Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 30.03.1994, Qupperneq 25

Eintak - 30.03.1994, Qupperneq 25
„responsibility", segir hún. „Fólk notar þetta mikið til að draga til sín staðfestingar- eða stuðningsöfl í líf- inu. Ég er líka með englaspil en í stokknum eru rúmlega sjötíu spil og með þeim fylgir bók með falleg- um texta sem á við hvert spil.“ Er spilið notað til að ná sambandi við engla? „Já það er eins og í bókunum sem ég er með en ein þeirra heitir Boðberar ljóssins, þetta er til að hjálpa fólki að skynja að það eru til englar sern við getum kallað á, okk- ur til hjálpar. 1 fyrra voru tvær greinar í bandaríska nýaldartíma- ritinu Body, Mind and Spirit um nýjabókTerrys Lynns Tailors sem skrifaði Boðbera Ijóssins og við- brögð lesenda við þessari grein voru gífurleg. Þeir skrifuðu fjölda bréfa um reynslu sína og upplifanir á englum og það var stórkostlegt að lesa þetta. Ég fæ alveg gæsahúð þeg- ar ég hugsa um þetta. Fólk var að segja frá hlutum sem það hafði eng- um sagt í fjölda ára. Það var meðal annars bréf frá konu sem hafði séð dóttur sína detta út um gluggann af annari hæð og horft á hana koma sömu leið til baka. Þetta var svo ótrúlegt en gat ekki legið öðruvísi í hlutunum en að einhver væri í kring til að vernda viðkomandi. Það var sagt frá fólki sem var að því komið að keyra fram af vegabrún í sótsvartri þoku en stöðvaði allt í einu bílinn vegna hugboðs og bjargaðist... Önnur frásögn skýrði frá hópi sem var á báti einhvers staðar langt úti á sjó og báturinn bilaði og þau vissu ekkert hvar þau voru. Ein konan varð þá fyrir því að engill kom til hennar í draumi á fjórða degi eftir að báturinn bilaði og þeim var bjargað daginn eftir. Sumir lesendanna höfðu séð svipi, öðrum fannst þeir vera verndaðir og þriðji hópurinn hafði séð englana í hugleiðsluástandi. Það var mismunandi hvernig fólk greindi frá þessu. Ég hef ekki orðið vör við að Islendingar segðu frá reynslu sinni af þessum efnum því það er ekki til neitt tímarit þar sem fólk getur sagt frá svona án þess að það komi fram undir nafni. Þetta er enn n o k k u ð viðkvæmt um að vernda mig á ferðalögum og finn mjög sterkt fyrir návist hans. Ég tengi mig ekki eins inn á hann dags daglega. Ég hef fundið fyrir þessari návist þegar ég hef verið að keyra illa búin í slæmri færð og hefði þess vegna getað fokið út af veginum. Ferðin gekk samt bara mjög vel. Það er ekki endilega að mér hafi veið beint bjargað úr ein- hverri krísu sem slíkri. Ég trúi því að guð standi að baki þessu öllu saman og finn fýrir vernd hvort sem hann sendir engil eða hvað það nú er ef hann er svo upptekinn annars staðar. Einu sinni þegar ég var að fara að fljúga innan lands í mjög slæmu veðri kom yfir mig ótti um að vélin myndi láta ófriðlega í lofti. Mér tókst að sigrast á óttan- um og þegar ég settist upp í vélina þá bað ég um vernd fýrir hana og það var eins og ekki væri vindur í lofti alla ferðina. Það getur hins vegar vel verið að einhver annar í flugvélinni hafi verið að biðja og þess vegna hafi ferðin gengið vel. Þetta er bara mín upplifun." Heldur þú að auðveldara sé að fá áheyrn englanna en guðs? „Nei ég held ekki. Bandaríski englafræðingurinn K-Martin Kuri segir að við eigum okkur öll einn engil en hann heyri ekkert í okkur frekar en guð ef við tölum aldrei við hann. Þetta er bara spurningin um hverju maður hleypir að sér hverju sinni. Mér finnst auðvelt þegar ég tala við lítil börn að láta þau sjá engil í kringum sig. Þeirn finnst það ekkert mál. Þau loka augunum og segja mér hvernig hann lítur út.“ Hvernig lýsa þau englunum, eru þeir með vœngi? „Það er náttúrlega búið að ákveða að englar séu með vængi en þá er það ytri mynd. Krakkarnir sjá hvernig þeir eru á litinn, hvort þeir eru í hvítu eða bleiku eða einhverju þess háttar. Ég held að við höfum öll skyggnigáfu en lítil börn sem eru fædd eftir 1989 eru næmari en ella út af breyttri tíðni í al- heiminum. Þau eru mun meðvitaðri um hver þau eru þegar þau fæð- ast.“ Glansmyndaengill Fyrirmyndin að hinum búttuðu englum endurreisnartímans er sótt í heiðin sið. Vængirnir sem listamennirnir smelltu á þá eru af örnum, svönum og gæsum. mál og fólk heldur að það se eitt- hvað klikkað ef það upplifir svona hluti. Almenningsálitið er það sent flestir óttast og það kernur fram í þessari englaumræðu. Við þurfum hins vegar ekki að gera annað en að skoða kristinfræðina, þar eru alls staðar englar og það er engin ástæða til þess að fólk hætti allt í einu að sjá englana sem allir sáu fyrir tvö þúsund árum. Við höfum aftur á móti lokað mikið á þá hug- mynd að þeir séu til.“ Hefurþú fundið fyrir návist engla? „Já, ég hef gert það. Ég á það sent ég kalla ferðaengil og ég bið hann Gunnar Þorsteinsson Englarog Opmberunar- bókin „Englar eru þjónustubundnir andar, sem eru útsendir í þeirra þarfir sem hjálpræðið eiga að erfa, eins og höfundur Hebreabréfsins orðar það,“ segir Gunnar Þor- steinsson forstöðumaður Kross- ins. „Þegar Ijallað er um engla má ekki gleymast að þeir eru sköpun Guðs og og eiga sér enga sjálfstæða Atli Bergmann MÓTORHJÓLATÖFFARI „Þegar mér bauðst að verða „prospect" eða efni i félaga í Hells Angels þá var ég einstæð- ur faðir og vissi alveg hvað að- ildin myndi hafa í för með sér. “ Lúsifer hrakin úr himnaríki Erkiengillinn Mikael vt'sar Lúsifer á dyr í himnaríki eftirað hann hafði virt vilja guðs að vettugi. Grafíkmynd eftir Gustave Doré. tilvist utan hans,“ segir hann. „Englar eru bæði af illum og góð- um toga, þar sem hluti af himinsins her féll með Lúsífer, eins og lesend- ur EINTAKS þekkja reyndar mæta vel. I gegnum tíðina hafa menn fallið í þá gryfju að tilbiðja engla en það er að sjálfsögðu langt út úr kortinu eins og öll önnur tilbeiðsla á sköp- unarverkinu, menn eiga að til- biðja Guð einan. Englar hafa þekkingu á jarðneskum málefnum og í mörgum tilfellum afskap- lega mikinn og vakandi áhuga og efast ég ekki um að þeir eru í forundran yfir hvernig hinn dauðlegi maður skipar málum sínum á jörðinni. Dag einn kem- ur að því að hlutverk þeirra verð- ur sýnilegra og bein afskipti þeirra, samkvæmt boði Guðs, munu skekja allt sem skekið verður á jarðarkringlunni. í upphafi Opinberunarbókar- innar má lesa að opinberunin sem Jóhannes tók á móti var fyrir milligöngu engils og síðan er bókin lýsir lokaglímu Guðs við mannkynið, má sjá að engl- ar gegna þar ákaflega mikilvægu hlutverki. Það eru englar sem hafa milligöngu um þann dóm Guðs sem mun óhjákvæmi- lega ganga yfir þennan heim, og það eru einnig englar, sem rnunu samkvæmt boði Guðs, halda verndarhendi sinni yfir þeim sem Guð innsiglar á þeirri ögurstund. Það er of rúmfrekt að gera grein fyrir því veigantikla hlut- verki sem englar munu skipa í nánustu framtíð okkar, en ég vil taka til eitt dæmi sem okkur Islend- ingum stendur nærri og er afskap- lega lýsandi fyrir afskipti engla af þeirri atburðarás sem frásögn Op- inberunarbókarinnar geymir. í átt- unda kaflanum í Opinberunarbók- inni segir: „Þriðji engillinn básún- aði. Þá féll stór stjarna af himni, logandi sem blys, og hún féll ofan á þriðjung fljótanna og á iindir vatn- anna. Nafn stjörnunnar er Remma. Þriðjungur vatnanna varð að remmu og rnargir biðu bana af vötnunum, því þau voru beisk orðin" (tilv. lýkur). „I þessu versi greinir frá því að þriðji engillinn afsjö básúnaði og remma meng-; aði þriðjung vatnanna,“ segir Gunnar. „Öttinn við þessa remmu hefur þegar bært á sér meðal þeirra manna hér á landi sem hafa varann á. Menn óttast að „remma“ kunni að menga fiskimið okkar og kippa þannig fótunum undan lífsafkomunni. Mönnum er í fersku rninni hið rnikla kjarn- orkuslys sem varð í Sovétríkjunum sálugu og er kennt við Tjernobil. En orðið Tjernobil merkir einmitt remma. Allir þekkja hinn mikla vanda sem súra regninu fylgir, en er það ekki við hæfi að nefna súra unm. Menn þurfa að virkja betur þá náðargjöf sem englar eru. Það eru tveir englar sem fylgja mér alla ævi- daga mína, annar heitir Gæfa, en hinn heitir Náð. Þegar dansinn ger- ist krappur fá þeir liðsauka og magt myrkranna verður áhrifalaust. Hvernig væri að hyggja að þessu?“ Q Aðalsteinn Ingólfsson LISTFRÆÐINGUR „Englarnir verða þar að þerrössuðum goðsagnaverum, sem kallaðar eru „púttí" og eru svona litlir og búttaðir krakkar. “ regnið r e m m u ? Ég er hrædd- ur um að englar Opinberunarbók arinnar séu farnir að gera meira vart við sig en menn gera sér ljóst. Páskar eru að ganga garð, en það voru einmitt englar sem voru við tóma gröf Drottins er sá atburð- ur gerðist sem gefur pásk- unum það innihald sem raun er á. Það voru englar sem tilkynntu fæðingu Drottins, það voru englar sem styrktu Hann í þjáningu Hans. það voru englar sem voru við- staddir er Hann sté upp til himins, það verða e n g 1 a r m e ð Drottni er Hann kemur á ný, það eru englar sem þjóna hinum réttlátu og það verða englar sem framkvæma dóm Guðs yfir illsk- Guðrún Bergmann Betra líf „Ég á það sem ég kalla ferðaengil og ég bið hann um að vernda mig á ferðalög- um og finn mjög sterkt fyrir návist hans. “ Gunnar Þorsteinsson, KROSSINUM „Það eru tveir englar sem fylgja mér alla ævidaga mína, annar heitir Gæfa, en hinn heitir Náð. “ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1994 25

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.