Eintak - 19.09.1994, Qupperneq 20
SJONVARP
aQt.
Rfldssjónvarpið Stöð 2 (L
Mánudagur
18.25 Táknmálsfréttir
18.25 Töfraglugginn
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Kevin og vinir hans
Ný syrpa um strákinn Kevin, ell-
efu ára gutta og foringja íflokki
nokkurra stráka sem lenda í
ýmsum ævintýrum.
19.25 Undir Afríkuhimni
Myndaflokkur um háttsetta
konu sem flyst til Afríku ásamt
syni sínum. Þar kynnast þau lífi
innfæddra og lenda i margvís-
legum ævintýrum.
20.00 Fréttir
20.40 Gangur lífsins
21.30 Svarta Parísarhjólið
The Ray Bradbury Theater,
kanadísk sjónvarpsmynd gerð
eftir einni af sögum Rays Brad-
burys.
22.00 Leiðin tii Ubar
The Road to Ubar, heimilda-
mynd um leiðangur sem farinn
var fyrir nokkrum árum, til að
finna hina þjóðsögulegu borg
Ubar sem getið er um í Kóran-
inum og Arabískum nóttum. Þar
var miðstöð reykelsisverslunar i
Arabíu á dögum Grikkja og
Rómverja en borgin lagðist í
eyði vegna náttúruhamfara
skömmu siðar og týndist.
23.00 Ellefufréttir
17.05 Nágrannar
17.30 Barnaefni
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19.19
20.15 Eiríkur
20.35 Matreiðslumeistarinn
21.10 Neyðarlínan
22.00 Saga Queen
Queen, þetta er annar hluti
framhaldsmyndar sem gerð er
eftir sögu Alex Hayley
23.20 Flugásar
Hot Shots! Rugiuð grín-
mynd um orrustuflugmanninn
Sean Harley sem er varasamur
náungi og hefur af litlu að státa,
nema ef vera skyldi útlitinu.
Faðir hans var einn mesti hrak-
fallabálkur flughersins og Sean
verður að bæta um betur.
Aðalhlutverk: Charlie Sheen,
Cary Elwes og Loyd Bridges.
1991
00:55 Dagskrárlok
Þriðjudagur
18.15 Táknmálsfréttir
18.25 Frægðardraumar
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Fagri Blakkur
19.30 Staupasteinn
20.00 Fréttir
20.35 Hvíta tjaldið
I þættinum eru kynntar nýjar
myndir í bióhúsum borgarinnar.
Umsjón: Valgerður Matthías-
dóttir
20.55 Forskriftin
Annar þáttur af þremur þar sem
sögusviðið er barátta og sþilling
á sviði umhverfismála.
21.55 Mótorsport
Sýnt frá alþjóðarallinu Rallý
Reykjavik og torfærukeppni
22.35 Skjálist
Þriðji þáttur í nýrri syrþu sem
ætlað er að kynna þessa list-
grein.
23.00 Ellefufréttir
23.15 Evrópukeppnin
í knattspyrnu
Sýndir verða valdir kaflar úr leik
Akurnesinga og Kaiserslautern
sem fram fór fyrr um kvöldið.
00.00 Dagskrárlok
17.05 Nágrannar
17.30 Barnaefni
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19.19
20.15 Eiríkur
20.35 Visasport
21.05 Barnfóstran
21.30 Saga Queen (Queen)
23.05 Háskaleikur
Patriot Games-kkk Sumarleyfi
Ryan-fjölskyldunnar á Englandi
fær sviplegan endi þegar fjöl-
skyldufaðirinn, Jack Ryan, fær
pata af aðgerðum hryðjuverka-
manna og tekst að gera þær að
engu. Aðalhlutverk: Harrison
Ford, Anne Archer, Patrick
Bergen og James Earl Jones.
1992
01.00 Dagskrárlok
(VflÐV)KUDAGUR
18.15 Táknmálsfréttir
18.25 Barnasögur
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Leiðin til Avonlea
20.00 Fréttir
20.35 Vestfjarðarvíkingurinn
Mynd frá keþpni kraftakarla á
Vestfjörðum sem fram fóríjúlíá
þessu ári. Umsjón: Samúel Örn
Erligsson
21.15 Saltbaróninn
Þýsk/austurrískur myndaflokkur
um ungan og myndarlegan
riddaraliðsforingja á tímum
Habsborgara í austurrísk-ung-
verska keisaradæminu.
22.10 Þorsklaust þorsk-
veiðiland
Ólafur Sigurðsson fréttamaður
var á ferð vestan hafs fyrir
skömmu og kynnti sér ástandið
í fiskveiðimálum við Nýfundna-
land og austurströnd Kanada,
en þar hefur veríð í gildi þorsk-
veiðibann í tvö ár.
22.40 Evrópsk knattspyrna
Sýndar verða svipmyndir frá
knattspyrnuleikjum í Evrópu.
23.00 Ellefufréttir
17.05 Nágrannar
17.30 Barnaefni
T6.15 Visasport
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19.19
19.50 Vikingalottó
20.15 Eiríkur
20.35 Melrose Place
21.30 Matglaði spæjarinn
22.25 Tíska
22.50 Hale og Pace
23.20 Thelma og Louise -kkkk
■ Húsmóðirin Thelma og þjón-
ustustúlkan Louise eru orðnar
hundleiðar á lífsmynstrí sfnu og
ráðríkum eiginmönnum. Þær
ákveða að gera eitthvað í mál-
inu, setjast upp íbíl og stinga af
í leit af ævintýrum. Aðalhlutverk
eru íhöndum þeirra Susan Sar-
andon og Geenu Davis og sýna
þær báðar stórleik. Einnig
bregður Brad Pitt fyrir en hann
er á hraðrí uppleið i Hollywood
um þessar mundir. Myndin er
síðan 1991 og leikstýrt af Ridley
Scott.
01:25 Dagskrárlok
flðeins 39.90 kn minulan
Sfefnumótafínan
„Halló ég er 17 ára stúlka og
langar aShafa náin kynni við
aðra stúlku. Égvil vera í karl-
mannlega hlutverkinu og er
hávaxin. Þú mátt alveg vera
lœgri en ég. Ég vil helst hafa
þær Ijóshærðar en þið megið
vera dökkhærðar. Mig langar
að kynnastyður og efþér viljið
kynnast mérýtið þá á einn.
Tah, tah.“
amm
Eitt erfiðasta atriðið í kvikmyndinni BenjanP
ín dúfu var tekið aðfaranótt sunnudags. Notað-
ir voru sérstakir gas-eldar sem skotið var út
unt stúta til að láta sem hús stæði í ljósum
logum. Húsið er þó aðeins útveggirnir einir
úr stálgrind. Fyrir næstu tökur verður því
svo breytt í brunarústir.
Tökur fara fram í Skúlagarði við Rauðarár-
stíg og hafa miklar breytingar verið gerðar á
garðinum. fbúar hverfisins hafa sýnt kvik-
myndagerðarmönnunum einstaka þolinmæði
og ekki veigrað sér við að leyfa þeim að hafa af-
not af íbúðum sínum þegar þess hefúr þurft
með. Ráðgert er að tökur myndarinnar standi
fram í ágúst og er stefnt að frumsýningu í sept-
ember á næsta ári.
Gísli Snær Erlingsson er leikstjóri Benjam-
íns dúfu sem gerð er eftir skáldsögu Friðriks
Erlingssonar. ©
Egill Helgason
Loksins vinur litla
mannsins í strœtó
Spef.u
BIóhöllinni, Bióborginni, Borg-
ARBlÓI AKUREYRI
★★★
í hasarmyndum látá menn
sjaldnast nægja að bjarga eigin
skinni. Eða þætti það ekki ffekar
nýstárlegt hetjumenni sem væri
alltaf að reyna að sleppa billega frá
öllu saman? Flestar hetjur bjarga
einhverju stóru og miklu. James
Bond bjargaði heimsbyggðinni
margoft frá tortímingu. Rambó
bjargaði heiðri Bandaríkjanna.
Bruce Willis er þegar búinn að
bjarga stórhýsi og alþjóðaflugvelli
og er varla hættur enn. Á lista Ste-
vens Seagal yfir hetjudáðir er
flugvélamóðurskip.
Keanu Reeves lætur sér hins
vegar nægja að bjarga strætó í Los
Angeles. Það er lofsvert og kristi-
legt, því í Los Angeles ferðast eng-
inn í strætó nema hann hafi bevís
upp á að vera aumingi og ólíklegt
að margir vildu leggja mikið á sig
til að bjarga strætófarþegum í
þeirri borg. En Keanu Reeves
bjargar þeim hérumbil 'öllum með
glöðu geði. Hann er mjög viljug
hetja.
Og af því að örlögin hafa hagað
því svo til að Keanu Reeves lendir í
að bjarga strætó en ekki til dæmis
geimferju (þá er hann reyndar þeg-
ar búinn að bjarga lyftu!), fer ekki
hjá því að bíómyndin Speed snúist
að miklu ieyti um bílaeltingaleik.
Bílaeltingaleikurinn er sjálf hryggj-
arsúla myndarinnar. Við þau tíð-
indi þykir mér sennilegt að setji
nokkurn beyg að allstórum hópi
kvikmyndahúsgesta sem veit ekk-
ert leiðinlegra og tilbreytingar-
snauðara en bílaeltingaleiki.
Það góða fólk hefur óneitanlega
nokkuð til síns máls, svona í heild-
ina tekið. Eftir að kvikmyndin
French Connection hóf bílaelt-
ingaleiki á nýtt og hærra stig á ár-
unum eftir 1970 tröllriðu þeir has-
armyndum lengi vel. Það þótti
ófært að gera svoleiðis mynd nema
hún innihéldi að minnsta kosti
þrjá bílaeltingaleiki. Þeir urðu
fljótt mjög þreytandi. Strax á has-
armyndaárunum í Hafnarbíói
, voru það bara verstu hallærislúð-
arnir sem enn hlógu dátt að bíla-
eltingaleikjum. Aðrir lygndu
mæðulega aftur augunum eða
þreifuðu í kringum sig eftir stelpu
til að kyssa.
Djöfulgangurinn í kringum
strætóinn sem springur í loft upp
ef hann. keyrir ekki á ofsahraða
gengur þó upp þannig að helstu
hasarmyndatröll heimsins hljóta
að naga á sér handabökin. Sagan er
óneitanlega gloppótt og máski er
hugmyndin ögn fráleit, en dugir
þó fullvel sem rammi utan um ak-
sjónina; það er semsé nógu mikil
aksjón og nógu mikið plott og
nógu þolanlegt jafnvægi þar á milli
til að gera Speed að gróflega
spennandi mynd á tíðum.
Sumum hetjum er það þvert um
geð að vera hetjur, það eru náung-
ar sem eru seinþreyttir til vand-
ræða og lenda í því svona óvart að
vera hetjur (sbr. íslendingasögur).
Keanu Reeves er hins vegar áfjáð
hetja, það þarf svo sannarlega ekki
að teyma hann óviljugan út í hetju-
dáðirnar. Hann lætur það heldur
ekki á sig fá þótt hann sé timbrað-
ur við upphaf þeirra. Hafa margir
misst af ómerkilegri stefnumótum
vegna timburmanna. Hins veg'ar er
Keanu Reeves geðslegasti maður
sem gengur beint til verks án stæla,
að vísu nokkuð í yngri kantinum af
harðjaxli af þessari stærðargráðu
að vera, ekki jafn mikill og þykkur
og Stallone og Bruce Willis, en bet-
ur rakaður og minna sveittur og
laus við þann leiða sið að binda
tóbaksklút um skallann á sér. En
þótt hann sé gróflega sætur er
spurning hvort hann sé nógu mik-
ill karakter til að duga í framhalds-
myndina Speed II sem vissulega
virðist hætta á að verði gerð.
Gamli svallarinn Dennis Hopp-
er er hins vegar eins og strengja-
brúða í hlutverki vonda karlsins,
kippist til og rykkist í óstjórnlegum
ofleik og greinilega löngu búinn að
gefast upp á að reyna að taka nokk-
urn skapaðan hlut hátíðlega.
Sandra Bullock sem keyrir stræt-
óinn hefúr fallega fætur sem taka
sig vel út á bensíngjöfinni.
Að lokum skal viðurkennt að
það er dálítið fínt handbragð að
sprengja í loft upp eina risaþotu
svona líkt og bónus. Leikurinn fer
hins vegar að verða dálítið þreyt-
andi þegar liðið er komið ofan í
neðanjarðarlest. ©
20
MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1994