Eintak

Issue

Eintak - 13.06.1994, Page 14

Eintak - 13.06.1994, Page 14
4 Bresk könnun sýndi einhverju sinni fram á að 10 prósent allra þeirra kvenna sem höfðu nöfn sín í símaskránni höfðu orðið fyrir símahrellingu síðastliðinn mánuð. Lára Halla Maack geðlæknir seg- ir mismunandi blöndu af ofbeldi, kynæsingi og spennu búa að baki símahrellingum. Börn upplifa spennuna þegar þau gera símaöt en hjá unglingum fer að örla á kynæs- ingnum. „Yfírleitt eru það karlar sem stunda símaklám og fróa þeir sér á meðan,“ segir Sölvína Konráðs- dóttir sálfræðingur. Þær konur sem verða fyrir mestum símahrellingum eru á aldr- inum 25-40 ára og oftast eru þær einhleypar eða fráskildar. Þær sem búa á heimavist, þar sem flestir eru á giftingarmarkaðnum, verða fyrir símahrellingu í meira mæli en aðr- ar. Lára Halla segir að það sem sé sérstakt við símahrellingar er að konur taka meiri þátt í því en öðr- um kynferðisafbrotum. Ofbeldið sem þær beita þar er nefnilega ekki líkamlegt. Óskað eftir sæði íslenskur tóniistarmaður ferðað- ist einhverju sinni um Bandaríkin og gekk grúppía á eftir honum með grasið í skónum. „Hún fylgdi mér eftir þver og endilöng Bandaríkin og vakti mig á öllum tíma sólarhringsins með símhringingum. Hún kynnti sig alltaf og spurði svo: „Hvað seg- irðu?“ Eg sagðist ekkert segja og það hefði verið hún sem hefði L hringt. Svona gekk þetta í þrjú L ár. Síðasta skiptið sem hún hringdi var til að segja mér að ■ lnin væri að fara að gefa út Kj bók i Bandaríkjunum með ■ synishornum af sæði vina I sinna. Hún vildi að ég ■ sendi henni sýnishorn af mínu. Ég varð ekki við að tónlistarmaðurinn ætti að koma tónlistarhæfileikum hans á fram- færi. Að því loknu gall við óhugn- anlegur skellihlátur. Tónlistar- manninum brá við að heyra skila- boðin. Nokkru síðar var hann heima við þegar maðurinn sló aftur á þráðinn. Tónlistarmaðurinn segir sem rétt er að hann vilji ekki fá svona símhringingar aftur og síst af öllu heyra svona „geðveikislegan hlátur“. „Já, en það er engin tilviljun því ég er inni á Kleppi,“ svaraði maður- inn og var hinn brattasti. Vaid orðsins og augnabiiksins Sölvína segir fólk vera að hefna sín fyrir að fá ekki athygli með því að stunda símahrellingar. „Þeir sem eru ástarhelteknir gera til dæmis heilmikið af þessu,“ segir hún. Lára Halla segir kikkið sem fólk fái út úr símahrellingum sé til dærnis það að lítillækka aðra manneskju og heyra hana frjósa eða lamast áður en skellt er á. Hægt er að koma mörgu á framfæri áður en það gerist. Símahrellirinn finnur vald yfir orðinu og augnablikinu en ekki vald yfir líkamanum eins og nauðgarinn upplifir. „Sá sem hringir veltir því fyrir sér hver svari og hver viðbrögðin verði. Sumir vilja sjokkera og hneyksla en hjá öðrum er draumurinn að fá viðkomandi til að klæmast með þeim,“ segir Sölvína. Óttar segir símahrellingar vera af sama toga og að liggja á gluggum eða sýna sig. „Þessi þrjú kynlífsafbrigði eiga það sameiginlegt að mótaðilinn er meira eða minna neyddur til þess að taka þátt í þeim og í sumum til- fellum veit hann ekki af því,“ segir Óttar. Bandarísku geðlæknasamtökin hafa til dæmis flokkað símahrell- ingar undir „parafiliu" sem er heiti yfir kynæsing sem beinist að óvenjulegum viðföngum eins og til dæmis nærfatnaði og börnum. Óttar segir að svokallað „koprol- alia“ eða skítatal hafi aukist í kjölfar Ég varð ekki við þeirri ósk.“ Öðru sinni heyrði tón- listarmaðurinn ókunnuga karlmannsrödd á símsvar- anum sínum lýsa því yfir Flestir hafa lent í því að fá dularfullar upphringingar frá ókunnugu fólki. Stundum eru þær aðeins þess eðlis að spurt er hvort Jóhann sé við og eftir stutta umhugsun getur maður sagt að enginn með því nafni hafi gist hér nógu oft til að hafa náð að skrá sig á númerið. Aðrir hafa aftur á móti lent í því að fá símhringingar frá fólki sem segir eitthvað dónalegt og hringir jafnvel oft þeirra erindagjörða. Þá er um símhrellingu að ræða. Gerður Kristný kannaði hvað slíku fólki MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ1994 4- 14

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.