Vikublaðið - 26.11.1992, Síða 17

Vikublaðið - 26.11.1992, Síða 17
Fimmtudagur 26. nóvember 1992 VIKUBLAÐIÐ 17 ERLENDIR A HRIFA MENN Bjargvættur borgar- anna í Danmörku Aðalleikarinn í dönskum stjórnmálum síðastliðin tíu ár gæti þurft að taka hatt sinn og staf og ganga út af pólitíska sviðinu í jólamánuðinum vegna Tamílamálsins svo- kallaða. En hitt er svo sem mögulegt að Poul Schlúter standi af sér ásakanir um mein- særi eins og hann hefur hrist af sér öll áfóll og uppákomur á tíu ára ferli sem forsætis- ráðherra. Poul Schliiter er heildsala- sonur af Suður-Jótlandi sem 15 ára var orðinn formaður í flokkslelagi Ihaldssama þjóðarflokksins (Konservativ Folkeparti) í Haderslev, þar sem hann ólst upp. Hann fékk pólitísku bakteríuna snemma og hún hefur aldrei látið hann í friði síðan. Lög- fræðinám hans sat lengi á hakanum vegna pólitískra starfa og hann var um skeið formaður ungra hægrimanna í Danmörku. Hann var fyrst kjörinn á þing 1964 og um hríð var hann einnig borgar- fulltrúi í Gladsaxe nálægt Kaupmannahöfn. Ekki fór mikið fyrir Schlúter á þingi fyrstu árin en upp úr 1970 var hann kjör- inn til ýmissa trúnaðarstarfa í flokknum á tímum þegar hann þjáðist af uppdráttar- sýki og innri deilunt. í einum af fastaþáttum útvarpsins var hann látinn koma inn í hléum mánuðum saman og syngja við lag Leópolds úr söng- leiknum „Sumar í Týról“: „Ja, ja, ja, nu kommer jeg, mit navn er Schliiter". Það var gert grín að honum sem ávallt reiðubúnum reddara. Schlúter er íhald Og honum tókst að redda íhaldssinnaða þjóðarflokkn- um. Þegar hann varð formað- ur flokksins 1974 hafði Poul Hartling, formaður Venstre, nýverið niðurlægt foringja íhaldsmanna með því að segja upp í opið geðið á þeim að þeir hefðu enga stöðu til þess að vera með kröfur. Poul Schlúter vann markvisst að því að tefla flokknum inn í valdamiðju danskra stjórn- mála og um 1980 var ekki lengur hlegið að dönskum íhaldsmönnum. Mörg tilsvör Schlúters hafa orðið fleyg: „Auðvitað er ég íhaldssinnaður, en ekki svo mjög að það geri nokkuð til.“ Hann hefur sett valda- sóknina ofar en kenningar og kreddur. Innávið í flokknum hefur þó ætíð verið ljóst að í deilunum um „íhald“ eða „alþýðlegheit", sem lengi geisuðu í Konservativ Folk- eparti, var Schlúter í flokki íhaldsmanna eins og Erik Ninn Hansen. Ninn Hansen var í senn fóstri hans og vopnabróðir í flokknum, en gæti einnig orðið valdur að falli forsætisráðherrans með gerðum sínum sem dóms- málaráðherra í Tamílamál- inu. Schlúter gerði fornvin sinn Ninn Hansen að forseta þingsins þegar Svend Jakob- sen sagði af sér því embætti í lok árs 1989. Með því var hann að staðfesta vaktaskipt- in í danskri pólitík. Jafnaðar- flokka í Danmörku sem lifði af þingkosningar. Síðar á áratugnum var Róttæki vinstri flokkurinn tekinn inn í stjórnina í stað tveggja síð- astnefndu flokkanna og loks situr nú í Danmörku tveggja flokka stjórn íhaldsmanna og Venstre, sem er enginn vinstri flokkur. Við upphaf tíu ára ferils sem forsætisráðherra daðraði „Það á að verða auðveldara að vera Dani, “ sagði hann og réðst gegn reglugerðarfrumskóginum. Sarnanlagt settu stjórnir á vegum Schliiters fram 2000 tillögur um afnám reglna en sarnt sem áður varþað niðurstaða prófessors Grönnegaard Christensens í hókinni „Hið ósýnilega ríki“ 1991 að það liefði ekki orðið auðveldara að vera Dani, ef slíkt ætti að meta eftir fjölda gildandi reglna. menn, sem höfðu „átt“ for- seta þingsins um áratuga skeið, „áttu“ ekkert lengur. Orðheppinn markaskor- ari „Það eru bara þeir sem skora mörkin sem koma í sjónvarpinu, “ hefur Schlúter sagt um árin sem hann strit- aði við að endurreisa flokk- inn. En 1982 var komið að honum að skora þrennu í danskri pólitík. Hann sneri Anker Jörgensen niður úr stóli forsætisráðherra, mátaði Henning Christophersen, sem þá var formaður Venstre, í taflinu um embætti forsætisráð- herra í nýrri stjórn borgaraflokkanna, og varð fyrsti forsætisráðherra íhaldsmanna í sögu Dan- merkur. „Fjögraflokkasmárinn" - stjórn Konservativ Folkep- arti, Venstre, Kristlig Folk- eparti og Centrumdemokrat- erne - var minnihlutastjórn en hún lifði ekki aðeins út kjörtímabilið heldur varð hún fyrsta stjórn borgara- Schlúter enn við hugmyndir um samvinnu við danska jafnaðarmenn um leið og draumsýn hans var nokkurs- konar íslenskur Sjálfstæðis- flokkur sem höfðaði að hluta til fylgis kratanna. Síðar setti hann fram þá kenmiigu að borgaralegur meirihluti á þingi ætti að hafa í för með sér stjórn á vegum borgara- flokkanna. I efnahagsmálunt vildi hann í byrjun síðasta áratugar spara, hagræða og Þeir Schliiter og Ellernan-Jensen hafa orðið að temja sér ákveðna andlitsdrœtti þegar þeir hafa verið ofurliði bornir íþinginu hvað eftir annað ert samt setið áfram eins og ekkert hafi ískorist... Tíu ár á sama snarbrjálaða stólnum...... endurbæta í opinberum rekstri, en taldi nauðsynlegt að hafa stóran opinberan geira í þjóðfélaginu. Við lok áratugarins höfðu áherslurn- ar breyst verulega yfir í nýf- rjálshyggjustílinn. „Það á að verða auðveld- ara að vera Dani“, sagði hann og réðst gegn reglu- gerðarfrumskóginum. Sam- anlagt settu stjórnir á vegum Schlúters fram 2000 tillögur um afnám reglna en samt sem áður var það niðurstaða prófessors Grönnegaard Christensens í bókinni „Hið ósýnilega ríki" 1991 að það hefði ekki orðið auðveldara að vera Dani, ef slíkt ætti að meta eftir fjölda gildandi reglna. Lipurð og lagni, orð- heppni og stílgáfa eru ein- kunnir sem danski forsætis- ráðherrann fær gjarnan. Hann hefur sjálfur orðað stjórnarsáttmála jafnt sem slagorð í kosningum og ljáð þeim hressileika og bjartsýni, sem orðið hafa vörumerki Schlúters. „ V7Y) erum meira ráðherrar held- ur en flokksmenn, “ segir hann um ástæðuna fyrir góð- um starfsanda í flestum stjórna sinna. En það mun ekki hafa lítið að segja að Schlúter snýr ágreiningi í ráðherraliðinu ýmist upp í fræðilegar vangaveltur eða afgreiðir flókna deilu með orðaleikjum. Fari ráðherrar út af línunni eru þeir hins vegar teknir á teppið í óvægnum einkasamtölum. Einstætt danskt ástand I flestum þingræðisríkjum hefði hið danska ástand veri talið óþolandi. Minnihluta- stjómir sem rúmlega eitt hundrað sinnum á áratug eru ofurliði bornar í atkvæða- greiðslum, bæði í utanríkis- málum og efnahagsmálum, sitja sem fastast í Danmörku, en hefðu víðast annarsstaðar hrökklast frá völdum. Enginn vafi er á því að persóna Poul Schlúters á stóran hlut í því að borgaraflokkunum hefur tekist að sigla milli skers og báru allan þennan tíma. 1986 kom hann til að mynda Ank- er Jörgensen, leiðtoga jafn- aðarmanna, í opna skjöldu með því að efna óvænt til þjóðaratkvæðagreiðslu um Einingarlög Evrópu. Og hann sneri hvað eftir annað á hinn nýja foringja jafnaðar- rnanna Svend Auken. Þriðji foringi krata í forsætisráð- herratíð Schlúters, Poul Nyr- up Rasmussen, virðist hafa burði til þess að geta staðið uppi í hárinu á foringja íhaldsmanna. I bókinni Danmörk Schlúters eftir danska rit- stjórann Henning Fonsmark er bent á þá brotalöm sem verið hefur í ríkisstjórnum hans. Miðjuflokkarnir, sem verið hafi í þeim eða stutt þær, hafa haft tilhneigingu til þess að vilja frekar sernja við jafnaðarmenn heldur en að vera með hreinar borgaraleg- ar lausnir. Þá er það auðvitað fáheyrt að stjórnir Schlúters hafa sjaldnast verið þess um- komnar að tryggja eigin meirihluta fyrir árlegum fjár- lögum, en það er í flestum þingræðisríkjum talið eina ófrávíkjanlega skilyrðið fyrir áframhaldi stjórnarsam- starfs. Þessar mótsagnir gera það að verkum að hin langa seta Schlúters þykir taktískur stórsigur. En hvaða verði er hann keyptur? Leiðtogi borgaralegra afla Fonsmark heldur því fram að það hafi ekki einungis orðið vaktaskipti í stjórnar- ráðinu danska, þar sent krat- ar höfðu komið upp nokkurs- konar einokun, heldur hafi borgaraflokkarnir náð fram ýmsu í fjármálum, tekjust- efnu, utanríkismálum, skatta- og hagræðingarpóli- tík sem miklu skiptir fyrir þá, og hefði farið á annan veg ef jafnaðarmenn hefðu áfram verið dagskrárstjórar stjóm- málanna. Poul Schlúter hefur litið á það sem helsta verkefni sitt á stóli forsætisráðherra að tryggja samvinnu borgara- flokkanna á þann máta að þeir geti náð saman um stjórnargmndvöll á hverjum tíma enda þótt samsetning flokkanna í ríkisstjórn sé mismunandi. Hann hefur lát- ið sína eigin flokkshagsmuni víkja fyrir þessu markmiði og þessvegna hefur honum tekist að grunnmúra stöðu sína sem leiðtogi borgara- legra afla í Danmörku hvar í flokki sem þau eru. Það yrði því mikið áfall fyrir „borgarana" í Dan- mörku ef Poul Schlúter neyddist til þess að segja af sér í desember, þegar og ef dómstólar komast að þeirri niðurstöðu að hann hafi vitað meira en hann vill vera láta um tilraunir Erik Ninn Han- sens, þáverandi dómsmála- ráðherra, til þess að tefja af- greiðslu á umsóknum Tamfla um fjölskyldusameiningu í Danmörku. Áður en við skiljumst við Schlúter er rétt að vitna í orð hans sem ef til vill hafa að geyma lykil að skilningi hans á stjórnmálum: „Harlling sagði einu sinni, og því gleymi ég aldrei: Flokkar hafa engar tilfinn- ingar. Mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds og ég var innilega ósammála honum. Auðvitað hafa flokk- ar tilfinningar. Við tileinkum okkur heilmikið af tæknileg- um og efnahagslegum rök- semdurn, sem við getum breytt í takt við þróunina, en annars eru það tilfinningar sem við mestmegnis reiðum okkur á.“

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.