Vikublaðið - 26.11.1992, Síða 11

Vikublaðið - 26.11.1992, Síða 11
Fimmtudagur 26. nóvember 1992 VIKUBLAÐIÐ 11 Aðstæður eru nú um margt óvenju erf- iðar í íslenskum þjóðarbúskap og ntikið umrót er í efnahagslífi um- heimsins. Atvinnu- leysi er vaxandi og virðist vera að festast í sessi um land allt. í sjávarútvegi og fleiri undirstöðuatvinnugreinum er rnikill taprekstur og gjaldþrot tfð. Samdráttur er í ýmsum greinum iðn- aðar, landbúnaði og þjónustugreinum. Stöðnun eða afturför rík- ir á flestum sviðurn atvinnulífsins á sama tíma og störfum er fækkað í velferðarþjónustu. Við slíkar aðstæður er ríkari þörf en nokkru sinni fyrir bjartsýna sóknarstefnu í íslenskum þjóðarbúskap, sóknarstefnu sem getur á nýjan leik blásið mönnum kjark í brjóst og skapað skilyrði til þróunar í framfaraátt. Þingflokkur Alþýðubandalagsins hefur því ákveðið að setja frarn tillögur í efnahags- og atvinnumálum sem unnar hafa verið á undanförnunt vikuin. Tillögurnar fela í sér aðgerðir í íslensk- um þjóðarbúskap til að skapa ný störf og auka verðmætasköpun um leið og lögð er áhersla á stöðugleika og jafnvægi í efnahags- lífi. Sá vandi sem við er að glíma er ntikill og djúpstæður. A hon- um verður að taka af fyllsta raunsæi og jafnframt með kjarki og bjartsýni. Landsmenn allir verða að horfast í hreinskilni í augu við það sem gera þarf. Þingflokkur Alþýðubandalagsins er reiðubúinn til viðræðna um nauðsynlegar aðgerðir og nýja stjómarstefnu við alla stjórn- málaflokka, samtök launafólks og atvinnulífs og aðra þá sent málið varðar. Við göngum til þeirra viðræðna með opnum huga og leggjum fram eftirfarandi tillögur til umræðu og umfjöllunar. Nýr grundvöllur: Samhæfing og samvinna 1. Markmið til- lagna Alþýðubanda- Iagsins er að skapa samstöðu um nýjan grundvöll í hagstjórn- inni jafnframt því sem birt er ítarleg skrá yfir sérstakar aðgerðir á helstu sviðum efnahagslífsins. Nýjar hugmyndir þurfa að koma í staðinn fyrir það afskiptaleysi sem einkennt hefur landstjórnina á undanförnum misserum og sótt hefur fyrirmynd sína til Bretlands og Bandaríkjanna þar sem stjórnvöld hafa trúað því í rúman áratug að markaðurinn og einkavæðingin myndu leysa öll vandantál. Kenningin var sú að stjórnvöld ættu hvergi að koma nálægt þróun atvinnulífsins. Þau áttu að láta lítið til sín taka í efnahagsmálum. Þessi leið hefur leitt hagkerfi Bandaríkjanna og Bretlands í rniklar ógöngur og reynslan af þessari stefnu á íslandi á undanförnum misserum hefur verið á sama veg. 2. íslendingar þurfa nú þjóðarsátt uni nýja leið: Leið sam- hæfingar og samvinnu. Kjarni hennar þarf að vera: - Stjórnvöld samhæfi aðgerðir sínar og áherslur fyrirtækjanna. - Sóknarlínur atvinnulífsins séu mótaðar með samráði og sam- starfi. - Framleiðsla vöru og þjónustu og áhersla á útflutning og gjaldeyrissköpun séu drifkrafturinn í hagkerfinu og njóti for- gangs í fjármögnun og skattalögun. - Langtímauppbygging á tilteknum forgangssviðum verði leið- arljós í fjárfestingum og starfsemi lánastofnana. - Sameiginleg sókn á erlenda markaði verði ráðandi í sam- skiptum fyrirtækja. - Viðurkennt verði að traustar samgöngur, öflugt heilbrigðis- kerfi, menntun, rannsóknir, starfsþjálfun og markaðsþekking séu forsenda hagvaxtar og nauðsynleg ef atvinnulífíð á að hafa almenn skilyrði til að sækja fram. 3. Sú stefna sem hér er lýst byggir á þeim viðhorfum: - Að opnir stjórnunarhættir séu lykillinn að árangri í sókn fyr- irtækja, atvinnulífs og þjóðarbúskapar. - Að lýðræðisleg þátttaka starfsfólks í ákvörðunum atvinnu- lífsins tryggir að þjóðin í heild sé reiðubúin að taka þátt í lausn djúpstæðra erfiðleika. - Að víðtæk ábyrgð í fyrirtækjum, í atvinnugreinum og í stjórnsýslu sé áhrifaríkt tæki til að skapa nauðsynlegt aðhald. 4. Þær auðlindir sem íslendingar geta helst nýtt til nýrrar sóknar í atvinnulífinu eru: - Fiskstofnarnir og önnur auðæfi hafsins - Orka fallvatna, jarðhitinn og ómenguð vatnsból - Landið og óspillt náttúra - Hugvit, hæfni, menntun og menning. 5. Lykilorðin í hinutn nýja grundvelli hagstjórnarinnar eru: Samhæflng - Sóknarlínur - Framleiðsla - Útflutningur - Sparnaður - Viðskiptasiðferði - Bjartsýni Aðgerðir í efnahagsmálum og atvinnulífi 1. Ný atvinnuþróunarstefna: 1A. Bætt alnienn rekstrarskilyrði at- vinnulífsins: IA.1 Veruleg lækkun vaxta, m.a. með að- gerðum í peninga- málurn eins og lækk- un bindiskyldu innlánsstofnana í Seðlabankanum sem gerir lækkun útlánsvaxta og vaxtamunar bankanna mögulega. 1 A.2 Stöðugleiki í verðlagsmálum verði tryggður með stöð- ugleika í nafngengi krónunnar og ahnennti samkomulagi aðila vinnumarkaðar og ríkisvalds um jöfnunaraðgerðir í skattamál- urn og á sviði félagslegrar þjónustu sem bæti kjör hinna verst settu en feli ekki í sér breytingar á almennu launastigi. IA. 3 Bætt samkeppnisstaöa íslensks atvinnulífs og lækk- un raungengis með lækkun tilkostnaðar, afnámi aðstöðugjalds og lægri verðbólgu en í samkeppnislöndum. IB. Aðgerðir til að örva atvinnustarfsemi: IB. 1 Aukning fjárfestingar ríkis og sveitarfélaga og aðrar aðgerðir til að örva atvinnulífið verði fjárntagnaðar með há- tekjuþrepi í tekjuskatti, skattlagningu fjármagnstekna og sér- stöku sameiginlegu átaki sveitarfélaga. IB. 2 Aðstöðugjald verði afnumið. I staðinn fái sveitarfélög rýiuri heimildir til að ákveða útsvar samkvæmt eigin mati, leggja á umhverfisgjöld og nýta m.a. bifreiðaeign og uml'erð sem skattstofn ásamt því að innleiða breytileg fasteignagjöld. IC. Samstarf um atvinnuþróun. IC. 1 Samhæfing aðgerða samtaka atvinnulífs og opinberra aðila til að móta sóknarfæri sem auka hagvöxt og efla útflutn- ing. 1C.2 Sérstakar skattaívilnanir verði ákveðnar vegna mark- aðs- og þróunarstarfsemi í tengslum við útflutning. 1C.3 Auknar samgöngubætur stuðli að þróun atvinnu- og þjónustusvæða sem séu nægilega stór til að verða grundvöllur sérhæfðrar nýsköpunar í atvinnulífinu. IC.4 Fyrirtækjanet unt samstarf á útflutningsmörkuðum. ID. Aukin framlög til rannsóknar og þróunarstarfsemi. Framlög á fjárlögum til rannsókna og þróunarstarfsemi verði aukin. Með breytingum á skattalögum verði fyrirtæki hvött til þess að verja meira fjármagni til þessarar nýsköpunar. IE. Efling menntakcrfis og starfsþjálfunar í atvinnulífi. Menntun er forsenda hagvaxtar í framtíðinni. í því skyni þarf einkum: - að efla menntakerfið - að auka veg verkmenntunar nteð sérstöku samstarfsátaki at- vinnulífs og skóla - að efla starfsþjálfun í atvinnulífinu og auka endurmenntun og fullorðinsfræðslu. 2. Jöfnunaraðgerðir - Sátt á vinnumarkaði 2.1 Aðgerðir til að örva atvinnulífið og ,, bæta rekstrarskilyrði fyrirtækja munu auka atvinnu launafólks. Byrðarnar af þessum aðgerðum verða fyrst og fremst lagðar á þá sem betur mega sín nteð ákvörðunum unt hátekjuskatt og fjármagnstekjuskatt. 2.2 Til að tryggja árangur af þessum aðgerðum og varðveita jafnframt þann stöðugleika sent náðst hefur er mikilvægt í ljósi þeirra erflðu ytri skilyrða sem framundan eru að ná samkomu- lagi um lítt breytt almennt launastig í landinu. Það útilokar þó ekki leiðréttingar launa á afmörkuðum sviðum sem aðilar ná samkomulagi um. 2.3 Til að tryggja slíka launastefnu og milda áhrifin af hærri sköttum sveitarfélaga í framhaldi af afnárni aðstöðugjalds á kjör launafólks yrði beitt jöfnunaraðgerðum í skattamálum og á sviði félagslegrar þjónustu sent jafnframt niyndu bæta kjör þeirra verst settu. Aukin útgjöld vegna þessara jöfnunaraðgerða gætu verið á bilinu 800-1500 m.kr. Ákveðið verði í samráði við samtök launafólks hvernig þeirri upphæð verði varið. í því sam- bandi má nefna hugmyndir eins og - húsaleigubætur eða aðrar aðgerðir til að lækka húsnæðis- kostnað - hækkun barnabóta lágtekjufólks - lækkun greiðslubyrði og affalla í húsnæðiskerfinu. 3. Varðveisla stöðuglcika - Jafnvægi í þjóðarbúskapnum 3.1 Stöðugleiki í verðlagsmálum verði varðveittur með stöð- ugleika í gengismál- um og samkomulagi því á vinnumarkaði sem áður er lýst. Jafnframt verði forsendur stöðugs gengis styrktar til lengri tíma með því að koma á fót gjaldeyrismarkaði þar sent breytingar á framboði og eftirspurn eftir gjaldeyri hefði áhrif á gengi krón- unnar og því þannig leyft að hreyfast innan ákveðinna marka.

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.