Morgunblaðið - 25.11.2004, Page 14
14 helgin
Undirrituð er komin með afar mikinn leiða á þessu
ítalska æði sem hefur tröllriðið matarmenningu hér
á landi síðustu ár … Hvergi er hægt að þverfóta
fyrir pestó, ólífum, pasta og sólþurrkuðum tómötum
hvort sem það er í brauðum, blöðum eða á íslensk-
um matseðlum. Svo er eins og meirihluti reykvískra
veitingahúsa geti ekki heitið neinu nema ítölsku
nafni … Má ég biðja um meiri hugmyndaauðgi, takk!
Fyrst hér á landi er enginn grískur veitingastaður né
líbanskur, hvað þá japanskur eða færeyskur, er best að snúa sér alveg í
hring og að alvöru íslenskri matargerð og rifja upp hvernig á að búa til
saltfiskbakstur, sviðasultu eða krækiberjasaft, grautarlummur og heitar
hangikjötsrúllur … mmm. Uppskriftir af þessum dýrindisréttum má finna
í hinni sígildu og dásamlegu matreiðslubók Mat og drykk eftir Helgu
Sigurðardóttur sem upprunalega var gefin út árið 1947. Finna má
endurútgáfur bókarinnar í góðum bókabúðum eða á fyrirmyndar-
heimilum …
Keypti nýverið hljómdiskinn Út um græna grundu –
Vísur úr Vísnabókinni og rifjaði upp gamlar eftir-
lætisstundir þegar lítil eyru hlustuðu á þessa plötu í
gríð og erg fyrir framan stóra hátalara á loðnu
stofugólfi … Þarna er bara eitthvað svo bjart yfir
röddum Björgvins Halldórssonar og Ragnhildar
Gísladóttur þegar þau syngja sígild íslensk vísnalög.
Svo gerir fagur kórsöngurinn og fallegar lagaútsetn-
ingar þennan hljómdisk að klassískri eign barna á
öllum aldri …
Myndin Stúlkan með perlueyrnalokkana (Girl with a
Pearl Earring ) í leikstjórn Peters Webbers fjallar um
tilurð samnefnds málverks hollenska listmálarans
Johannesar Vermeers sem var uppi í Hollandi á 17.
öld. Myndin er algjört konfekt fyrir augun þar sem
kvikmyndataka og lýsing ramma næstum fullkomle-
ga inn stemmninguna sem má sjá í málverkum
Vermeers. Söguþráðurinn fjallar um samband
málarans og þjónustukonunnar, sem leikin eru af
Colin Firth og Scarlett Johansen, er verður sífellt
innilegra. Framvindan er mjög hæg og fyrir suma of hæg. Scarlett fékk
lof fyrir frammistöðuna en mér finnst Judy Parfitt standa sig best af
leikurunum.
Rósa Björk
❊ lesið, hlustað og horftHljómsveitin Beach-Boys hélt tónleika í Laugardalshöll sl. helgi.
Margt var um manninn og hér eru nokkrir glaðir gestir.
Nánar í næsta banka, sparisjóð eða á www.kreditkort.is
Draumaferðin í boði MasterCard®
Færð þú 500.000 króna MasterCard ferðaávísun?
Anna, Kata og Sara, ágúst ‘05. Stelpurnar mála bæinn rauðan.