Eintak - 19.09.1994, Blaðsíða 19
BIO
Það eru ekki mörg ár síðan fólk
drakk ekkert annað en vodka í
kók, Séniver í kók eða bara gamla
Brennsan, þegar það fékk sér í
glas. Drykkjarvenjur íslendinga
virðast þó heldur að breytast.
Yngsta fólkið sem hóf neyslu
áfengis eftir að bjórinn kom til
sögunnar virðist einna opnast
fyrir fjölbreytileika tegundanna á
börum borgarinnar, og er dug-
legt við að prófa nýja drykki.
Meðan flestir þeir eldri eiga erfitt
með að ímynda sér að drykkur
sem ekki er blandaður með kók
og klaka sé þess virði að láta ofan
í sig.
Þegar framboð áfengistegunda
á veitingastöðum verður jafn
mikið og raun ber vitni, hlýtur
eftirspurnin að dreifast líka.
Sumir drykkir verða vinsælli en
aðrir og til verður tíska.
Eintak athugaði hvaða drykkir
væru „inn“ um þessar rnundir.
Á Deja Vu eru svokölluð skot
það lang vinsælasta. Fólk er yfir-
leitt að sulla í bjór og skýtur svo á
sig einum snafsi til að ylja sér
enn frekar um hjartaræturnar.
Vinsælustu skotin eru; eplasn
afs, og svo blönduð skot sem
eru fundin upp af barþjón-
um staðarins. Dæmi um
þær uppfinningar eru Stacy
(romm, Beachcomber, pip-
armyntulíkjör, toppað með
vanilluís), skot sem stelp-
urnar eru brjálaðar í, og
Kvikindi (svartur og hvítur
Sambuca, Cognac og Am-
aretto) sterkt skot sem
strákarnir eru hrifnari af.
Vodkadrykkja er á undan-
haldi en léttari drykkir
eins og Martini og Camp-
ari að verða vinsælli, svo
og whisky blandað í kók.
I Casablanca er sér-
stakur bar sem selur ein-
göngu skot. Það mest
selda er Ecstazy Bliss sem
er blandað af barþjónum
Staðarins og uppskriftin
er leyndarmál.
Skot sem borin
eru fram í éluð-
um glösum eru
einnig vin-
sæl. Vin-
Það selst töluvert af kokkteil-
um og sá vinsælasti, þá sérstak-
lega hjá yngstu gestunum er
Grænn frostpinni (Contreu,
vodki, Blue Curacao, fyllt upp
með 7up). Sala á gini hefur
minnkað en romm orðið vin-
sælla. Og svo heldur gamli vod-
kinn í kók sínu.
Á 22 eru skotin vinsælust, þá
sérstaklega Hot Shot og Sam-
buca.
Maltviskí er mjög ntikið
drukkið, sérstaklega af strákun-
um. Hommarnir drekka rnikið
Campari. Stelpurnar eru hrifnar
af gini, Martini drykkjum og svo
kokkteilum eins og Black Russian
og Brjáluðu Bínu.
Kofi Tómasar frænda selur
mikið af
H o t
Shot,
eplasnafs og Tequila. Vodki og
kók, gin og tonic er vinsælt.
Töluvert er drukkið af Grand
Marnier og Irish Coffee. Á staðn-
um er boðið upp á bjór í éluðum
könnum, fyrirbærið er kallað
Hulio og er geysivinsælt. Stelp-
urnar eru hrifnari af skotunum
en strákarnir, sem drekka meira
af sterkari drykkjum.
Á Kaffibarnum eins og annars
staðar eru skotin vinsæl. Hot
Shot með Galliano er búið að
vera en í staðinn eru kornin ýmis
ný afbrigði þar sem Grand
Marnier og ýrnsir sykurlíkjörar
eru notaðir í staðinn. Vinsælustu
skot staðarins er Moli (Kahlua,
Amaretto, kaffi, toppað með
rjóma) og Neros delight (Sam-
buca, Baileys, vodka lagskipt í
staupinu). Suicide (Pernod og
Campari hrist), og ískaffi( þre-
faldur espresso, mjólk, klaki,
Sambuca, hrist. Eða Sambuca
drukkið sér í
staupi) eru
v i n s æ 1 i r
drykkir. Ap-
pelsínusafi og
Pisang Am-
b o m.
borið
kokkteill staðarins er Sex on the
Beach, sætur og bleikur stelpu-
kokkteill. Gin og vodki selst lítið
en Southern Comfort og whisky
þlandað í Sprite að verða vin-
§ælla, sérstaklega hjá strákunum.
íékkneskur Budweiser er vinsæll,
og svo eru það töffararnir og ein
pg ein hörkupía, sem drekka Jim
Og Jack á klaka.
Gaukurinn selur mikið af skot-
ym. Þau rnest seldu eru Hot Shot,
Sambuca, Heili (vodki, grenadin,
apríkósulíkjör og Baileys), svart
skot (lakkrísvodki), Tequila, og
svo skot sem ber þann vafasama
titil, Brundur í baði, uppskriftin
er leyndarmál.
fram í staupi nreð einurn klaka
nýtur einnig mikilla vinsælda.
Sex on the Beach er vinsælasti
kokkteillinn. Brennivín með
miklum klaka og sítrónu, bland-
að með vatni er að verða vinsælt
svo er gamla Miðnesið að koma
aftur.
Á Café Amsterdam eru romm
og kók og vodki og kók það lang-
vinsælasta. Nokkuð er um kokkt-
eil drykkju og þeir mest seldu eru
Top Gum (vodka, kókoslíkjör,
bananalíkjör, grenadin, fyllt upp
með appelsínusafa) og svo Ap-
pollo. Annar drykkur sem er á
mikilli uppleið er Pisang Ambom
(perulíkjör) blandað í appelsínu-
safa. Skotin eru einnig vinsæl,
sérstaklega hjá stelpunum, en
romrn og whiskey aftur á móti
meira drukkið af strákunum.
Glaumbar bíður upp á skot
sem eru búin til á staðnum,
með því að láta
'hinar og þessar
rbrjóstsykurtegundir
leysast upp í vodka.
Þessi skot eru feyki
vinsæl og svo
kHot Shot,
Sambuca og
Jagermeist-
er. Tequilað
tekur líka
alltaf kipp
þegar fólk er
að koma úr
Spánarferðum.
Kokkteildrykkja er nokkuð mik-
il en þó misjöfn frá degi til dags.
Vodki og kók og romrn í kók er
mikið drukkið, gin og Southern
lComfort drykkja að aukast.
f Stelpurnar eru mikið að færa sig
yfir í bjórinn og kokkteilana en
strákarnir eru hrifnari af
sterkari drykkjunum.
Tunglið selur rnikið
af skotum, það vin-
sælasta er Hrái. Hrái
er búinn til úr pipar-
vodka, mandarínul-
íkjör, grenadíni, ferskj-
ulíkjör, Tabasco og svo
hrárri eggjarauðu. Vin-
sælasti kokkteillinn er
Sex on the Beach
einnig er Jim Beam
og kók vinsælt.
Eins og sjá má af
ofantöldu eru skotin
það langvinsælasta á
hörunum í dag,
Stærsta ástæðan er
líklega sú að fólk er
farið að dansa meira
en áður og skotin
eru þægileg þegar
það á að fara ham-
förurn á gólfinu. Það
tekur enga stund að
skelia þeim í sig, þau
gefa gott „kikk“ og fólk
þarf ekki að dröslast
með glasið á gólf-
ið. Skot eru
m á 1 i ð.
O
MÁNUÐAGUR 19,'SEPTEMBER 1994
BíÓBORGIN
Hraði Speed ★★★ Keanu fíeeves
er geðslegrí maður en Bruce Willis,
Stallone og Schwarznenegger.
Hann er heldur ekki jafn úttúttnaður
og þeir. Það er líka kostur við
myndina að hún er ekki úttúttnuð
myndirnar þeirra.
4:40, 6:50, 9 og 11:15
Umbjóðandinn The Client ★★★
Magnaður en nokkuð hefðbundinn
lögfræðitryllir eins og við er að bú-
ast af John Grisham.
4:40, 6:50, 9 & 11:15
Úti á þekju Clean Slate ★★ Hálf-
kjánaleg gamanmynd sem maður
glottir af frekar en hlær. Dana Car-
vey úr Waynes World stendur fyrir
sínu. 9 & 11:05
Þumalína ★★★ Falleg teiknimynd
en þó enginn Disney - alla vega ekki
í sama klassa og allra síðustu Disn-
ey-myndir. Islenskt tal. 5 & 7
Hraði Speed ★★★ Keanu fíeeves
er geðslegri maður en Bruce Willis,
Stallone og Schwarznenegger.
Hann er heldur ekki jafn úttúttnaður
og þeir. Það er líka kostur við
myndina að hún er ekki úttúttnuð
myndirnar þeirra.
4:40, 6:50, 9 og 11:15
Sannar lygar True Lies ★★★ Stór
skammtur fyrir Schwarzenegger,
spenna, dráp, kímni og ótrúlegar
brellur. Betri Bond en Bond.
5, 6:45, 9 & 11
Þumalína ★★★ íslenskir leikarar
gera þessa fallegu teiknimynd að
stórri skemmtun fyrir yngstu áhorf-
endurna. 5 & 7
Valtað yfir pabba Getting Even
With Dad ★★ Ágæt skemmtun fyrir
sunnudagapabba og börnin þeirra.
5 & 9
Maverick ★★ Jody Foster skýtur
James Garner og Mel Giþson ref
fyrir rass íþessum grinvestra sem er
lengrí en hann er fyndinn. 9 & 11:15
Ace Ventura ★★★ Davið Alexand-
er, 9 ára gagnrýnandi EINTAKS, seg-
ir myndina fyndna. Fullorðnir geta
hlegið með góðum vilja. 7 & 11
Háskólabíó
Blaðið The Paper ★★ Vel leikið og
oft frekar hnyttið. Helsti gallinn er
sá að í /ok myndar er maður
eiginlega engu nær, sem er kannski
ekki ósvipað og þegar maður les
blöðin. Samt fróðleg fyrir fagfólk.
4:50, 6:50, 9 og 11:15
Sannar lygar True Lies ★★★
Hörkuspennandi stórmynd i Cinem-
ascope og með úrvalsleikurum.
5, 6:30, 9 & 11
Fjögur brúðkaup og jarðarför
Four Weddings and a Funeral ★★
Hlýleg mynd i gamansömum tón um
ástir og heitbindingar.
5, 7:15, 9 & 11
Blóraböggullinn Pludsucker Proxy
★★ Þrátt fyrir óborganleg atriði nær
þessi mynd því ekki að verða brillj-
ant. 5, 7,9 & 11:10
Kika ★★★ Enn ein mynd frá Almo-
dóvar og ekki hænufeti frá fyrrí
myndum hans. Gaman.
5, 7, 9 & 11:10
Negli þig næst og Spurning um
svar Tvær íslenskar stuttmyndir fyr-
ir þá sem þora ekki að taka séns á
einni langri og útlenskri. 9:30
Laugarásbíó
Endurreisnarmaðurinn Renaiss-
ance Man ★★ Þeir sem alltaf geta
hlegið að Danny DeVito geta hlegið
að honum í þessari. Aðrir munu
þreytast þegar tekur að líða á mynd-
ina. 4:50, 6:50, 9 & 11:20
Apaspil ★ Gamanmynd um kiáran
apa (og líklega klárari en flestir aðrir
aðstandendur). 5 & 7
Serial Mom ★★★ John Waters-
mynd eins og þær gerast bestar.
5, 7, 9 & 11
Krákan The Crow ★★ Mynd fyrir
áhugamenn um rokk, dulrænu,
teiknimyndir og annað þesslegt.
5& 11
Regnboginn
Allir heimsins morgnar Tous les
Matins du Monde ★★★ Mynd sem
er afar kurteis við bókina sem hún er
gerð eftir. Hún myndskreytir hana
mjög samviskusamlega en bætir
engu við nema músfkinni sem er
himnesk. 4:50, 6:50, 9 & 11:10
Bad Boy Buddy ★★ Metnaðarfull
áströlsk-hollensk mynd um eins
konar Kasper Hauser og kynni hans
af Iffinu þegar hann loks sleppur út
fyrir hússins dyr. Því miður dugar
metnaðurinn ekki til þess að áhorf-
endur heillist - hvorki af sögunni né
Buddy. 4:50, 6:50, 9 & 11
Fióttinn The Getaway ★★★ Fag-
mannlega gerð spennumynd með
eilítið flottara fólki en fyrrí myndin
þar sem Steve MacQuinn var að
kyssa Ali McGraw. Kim Basinger er
ólíkt kyssilegri. 4:50, 6:50, 9 & 11:10
Gestirnir Les Visiteurs ★★★
Frönsk della sem má hafa mikið
gaman af. Hraður og hiaðinn farsi.
5, 7, 9 & 11
Kryddlegin hjörtu Como Aqua
Para Chocolate ★★★ Ástir undir
mexfkóskum mána. 7, 9&11
Stjörnubíó
Úlfur Wolf ★★★ Spennutryllir með
gamansömu ívafi um mann sem er
bitinn af úlfi og breytist í varúif.
Jack Nicholson er frábær í hlutverki
sínu og leikstjórinn fær lika prik fyrir
að missa ekki svona fáránlega hug-
mynd úr böndunum.
4:30, 6:45, 9 & 11:30.
Heilaþvottur Brainscan ★ Dell-
umakerí. 9 & 11
Þrír ninjar snúa aftur 3 Ninjas
Kick Back ★ Mynd sem eingöngu
er ætiuð fólki sem er á mörkum þvi
að vera börn og unglingar. 5
& 7
Bíódagar ★★★ Besta mynd Norð-
urlanda en þó ekki nægjantega góð
til að vera afbragðs góð. 5, 7 & 9
Sögubíó
Umbjóðandinn The Client ★★★
Vandaður og vel fléttaður tryllir.
4:50, 6:50, 9 & 11:15
Ég elska hasar I Love Trouble ★
Voðalega vel frágengin mynd en
einhvern veginn steindauð hið innra.
6:50, 9 & 11:15
Steinaldarmennirnir The Flint-
stones ★ Eftir hina ágætu sendingu
frá steinöld í Júragarðinum kemur
hér ein mjög vond. Manni verður
nánast illt i veskinu að sjá jafn mörg-
um milljónum kastað á glæ. 5 & 9:15
Kvikmyndahátíð Amnesty
Regnboginn
Reporting on Death Myndin er
byggð á mannskæðri uppreisn sem
gerð varífangelsi íPerú árið 1984'.
Sjónvarpsfréttakona er send á vett-
vang. Myndavélin hefur óvænt og
einkennileg áhrifá gang mála.
Sýnd mánudag kl. 17:00
Fire Eyes Myndin fjallar um þann
útbreidda sið að umskera stúlku-
börn á unga aldri. Höfundurínn var
sjálf umskorin 13 ára en hún er
fædd í Sómaliu. Myndin hefur vakið
gifurlega athygli, hér er ekki einung-
is um persónulegan vitnisburð að
ræða heldur eftirminnilega pólítiska
yfirtýsingu og sögulega heimild.
Sýnd mánudag kl. 19:00.
Testament Bresk mynd um stúlku
frá Ghana sem snýr heim eftir langa
útlegð.
Sýnd mánudag kl. 21:00.
Tango Feroz Hér er sögð saga
nokkurra ungra hugsjónarmanna i
Buenos Aires i lok sjöunda áratug-
aríns.
Sýnd mánudag kl. 23:00.
19