Eintak

Tölublað

Eintak - 13.06.1994, Blaðsíða 27

Eintak - 13.06.1994, Blaðsíða 27
„Þessi mál eru einstök og það er ekki á hverjum degi sem beðið er um leiðréttingu þess- ara mála. Ég sat í fangelsi í meira en 8 ár íyrir sakir sem ég kom hvergi nærri. Ég vænti sneggri og skjótari afgreiðslu vegna erinda minna og ítreka fyrri kröfur. „ Dómsúrskurður var ekki til staðar. Ekki var gerð nein skrá yfír þá hluti sem lagt var hald á. (Sam- kvæmt bókun lögreglu við Hverfis- götu 15. des. 1975.) „Farið var yfir mikið magn skjala sem var lagt hald á að Þverbrekku 4 á heimili Sæv- 11 ars. Ekkert fannst í mínum fórum eða Erlu sem tengdi okkur að neinu leyti við Geirfinns- eða Guð- mundarmál. 4. Við handtöku voru það rann- sóknarlögreglumenn úr Reykjavík, úr öðru lögsagnarumdæmi, er önn- uðust framkvæmdina. Við málsmeðferð fyrir sakadómi og Hæstarétti vantaði í dómsgögn G.G. málanna, handtökuúrskurð ásamt húsleitarheimild að Þver- brekku 4, Kópavogi. I dómsgögn- um G.G. málanna vantar einnig, MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ1994 gæsluvarðhaldsúrskurð er var kveðinn upp í sakadómi af fúlltrúa 12. desember 1975. Enginn dómsúrskurður var kveðinn upp varðandi það að leggja skyldi hald á mína persónulegu muni, að segja upp því húsnæði er ég hafði á leigu að Þverbrekku og fjarlægja allt mitt dót þaðan og síð- an glata því. 5. Gísli Guðmundsson rann- sóknarlögreglumaður reyndi að hafa uppi á mínum persónulegu munum. Gísli hafði uppi á kassa af kvikmyndafilmu sem Hallvarður Einvarðsson hafði undir höndum. Auk poka af bréfum. En það sem ég fékk aldrei og var ekki vitað hvað varð um: Myndir og teikningar ásamt ritverkum, ljósmyndir af föður og móður, einng ljósmyndir af vinum og kunningjum. Erlend mynt og frímerkjasafn, bækur og fatnaður, auk húsgagna. Eigur mínar hef ég ekki fengið til baka eða mér verið bættar. 6. Fyrsta skýrslan í svokölluðu Guðmundarmáli, 20. desember 1975, tekin af Erlu Bolladóttur sem hún er látin eiðsverja. Henni er síðan sleppt úr gæslu- varðhaldi sama dag. Henni var ekið til móður sinnar enda var búið að tæma íbúðina sem við höfðum búið í, en við vorum með leigusamning til vorsins og hef ég ekki fengið neina skýringu á þessu. Ég ætla ekki að fara að fjölyrða um skýrslu Erlu. Hún lýsti henni í viðtali við Helgarpóstinn í janúar 1980. Þar sagði hún að lögreglu- menn hafi hjálpað sér að muna at- burði, en hún sjálf hafi ekki munað neitt. Henni hafi síðan brugðið þegar sakborningar höfðu játað á sig sakir í Guðmundarmálinu. Þá vitandi það að skýrslan sín væri uppspuni. 7. Að skjóta undan gögnum sem höfði veigamikla þýðingu varðandi fjarvistarsönnun mína. Þegar svokölluð rannsókn fór af stað inn í Síðumúla á hvarfi Guð- mundar Einarssonar í Hafnar- firði, en öll rannsókn fór fram þar innan veggja, þá sendi Ásgeir Friðjónsson, dómari hjá fíkni- efnadómstólnum, Emi Höskulds- syni, fulltrúa sakadóms, dómsgögn í fíkniefnamáli upp á 80 síður frá janúar 1974, mál gegn Sævari Ciesi- elski og fleirum. Þar kemur fram að fíkniefnalögreglan í Reykjavík hafi fylgst með ákærðu á sama tíma er Guðmundur hvarf. Ekkert kom þar fram sem gat tengt ákærðu við hvarf Guðmundar. Nema þar sé ruglað saman við annan Guðmund Einarsson í Gljúfrár- holti, ölfusi. Að sögn leigubíl- stjóra hafði hann ekið með mig austur þá umræddu helgi sem Guð- mundur Einarsson hvarf í Hafnar- firði. Það var aldrei minnst á þetta fíkniefnamál í yfirheyrslum hjá rannsóknarlögreglu í Síðumúla- fangelsi, í svokölluðu Guðmundar- máli. Skýrslur þessar komu ekki fram fyrr en ári seinna og þá ljósrit af nokkrum skýrslum er voru lagð- ar fyrir Sakadóm Reykjavíkur 21. mars 1977, varðandi meint fíkni- efnabrot eins sakbornings. Þessi gögn hafa töluverða þýðingu, ekki síst þegar þau eru borin saman við svokallað Guðmundarmál. Réttast hefði verið að leggja allt málið fyrir, því ég hafði tekið við ákæru í því sumarið 1975. Einnig var það galli í dómsmeð- ferð, að ákærðu fengu ekki að kynna sér sakagögn fyrr en eftir að kveðinn var upp dómur í Saka- dómi Reykjavíkur 19. desember 1977. Þá ekki fyrr en löngu seinna. 1 bréfi mínu til yðar 19. maí s.l. vísa ég til lagagreina Mannréttinda- sáttmála Evrópu sem er orðinn að íslenskum lögum. Vitnað er til 1 gr. Samningsaðil- arnir skulu tryggja hverjum þeim, sem innan yfírráðasvæði þeirra dvelst, réttindi þau og frelsi, sem skilgreind eru í I. kafla samnings þessa. 3. gr. Enginn maður skal sæta pyndingum, ómannlegri eða van- virðandi meðferð eða refsingu. 2.tölulið 5. gr. Hver sá sem tek- inn er höndum, skal án tafar fá vitneskju á máli sem hann skilur, um ástæðu fyrir handtökunni og um sakir þær, sem hann er borinn. 5.tölulið sömu gr. Hver sá mað- ur, sem tekinn hefur verið höndum eða settur í varðhald eða gæslu gagnstætt ákvæðum þessarar grein- ar, skal eiga lögmæta, framkvæm- anlega skaðabótakröfu. 1. 2. 3. töluliði, a. liðar d. liðar. 6. gr. 1. tölulið. 8. gr. 13. gr. Nú eru réttindi þau og frelsi, sem lýst er í samningi þessum skert og skal þá sá, sem fyrir því verður, geta leitað réttar síns á raunhæfan hátt fyrir opinberu stjórnvaldi, enda þótt skerðingin hafi verið framin af mönnum, sem fara með stjórnvald. * 14. gr. Réttindi þau og frelsi, sem lýst er í samningi þessum, skulu tryggð án nokkurs manngreining- arálits, svo sem vegna kynferðis, kynþáttar, litarháttar, tungu, trúar- bragða, stjórnmála- eða annarra skoðana, þjóðernis eða þjóðfélags- stöðu, sambands við þjóðernism- innihluta, eigna, ætternis eða ann- arra aðstæðna. Þessi mál eru einstök og það er ekki á hverjum degi sem beðið er um léiðréttingu þessara mála. Ég sat í fangelsi í meira en 8 ár fyrir sakir sem ég kom hvergi nærri. Ég vænti sneggri og skjótari afgreiðslu vegna erinda minna og ítreka fyrri kröfur. Sævar Ciesielski FIMMTUDAGUR 20. JANUAR 1994 27

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.