Eintak - 30.03.1994, Blaðsíða 15
MENNTUN: Háskólapróf í húmanískri grein
STARF:
í stjórnunarstarfi
hjá ríki eða borg
STARF MAKA:
Tæknifræðingur
ALDUR
41 árs
HJÚSKAPARSTAÐA
Gift
HEIMILI:
Timburhús í
miðbænum
BÖRN: 2
MÁNAÐARTEKJUR
157.000
MÁNAÐAR-
TEKJUR:
186.000
KYN: Kona
BÍLAR:
Mazda 626 '89,
Lada Samara ‘91
MENNTUN:
Lögfræðingur
STARF:
Framkvæmdastjóri fyrirtækis
eða félagasamtaka
KYN: Karl
ALDUR: 42 ára
HEIMILI:
Raðhús í Fossvogi
STARF MAKA:
Húsmóðir í hlutastarfi
HJÚSKAPAR-
STAÐA:
Kvæntur
MÁNAÐARTEKJUR
MAKA:
57.000
MÁNAÐAR
TEKJUR:
370.000
BÖRN:
2-3
BÍLAR:
Mitsubishi Galant ‘90,
Suzuki Swift ‘93
Hinn dæmigerði frambjóðapdi
Reykjavíku rlistans
augnlæknir og Páll Gíslason læknir.
Þrír eiga fjögur börn; Árni Sigfús-
son borgarstjóri, Ólafur F. Magn-
ússon læknir, og Katrín Fjeldsted
læknir og borgarfulltrúi, en hún
missti eitt þeirra af slysförum.
Sjálfstæðisflokkur-
inn: 2,5 börn að
meðaltali. Reykja-
víkurlistinn:
2,3 börn að
meðaltali.
Hinn dæmigerði
frambjóðandi
Sjálfstæðisflokks-
ins gegnir einhvers konar
stjórnunarstarfi. Fjórir
eru forstjórar eða
framvæmdastjórar og
þrettán til viðbótar sinna
öðrum stjórnunarstörf-
um. Samanlagt gerir það
sautján af þrjátíu. Þeirra á
meðal er að finna hjúkr-
unarforstjóra, skóla-
stjóra, formann fa^félags,
veitingamann og forsæt-
isráðherra.
Það vekur athygli að
næstíjölmennasta starf-
stéttin á eftir stjórunum
eru læknar, en þeir eru
fjórir talsins á listanum,
auk eins læknanema.
Námsmenn eru þrír, hús-
mæður tvær, einn kaup-
mann er að fmna, einn
skrifstofumann, einn lög-
fræðing senr starfar sem
lögmaður og einn verka-
nrann. Enginn starfandi
iðnaðarmaður er á listan-
um.
Reykjavíkurlistinn státar ekki af
jafnmörgum með einhvers konar
stjóratitil og störfin eru fjölbreytt-
ari. Sjö frambjóðendur eru for-
stjórar eða framkvæmdastjórar og
sex aðrir gegna öðrum stjórnunar-
störfum. Verkamenn eru þrír,
sömuleiðs kennarar og háskóla-
nemar. Tveir kaupmenn eru í
yti'1
Guðrún Jónsdóttir
ARKITEKT
er langtekjuhæst á R-listanum með
646.00 í mánaðartekjur. Næstirá eftir
henni eru Alfreð Þorsteinsson forstjóri
með 368.000 krónur á mánuði og
Vilhjálmur Þorsteinsson, kerfisfræðingur
með 315.000 krónur.
hópnum og það sama gildir um
blaðamenn og listamenn. Einn er
alþingismaður, annar bílstjóri og sá
þriðji sinnir starfi innan heilbrigð-
isþjónustunnar án stjórnunar-
ábyrgðar.
Nánar má sjá störf frambjóðenda
á framboðslistunum.
Munurinn á fram-
boðslistunum tveimur
er augljós þegar
störfin eru borin sam-
an. Frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins
hafa ybetri“ störf að
jafnaði en þeir
sem sitja á Reykja-
VÍkurlÍStanum. Það kemur
enn betur í ljós þegar starfsvett-
vangur þeirra og tekjur eru bornar
sanran, eins og gert er hér aftar.
Iunurinn á Sjálfstæðis-
flokknum og Reykja-
víkurlistanum er áberandi
þegar starfsvettvangur þeirra er
borinn saman.
I einkageiranum starfa ellefu á
D-listanum en átta á R-listanum.
Opinberir starfsmenn eru sex í
hópi sjálfstæðismanna en þeir eru
fjórtán á Reykjavíkurlistanum. Fyr-
ir félagasamtök starfa átta á D-list-
anum en fimm á R-listanum. Há-
skólanenrar eru þrír á hvorum lista.
Tveir sjálfstæðismenn eru heima-
vinnandi en enginn á R- listanum.
Athyglisverðast við
þennan samanburð er
að hann leiðir í Ijós að
rétt tæpur helmingur
framjóðenda Reykja-
víkurlistans eru
opinberir starfsmenn
á móti sex á lista Sjálf-
stæðisflokksins.
Sex sjálfstæða atvinnurekendur
er að finna á D-listanum en fjóra á
R-listanum.
Langskólagengið fólk er í yfir-
gnæfandi meirihluta á báð-
um listum. Háskólaborgarar
sitja í tuttugu sætum á D-listanum
og einu betur, tuttugu og einu, á R-
listanum. Talsverður munur er þó
á þeim námsgreinum sem þetta
fólk hefur valið sér eftir listum.
Hagnýtar greinar sem gefa meiri
von um ábatasamt starf eru áber-
andi hjá sjálfstæðismönnum en
húmanískar greinar hjá frambjóð-
endum Reykjavíkurlistans.
Læknar á D-listanum eru fjórir,
eins og áður segir, Ólafur F. Magn-
ússon, Einar Stefánsson, Katrín
Fjeldsted og Páll Gíslason. Elsa
Björk Valsdóttir er í læknanámi.
Lögfræðingarnir eru einnig íjórir,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
Gunnar Jóhann Bírgisson,
Helga Jónsdóttir og Davíð Odds-
son, forsætisráðherra. Guðrún Zo-
ega og Þórunn Pálsdóttir eru
verkfræðingar að mennt og Inga
Jóna Þórðardóttir viðskiptafræð-
ingur. Borgarstjórinn, Árni Sigfús-
son, er með kennarapróf og gráðu í
opinberri stjórnsýslu.
Á D-listanum eru, auk háskóla-
borgaranna, fjórir með iðnnám að
baki, múrarinn Hilmar Guðlaugs-
son, matreiðslumennirnir Þor-
bergur Aðalsteinsson og Óskar
Finnsson og rafvirkinn Guð-
mundur Gunnarsson. Þorbergur
og Guðmundur hafa auk þess
stundað nám á háskólastigi. Tveir
eru nteð stúdentspróf, þrír verslun-
arpróf, tveir gagnfræðapróf og einn
með listnám að baki, Þorgerður
Ingólfsdóttir, kórstjóri og tónlist-
arkennari.
Hjá Reykjavíkurlistanum er ann-
ars konar háskólamenntun meira
áberandi en hjá frambjóðendum
Sjálfstæðisflolcksins. Þrir sagnfræð-
ingar eru á listanum, Ingibjörg Sól-
rún, Steinunn V. Óskarsdóttir og
Óskar D. Ólafsson. Ekkert þeirra
starfar þó við fræðigreinina. Mála-
nám ýmiss konar er einnig áber-
andi. Árni Þór Sigurðsson er með
háskólagráður í rússnesku, al-
mennum málvísindum og slav-
neskum málvísindunt, auk þjóð-
hagfræðimenntunar. Bryndís
Kristjánsdóttir er með BA- próf í
íslensku og ensku, Kristín A.
Árnadóttir með sömu gráðu í
ensku og fjölmiðlafræði. Nokkrir
eru með einhvers konar uppeldis-
menntun. Arthur Morthens er
sérkennari að mennt og þrjár kon-
ur á listanum eru með fóstrunám
að baki, Margrét Sæmundsdótt-
ir, Kristín Dýrfjörð og Kristín
Blöndal. Tæknimenntað fólk er að
finna innan um. Gunnar Levy
Gissuararson er dæmi um það en
hann er tæknifræðingur. Einn
sjúkraþjálfari og einn hjúkrunar-
fræðingur eru á listanum, Hulda
Ólafsdóttir og Birna Kr. Svavars-
VlLHJÁLMUR Þ. VlLHJÁLMSSON
LÖGFRÆÐINGUR
er með 400.000 krónur í tekjur á mánuði. Hann er íhópi sjö fram-
bjóðenda Sjálfstæðisflokksins sem ná þeim tekjum. Hæstu tekjurn-
ar hefur Einar Stefánsson augnlæknir, 642.000 á mánuði, og næst-
urhonum kemur Árni Sigfússon með 514.000 krónur.
MIÐVII^JDAGUR 30,;MARS 1994
15