast meira. Ég
er að svelta mig yfir daginn og svo
á kvöldin borða ég mikið af mat
sem er óhollur og svo líður mér
ógeðslega illa og reyni að kasta
upp. Hvað á ég að gera?
Takk, ein í vanda.
Sæl, kæra ein í vanda.
Mér heyrist að þú eigir í vanda
með mataræði þitt og hugsanlega
ertu að þróa með þér átröskun.
Það eru ekki góðar fréttir. Leitaðu
þér hjálpar áður en vandinn verður
erfiðari viðfangs.
Ef til vill er nóg fyrir þig að
fá leiðbeiningar um hvað er
eðlilegt mataræði, t.d. hjá Lýð-
heilsustofnun eða hjá heilsugæsl-
unni þinni og láta reyna á það
En mig grunar að það gæti verið
gott fyrir þig að fá meiri stuðning
vegna hugsanlegrar matarfíknar og
átröskunar.
Ég hvet þig til að leita þér aðstoðar
Hjá MFM-miðstöðinni (meðferðar-
og fræðslumiðstöð vegna matar-
fíknar og átraskana) getur þú fengið
greiningu á ástandi þínu og leiðbein-
ingar um leiðir til bata. Þar er einnig
hægt að taka þátt í einstaklingsmið-
uðu meðferðarprógrammi og stuðn-
ingi, www.matarfikn.is.
Nokkrir aðrir aðilar og samtök
sem veita stuðning við þessum
vanda: GSA 12 sporasamtök, OA 12
sporasamtök, ABA 12 sporasamtök
Spegillinn og Forma samtökin.
Bestu kveðjur
Esther Helga
Ráðgjafi hjá femin.is
Ein í vanda
58 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 24stundir
Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is
Hjá okkur fáið þið mikið úrval af
kerrum og vögnum fyrir börnin
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Vallý s.510 3728
Böddi s.510 3726
ÐI
Ð
ALB
U
N
NI
VTA atvinna@24stundir.is
PANTIÐ
GOTT
PLÁSS
Í TÍMA