Vikublaðið - 26.11.1992, Blaðsíða 16

Vikublaðið - 26.11.1992, Blaðsíða 16
VIKUBLAÐIÐ 16 Fimmtudagur 26. nóvember 1992 MYNDLISTARMAÐUR VIKUNNAR Tungumál náttúrunnar og listarinnar Jóhann Eyfells er fæddur í Reykjavík 1923. Hann stundaði nám í skúlptúr, málaralist og byggingarlist í Berkeley-háskóla í Kaliforníu 1946-50. Þá fluttist hann til Flórída þar sem hann lauk námi í byggingarlist við Flórídaháskóla 1953 og í höggmyndalist frá sama skóla 1964. Jóhann hefur starfað sem prófessor í myndlist við University of Cent- ral Florida, Orlando, frá 1969. Hann hefur haldið um 15 einkasýningar, flestar í Bandaríkjunum og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Verk: Flatt sem flatt sem teningur, 1991-1992. Efni: ál Stærð: 129,5x129,5x15,2 sm. hver hlið. Verkið er opið í endana, en hlið- arnar eru skrúfaðar saman. Verkið var til sýnis á sýningu Jóhanns í Listasafni Islands sem er nýlega af- staðin. „í gamla daga varð okkur feðg- um, Eyjólft J. Eyfells og mér, tíð- rætt um öflin sem skópu fjöllin. Honum þótti sjálfsagt að mála myndir af þeim eins og þau voru, en ég hafði meiri áhuga á tilurð þeirra." Þannig kemst Jóhann Eyfells að orði í viðtali í vandaðri sýningar- skrá, sem fylgdi nýafstaðinni sýn- ingu hans í Listasafni íslands. Orð hans bera vitni um ólíkan skilning tveggja kynslóða á náttúrunni. Þau undirstrika líka þær spurningar, sem verk Jóhanns vekja, um tengslin á milli tungumáls náttúrunnar og tungumáls mannsins, og sambandið á milli þess sem við köllum náttúru- lega fegurð og listræna fegurð. Náttúran talar til okkar í marg- breytileik sínum á mörgum tungu- málum. Við notum rökhyggju og náttúruvísindi til þess að skilja og skilgreina mörg þeirra. En það fyr- irbæri sem við köllum í daglegu tali „náttúrufegurð“ er í raun sam- kvæmt skilgreiningu sá eiginleiki náttúrunnar, sem býr handan þess sem skilgreint verður með aðferð raunvísindanna. Náttúrufegurðin er um leið órofa tengd tímanum og upplifun okkar sjálfra og næmleika. Arangursríkasta og kannski eina að- ferðin sem maðurinn hefur til þess að ráða þetta óræða tungumál nátt- úrunnar, er sú að skapa listaverk, sem eru hvort tveggja í senn ands- vör við og túlkun á þessu óræða tungumáli náttúrunnar. Þannig er það hlutverk listaverksins að segja hið ósegjanlega. Og einmitt þess vegna er það vonlaus vegur fyrir gagnrýnandann að „túlka“ tungu- mál listaverksins í orðum: það stefnir á hið ósegjanlega. Þetta verður ekki síst augljós vandi þegar við stöndum andspænis verkum Jóhanns Eyfells. Við sjáum þó auðveldlega að „Flatt sem flatt sem teningur" fjallar frekar um til- urð fjallsins en eftirlíkingu á ytra formi þess. Verkið fjallar eins og önnur verk Jóhanns um náttúruöflin eða orkuna sem býr handan hins efnislega forms og mótar það. Stundum nálgast verk hans það að vera eins og ósnortin náttúrufyrir- bæri eða hraunstorka. Þau eru þó yfirleitt úr tilbúnum efnum eins og áli eða annarri málmblöndu. Og þau bera alltaf í sér hið stundlega augna- blik sköpunarinnar. í þeim má einn- ig alltaf greina einhvern strúktúr eða geómetrísk grunnform sem tak- ast á við yfirþyrmandi formleysu. Við getum merkt vilja listamanns- ins í þeirri spennu sem hann setur á svið í verkinu á milli þessara grunn- forma, sem við getum kennt við sið- menningu, og formlausrar stork- unnar, sem er eins og blind náttúru- öflin handan góðs og iils. Sjálfur talar Jóhann um sjálfan sig sem „vél sem vinni úr öflum alls staðar frá, sjúgi þau í sig og ryðji þeim frá sér á víxl“. Samkvæmt orðum Jóhanns sjálfs, þá vakir það jafnframt fyrir honum með skúlptúrum sínum að afhjúpa takmörk hefðbundinnar rökræðu og tungumáls, er geti ekki notað sama táknkerfið til þess að spanna andleg og efnisleg gildi: „Ég er að vona að verk mín geti hjálpað ungu fólki að skynja að fyrirskipandi orðræða er eins og hver önnur sjónhverfing: hún bregður upp mynd af heild sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Hin „raunverulega" heild er aldrei nema augnabliks sannleikur." Þess vegna er augnablik sköpun- arinnar og tilviljunin svo ríkir þættir í verkum Jóhanns Eyfells. Þau eru djörf og áleitin glíma við að túlka hið óræða tungumál náttúrunnar. Það væri verðugt og áhugavert verkefni að kanna þá ólíku sýn á náttúruna sem birtist í verkum lista- manna eins og Þórarins B. Þorláks- sonar, Jóhannesar Kjarvals og Jó- hanns Eyfells. Það gæti gagnast okkur til þess að skilja þá alla betur og þann mun sem við gerum á nátt- úrulegri og listrænni fegurð. Blóðdropar Megasar Skífan hefur gefið út hljómdisk með kvæðum, lögum og söng Megasar. Ýms- ir góðir hljómlistarmenn eru honum til samlætis. Þrír blóðdropar nefnist diskurinn og þar er meðal annars Vanskilablús (Fógetablús), sem hér birtist: Ég er vanskilamaður og vanskila kveina ég blús því ég verð senn á götunni - lögmenn komu að hirða mín hús Ég átti að borga tíkall en ég trassaði það bara sísona og nú taka þeir það hundraðfalt en ég get sparað mér að vona Fógetinn smælar fjórðungurinn er hans ég finn hvað hann elskar mig kannski sendir hann krans Fógetinn hlakkar hann fær jú að skemmta sér og hann fílar það í tætlur meðan eitthvað af mér eftir er Fógetinn gleðst hann fær vel útilátinn sinn skerf hann fílar mig í botn en það er líka þar sem ég hverf Fógetinn ljómar honum finnst sjálfsagt hann geti vel dreymt hann fattar ekki martröðina - allt er reimt en ekki gleymt Ef þér tekst að aura saman handa einum og hann fær það svo allt kemur óðar sá næsti og hann heimtar sitt margfalt Hríðin er sem veggur gluggapósturinn eins og páskasnjór það er kominn pyttur við lúguna en ég veit ekki hvert ástin mín fór Þú þarna fulltrúi ég á bara eina ósk handa þér nei hún er ekkert smáheit en ég segi þér helst ekki hver hún er En þegar upp er staðið sést að flas gerir kannske einhvern flýti en engan fögnuð að ráði því svo brennurðu um eilífð í víti Ég er óskilamaður þetta er vanskilablúsinn ef þú ekki veist það og vindurinn hvíslar í eyrað mitt að djöfullinn hyggist brennimerkja á þér eistað

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.