Vikublaðið - 26.11.1992, Page 5

Vikublaðið - 26.11.1992, Page 5
Fimmtudagur 26. nóvember 1992 VIKUBLAÐIÐ 5 undirliggjandi vanda og það er unnið að þeim í miklum flýti. í upphafi var talað um framhald þjóðarsáttar, en það komu aldrei nema örfáir ein- staklingar nálægt þessari vinnu. Þær hugmyndir sem stjórnvöld hafa um samráð minna á starfshætti konim- únistaflokkanna í Austur-Evrópu þar sem lýðræðið var í því fólgið að troða hugmyndum flokksforystunnar inn á fólkið, segir Rannveig. Fyrirtækin bera litla skatta í tillögum ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að launþegar taki á sig 5-6 milljarða í aukna skatta og bæti þar með ríkissjóði og sveitarfélögum afnám aðstöðugjalds. Þessi hug- mynd hefur verið gagnrýnd vegna þess að afnám þessara gjalda léttir skattbyrði allra fyrirtækja, ekki bara þeirra sjávarútvegsfyrirtækja sem illa standa. Heildarskattar íslenskra fyrirtækja eru aðeins 6,4 prósent, (lífeyrissjóðsframlag meðtalið) af þjóðarframleiðslu en meðaltal Evr- ópuþjóða er 9,2 prósent. Margir telja óskynsamlegt að lækka þetta hlutfall enn frekar og ekki síst vegna þess að slík ráðstöfun mun hygla fyrirtækj- um, sent hafa efni á að borga skatta til samfélagsþarfa, á kostnað al- mennings. Spurt er: hvers vegna ætti að lækka skatta Eimskips, Hagkaupa, tryggingafélaga og olíufélaga? - Við óttumst að skattbreytingin verði eina varanlega breytingin sem samráðsleiðin hafi í för með sér. Fyr- irtækin fá aflétt álögum sem lagðar verða á herðar launafólks, segir Rannveig og heldur áfram: - Að- gerðimar bitna harkalega á barna- fólki og þeim sem skulda vegna hús- næðiskaupa. Barnabætur eru skertar um 10 prósent og vaxtabætur vegna húsnæðislána lækkaðar. Þá hækkar húsnæðiskostnaður þegar 14 prósent virðisauki leggst á hann um áramót. í tillögum samráðshóps ASI og VSÍ var ýmislegt sem BSRB gat tek- ið undir, enda eru það sömu hug- myndir og BSRB hefur lagt fram á síðustu misserum. Þar má nefna auk- ið skattaeftirlit, hugmyndir um há- tekjuskatt og fjármagnstekjuskatt og hækkun viðmiðunartekna einyrkja. Lítið varð úr þessum tillögum þegar ríkisstjómin bræddi saman efnahags- aðgerðir á næturfundum um helgina. - Það er lýsandi fyrir áherslur ríkis- stjómarinnar að ekkert varð úr fjár- magnstekjuskatti, segir Rannveig. Rannveig bendir á að ekkert hafi orðið úr hugmyndum um aukið skattaeftirlit. Þar megi eitt og annað bæta, til dæmis að fylgjast með eignamyndun, sem líklegt er til að skila verulegum upphæðum í ríkis- sjóð. Þar hefur hún meðal annars í huga þá menn sem eru í þeirri að- stöðu að gefa upp Iitlar tekjur en hafa mikið umleikis. - Það eignast enginn glænýjan jeppa á vinnukonulaunum, segir Rannveig. Markmið aðgerða ríkisstjórnar- innar er að viðhalda stöðugleika í efnahags- og atvinnulífinu. Rann- veig efast unt kennisetninguna sem liggur þar til grundvallar. - Hvers konar stöðugleiki er það sem okkur er svo umhugað að varð- veita. Öll erum við sammála um að lág verðbólga sé af hinu góða. En það ástand sem nú ríkir einkennist af ýmsu öðru en stöðugleika verðlags. Það er aukið alvinnuleysi því að fyr- irtæki hætta rekstri og fáir leggja úl í nýfjárfestingar vegna hárra vaxta. Svipað ástand hefur ríkt síðast liðin tíu ár víðast hvar í Evrópu og í Bandaríkjunum, lág verðbólga og mikið atvinnuleysi. Erlcndis eru menn famir að ræða hvort lág verð- bólga sé cina markmið hagstjórnar og farið er að dusta rykið af gamal- dags aðferðum til að auka atvinnu og fá hjólin til að snúast. Það er ljóst að markaðurinn veldur ekki því verk- efni, segir Rannveig Sigurðardóttir, hagfræðingur BSRB. Páll VHhjálmsson SAMBÚÐARVANDI PJÓDA Bosnía og þjóðernishyggjan Frá því að Júgóslavía sem var leystist upp hefur ekki verið lát á ótíðindum þaðan: Fyrst börðust Serbar og Króatar um það hvar landamæri nýrrar Króatíu ættu að liggja, síðar berjast Serbar gegn því að Bosnía verði nýtt ríki undir forystu múslíma og flæma alla þá frá heimkynnum sínum með báli og brandi sem þeir telja í vegi fyrir því að til verði samfelld serbnesk byggð - þetta heitir á frétta- máli „þjóðernahreinsanir“. Og allir sitja á svikráðum við alla: Króatar í Bosníu sýnast ýmist standa með múslimum eða þeir „hreinsa til“ vestanmegin, búa til króatísk svæði. Fyrrverandi kon- ungssinnar, kommúnistar eða fasistar - það skiptir ekki máli hvað- an menn koma úr pólitíkinni, allir eru þrútnir af þjóðernisheift sem heimtar blóð. Og þó er þetta allt sama fólkið, talar allt sama málið, en hver lítur sínum augum á söguna eftir því í hvaða trú forfeður hans voru upp aldir; íslam, kaþólsku eða rétttrúnaði. Arni Bergmann telur að áður en uý ríki séu stofnuð þurfi fyrst að ganga sem rœkilegast frá því að þœr þjóðir sem verða í minnihluta í nýju ríki eigi vís mannréttindi og raunveru- lega möguleika á að rœkta sinn menningargarð. Annars sé boðið upp á bosnískt ástand fyrr en síðar. Rétt eins er til ill þjóðernishyggja sem magn- ar hatur á nágrönnum, belgir sig upp með að „við“ séum í öllu fremri en „þeir“ og tek- ur sér rétt á kostnað mannúðar og mannrétt- inda. Og svo á hinn bóginn sú siðaða þjóð- ernishyggja sem er nauðsynleg til þess að smœrri þjóðir heims lifi af Þetta hafa allir heyrt og allir eru ráðlausir og fórna höndum og geta ekkert gert. En fara fljótt að spyrja sjálfa sig að því, hvort þjóðernis- hyggja sé ekki ill i' sjálfu sér, fyrst svona fer, hvort réttur þjóða til sjálfsákvörðunar (til að stofna sín þjóðríki) sé ekki stórhættulegur? Skoðum þá spurningu í fáum orðum. Atburðirnir í Bosníu eru reyndar ekkert einsdæmi. Bandaríkin urðu til m.a. með „þjóðahreinsunum" (brottrekstri indjána af löndum sín- um). ísrael sömuleiðis. Landamæri Evrópu eftir stríð voru styrkt með stórfelldum nauðungarflutningum á fólki. Líbanon er illt dæmi um stríð allra gegn öllum. Borgarastríð geta víða komið upp og þarf það ekki til að þjóðir berjist: Ekkert Afríkuríki er jafn illa leikið nú af innanlands- erjum og Sómalía, og ekkert Afr- íkuríki en nær því að vera hrein- ræktað þjóðríki. En dæmi Bosníu minnir á nokkra lærdóma sem menn verða að draga af nýlegri sögu. Vanmetnar stærðir I fyrsta lagi: Sambúðarvandi þjóða hefur verið vanmetinn. Hægrimenn jafnt sem vinstrimenn gerðu lengi vel ráð fyrir því að þjóð- ernishyggja hlyti að verða á undan- haldi fyrir framförum .velmegun, viðskiptafrelsi eða þá sósíalisma. Sannleikurinn er sá að þjóðernis- hyggja með viðleitni stærri sem smærri þjóða til að ráða yfir sér sjálfar, hún er sterk og getur blossað upp hvenær sem er. Hvort sem um er að ræða örvæntingarfullar sjálfsbjargartilraunir þjóðar sem óttast að hún sé að hverfa (t.d. bar- áttu baska), eða þá að pólitísk kreppa og efnahagslegt hrun eflir þá freistingu að kenna nágrannanum um allt: Við værum mun betur sett ef við værum laus við HINA. (Þetta á við um Sovétríkin og Júgóslavíu fyrrverandi.) I öðru lagi: Það er vitanlega nauðsynlegt að menn virði rétt þjóða til sjálfsákvörðunar og síst ættum við Islendingar að hafna honum. Hitt er jafnvíst, að það er ekki sjálfgefið að besta lausnin í hverj.u máli sé að stofna nýtt ríki. Eins og sá gamli andófsmaður í gömlu Júgóslavíu, Mílovan Djilas, komst að orði: Einn sjálfsákvörðun- arréttur kallar á annan. Króatar segjast vilja skilja við Júgóslavíu. Serbar í Króatíu (t.d. í héraðinu Krajina) segjast þá vilja í nafni síns sjálfsákvörðunarréttar skiljast við Króatíu. Og svo koll af kolli. Víða, og ekki síst í Bosníu, eru engin eðli- leg landamæri til eftir búsetu þjóða. I slíkum dæmum er nauðsyn mikil að umheimurinn reyni að hafa áhrif í þá veru að menn flýti sér ekki að stofna ný ríki. Fyrst þarf að ganga sem rækilegast frá því að þær þjóðir sem verða í minnihluta í nýju ríki eigi vís mannréttindi og raunveru- lega möguleika á að rækta sinn menningargarð. Annars er boðið upp á bosnískt ástand fyrr en síðar. Margir telja reyndar að Þýskaland og Evrópubandalagið hafi flýtt sér háskalega við að viðurkenna ný ríki í Júgóslavíu án þess að ganga úr skugga um það áður að sæmilega væri frá slíkunt málunt gengið. (Rússneskur mannréttindafræðing- ur skrifaði reyndar fróðlega grein um það bil sem Sovétríkin voru að liðast í sundur: Hann vísaði til skilnaðar íslendinga og Dana sem mikillar fyrirmyndar - þar tóku menn sér drjúgan biðtíma í nánu ríkjabandalagi með gagnkvæmum réttindum áður en Island varð lýð- veldi 1944.) Gott og illt í þriðja lagi þurfa menn að muna sem best að alþjóðahyggja og þjóð- emishyggja eru ekki andstæður með sama hætti og gott og illt. Báðar hyggjur em illar og nauðsynlegar. Það er til góð og nauðsynleg al- þjóðahyggja, sem krefst þess að hver þjóð slái af ítrustu sjálfstæðis- kröfum í nafni náttúruverndar og mannréttindamála. Það er til ill al- þjóðahyggja sem í raun valtar yfir smærri þjóðir í nafni viðskiptafrels- is, framfara, sósíalisma og guð má vita hvers; gerir þær ósjálfbjarga, tortímir menningu þeirra (með eða án ofbeldis). Alþjóðahyggja sem í raun tryggir sjálfumglaðan yfirgang stærstu þjóða sem geta haldið áfram að vera þær sjálfar og um leið fyrir- litið þær sem minna mega sín í trausti þess að þær, stórþjóðirnar, séu hinir eiginlegu berendur sið- menningar og sögulegrar þróunar. Rétt eins er til ill þjóðernishyggja sem magnar hatur á nágrönnum, belgir sig upp með að „við“ séum í öllu fremri en „þeir“ og tekur sér rétt á kostnað mannúðar og mann- réttinda. Og svo á hinn bóginn sú siðaða þjóðernishyggja sem er nauðsynleg til þess að smærri þjóðir heims lifi af. Þjóðernishyggja sem fyrirlítur ekki aðra heldur byggir á óbrengluðu sjálfstrausti, virðingu fyrir eigin sögu og annarra, sterkum menningarvilja í nafni þeirrar fjöl- breytni sem gerir mannlífið í heim- inum auðugra og betra og á þeirri lýðræðiskröfu, sem vill tryggja að ákvarðanir sem miklu varða séu teknar af þeim sem þær bitna á, en ekki af fjarlægu skrifræðisvaldi sem talar annarlegum lungum. Slík þjóðernishyggja forgengur ekki þótt bræður berjist í Bosníu: Það er aldrei nauðsynlegra en ein- mitt nú að það sem jákvætt er í vit- und hverrar þjóðar um sjálfa sig fái að njóta sín.

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.