Sunnudagsblaðið - 30.08.1964, Page 6

Sunnudagsblaðið - 30.08.1964, Page 6
í Smásaga eftir Maxim Gorki NIÐUR þorpsgötuna, fram hjá hinum hvítleitu leirkofum þess, barst hópur fólks, sem æpti og gólaði. Fylkingin seig hægt áfram eins og gríðarstór alda og fremst í henni staulaðist kláðug húðar- bikkja með lotið höfuð. í hvert sinn sem hún lyfti öðrum fram- fætinum, lét hún höfuðið síga eins og hún væri að, því komin að faila og grafa snoppuna í göturykið, og þegar hún lyfti afturfæti, seig bakhlutinn eins og við lægi, að stór líkaminn hlunkaðist niður á rassinn. Ung stúlka, ekki miklu eldri en tvítug, afar smávaxin og allsnak- in, var bundin um úlnliði við vagninn. Hún reikaði í spori út á við til hliðar og hnén á henni skulfu og virtust þá og þegar mundu láta undan, höfuð hennar var nær hulið dökku, flaksandi hári og skein í galopin augun, sem störðu út í loftið með stjörfu augnaráði. Líkami hennar var þakinn bláum og rauðum svipu- rákum, vinstra brjóst hennar, svo undur mjúklegt meyjarbrjóst, hafði verið sært, og vall nú úr því blóðið. bað myndaði rauða línu, sem lá yfir maga hennar og yfir vinstra lærið að hnénu, og kálf- ar hinna mjúklegu leggja voru at- aðir auri. Það var engu líkara en allur líkami hennar væri sundur- tættur. Og án efa hafði verið troð- ið á kviði henar með stígvéluðum fæti, svo hræðilega bólginn og blár var hann. Konan átti fullt í fangi með að staulast eftir götunni. Það var blátt áfram furðulegt, að hún skyldi komast úr sporunum, svo illa var hún útleikin. Það var líka undarlegt að hún skyldi ekki þá og þegar falla til jarðar og halda áfram för sinni skríðandi á fjór- um fótum. Hár og karimannlegur maður stóð í vagninum og keyrði konuna og hestinn sporum. Hann var í hvítri rússneskri treyju og með Astrakhan hatt, og undan hattinum gægðist skærrauður lokkur, sem féll fram á ennið. í annarri hendi hélt hann beizlis- taumunum en í liinni svipu, sem hann beitti háttbundið til skipt- is á hestinn og konuna. Augu hans voru heiftúðug og blóðhlaup- in en þó var í þeim einhvers kon- ar sigurglampi, hárið varp á þau grænni slikju. Treyjuermarnar voru brettar upp, svo að skein í vöðvaberan handlegginn þakinn rauðri ló. Munnur hans var opinn, svo að tveir skjannahvitir tanngarðar komu í ljós, og öðru hverju hvæsti hann rámri röddu: „Hana. Þetta skaltu hafa, hór- an þin. Ha-ha. Og þetta líka.“ Á eftir konunni og vagninum kom múgurinn — öskrandi, flissandi, flautandi og gólandi. Hér og þar skutust krakkaang- ar. Af og til hljóp eiflhver út úr ópnum og æpti svívirðingar að hinni lilekkjuðu konu. Svo fór allur skarinn að hlæja, þeg- ar svipuhvinurj(nn skar loftið. Andlit kvennanna í hópnum báru vott um vakandi athygli, og augun skutu gneistum af villtum fögnuði. Og karlmenn- irnir hrópuðu klæmnar athuga- semdir að vagneklinum. Þá sneri hann sér við, hló hátt og lét skína í hvítar tennurnar. Og sjald an var þess langt að bíða að hvinur svipunnar kvæði við. Löng og mjó vafðist ólin um grannvaxinn líkamann og greiddi honum högg á síöurnar. Allt i einu kippti ekillinn í svipuna og konan féll aftur yfir sig á göt" una. Múgurinn byrgði um stund alla sýn, er hann þusti að og laut yfir konuna. Hesturinn nam staðar en andar taki síðar lagði liann af stað mcð hausinn undir sér og kon- una í eftirdragi. Og þar sem klárinn siluðist ófram var eins og hann segði við sjólfan sig: ,,En það ógnarhlutskipti vera hross og láta fólkið nota sig til slíks og þvílíks.“ Og himininn, Suðurhimininn, var heiður og liár. Þar sást ekki skýhnoðri og sólin fór eldi um allar jarðir...... Það, sem ég hér hefi sagt ykk' ur fró, er ekki neitt afkvtemi ímyndunaraflsins. Nei, því er nu verr og miður. Ég hefi ck!cl spunnið það upp. Athöfnin nefn- ist ,,uppljóstrun“ og er gjarn' an beitt af reiðum eiginmönn- um, er refsa vilja konum s,n' um fyrir ótryggð. Þetta er mynd af lífinu sjálfu: tekin af einni af siðvenjum okkar, er ég val , áhorfandi að hinn 15. júlí l8^1 1 Kandybovka-þorpi, Kherson Gubernia Nikolayevsky-héraði- Ég hafði heyrt það í Volga' héraðinu, þaðan sem ég kom, a ótrúar eiginkonur væru af h®11 um sínum tjargaðar og fiðraðai. Og ég vissi, að eiginmenn °e tengdáfeður refsuðu hrösuðum konum með því að bera á Þ&1 síróp í sumarhitanum og binöa þær þvíhæst við tré, þar scl^ skorkvikindum gafst svo 6° tækifæri til að afla sér mli®' Ég hafði líka heyrt því f!e^® ’ að slíkar konur væru bundna' og færðar maurum. En nú hef ég með eigin aUf um orðið vottur þess, að slíkn hlutir gef-ast V.Vunverulega a meðal illa upplýsts og miskunn^ arlítils fólks, sem hörð líf á(t>ta. hefur gert að tgfr^njan villidýrum í mannsmynd. 606 SUNNUDAGSBLAÐ - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.