24 stundir - 09.02.2008, Page 66
66 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 24stundir
Ég er með blautt meik frá Chanel sem ég er virki-
lega ánægð með og nota mikið. Einnig er ég með
létt sólarpúður frá Guerlain til þess að fá smá blæ á
andlitið og síðan nota ég
maskara frá Chanel. Ég
farða mig ekkert rosalega
mikið yfirleitt, en þegar ég fer eitthvað sérstakt þá
kannski nota ég smávegis augnskugga, varalit eða
annað til þess að breyta til.
FÖRÐUN
Þessar buxur keypti ég á Spáni fyrir tveimur árum.
Ég fékk þær í verslun sem heitir Breskha og er í
Barcelona. Ég nota þær rosa-
lega mikið og get með sanni
sagt að þetta séu uppáhalds-
buxurnar. Þær eru líka rosalega góðar upp á það að
gera að ég get notað þær við hvað sem er, hvort
sem það er fyrir hversdagsleg tilefni eða þegar ég
fer eitthvað út á lífið. Svo er maður bara duglegur að
breyta til og finna eitthvað nýtt við þær.
BUXUR
Ég er í hvítum skóm sem ég keypti í versluninni Glamúr. Ég fékk mér þá
fyrir brúðkaupið hans pabba síðasta sumar og hef notað þá slatta mikið
síðan. Þeir eru með svona pínu hæl, svona frekar fínir, og
ég er alveg rosalega ánægð með þá. Annars er ég frekar
mikil skókona og hef gaman af því að klæða mig í alls-
konar skó. Svo er ég dugleg að breyta til og prófa eitthvað nýtt.
SKÓR
Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur
halldora@24stundir.is
„Ég myndi segja að ég væri með látlausan og einfaldan fatastíl. Ég
er allavega ekkert rosalega upptekin af fötum þó svo að mér finnist
að sjálfsögðu gaman að kaupa föt,“ segir Ford-fyrirsætan Fríða
Sóley Hjartardóttir aðspurð um eigin fatastíl. Enda þótt fyrirsætan
sé ekki hið týpíska fatafrík kveðst hún fylgjast með tískunni og
glugga í tískublöðin endrum og eins.
„Ég skoða blöðin og reyni svolítið að fylgjast með því sem er í
gangi. Og auðvitað spái ég í hverju ég klæðist, enda vill maður
kannski ekki líta út eins og drusla. Annars er
fatastíllinn minn ekkert mikið í eina áttina – ég
er eiginlega hálfgerð blanda af öllu. Ég til dæm-
is fíla bæði vintage flíkur úr Spútnik og öðrum slíkum verslunum,
en líka þessu ,,venjulegu“ föt. Ef ég á að nefna eitthvað eitt sem er
helst einkennandi fyrir mig þá er það svona hversdagslegur klæðn-
aður eins og gallabuxur, bolur og hettupeysa,“ segir Fríða.
Hefur aldrei farið í ljósabekk
Að mati Fríðu er grundvallaratriði að hugsa vel um húðina og
þrífa andlitið kvölds og morgna. Hún segir algerlega ótækt að nota
flottar förðunarvörur og kappkosta að gera sig fína ef húðin er
ekki í góðu ásigkomulagi.
„Ég er mjög dugleg við að hugsa um húðina á mér. Ég reyni að
halda henni hreinni og fínni og tek því alltaf málninguna af mér
áður en ég fer að sofa á kvöldin. Þetta skiptir langmestu máli og
manni líður rosalega vel ef húðin er í góðu standi,“ segir fyr-
irsætan og bætir því við að hún kunni best við sinn náttúrulega
húðlit.
„Ég nota eiginlega aldrei brúnkukrem og ég hef aldrei farið í
ljós. Ég bara finn enga þörf til þess að fara í ljós þó svo að ég sé
með frekar ljósa húð. En ég þigg auðvitað sólina þegar ég fer til
sólarlanda og þá kannski tekur maður einhvern lit. Reyndar er ég
líka með svo rosalega mikla innilokunarkennd að ég gæti hreinlega
ekki farið í ljósabekk án þess að skjálfa úr hræðslu. Kannski það sé
bara ástæðan fyrir því að ég hef aldrei farið!“ segir Fríða áður en
hún kveður með sínum helstu fegrunarráðum.
„Ég er nú enginn snillingur í fegrunarráðum, en ég mæli ein-
dregið með því að drekka mikið vatn og hugsa eins vel um húðina
og mögulegt er. Svo auðvitað skiptir mataræði mjög miklu máli.“
Ford-fyrirsætan Fríða Sóley leggur
mikið upp úr umhirðu húðarinnar
Hugsar
vel um
húðina
Fyrirsætan Fríða Sóley Hjartardóttir er frem-
ur jarðbundin í fatavali. Umhirða húðarinnar
skiptir sköpum að hennar mati og ljósabekkj-
anotkun er algerlega óþörf. Þá segir hún
vatnsdrykkju vænlega til vinnings fyrir þær
sem vilja líta vel út.
Í MYND
Eyrnalokkana sem ég er með fékk ég frá einni af bestu vinkonum
mínum í jólagjöf. Ég held alveg rosalega mikið upp á þá og hef not-
að þá mjög mikið. Ég held
að hún hafi keypt þá í
versluninni Gyllta kett-
inum, en það er einmitt gylltur köttur á þeim, sem mér finnst mjög
smart. Mér þykir allavega voða vænt um þessa eyrnalokka og þeir
eru í miklu uppáhaldi. Algjörlega með þeim flottustu sem ég á af
svona skarti og glingri.
EYRNALOKKAR
24TÍSKA
tiska@24stundir.is a
Ég nota eiginlega aldrei brúnkukrem og ég hef
aldrei farið í ljós. Ég bara finn enga þörf til þess
að fara í ljós þó svo að ég sé með frekar ljósa húð.
Laugaveg 80 - S: 561 1330
www.sigurboginn.is
Sundbolir og
bikini frá
upplysingar
Kolbrun S.510 3722
Kolla@24stundir.is Kata@24stundir.is
Katrin s.510 3727
Serblad 24 stunda tiska
Núna tók ég hárið upp og aðeins frá andlitinu. Ég geri svolítið mik-
ið af því, en annars er ég með hárið slegið. Það fer í rauninni bara
eftir því hvernig ástandið er á hárinu hverju sinni og
auðvitað skapinu. Svo skipti ég um klippingu ef ég
verð leið á hárinu. Annars er ég alltaf með sama lit-
inn, bara lítið af strípum, og breyti því eiginlega aldrei.
HÁR
Skokkinn sem ég er í keypti ég núna nýlega í versl-
uninni Urban Outfitters þegar ég var í New York. Ég
er þvílíkt ánægð með
hann þó svo að ég hafi
kannski ekki notað
hann neitt rosalega oft ennþá. Ég er voða hrifin af
svona skokkum og nota þá við gallabuxur, leggings
eða bara hvað sem er. Ég er allavega alveg pottþétt
á því að ég eigi eftir að nota þennan mikið við alls-
konar tilefni.
SKOKKUR