24 stundir - 09.02.2008, Blaðsíða 60
60 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Heil sautján prósent að-
spurðra vilja að leikið verði
annars staðar en í helstu stóborg-
um ef af hugmyndinni verður.
Sú hugmynd að leika einaumferð eða svo í enskuúrvals-
deildinni utan
breskra land-
steina fer fyrir
ofan garð og
neðan hjá
boltafræð-
ingum og
aðdáendum. Helstu rökin á
móti eru meira álag á leikmenn
og svindl gagnvart enskum
aðdáendum. Verður málið rætt
ítarlega næstu mánuði en loka-
ávörðun tekin í vor eða sumar.
Tvö þúsund manns fögn-uðu ákaft þegar sókn-ar-
maskínan bras-
ilíska Afonso
Alves var
kynntur til
leiks sem leik-
maður Middl-
esbrough.
Læur nærri að það séu jafn-
margir og sækja heimaleiki
liðsins sem dólar jafnan metn-
aðarlaust um miðja deild. Finni
Alves sig strax gæti það loks
breyst.
Skoðanakönnun sem kata-lónska dagblaðið Per-íodico
stóð fyrir sýnir
merkilegar nið-
urstöður. Kem-
ur í ljós að
fleiri íbúar
þessa hlutar
Spánar þekkja
til afreka Leo Messi en Ronald-
inho hjá Barcelona. Að lík-
indum einn angi heiftar stuðn-
ingsmanna í garð
Brasilíumannsins sem þykir
vera þungur á fóðrum pen-
ingalega en þunglamalegur í
búningi Börsunga.
Ef draumar Kevin Keeganrætast mun ThierryHenry
snúa aftur til
Englands strax
í sumar og
finna sig knú-
inn til að leika
listir sínar í
búningi New-
castle. Ljóst er að hinn krullótti
Keegan er aðeins úr takt við
raunveruleikann enda Henry að
missa sig yfir ánægju í landi
Katalóna samkvæmt fjöl-
miðlum og ekki á förum.
Það tók Mohamed Sissokoaðeins andartak að fretayfir
gamla félaga
sína eftir að
hann gekk til
liðs við Juven-
tus frá Liver-
pool. Sagðist
hann engan
veginn skilja Rafa Benítez enda
hafi öllum verið ljóst að hann
hafi verið betri leikmaður en
Javier Mascherano.
Sissoko á annars einhverjahrapallegustu lygasöguleikmanns á Spáni þegar
hann laug því
hjá Valencia að
hann þyrfti frí
til að spila vin-
áttuleiki með
landsliði sínu
og fór rakleitt á
næsta lúxusferðamannastað og
naut lífsins með konum og vín-
um.
Minnst tvær stórar vefskoðanakannanir sem
gerðar hafa verið í Englandi, síðan hugmyndir
Knattspyrnusambands Englands um útflutning
á enska boltanum frá árinu 2011 voru gerðar
ljósar, sýna að þeir sem eru þeim fylgjandi telja
að flestir leikjanna ættu að fara fram í Bandaríkj-
unum.
Sem kunnugt er er hugmyndin að borgir
heimsins geti boðið í hvern og einn leik en lík-
legt er þó að það verði með þeim formerkjum að
tveir slíkir fari fram í hverju landi fyrir sig. Er
hugmyndin að styrkja útbreiðslu enska boltans
enn frekar en hann er nú þegar langvinsælasti
fótbolti heims og hefur verið lengi.
Dúbaí fær einnig stóran plús sem vettvangur
enska boltans en 15 prósent aðspurðra vilja að
leikið verði þar en heil 17 prósent vilja sjá leiki
annars staðar en í helstu stórborgum.
Mjög deildar meiningar um útflutning ensku úrvalsdeildarinnar
Bandaríkin ættu að fá flesta leiki
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Sé einhver leggur heimsmeistara-
keppninnar í rallakstri skemmti-
legri áhorfs en aðrir tekur sænska
rallíið það skuldlaust. Ekki aðeins
er jafnan snjór og hálka á keppn-
isleiðunum heldur fer stór hluti
þeirra fram á malarvegum en slíkir
eru einmitt veikleiki margfalds
heimsmeistara Sebastien Loeb frá
Frakklandi. Hann er þó ekki
heimsmeistari fyrir ekki neitt og er
ennþá eini rallökumaður utan
Norðurlandanna sem unnið hefur
þetta rall.
Ballið byrjar illa
Ballið byrjaði reyndar afleitlega
fyrir Frakkann. Vélartruflanir
gerðu vart við sig strax á fyrsta degi
og hann tók lítið þátt í gær en regl-
ur WRC eru mjög skýrar varðandi
þann tíma sem nota má til við-
gerða meðan á rallinu stendur.
Dugði sá tími ekki til og dró Loeb
sig úr keppni en ekki var orðið ljóst
þegar 24 stundir fóru í prentun
hvort hann tæki þátt áfram um
helgina.
Finnar fljúga
Þótt grimmasti keppinautur
Loeb síðustu árin, Marcus Grön-
holm, horfi nú á í sjónvarpi með
kaffi og kleinur er annar Finni
kominn í hans stað í Svíþjóð. Að
loknum sex sérleiðum var Jari-
Matti Latvala með góða forystu en
20 áfangar verða eknir þangað til
seinnipart sunnudags. Hinn 23 ára
Latvala hefur aldrei unnið rall-
keppni en hefur þó keppt síðan
2002 fyrir Ford.
Hægt er að fylgjast með stórum
hluta sænska rallsins beint á sjón-
varpsrásum Eurosport.
Heja Sverige!!! Áhorf á sænska
rallið er gríðarlegt á sænska vísu
enda með skemmtilegustu leggj-
um heimsmeistarakeppninnar.
Skandinavar
gegn Sebastien
Hópur norrænna rallökumanna ætlar að tryggja að Sebastien
Loeb vinni ekki sænska rallið um helgina Er Frakkinn eini „út-
lendingurinn“ sem það hefur gert en aðeins einu sinni
1. Jari-Matti Latvala
2. Mikko Hirvonen
3. Henning Solberg
4. Gigi Galli
5. Petter Solberg
EFTIR 7. SÉRLEIÐ
Loeb Kannski alveg úr leik
Latvala Fyrsti sigurinn?
Birgir Leifur Hafþórsson fell-
ur jafnt og þétt niður pen-
ingalista evrópsku mótarað-
arinnar enda ekkert spilað nú
um tíma og tekur ekki upp
kylfur á ný á móti fyrr en í
næsta mánuði. Þangað til æfir
hann stíft, meðal annars undir
landsliðsþjálfara Íslands Staff-
an Johanson. Situr Birgir nú í
sæti 214 en alls eru 244 kylf-
ingar á þeim lista. Þó er ein
stórstjarna sem er neðar en
Birgir. Það er hinn nýsjálenski
Michael Campbell sem situr í
sæti númer 230.
214
Meistaramót Íslands í frjáls-
um íþróttum hefst í dag í höll
Laugardals en þar keppa
þrettán félög sín á milli í öll-
um helstu greinum. Allir stór-
vesírar frjálsra íþrótta taka
þátt nema stangarstökkvarinn
Þórey Edda Elísdóttir sem sit-
ur hjá í þetta skipti og tug-
þrautarmaðurinn, Sveinn Elí-
as Elíasson, sem er meiddur.
Glymur í höll
Sagan mun sýna að sú ákvörð-
un að halda Ólympíuleika í
Kína var hárrétt. Þetta eru
svör nefndarmanna innan Al-
þjóðlegu ólympíunefnd-
arinnar en gagnrýni fer
harðnandi á þá fyrir að veita
harðstjórn með flekkaðan
mannréttindaferil stærstu
íþróttaleika heimsins.
Sögukennsla
Hartnær tvö hundruð kepp-
endur eru skráðir til leiks á
fjölmennasta karatemóti árs-
ins Íslandsmóti barna. Fer
keppnin fram í íþróttahúsi
Smárans í Kópavogi á morgun
og stendur frá kl. 10 til 14.
Keppt verður fyrsta sinni eftir
flaggakerfi og engin stigagjöf
eins og venjan er.
Stóra stundin
SKEYTIN INN