Eintak

Issue

Eintak - 13.06.1994, Page 28

Eintak - 13.06.1994, Page 28
4 WorldCuþJSkQA Það sem aerðist í síðustu keppni: Á úrslitunum árið 1990 skor- uðu sóknarmenn alls 60 mörk af alls 115 mörkum keppn- innar. Miðvallarleikmenn gerðu 41 mark og varnar- menn fjórtán. í keppninni fengu sextán leik- menn þann vafasama heiður að hljóta rautt spjald og þar með brottvísun. Alls lyftu dómararnir gulu spjöldunum 169 sinnum i keppninni. Oftast voru það Argentínumenn sem fóru í svörtu bókina, alls 22 sinnum. Næstir komu Tékkar með fimmtán gul spjöld og Kame- rúnmenn með fjórtán áminn- ingar. Prúðasta lið keppninnar, eða það lið sem fæstar áminning- ar fékk, voru Englendingar. Þeir hlutu „aðeins“ sex áminningar. Áhorfendafjöldi á úrslita- keppninni á Ítalíu var mun minni en í upphafi var talið. 2.517.348 manns sáu leikina í keppninni sem að meðaltali gerir tæplega fimmtíu þús- und manns á leik. Flestir áhorfendur komu til að fylgjast með leik fyrrum Vest- ur- Þjóðverja, núverandi heimsmeistara, og Júgó- slava. Maður keppninnar er venju- lega valinn eftirjafn mikla at- burði og úrslit heimsmeist- arakeppni. Á italíu árið 1990 voru þeir líklega tveir og hvorugur þeirra úr liði heims- meistaranna. Annars vegar varþað öldungurinn Roger Milla sem sló í gegn með hinu stórskemmtilega liði Kame- rúnmanna og hins vegar markahrókurinn Salvatore Schillaci sem varð marka- hæstur með sex mörk. Eftir keppnina drógu báðir sig að mestu í hlé; Milla hætti að leika en verður aftur með nú, en Schillaci átti erfitt upp- dráttar með Juventus og Int- er Milan á Ítalíu en var nýlega seldur fyrir miklar fúlgur til stórliðs i Japan. Mitt lið „Min lið eru tvö i þessari keppni. Brasilia og Kólumb- ía leika frábæra knattspyrnu sem er mikið fyrir augað. Liðin tvö eiga eftir að fara langt á töfrunum en síðan er hætt við að þjóðir eins og Þjóðverjar gefi i á kraftinum og baráttunni." 28S Á föstudagskvöldið hefst keppnin um eftirsóttustu íþróttaverðlaun samtímans. Á sjálfan þjóðhátíðar- daginn munu milljónir, ef ekki milljarðar manna og kvenna safnast saman úti um allan heim og horfa á heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu. Vilhjálmur Vilhjálmsson rýnir hér í sögu HM. Eins og flestir knatt- spyrnuunnendur vita þá er einhver mesti íþróttaviðburður þessa í þann mund að skella á. Hér er að sjálfsögðu verið að tala um 15. heimsmeistara- keppnina í knattspyrnu sem að þessu sinni verður haldin í Banda- ríkjunum. Telja má víst að athygli almennings muni beinast meira að þessum viðburði en nokkrum öðr- um þær vikur sem hann stendur yf- ir. Einn af þeim föstu liðum sem fylgja slíkri keppni er að menn hópa sig saman og spjalla gáfulega um hin ýmsu atvik sem hent hafa í liðnum keppnum. Þá er nauðsyn- legt að hafa nokkur grundvallarat- riði um sögu heimsmeistarakeppn- innar á hreinu. Hér er því ætlunin að auðvelda þeim sem minna vita að taka þátt í umræðunum. í raun vaknaði draumurinn um að halda heimsmeistarakeppni í knattspyrnu árið 1904, þegar al- þjóðaknattspyrnusasmbandið FIFA var stofnað í París, en það gekk nú alls ekki þrautalaust fyrir sig. Það var ekki fyrr en árið 1928 sem ákveðið var að halda hana og var það ekki síst manni að nafni Jules Rimet að þakka. Keppnin var haldin í Uruguay 1930 þar sem heimaliðið sigraði Argentínu í úr- slitaleik 4:2, eftir að hafa verið und- ir í leikhléi. Markahæsti maður keppninnar var Argentínumaður- inn Stabile með 8 mörk í fimm leikjum. Næsta keppni var haldin í Evr- ópu, nánar tiltekið á Ítalíu, og aftur var það heimaliðið sem stóð uppi sem sigurvegari eftir framlengdan leik við Tékkóslóvakíu. ítalir skor- uðu tvö mörk gegn einu marki Tékka. Að þessu sinni voru marka- kóngarnir þrír og létu sér nægja fjögur mörk sem er það minnsta sem markakóngar keppnanna hafa komist upp með. f Frakldandi fjórum árum síðar vörðu ítalir titilinn þrátt fyrir að vera með nánast nýtt lið, með því að vinna Ungverja 4:2 í úrslitaleik. Keppni þessi var haldin með út- sláttarfyrirkomulagi líkt og keppn- in á ftalíu, og hefur verið haldið nokkuð á loffi fyrir þær sakir að skoruð voru 4,6 mörk í leik, sem er næst hæsta meðaltalið enn þann dag í dag. Þarna sló einnig Brasilíu- maðurinn Leonidas eftirminni- lega í gegn með 8 skoruðum mörk- um sem dugði honum til að verða markahæstur í keppninni og koma Brasilíumönnum á knattspyrnu- kortið en þeir létu sér samt þriðja sætið nægja að þessu sinni. Á þessum tíma var Evrópa á þröskuldi styrjaldar og séð var að bið yrði í næstu keppni sem og varð raunin. Næsta keppni var svo hald- in árið 1950 í Brasilíu þar sem heimamenn höfðu komið sér upp einhverju sterkasta liði í íiögu heimsmeistarakeppninnar. Það var í þessari keppni sem þeir fundu „samba-taktinn“ sem hefur fylgt þeim æ síðan. En í þessari keppni kom berlega í ljós að það er ekki alltaf „besta“ liðið sem vinnur, því Uruguay-menn hreinlega stálu sigrinum í úrslitariðlinum með því að leggja Brasilíumenn að velli 2:1. Það var samt Brasilíumaðurinn Ademir sem skoraði flest mörk í keppninni ef það er þá einhver sárabót. Svisslendingar héldu næstu keppni árið 1954 og er hún merkilegri en margar keppnir fyrir margra hluta sakir. I fyrsta lagi voru þar skoruð 5,38 mörk að með- altali í leik - met sem líklega aldrei verður slegið. f öðru lagi fengu knattspyrnuþjóðir heimsins að finna fyrir þýska „stálinu“ í fyrsta sinn fyrir alvöru. Þeir stóðu uppi sem sigurvegarar eftir 3:2 sigur á Ungverjum í úrslitaleik. f þessum leik töpuðu Ungverjar öðru sinni úrslitaleik á HM. Stjarna keppn- innar var, að öðrum ólöstuðum, Ungverjinn Kocsis sem gerði sér lítið fýrir og skoraði 11 mörk. Hann er þó lítil stjarna saman- borið við stjörnu næstu keppni sem haldin var í Svíþjóð 1958. Þar skaust fram á stjörnuhiminninn 17 ára piltur að nafni Pelé. Brasilíumenn sigruðu þessa keppni nokkuð ör- ugglega og þóttu spila frábæra knattspyrnu með nýrri leikaðferð 4-2-4. Að þessu sinni voru það frændur vorir Svíar sem lágu í valn- um, 5:2, í úrslitaleiknum. í raun voru stjörnur keppninnar tvær því í Svíþjóð var sett markamet sem í fljótu bragði verður ekki séð hvern- ig á að slá. Frakkinn Just Fonta- ine skoraði hvorki fleiri né færri en 13 mörk í keppninni og stuðlaði þannig að besta árangri Frakka sem enn þann dag í dag er þriðja sætið. Ekki þarf að fjölyrða rnikið um næstu keppni í Chile 1962 því að besta landslið þessa tíma, Brasilía, varði titilinn með góðum sigri í úr- slitaleik við Tékka 3:1. Brasilíu- menn riðu þó ekki feitum hesti á Englandi fjórum árum síðar þar sem þeir urðu frá að hverfa strax að lokinni riðlakeppninni. Það voru heimamenn sem sigruðu keppnina eftir mjög eftirminnilegan úrslita- leik við Þjóðverja. Lyktir leiksins urðu 4:2 og skoraði Englendingur- inn Hurst þrennu í þeim leik. Það var samt hinn stórskemmtilegi Portúgali, Eusebio, sem skoraði flest mörk, eða níu talsins. Næsta keppni fór fram í hit- asvækjunni í Mexíkó þar sem sól Pele skein hvað skærast. Þarna fór hann fyrir einhverju skemmtileg- asta knattspyrnuliði sem spilað hef- ur, sóknarknattspyrna eins og hún verður best spiluð var í hávegum höfð og áhorfendur sáu eitt það sem besta sem í boði hefur verið í sögu knattspyrnunnar. í Mexíkó unnu Brasilíumenn sér til eignar Jules Rimet styttuna sem keppt hafði verið um frá byrjun. Það var Þjóðverjinn klossaði, Gerd Mull- er, sem sá um að skora flest mörk í keppninni, tíu talsins, en Brasilíu- maðurinn Jairzinho gerði annað og ekki síður merkilegt því hann skoraði mark í öllum sex leikjum Brasilíumanna. f næstu heimsmeistarakeppni sem fram fór í V-Þýskalandi kom fram á sjónarsviðið nýtt stórveldi í knattspyrnu, Hollendingar, sem vantaði aðeins herslumuninn til að vinna titilinn en urðu að horfa á eftir honum til Beckenbauer og félaga í vestur- þýska liðinu. Margir eftirminnilegir leikmenn voru þarna á hátindi ferils síns svo sem áður nefndur Beckenbauer, félagi hans hjá þýska liðinu, Muller, svo og Hollendingurinn Johann Cru- yff. Það var samt Pólverjinn Lato sem skoraði flest mörk eða sjö. Stærsta fréttin fyrir keppnina í Arg- entínu 1978 var að goðið sjálft, Jo- hann Cruyff, neitaði að spila með hollenska landsliðinu. Sjálfsagt nagar hann sig enn í handarbökin vegna þeirrar ákvörðunar því Hol- lendingar komust í úrslitaleikinn aftur og það án atbeina sinnar stærstu stjörnu. Enn einu sinni voru það heima- menn sem hrifsuðu sigurlaunin til sín, enda dyggilega studdir af 77.000 öskrandi áhorfendum. Ur- slitaleikinn unnu þeir 3:1 og skoraði Marío Kempes tvö marka Arg- entínumanna og tryggði sér þannig markakóngstignina með sex mörk skoruð. Heimsmeistarakeppnin á Spáni var keppni ítala. Eftir nokkra rólega leiki í riðlakeppninni settu þeir í „fluggírinn" og gerðu sér lítið fýrir og slógu bæði Brasilíumenn og Argentínumenn út í milliriðli og munaði þar mest um gulldrenginn sjálfan, Paolo Rossi, sem þegar upp var staðið hafði skorað sex mörk er dugðu honum til að verða markakóngur keppninnar. And- stæðingar ítala í úrslitaleiknum voru Þjóðverjar, sem virkuðu ör- þreyttir eftir hinn eftirminnilega undanúrslitaleik við Frakka. Ur- slitaleikurinn endaði 3:1 og var rétt- lætinu að flestra mati fullnægt. Lengi vel var talið að næsta keppni færi fram í Kólumbíu en svo varð ekki, því úr varð að keppnin var haldin öðru sinni í Mexíkó. Það er ekki ofsögum sagt að þetta hafi verið keppni snillings- ins Diego Maradonna sem fór hreinlega á kostum og beitti hann ýmsum töktum við að skora mörk- in. Hann meira að segja vílaði ekki WorhtCufi':'*. 94 heimsins til MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ1994 >port\

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.