Vikublaðið - 26.11.1992, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 26. nóvember 1992
ViKUBLAÐIÐ
7
þetta fallegt, enda með Akureyri í
kjördænti sínu. Hann færi vísast að
skipta sér áf því ef draslið færi að
hrúgast upp þar hver sem ætti það.
En svo blasir við Washington-
borg og minnir á allt annað en Man-
hattan. Borg með evrópsku yfir-
bragði, höfuðborg mesta ríkis heims.
Við nýjan minnisvarða um rúmlega
58.000 Bandaríkjamenn sem létu líf-
ið í Víetnam standa hreyknir foreldr-
ar, eiginkonur og börn og renna
fingrunum yfir nafnið á múrnum.
Nöfnin voru lesin og það tók hálfan
annan sólarhring því að slfkt lesa
menn hægt og virðulega. Þeir féllu
fyrir föðurlandið. Ferðalangur fann
fyrir annars konar hreykni og kenndi
eitt andartak gamalkunnrar þreytu í
fótum eftir langar mótmælagöngur
gegn þessari mannfórn. Ef til vill
hefðu Beiri fallið ef heimurinn hefði
ekki mótmælt.
Og við heimsækjum musteri
Abrahams Lincolns og þinghúsið og
saga þessa mikla ríkis hellist yfir
okkur, ótrúleg saga fólksins sem
flúði undan kúgun úrkynjaðrar yfir-
stéttar Evrópu og braut land í nýjum
heimi með frelsishugsjónina að leið-
arljósi, en sótti sér síðan lifandi fólk
úr enn annarri álfu og hneppti í
hlekki sem enn svíður undan. Fólkið
sem gekk kaupum og söluni skóp
þann ævintýralega auð sem afkom-
endur þess hafa enn í svo litlum mæli
notið.
Og það er kannski vandi Banda-
ríkjanna nú. Misskipting auðsins er
orðin þjóðfélagsmein sem hinir auð-
ugu eru farnir að finna fyrir. Ekkert
nútímaþjóðfélag hefur efni á 25-
30% ólæsi, ekkert þjóðfélag hefur
heldur efni á heilbrigðiskerfi sem
ekkert ræður við farsóttir vegna þess
að menn hafa ekki ráð á að leita
læknis. Hið mikla ríki er að rotna
innan frá meðan það leikur hlutverk
gjafarans gagnvart vanþróuðum
þjóðum. Þjóðarstoltið er orðið holt
að innan, sjálfumgleðin blekking.
Til þess er sorglegt að vita. Þegnar
þessa mikla ríkis hugsjóna um frelsi
og lýðræði eiga betra skilið. Ótrúleg
þrautseigja genginna kynslóða má
ekki og á ekki að vera unnin fyrir
gýg. Bandaríkin eru þrátt fyrir allt
von mannkynsins um friðsamlega
sambúð ólíkra kynþátta í gjöfulu
landi þar sem nóg ætti að vera fyrir
alla. Ótti minn er þó sá að undirstöð-
urnar kunni að vera að fúna, og
vissulega fer sú umræða fram meðal
hugsandi Bandaríkjamanna. Því að
þar er engu leynt og þess vegna verð-
ur þeim ýmislegt fyrirgefið. Ef til
vill er það orðin mest þjóðarnauðsyn
þar í landi að skilgreina hvað felist í
því langþreytta hugtaki frelsi.
Betlarinn fyrir utan hótelið okkar
á Manhattan, ungur drengur sem
hvorki er drukkinn né dópaður, er
svo sannarlega frjáls. Hann þarf ekki
að vinna því að hann fær enga vinnu.
Hann hefur ekkert húsnæði og sefur
þarna á horninu. Rétt hjá skýja-
kljúfnum sem Japanir keyptu fyrir
nokkrum árum en hirða ekki um að
leigja út, svo að hæðirnar hundrað
standa auðar. I Ameríku er allt leyfi-
legt, engin boð eða bönn. Frelsið er
algjört. Engin yfirvöld að blanda sér
í einkamál. Og maður venst frelsinu
fljótt. Jafnvel kvenpersóna frá Is-
landi gengur glaðbeitt fram hjá
manni sem liggur í anddyri verslunar
annaðhvort sofandi eða jafnvel dauð-
ur og gerir innkaup sem ekkert væri.
Sama kona í verslun á Laugavegin-
um væri búin að kalla til alll tiltækt
björgunarlið við sömu aðstæður. Það
er engu líkara en siðferðiskenndin
og samkenndin sé orðin alfrjáls.
En það er lfka frelsun þegar
dimmir á Manhattan og Ijósin
kvikna í álfaborgunum milli himins
og jarðar. Þá fara ferðalangar að fá
sér að borða eða sækja heimsins
bestu leikhús og tónleika, en aðrir
leggjast til svefns á gangstéttunum í
skugga skýjakljúfanna. En hvað með
það, ég meikaði það en þeir ekki, eða
hvað?
VÍMUEFNA VANDtNN
Helgi Seljan, formaður Landssambands gegn áfengisbölmu:
Bíndíndisdagur fjöl-
skyldunnar 28. nóv.
Það er mér mikið gieðiefni að fá aftur tækifæri til þess að viðra
skoðanir mínar í eigin málgagni. Ekki er það síðra að mega taka
bindindismálin fyrir, því löngum hafa þau hugleikin verið íslenzkum
sósíalistum sem voru hvarvetna á varðbergi, þar sem gróðaöfl
reyndu að læsa greipum sínum og það átti þá ekki hvað sízt við um
áfengisauðmagnið. Þar þarf áfram á verði að vera og vonandi bera
íslenzkir sósíalistar ávaiit gæfu til þess að standa sem bezt gegn
vímunnar vá. Þar er oft þjóðfélagsvandinn verstur viðureignar.
um ærnum fjármunum í afleiðing-
arnar, lækningarnar, meðferðina, og
ekki skal vanmetið margt sem þar er
gert. En nær hygg ég væri okkur þó
að eyða einhverju í þær fyrirbyggj-
andi aðgerðir sem ættu að geta skilað
okkur enn meiru, því að orsökinni á
öðru fremur að hyggja. Þangað fer
undralítið fé í dag.
A bindindisdegi fjölskyldunnar er
okkur öðru skyldara að huga að æsk-
unni og allri hennar velferð. Með til-
komu bjórsins gerðist það sem við
andstæðingar hans óttuðumst mest:
áfengisneyzlan færðist enn neðar í
aldurshópa. Aukning áfengisneyzlu
hefur að langmestu leyti orðið hjá
æskunni - hjá óþroskuðum
unglingum og þar verður á að
ósi að stemma. Átak til þess
að gera grunnskólann okkar
áfengislausan, sem hugmynd
er um hjá mætum starfsmönn-
um Áfengisvarnaráðs, væri
verðugt að hefja í kjölfar
bindindisdagsins. Þætti
mönnum það ef til vill til of
mikils mælzt að unglingar
innan 16 ára aldurs væru ekki
farnir að ánetjast vímunni?
Myndi „frelsis“lið gróðaafl-
anna ekki af göflum ganga -
yfir ósvinnunni? Á það lið
hefur verið hlustað öðrum
Öðnr sinni er nú efnt til bindindis-
dags fjölskyldunnar og nú á laugar-
degi, þeim degi þegar þess má því
miður vænta að eitthvað beri út af
hjá alltof mörgum fjölskyldum. Dag-
urinn á að vera okkur öllum áminn-
ing um holla siði, heilbrigða lífshætti
og um leið er sérstök áhersla lögð á
mikilvægi fjölskyldunnar í samfé-
laginu. Við höfum æma ástæðu til að
staldra við varðandi stöðu okkar í
vímuefnamálum almennt. Fréttir lið-
inna vikna hafa vissulega verið slík-
ar að þær hljóta að hafa ýtt við ein-
hverjum, vakið einhvern til umhugs-
unar um það hvert þessi óheillaþróun
alvöruatburða myndi yfirleitt leiða
okkur. Þegar lögreglan kynnir
óhugnanlega tíð útköll til að skakka
leikinn inni á heimilunum þá hljót-
um við að hugleiða, hversu ástatt er í
raun, hversu börnin hljóta að líða,
hvernig afleiðingarnar eru fyrir and-
lega og líkamlega vellíðan þeirra,
hversu það heimili er í raun statt sem
þarfnast lögregluaðstoðar við að
leysa mál - sem auðvitað eru svo
ekki leyst í alvöru með slíku. Og
áfengið er nær alltaf orsakavaldur-
inn.
Þegar við heyrum æðstu menn
heilbrigðismála okkar fullyrða með
gildum rökum, að áfengið sé einn
stærsti ofbeldisvaldurinn, flest alvar-
legri ofbeldisverk séu unnin á valdi
vímunnar, þá undrar það engan sem
allsgáðum augum fær litið ástand
mála. En ógnvekjandi er þessi óræka
staðreynd og til umhugsunar á bind-
indisdegi fjölskyldunnar.
hampa gömlu farísearéttlætingunni
og fordæma hart í eigin upphafn-
ingu, gera þannig skil góðs og ills,
þar sem áfengið er í hlutverki hins
góða á meðan önnur vímuefni leika
andstæðuna. Sannarlega er sam-
hengið slikt að það eitt væri vert ær-
innar umhugsunar á degi sem þess-
um, hver skrumskæling þar er uppi
höfð.
En ekkert er þó mikilvægara en
huga að sem beztum forvörnum,
huga að því hvernig sem bezt má
bægja frá þessari ógnarvá. Við eyð-
fremur á umliðinni tíð og af-
leiðingarnar blasa nú við. Á
hið falska „frelsis“hjal að verða
stefna stjórnvalda, þar sem bjórgoð-
ar fara í fylkingarbrjósti fremst?
Allt hugsandi fólk ætti til varnar
að snúast af einbeitni og djörfung
þess mæta málstaðar sem barizt er
fyrir. Bindindisdagurinn hinn 28.
nóvember verður vonandi til þess að
sá málstaður að minnka sem mest
vald vímunnar innan fjölskyldunnar,
meðal unglinganna, megi eiga greið-
ari leið lil fólks og forystunnar ekki
sízt.
Þegar svo það er þrautsannað
neyzla ólöglegra vfmuefna á rætur
sínar í áfengisneyzlu í nær 100% til-
vika þá kemur hvað gleggst í Ijós
hversu hættuleg sú tvöfeldni er sem
almenningsálitið speglar allt upp í
æðstu staði um þessi skýru skil,
sem eiga að vera milli
áfengis annars vegar og
ólöglegra vímuefna hins
vegar. Þar kemur annar
þáttur tvískinnungs til, því
ótæpt er látið í veðri vaka
að áfengisneyzla sé með
öllu ótengd annarri vímu-
efnaneyzlu, eitthvað allt,
allt annað og algengt er að
á sama tíma og menn mæra
áfengið og mæla með
auknu frelsi þar, óheftu
helzt af öllu, þá fordæma
þeir hinir sömu ákaflega
önnur vímuefni, og alveg
sérstaklega það ógæfufólk
sem þeim er orðið háð. Sú
mikla dómharka áfengis-
dýrkenda í garð þeirra sem ánetjazt
hafa öðrum eiturefnum fer raunar
furðu oft saman við álit þeirra á þeim
sem hafa beðið algert skipbrot í bar-
áttunni við Bakkus. En alltof víða er
þessi tvískinnungur á ferð og vinnur
óbætanlegt tjón.
Sá sem áfengið dýrkar og hreykir
sér hátt í fullvissu þess að það sé
auðmjúkur þjónn hans er oft áður en
varir háður því, þannig að hans er
þjónshlutverkið, að ekki sé talað um
þrælshlut einan.
En það er líka gott og hentugt að
IVAF
Kratastefna eftir kosningar
Alþýðullokksmenn viðruðu marg-
ir megna óánægju með verkstjórn
Davíðs Oddssonar á viðræðum milli
stjórnarflokkanna og við hagsmuna-
samtök og stjórnarandstöðu. Mikið
var talað um lausatök, vingulshátt og
ótímabærar yfirlýsingar í fjölmiðl-
um. Forsætisráðherra lét koma fram
á fundum að ágreiningur væri milli
stjórnarflokkanna og bjó Uokks-
ráðsfund undir það að Sjálfstæðis-
flokkurinn þyrfti að gefa eftir stefnu
sína ef hann ætti að sitja áfram í
stjórn og koma í veg fyrir að vinstri
flokkar kæmust aftur til valda.
Þegar upp er staðið þykir mörgum
kratanum sem Davíð hafi leikið á þá
með sauðarskapnum og það hafi ver-
ið meiri úlfur í honum en þeir héldu.
Þannig hafi honum tekist að snúa
Jón Baldvin niður í öllum helstu
málunum og skjóta stefnumálum Al-
þýðuflokksins á langan frest. Stefnu
krata á að framkvæma eftir næstu
kosningar en fram að því verður
stefna Sjálfstæðisflokksins í gildi.
Það verður að teljast nokkuð góð út-
koma fyrir Davíð.
Tóti tappi
- Ástæðan fyrir því að Jón Bald-
vin vildi ekki birta efnahagsúrræðin
fyrr en undir mánaðamót var ekki sú
að þá er ASÍ-þingið afstaðið. Hann
ætlaði að gleðja fólk á bindindisdegi
fjölskyldunnar sem er 28. nóvember.
Þura þögl£
- Eg hef heyrt að til standi að
veita Ingimar Ingimarssyni sjón-
varpslréttamanni persónulega aðild
að evrópska efnahagssvæðinu.
\;w\
Cj
, vV
Veitingastaður
^ í miöbæ Kópavogs
F
Kráarhornié
Opið til kl. 3
Lifandi tónlist föstudaga
og laugardaga
Lítill, kr. 350,
Stór, kr. 450.
Pizzur - steikur - fiskréttir á vœgu verði
Veisluþjónusta
Hamraborg 11 - sími 42166
=0
8
s
4
=S&