Eintak - 30.03.1994, Síða 7
VAGNHÖFÐA 11, REYKJAVÍK, SÍMI 685090
Gunnar Árnason í Mynd- og hand © Steingrímur auðgast í ellinni O
Njarðvíkingar ölkcerir gagnvart Budweiser O Alþingi gegn verslunarfrelsi með bruggtœki
© Bogomil lét gestina bíða meðan Öreigarnir lœrðu prógrammið
STEINGRÍMUR HERMANNSSON
mun hækka verulega í
launum ef hann hreppir
stól Seðlabankastjóra. Núverandi
laun hans sem alþingismaður eru
um 178 þúsund krónur en eftir-
laun hans sem þingmanns og
ráðherra yrðu um 180 þúsundir
króna. Föst mánaðarlaun hans
fyrir starf Seðlabankastjóra yrðu
um 335 þúsund en við það bæt-
ist risnukostnaður upp á rúmlega
15.000 krónur á mánuði. Að auki
hlyti Steingrímur bíl að eigin vali
fyrir 3 milljónir króna og bílastyrk
að upphæð 300 þúsunda króna
á ári. Þar með er ekki allt upp tal-
ið því Seðlabankastjóri fær
greiddan ferðakostnað og dag-
peninga eins og aðrir ríkisstarfs-
menn og rúsínan í pylsuendanum
eru síðan full laun sem greidd eru
fyrir 13. mánuð ársins...
þ
■ u
m
. eir sem horfðu
^síðasta laugardag á beina
útsendingu frá
leik Njarðvíkur og
Keflavíkur í úrslita-
keppni úrvalsdeild-
arinnar í körfubolta
komust tæplega hjá
því að veita athygli
risastórum borða á
veggnum gegnt sjónvarps-
myndavélinni þar sem á var letr-
að nafn bjórtegundarinnar Bud-
weiser. Það er alþekkt að áfeng-
isauglýsingar eru bannaðar á ls-
landi og hefur sjaldan verið brot-
ið jafn gróflega gegn því banni
eins og í íþróttahúsi Njarðvíkur...
Stríð lögreglunnar við
bruggara hefur nú borist
inn í sali Alþingis. Eins og
kunnugt er af fréttum er hér oft
um sömu einstaklinga að ræða
sem fást endurtekið við þessa
iðju þrátt fyrir að framleiðsla
þeirra og tæki séu ítrekað gerð
upptæk af lögreglunni. Sam-
kvæmt núgildandi lögum er
heimilt að framleiða og selja
bruggtæki en í frumvarpi um
breytingar á áfengislöggjöfinni
sem ætlunin er að leggja fyrir
þingið verður bannað að eiga,
flytja inn, útbúa eða smíða sér-
hæfð áhöld til að eima áfengi.
Vegna vaskrar framgöngu lög-
reglunnar hefur verslun með
bruggtæki verið einn af vaxtar-
broddum atvinnulífsins en ef
frumvarpið verður samþykkt má
búast við að þessi frjóangi einka-
framtaksins verði kæfður í fæð-
ingu...
tangveiðifélag Reykjavíkur
hélt árshátíð sína í Perlunni
fyrir nokkrum vikum sem
endaði með leiðindum og
óánægju margra gesta, eins og
kunnugt er. Eitt kvörtunarefn-
anna var hve lengi Bogomil
Font, alias Sigtryggur Bald-
ursson, lét veislugesti bíða
eftir sér. Það hefur ekki komið
fram áður að þeir veiðimenn
pöntuðu Bogomil með Milijóna-
mæringunum og létu þess sér-
staklega getið að þeir vildu ekki
fá Pál Óskar Hjálmtýsson til
að syngja, en eins og allir vita tók
hann við sönghlutverki Bogomils
með Milljónamæringunum þegar
sá síðarnefndi hvarf af landi brott
til Bandaríkjanna. Sigtryggur
óskaði eftir því við sína gömlu fé-
laga að spila með sér á ballinu
en þeir neituðu því á þeim for-
sendum að Páll Óskar og Millj-
ónamæringarnir væru einn pakki
og hann gæti ekki bókað þá með
sér í gegnum símann frá Banda-
ríkjunum. Sigtryggur neyddist því
til að smala saman í hljómsveit,
sem fékk nafnið Öreigarnir, og
æfa hana upp á nokkrum dög-
um. Ástæðan fyrir því að þeir létu
bíða svona lengi eftir sér var ein-
faldlega sú að vegna tímaskorts
voru þeir aðeins búnir að fullæfa
fá lög...
Bjarni Daníelsson skóla-
stjóri Myndlista- og hand-
íðaskólans mun taka við
embætti forstöðumanns Nor-
ræna menningarsjóðsins 1. apríl
næstkomandi. Menntamálaráðu-
neytið hefur ekki auglýst stöðuna
lausa til umsóknar og þegar eru
menn í myndlistarheiminum farnir
að velta fyrir sér væntanlegum
kandídötum. Nafn Gunnars
Árnasonar myndlistargagnrýn-
anda Pressunnar er þar efst á
lista en einnig hefur heyrst að
myndlistarmaðurinn Hannes Lá-
russon hafi áhuga á embætt-
inu...
HékB
TILBOÐIÐ?
Dansleikur um helgina frá 22-3.
DÚNDRANDI STUÐ
Miðaverð kr. 800
Miða- og borðapantanir í
símum 685090 og 670051
VISA
Tilkynning frá Worldl Class:
Gestakennari frd New York
Höfum fengiö frábæran aerobickennara
frá New York, Derek Clark.
Sjón er sögu ríkari.
Skólafólk
og gotfarar
athugið!
Viö veitum námsmönnum
og golfurum
afslátt
gegn framvísun
skírteinis.
fyvíl MÁÍt Mrfrhý
Deildarmeistarar Hauka 1994
LJÓSMYNDASTOFAN
HUGSKOT • ÁRTÚNSHOLTI
688044 • NETHYL 2 • 110 RVK
Fjölskyldu
Barna
Fermingar
Brúbar
Myndir
Kynningarafsláttur
á stúdíó myndatökum
Áöur 10.000 kr. nú 7000 kr.