Eintak - 11.08.1994, Blaðsíða 18
Þær eru komnar heim, konurnarfráTurku, eftir að hafa rætt sín mál, flutt hver annarri leikþætti,
dansað saman og drukkið. Og þær koma heim fullar samstöðu eftir þennan yfirþjóðlega
saumaklúþþ. En þrátt fyrir það lætur Gunnar Smári Egilsson þennan stað eitthvað fara í
taugarnar á sér og hefur ákveðið
að senda góðan
hóp íslenskra
karlmanna til
Turku - karla
sem eru haldnir
Turku andans.
KarJ-
menn
Steíán Hilmarsson
Stefán er einn fárra karla sem hafa feng-
ið eftir-fæðingar-hysteríu og gaf út plötu
íþví ástandi. Hún ersvo væmin að það
er ekki hægt að trúa öðru en Stefán hafi
pissað sitjandi á meðan hann setti hana
saman. Lýsingar hans á gildi þess að
verða faðir gerir fyrri lofgjörðir um móð-
urhlutverkið að tilfinningalausu röfli.
Olaíur Skúlason
Nú síðast fór Ólafur fram úr sjálfum sér
þegar hann grét eftir meðaumkun og
skilningi sóknarnefnda Grensás- og Sel-
tjarnarneskirkna vegna skilnaðarmála
prestanna þar. „Dugirþá títt ekki að
höfða til vitsmunalegrar afstöðu, þegar
tilfinningar ryðja grunni lífsstefnu afþeirri
leið, sem fyrr þótti sjálfsögð svo ekki
kom til greina. “ Maður sem smíðar
svona setningar er svo yfirkominn af til-
finningum að hann sér ekki út úr augum.
Ogmundur Jónasson
/ raun er Ögmundur Kvennalistakona.
Það sést best á þvíað þrátt fyrir ólm-
stríðufulla löngun til að halda þingræður,
vasast í velferðarmálum og koma fram
sem fulltrúi lítilmagnans ísjónvarpsfrétt-
um hefur hann setið á sér með að fara í
prófkjör í Alþýðubandalaginu. En um leið
og Jóhanna Sigurðardóttir bankar á
dyrnar þá er hann fír og flamme. Ög-
mundur þyrfti engu að breyta nema að
Sjón
Kynlaus maður sem býr til kynlausa
skáldaveröld og klæðist kynlausum
trúðsgöllum. Þar sem hann er karl hefur
enginn áhuga á að ráða í líkingar hans
og tilvísanir. Ef hann væri kona yrði
stofnuð sérstök rannsóknarstofnun við
Uppsala-háskóla til að lesa úr þeim
kvenlega upplifun hans. Hann mundi
blómstra í Turku.
John Wayne hefði ekki farið til
Turku. Ekki einu sinni til að hella
kerlingarnar fullar eins og Guð-
mundur Árni Stefánsson gerði.
John myndi ekki einu sinni fussa í
áttina að Turku. Hann myndi láta
sem þessi staður væri ekki til.
En John var uppi á þeim tíma
þegar karlar veltu ekki fyrir sér
kvennamálum. Hann reið um fyrir
þann tíma að leyndardómum tíða-
hringsins var upplokið. Hann gerði
aðeins það sem menn þurfa að gera
og kærði sig kollóttan um hvað
konur dunduðu sér í sínum horn-
um.
En nú er öldin önnur. Eftir þrjá-
tíu ára blómatíma lcvenfrelsishreyf-
ingarinnar hafa karlmenn litast af
viðhorfum kvenna og margir þeirra
láta sér leynt og ljóst dreyma um að
steypa sér ofan í yfírþjóðlega
saumaklúbba eins og þann sem var
haldinn í Turku í síðustu viku. Eða
hvaða saumaklúbb sem er, ef því er
að skipta.
En til þess að eigna mönnum þrá
eftir saumaklúbbi verða menn að
leggja upp með temmilegan
skammt af kvenfyrirlitningu og
eigna kvenfólkinu ýmislegt af þeim
vondu eiginleikum sem þessir karl-
ar bera. Og það er gert hér.
Og hópurinn sem er sendur til
Turku er skemmtilega fjölbreyttur.
Innan um uppstrílaða vínar-
brauðstilla eru hörku kerlingar sem
kalla eldci allt ömmu sína. Alveg
eins og í Turku þar sem væmnar
Hvatarkerlingar sátu til borðs með
harðsvíruðum lesbískum- femín-
ista-fasistum. Og að sjálfsögðu eru
þeir tólf sem fara, tólf eins og Dirty
Dosen.O
Davíð Oddsson
Davíð hefur ef til vill ekki ríka kvenlega
eiginleika nema ef menn trúa þeim
gömlu fræðum að konur séu harðvítugri
en karlar. Davíð gleymir engu og hefnir
sín þótt síðar verði. Hvernig hann glímdi
við vandamáiið sem hann bjó til um
haustkosningar eða ekki haustkosningar
bendir einnig til að hugsanir hans séu
frekar eins og víravirki en bein lína. Og
það er kvenlegt samkvæmt Rósu Ing-
ólfsdóttur — og ekki lýgur hún. Svo má
einnig benda á að Davíð tæki sig miklu
betur út ídragt og með hliðartösku en í
jakkafötum. Þótt ekki fyrir annað en að
hann mundi losna við vandann með
bindishnútinn og gæti borið lausa slæðu
í staðinn.
Hratn Gunnlaugsson
Ótrúlega vælinn maður. Lítur ávallt á
sjálfan sig sem fórnarlamb eins og kona
sem hefur lesið yfir sig af kvennafræð-
um. Fær hvergi að njóta sín og nýtur
aldrei sannmælis. Efhann væri kona
mundi hann selja sér að það væri vegna
kynferðis síns en þar sem hann er karl er
hann sannfærður um að það sé vegna
vináttu hans og Davíðs Oddssonar.
Omar Ragnarsson
Ómar er hin hliðin á peningi Sigrúnar
Stefánsdóttur. Það er hægt að taka frétt-
ir hennar af opnun hannyrðaverslunar á
Höfn í Hornafirði, breyta versluninni í
vegaspotta fyrir utan þorpið og þá er
maður kominn með týpíska Ómars
Ragnarssonar-frétt. Og ef karlar flykktust
til Turku, myndu þeir ræða um annað en
bila, fjallaferðir, vegakerfið og snjó-
mokstur? Nei. Og ekkert af þessu væri
fullkomnað nema Ómar væri á svæðinu.
Hjálmar H. Ragnars
Augabrúnirnar á Hjálmari virðast vera
fastar í fórnarlambastellingum. Hann
hnykklar þær fyrir ofan nefið þannig að
þær mynda spíss — eins konar þríhyrn-
ing með tindinn á miðju enni. Elvis Presl-
ey gerði þessa augnaumgjörð að kyn-
ferðislegu tákni um miðjan sjötta áratug-
inn en það hefði likast til ekki gengið ef
hann hefði ekki skakað mjaðmirnar íleið-
inni. Hjálmar skekur ekki mjaðmirnar
heldur krossleggur lappirnar um leið og
hann talar um hversu sárþjáðir listamenn
eru af skilnings- og styrkjaleysi.
Ingólrir Margeirsson
Ingólfuryrði ómissandi á samkomur á
borð við þá í Turku. Ingófur erpartý-
bolla, hrókur alls fagnaðar og dregur
upp gítarinn og syngur á góðri stund.
Hann hefur auk þess alltaf haft meiri
áhuga á kvennareynslu en karla, eins og
ævisögur hans sanna. Og í Sjónvarpinu í
vetur var stundum erfitt að greina hvor
var Vala Matt, Ingó eða Vala.
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson
Hannes hefur marga af verstu eiginleik-
um kvenna. Hann skilur heiminn út frá
tilfinningalegum sjónarhóli — og þá
einkum hvernig hann leikur Davíð, vin
hans, Oddsson. Hannes er kjaftakerling
og ferðast um bæinn að hreinsa upp
slúður að bera í vini sína. Hann er
snobbuð tildurrófa og leggur mikið upp
úr að bera sig vel, sjást á réttum stöðum
og umgangast rétta fólkið. Andstaða
hans gagnvart vinstri mönnum markast
líka frekar afþvíað þeir klæða sig illa og
eru púkó, en að hann hafi eitthvað á
móti pólitík þeirra.
Hjörleiíur Guttormsson
Hjörleifur er náttúrlega Kvennalistakona
par exellans. í hvert sinn sem þingkonur
Kvennalistans leggja fram frumvarp eða
fyrirspurn sem erþrungin samstöðu og
skilningi á stöðu kvenna og barna bætir
Hjörleifur í. Hann er kaþólskari en páfinn.
Nú síðast fékk hann Norðurlandaþing til
að samþykkja sérstakan styrk til kvenna
sem langaði í bisness. Auk þess gengur
Hjörleifur aldrei i frakka heldur grænni
kápu með klauf upp undir herðablöð.
Olaíur Haukur Símonarson
Það var strax Ijóst þegar Ólafur Haukur
gaf út Rauða svifnökkvann að hann
stefndi á Turku. Þar vann hann með lík-
ama sinn til að hann og aðrar konur
gætu fengið betri skilning á honum. Síð-
an þá hefur Ólafur verið eins konar
hippakerling. Stundum í takt við tímann
en stundum eins og álfur út úr hól. Nú
þegar Hárið er komið á fjalirnar er tími
hans og annarra hippakerlinga kominn á
ný.
18
FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1994 -f,