Sunnudagsblaðið - 30.08.1964, Side 9

Sunnudagsblaðið - 30.08.1964, Side 9
HANneS JÓNSSON, fyrrverandi kaupma'óur, fæddist að' Þór- eyjarnúpi í Linakradal í Vestur-Húnavatnssýslu 26. maí 1892. í’aðir hans var Jón Hansson bóndi og kaupmaður, en Jón var s®nur Hans Nathanssonar Ketilssonar og var Nathan Ketilsson ^v* Iangafi Hannesar. Hannes Jónsson ritaði athyglisverða grein Utn aettmenn sína í Alþýðublaðið um jólaleyti'ð í fyrra og vakti htin töluverða athygli. Langt viðtal við Hannes Jónsson birti S. Vilhjálmsson í bók sinni „Við, sem byggðum þessa bore“ árið 1957. Hér á eftir segir Hannes Jónsson frá æskudögum sínum og ^ennir þar margra grasa. Æskudagar i Húnaþingi - ★ GOTT VEGANESTI. Eitt af því fyrsta, scm ég man eftir, var að' mér var kennt að signa mig, og það varð ég að gera . rétt. Þá voru kenndar bænir, sem ég átti að lesa, og þó ég hefði þær ekki alveg réttar, þá gerði það minna til. Þær voru Guðsorð samt. Svo var mér sagt að afneita djöfl- inum og öllu hans, en varast að nefna hann réttu nafni, það gæti verið hættulegt. Maður var nógu __ slæmur samt, og í nógri hættu, þó maður kallaði ekki á óvininn mcð nafni. Mér var sagt, að ég ætti að bcra virðingu fyrir prestinum, því hann væri Guðs þjónn, en forðast aðra embættismenn. Þcir gætu vcr ið hættulegir. Þá var mér sagt, að ég ætti að hata Dani og fyrirlíta Skagfirðinga, en jafnfranjt varað- ur við því, aö þeir þarna i austur- sýslunni væru trúlausir, réttara sagt guðleysingjar, svo væru þeir montnir og eiginlega ekkert betri en Skagfirðingar. Og loks var mér kennt að þekkja stafina í nýja- . testamentinu og kvcða að. Það gekk ólukki stirt í ættartölu Davíðs konungs. Ég var námfús og spm-ði margs, og svörin gefin eftir beztu vitund. Það var trúað fólk í vestur-sýsl- unni, og vildi uppfræða börnin á þjóðlegan hátt og í kristlegum anda. ★ BLESSUÐ RJÚPAN IIVÍTA. Ég var ársgamall, þegar ég flutt- ist frá Þóreyjarnúpi fram aö Vatns hóli, sem er næsti bær. Þar var ég í þrjú ár. Ég var oft svangur og grét, cn blessuð mamma hafði allt af einhver ráð. Hún svelti sig til að seðja okkur börnin, og oft held ég hún hafi drukkið kaffið sykur- laust, til að geta gefið mér kandís- mola. Það eijia markvert, sem ég man eftir frá þessum árum, var þegar rjúpan flaug inn í bæjar- dyrnar, í flótta undan valnum, sem lenti á bæjarburstinni. Ég var þá á fjórða.ár og ætlaði fram í eldhús til mönnnu, sem var að baka flat- brauð, en álpaðist fram i bæjar- dyrnar og þá skall rjúpan niður við fæturna á mér. Ég fór að há- ALÞÝÐUBLAÐIS - SUNNUDAGSBLAÐ gQ9

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.