Eintak - 11.08.1994, Page 32
Þegaraðeins þríðjungur Tmpídeildar-
innar er eftir velur eintak í annað sinn
úrvalslið blaðsins. Þessir leikmenn hafa
skarað fram úrí undanfömum sex um-
ferðum að mati sérfræðinga blaðsins.
Þórður Þórðarson er mark-
vörður EINTAKS-liðsins. Hann
hefur leikið mjög vel með Skaga-
mönnum og fengið fæst mörk á sig
af markvörðum deildarínnar.
Þórður þykir mjög efnilegur og
stöðugur í markinu og þegar slíkur
leikmaður er að baki firnasterkri
vörn íslandsmeistaranna er ekki að
sökum að spyrja.
Sigursteinn Gíslason er búinn
að eiga hreint glimrandi góða leiki
nú um miðbik mótsins og er’hánn
orðinn einn af betri leikmönnum
deildarinnar. Helsti kostur hans er
fólginn í góðri færslu úr vörn í sókn
og öfugt. Síðan spillir ekki fyrir að
skapið og baráttan er í meira lagi
hjá drengnum.
Sturlaugur Haraldsson er aftur
í EINTAKS-liðinu. I fyrra skiptið
var sagt að hann væri ómissandi
hlekkur í varnarkeðju Skagamanna
og val hans í liðið í annað sinn gerir
ekkert annað en að undirstrika það.
Zoran Miljkovic hefúr aldeilis
staðið fyrir sínu í vörn Skagamanna
og hefur að mestu fyllt skarð Lúk-
asar Kostic. Hann var einnig í
fyrsta EINTAKS-liðinu og er í raun
merkilegt hve Skagamenn hafa ver-
ið naskir á þá eriendu leikmenn
sem hafa leikið innan þeirra vé-
banda. Menn hafa sagt að helsti
kostur Miljkovic sé skynsemi hans
og rósemi, hann ani ekki út í neina
vitleysu og sé ábyggiiegur og traust-
ur.
Petr Mrazek hefur leitt hina
traustu FH-vörn eins og herforingi
í sumar. FH-liðið hefur náð langt á
hinni sterku vörn sinni og það er
ekki síst vasklegri framgöngu
Mrazeks að þakka. Hann var einnig
í fyrsta liðinu og lýsir það vel jafnri
og góðri spilamennsku hans.
Haraldur Ingólfsson hefur vax-
ið mikið í undanförnum leikjum og
er allt annað að sjá til hans nú en í
fyrstu leikjunum í vor. Reyndar var
pilturinn þá að ljúka prófi í við-
skiptafræði frá Háskólanum svo
honum er vorkunn að hafa verið
annars hugar.
Hólmsteinn Jónasson er eini
Framarinn í liðinu. Hann hefur
leikið vei í sumar og oft gert mikinn
usla í vörnum andstæðinganna
með leikni sinni. Eitt sinn var sagt
um Hólmstein að hann væri með
y Hólmsteinn Jónasson
Haraldur Ingólfsson
Zoran Miljkovic
Petr Mrazek
Sigursteinn Gíslason
Sturlaugur Haraldsson
mestu boltatækni íslenskra leik-
manna og á köflum virðist það vera
rétt.
Gunnar Oddsson, miðvallar-
leikmaður Keflvíkinga, hefur spilað
mjög vel í síðustu leikjum og á ekki
lítinn hlut að máli í velgengni sinna
manna upp á síðkastið. í raun fer
að verða spurning hvort Gunnar
eigi ekki erindi í landsliðið.
James Bett er eini fúlltrúi vestr
urbæjarliðsins í liðinu. Hann hefur
vaxið mjög í síðustu leikjum og
hefur greinilega fundið sig vel í
Stöðu afturliggjandi miðjumanns.
Það eina sem mætti setja út á leik
Betts um þessar mundir er sú stað-
reynd að hann skýtur ekki nóg á
markið, maður með hans reynslu
ætti að vita hvar á að leggja boltann
í markið.
Guðmundur Benediktsson er
yngsti liðsmaðurinn. Hann hefur
nokkuð lengi þótt einn alefnilegasti
leikmaður landsins og frammistaða
hans í sumar hefur vakið mikla eft-
irtekt. Guðmundur hefur sloppið
vel við meiðsli í sumar, nokkuð
sem hann hefur ekki gert á undan-
förnum árum.
Mihajlo Bibercic er líklega besti
sóknarmaður í deildinni og hafa fá-
ar varnir fundið leiðir til að hemja
hann. Mikki, eins og hann er oftast
kallaður, er með afbrigðum mark-
heppinn og þegar það blandast
saman við góða boltatækni og
mikla baráttu er vart að sökum að
spyrja.©
Forkeppni Evrópumótanna
FH álti leikinn frá
upphafii til enda
Skagamenn næsta
öruggir
Marco van Basten
Fara skómir á hill-
una? 2
Trópídeildin
Ná Skagamenn
þrennunni? 31
Valdimar
úrleik?
Flest bendir nú til þess að hinn
skæði sóknarmaður Stjörnunnar,
Valdimar Kristófersson, leiki
ekki meira með liði sínu í sumar.
Hann tognaði illa í vöðvafestingu í
nára á undirbúningstímabilinu í
vor og hefur ekki náð sér að fullu
enn. Þessi knái leikmaður, sem lék
með Fram í fyrrasumar, hefur lítið
getað beitt sér og aðeins verið með í
þremur leikjum það sem af er sum-