Eintak

Issue

Eintak - 13.06.1994, Page 8

Eintak - 13.06.1994, Page 8
 Starfsaðferðir Rauða dregilsins vekja furðu Auglýstu eftir staft- isftum án samráðs við framleiðenduma Aðstandendur Rauða dregilsins Sveinn Óskar Sveinsson, Róbert Róbertsson, Gunnlaugur Karlsson ___________oq Ingi Karlsson. m,_____ . Aðstandendur þriggja kvik- mynda sem umboðsskrifstofan Rauði dregillinn auglýsti eftir stat- istum fyrir í Morgunblaðinu í gær, furða sig á vinnubrögðum hins ný- stofnaða fýrirtækis. Falast var eftir statistum í eftirtaldar myndir: Ag- nesi, sem Egill Eðvarðsson leik- stýrir, Tár úr steini Hilmars Odds- sonar, Einkalíf Alexanders sem Þráinn Bertelsson leikstýrir og Benjamín dúfu Gisla Snæs Er- lingssonar, þrátt fyrir að í auglýs- ingunni standi að Baldur Hrafn- kell Jónsson leikstýri henni. Þeir sem vilja láta skrá nöfn sín á lista hjá fýrirtækinu þurfa að greiða 850 krónur. Ari Kristinsson kvikmynda- tökumaður, sem vinnur hjá Is- lensku kvikmyndasamsteypunni sem framleiðir Éinkalíf Alexanders, átti ekki von á slíku skrásetningar- gjaldi og býst við að kvikmynda- framleiðendur taki málið fyrir. „Ég var spurður hvort ég vildi að myndin væri á lista hjá Rauða dreglinum yfir myndir sem vantaði statista í. Fyrst það var endurgjalds- laust fyrir okkur samþykkti ég það. Hins vegar finnst mér asnalegt að statistar þurfí að borga með sér enda hefur þeim verið borgað illa fyrir störf sín í íslenskum kvik- myndum," segir Ari. Því er Róbert Róbertsson, framkvæmdastjóri Rauða dregils- ins, ekki sammála: „Það er mjög mismunandi hvað statistar fá borg- að fyrir vinnuna sína. Erlendir aðil- ar borga þeim tii dæmis góðan pen- ing.“ Róbert segir Rauða dregilinn innheimta skráningargjald að er- lendri fýrirmynd. Aðstandendur fyrirtækisins höfðu rætt samstarf við Gísla Snæ og segist hann hafa lýst yfir áhuga á samstarfi „þegar þar að kæmi“. Honum þykir hins vegar sem Dreg- ilsmenn hafi auglýst heldur snemma eftir statistunum. „Þeir eru fullbráðir því þeir henta okkur ekki í augnablikinu. Annars ráða þeir þessu alveg sjálf- ir,“ segir Gísli Snær en til stendur að hefja tökur á myndinni í sept- ember næstkomandi. Agnes verður heldur ekki tekin fyrr en í fyrsta lagi í haust og jafnvel ekki fyrr en næsta vor. Snorri Þórisson, framleiðandi myndarinnar, sagði í síðasta tölublaði eintaks að ástæðan væri fjárskortur hjá Nor- ræna kvikmynda- og sjónvarps- sjóðnum. Róbert segir aftur á móti ekki skipta máli þótt auglýst sé eftir stat- istum nokkru áður en Agnes og Benjamín dúfa verða teknar þar eð aðstandendur myndanna geta not- að þjónustuna hvenær sem þeim hentar. Gísla Snæ finnst fengur í Rauða dreglinum og styður hann heils hugar. „Hingað til hefur það verið mik- ið mál að ná í statista. Nú erum við hins vegar lausir við að hringja í átthagafélögin eða fótboltafélögin til að útvega þá. Þá gat það gerst að 20 manns mættu í stað 100 en nú eru aðrir ábyrgir fyrir því að statist- arnir mæti,“ segir Gísli Snær. Jóna Finnsdóttir, framleiðandi Társ úr steini, segir aðstandendur Rauða dregilsins hafa farið þess á leit við sig að fá að nota nafn mynd- arinnar sem dæmi um viðskipta- vini fyrirtækisins. Hún sá enga ástæðu til að neita því. Aftur á móti segir hún engan hafa beðið fyrir- tækið urn að auglýsa eftir statistum í myndina og vissi hún ekki af aug- lýsingunni í Morgunblaðinu. „Ég skil þetta ekki og veit ekki hvern fjandann þeir eru að gera. Þeir vita ekki hvort okkur vantar statista eða hvernig statista við vilj- um,“ segir Jóna. Róbert segir fyrirtækið þegar hafa fengið leyfi fyrir því að nota nöfn myndanna í markaðssetningu fyrirtækisins í staðinn fyrir að út- vega þeim statista. „Ég talaði því við Jónu fyrir nokkrum vikum. Við þurfum ekki að vita hvernig statista þeir vilja því aðstandendur myndanna eiga að velja þá sjálfir," segir Róbert. Af hverju kotna aðstendendur myndanna af fjöllum þegar minnst er á auglýsinguna? „Það fer bara eftir því við hvern þú talar,“ svarar Róbert. Honum finnst illa vegið að Rauða dreglinum en honum hafði verið tekið afar vel. © Listahátíð í Reykjavík Listin er hraðfleygur fugl Jón Proppé skrifar Listin er undarlegt og glettilega sjaldgæft dýr, þótt listframboðið hér í borginni virðist stundum benda til annars. Af þróunarsögu þessa dýrs má ráða að það hefur ekki mótast af ytri aðstæðum líkt og flest önnur dýr — en eins og við þekkjum nú á þessum póst-darv- ínísku tímum eru utanaðkomandi áhrif alla jafna ráðandi þáttur í þró- un allra tegunda, einkum stjórn- málamanna sem virðast vart hafa neina innri þroskahvata - - heldur af óskiljanlegri innbyggðri þörf til hamskipta. Hamskipti eru alls ekki óþekkt í dýraríkinu, en eru yfirleitt í nokkuð föstum skorðum og svip- ar jafnan saman frá kynslóð til kyn- slóðar. Þannig vitum við að ógeðs- legi hvíti maðkurinn í súrtunnunni á eftir að verða að fiskiflugu, eggið að barni, barnið að manni, fram- sóknarmaðurinn að Alþýðuflokks- manni og þar fram eftir götunum. En það er aldrei hægt að segja alveg fyrir um það að hverju listin á eftir að verða — það er í raun það sem listin snýst um. Líkt og veröldin sjálf er hún alltaf ófullgerð, alltaf að verða að einhverju sem hún er ekki enn orðin en langar að verða. Hún veit bara ekki alltaf af því og þess vegna er svo erfitt að höndla hana. Hún er alltaf orðin að einhverju öðru áður en maður veit af og það er enginn sem getur séð fýrir hvað það er. Listfræðingarnir hafa ekki hugmynd, gagnrýnendurnir vita ekki neitt og það heimskulegasta sem nokkur gæti gert væri að spyrja listamennina — þeir vita ekki einu sinni hvar þeir eiga heima. Þetta er vandamálið sem þeir þurfa að kljást við sem vilja skipuleggja listahátíð- ir. Þeim er ætlað það erfiða hlut- verk að fanga dýrið en enginn getur sagt þeim hvernig það lítur út. Þess vegna er það að þeir enda oftast á því að drepa og bera á borð fyrir al- menning einhver allt önnur dýr. Listahátíðir eru í raun eins konar mótsagnir, líkt og hugtakið al- menningsbókasöfn. Það skásta sem við getum vænst er að við náum að hitta nokkra kunningja á opnunum og tónleikum og fáum að rifja upp einhver atvik úr listalífinu sem við þekkjum frá fyrri tíð. Svo má alltaf eiga von á því að það verði gefinn út sæmilegur bæklingur um við- burðina — að þessu leyti hefur Listahátíð í Reykjavík tekist vel í ár: bæklingurinn er til fyrirmyndar, enda bar stjórnin gæfu til þess að fá Grafít til að sjá um hann, frekar en til dæmis Islensku auglýsingastof- una sem tekst að klúðra Flugleiða- auglýsingunni á baksíðunni með því að slá í lágstafa skáletur og nota bönd í stað strika í þeim litla texta sem fylgir fallegri mynd Sigurgeirs Sigurjónssonar. Annars verður það að segjast að Listahátíðin hefur ekki náð að kveikja neinn umtalsverðan lista- áhuga í Reykvíkingum og þótt þeir sem sáu Wagneruppfærsluna hafi flestir borið af því varanlegan skaða er það sjaldgæfar en á fyrri listahá- tíðum að sjá listdrukkna listaunn- endur reika um borgina effir lokun. Það er ekki góðs viti, en þó er enn von til þess að listdýrið vakni í borgarbúum þegar óskadóttirin snýr heirn til að spila fýrir okkur í Höllinni. Þeir sem misstu af Atla Heimi í gærkvöld geta huggað sig við það. G Svala svöl og aðrir hressir Talsverðir stórtónleikar í Kolaportinu: Saint Etienne /Scope/Olympia/Páll Óskar ★ ★ ★ Það væri ofsagt að segja að tón- Ieikarnir í nýja Kolaportinu á föstu- dagskveldið hafi verið illa kynntir. Þessir tónleikar fóru ekki fram í kyrrþey! Þegar Páll Óskar stuðp- inni hóf upp fjör sitt var salurinn þegar orðinn nokkuð troðinn og kjökruðu fáir af ógleði. Það er ekki á hverjum degi sem jafn afspyrnu heit bönd og Saint Etienne láta sjá sig á skerinu en það er heldur ekki á hverjum degi sem íslenskar upphit- unarhljómsveitir slá gestunum við. Það gerðist á föstudaginn. Þrátt fyr- ir einhvern versta hljómburð í manna minnum voru tvö þúsund manns í rífandi stuði. Páll Óskar hóf leikinn með diskósjói sínu og sýndi enn og aftur og sannaði að hann er gegnheilasti sjómaðurinn í íslenskri músík í dag. Hann sýndi fátt nýtt en unglingaskarinn fyrir framan hann fór beinustu leið á suðupunkt og kvöldið var tryggt. Olympia Sigurjóns Kjartans- sonar tók við og sannaði að evróp- oppið getur ennþá stuðað. Ef við berum einhvern tímann gæfu til þess að senda þennan unga mann í Euróvision verður stikkorðið, Is- lande douze point, loks að veru- leika. Fyrir 25 árum sigraði Björg- vin Halldórsson hljómsveitar- keppni í Laugardalshöll og íslenska útgáfan af bítlaæðinu var hafin. Á föstudagskvöldið vann dóttir hans, Svala Björgvinsdóttir, svipað af- rek. Hljómsveit hennar, Scope, tók við salnum í toppformi og bræddi hann niður a la alusuisse. Það er engin spurning að í Svölu birtist stórstjarna sumarsins. Einföld og dillandi danstónlist Scope og ör- uggur söngur Svölu náðu að tryggja sig í sessi á fýrstu tónleikum sínum. Þegar Páll Oskar mætti á sviðið til að svngja með þeim síðasta lagið var orðið hættulega nálægt því að hús Töllstjóraembættisins gæfi sig. Það segir sig sjálff að Saint Etienne áttu erfitt verk fyrir höndum að toppa Islendingana. Ekki bætti úr skák að eyru tónleikagesta voru orðin lúin eftir bergmálandi hávað- ann sem á undan var genginn. Saint Etienne tókst þó vel upp. Hljóm- sveitin flytur glamúrdanspopp sitt með tilþrifum. Söngkonan Sarah Cracknell sýndi tilþrif í anda blómahippa ásamt tveimur værð- arlegum bakraddasöngkonum sem mynduðu framvarðarsveitina. Þó lifandi dansmúsík sé ekki algeng sjón hér á landi voru krakkarnir vel með á nótunum og dönsuðu með. Svitabað í stórum sal. I heildina voru tónleikarnir mikil veisla. Saint Etienne sem leið mest fyrir hljóm- burðinn sannaði svo endanlega á tónleikum í Venus kvöldið eftir að sveitin er þrusu tónleikaband. Mætingin á seinni tónleikana var sorglega iítil en gestir skemmtu sér að sama skapi vel enda sveitin í réttu ljósi hvað hljóð varðar. Eftir svona tónleika þarf fólk góða hvíld til að ná sér niður svo það er kannski eins gott að slíkir viðburðir séu jafn sjaldgæfir og raun ber vitni. Tónleikahaldari á þakkir skildar fyrir tónleika sem verða skráðir á blöð sögunnar sem ein best heppnaða skemmtan í langa hríð. Dans dans dans. 0 Komið að tómum kofa Popp Ríkissjónvarpinu og Stöð 2 ? 1 Ég er einn af mörgum sem gam- an hafa af poppmyndaböndum í sjónvarpi. Þau eru þægileg, indæl og oft skemmtileg. Nú er hins vegar svo komið að allt popp er horfið af báðum sjónvarpsstöðvunum. Að vísu sýnir Stöð 2 evrópska MTV listann einu sinni í viku en fyrir ut- an það er enginn poppþáttur í gangi. Ætlast Stöðvarstjórar virki- lega til þes að við höldum sumarið út án nokkurs popps? Við hljótum að mótmæla! Vafalaust er það sam- dráttur sem þessu ræður, það er jú dýrt að halda úti dagskrárgerð sem þessari, eða hvað? Svo við lítum að- eins á þá poppþætti sem nú eru ný- hættir göngu sinni, þá höfum við nteðal annars Poppkorn í Ríkissjón- varpinu sem var um það bil hálf- tíma langur þáttur, með kynni og súrrealískri sviðsmynd. Um það bil helmingur af þættinum fór í að kynna myndböndin og taka viðtöl við poppara. Þetta er í sjálfu sér allt gott og blessað en samt held ég að við poppunnendur værum betur settir ef við fengjum bara fastan hálftíma, einu sinni til tvisvar í viku, þar sem sýnd yrðu sjö til átta myndbönd án kynningar eða skrauts. Þetta myndi vera ódýr og góð lausn fyrir alla aðila. Meira popp! 0 Loksins Sjónvarpsmarkaðurinn Stöð 2 ★ Sjónvarpsmarkaðurinn er nýj- ung sem að við íslendingar höfum ekki kynnst áður. Þarna er um að ræða póstverslun þar sem boðið er upp á alls kyns glingur á einhverj- um svaka kjörum. Mér finnst þetta nú ekkert sérstaklega skemmtilegt áhorfunar, hvað þá að vörurnar freisti mín. Ég efast þó ekki um að mörgum finnist þetta æðislegt. Segjum að þú sjáir til dæmis freist- andi brauðrist sem þú vilt festa kaup á, þá er bara að taka upp tólið og panta hana og nokkrum dögum síðar ertu komin(n) með hana í hendurnar, brauðristina sent þú sást í sjónvarpinu. Þér hlýtur nátt- úrlega að líða miklu betur. © MÁNUDAGUR 13. JÚN( 1994 j 8

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.