Vikublaðið - 26.11.1992, Page 20

Vikublaðið - 26.11.1992, Page 20
2. TÖLUBLAÐ • 1. ÁRGANGUR 26. NÓVEMBER 1992 VIKUBLAÐIÐ - Skattar á 4 manna fjölskyldu hækka um 95 þúsund milli ára 30,9% hækkun beinna skatta Auk þess bensíngjald og virðisaukaskattur á menningu og ferðaþjónustu Almennur tekjuskattur á alla einstaklinga, lækkun barnabóta, lækk- un vaxtabóta og hátekjuskattur upp á 5%, þýða 4,1 milljarð í auknar álögur. Beinir skattar á einstaklinga hækka um 30,9% á næsta ári. Auk þess hefur virðisaukaskattur á menningu, ferðaþjónustu og hús- hitun í för með sér 1,3 milljarð í álögur og bensíngjald 350 milljónir. Samanlagt felast í tillögum ríkisstjórnarinnar skattahækkanir upp á tæplega 6 milljarða króna, sem svarar til 44,2% hækkun tekjuskatts einstaklinga milli ára. Alögurnar hafa í för með sér 95.200 króna aukna skattheimtu á fjögurra manna fjölskyldu. í tillögum ríkisstjómarinnar er engin tekjujöfnun. Þar er með ótrú- lega ósvífnum hætti haldið þannig á málum að ALLT lendi á launafólki. Þegar gengið var frá ráðstöfunum höfðu engar kannanir farið fram á því hvemig þessar aðgerðir koma niður á launafólki og einstökum tekjuhópum. Það er þó ljóst að þess- ar aðgerðir munu líka skerða kaup- mátt þeirra sem hafa lægst launin. L des samkoma Hin árlega 1. des-samkoma Alþýðu- bandalagsins á Akranesi verður haldin n.k. þriðjudag í Rein og hefst kl. 20:30. Dagskrá: Avarp Jóhann Arsælsson Ýmis skemmtiatriði Kaffiveitingar. 1. Lagður verður á 1,5% tekju- skattur sem á að skila alls um 2.850 milljónum króna. Þessi skattur á að renna til sveitarfélaga í gegnum rík- issjóð og er því í raun útsvarshækk- un. Viðkoma peninganna í Stjómar- ráðinu hefur verið kölluð peninga- þvottur. 2. Lagður er á 5% hátekjuskattur. Hann skilar aðeins 300 milljónum króna 1993 og hann verður aðeins lagður á í tvö ár samkvæmt yfirlýs- ingum forsætisráðherra. 3. Lagður er á bensínskattur upp á 350 milljónir króna á ári. Til ára- móta mun bensín hækka í verði um 10% eða meira en bensínið hefur hækkað alls á síðustu tveimur ámm. 4. Virðisaukaskattur er lagður á nýja þætti, eins og - hótel, sem kemur harkalega við „eina vaxtarbroddinrí* í íslensku at- vinnulífi; - bækur, tímarit og blöð og aðra fjölmiðla sem meðal annars mun hafa hrikaleg áhrif á bókaútgáfu hér á landi; - húshitun sem leggst þyngst á þá sem borga mest fyrir í húshitunar- kostnað. Virðisaukaskatturinn skilar 800 millj. kr. í ríkissjóð á næsta ári en hækkar tekjur ríkisins af virðisauka- skatti um 1350 millj. kr. á árinu 1994. 5. Bamabætur em lækkaðar - eða með öðmm orðum: Skattar hækka í raun mest á þeim sem eiga flest bömin! Gert er ráð fyrir því að skera niður framlög til bamabóta og bamabótaauka um 500 millj. kr. Vikublaðið tekur fyrstu skrefin Vikublaðið fékk hlýjar móttökur þegar það kom út sl. fimmtudag og almennt sáu áhugamenn um þjóðfélagsmál á vinstri kantinum mögu- leika á nýjum vettvangi fyrir skoðanaskipti í blaðinu. Hér er Hildur Jónsdóttir, ritstjóri blaðsins frá og með áramótum, að fylgjast með hönnun þess hjá Gísla Steinari Jónssyni sem haft hef- ur veg og vanda af útiitsþróun þess. Kvótakerfið fest í sessi Niðurstaða ríkisstjórnarinnar er óbreytt fiskveiðisteíha út öldina! Alþýðubandalagið ræðir tillögur um nýja fiskveiðistefnu „Þetta er sátt um fiskveiðistefnuna. Þetta er sátt um aflamarkskerfið og að menn geti treyst því að á næstu árum að við því verði ekki hróflað þannig að gerðir manna geti staðist.“ Þannig fagnaði Kristj- án Ragnarsson, formaður LIU, niðurstöðu ríkisstjórnar Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðuflokksins um síðustu helgi þegar ákveðið var að halda óbreyttri fiskveiðistefnu út þessa öld. Alþýðubandalagið Aðalfundur miðstjómar Aðalfundur miðstjómar Alþýðu- bandalagsins verður haldinn um helgina í veitingahúsinu Firðinum, Strandgötu 30, í Hafnarfirði. Efna- hags- og atvinnumál, flokksstarf og viðhorf vinstri manna til umhverfis og hagvaxtar eru helstu mál mið- stjómarfundarins að þessu sinni. „Tillögur Alþýðubandalagsins verða kynntar í upphafi fundarins og lagðar til grundvallar umræðunni, en einnig hlýtur fundurinn að ræða efnahagsráðstafanir ríkisstjómarinn- ar,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður miðstjórnarinnar, í samtali við Vikublaðið. A laugardag verða almennar stjóm- málaumræður þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, Ragnar Amalds og Stein- grímur J. Sigfússon hafa framsögu. Um kvöldið verður sameiginlegur kvöldverður og kvöldvaka. A sunnudag verða meðal annars umræður um viðhorf vinstri manna til umhverfis og hagvaxtar. Þátttak- endur í þeim umræðum er Álfheiður Ingadóttir, Bjöm Guðbrandur Jóns- son, Einar Valur Ingimundarson, Hjörleifur Guttormsson og Már Guðmundsson. Miðstjómarfundurinn verður settur kl. 09:30 laugardaginn 28. nóvember. Eftir þessa niðurstöðu ríkisstjóm- arinnar er kvótakerfið fastara í sessi en nokkru sinni fyrr. Þorsteinn Páls- son og Kristján Ragnarsson hafa unnið þann sigur að engin endur- skoðun mun fara fram á fiskveiði- stefnunni á næstu árum. Ákvæðið sem er í gildandi fiskveiðilögum um að endurskoða skuli kerfið fyrir lok ársins 1992, hefur í reynd verið tekið úr sambandi. Þessi niðurstaða um óbreytt kvótakerfi er vissulega mikill ósigur fyrir alla þá sem á undanfömum ár- um hafa haldið fram málefnalegri gagnrýni á kvótakerfi Kristjáns Ragnarssonar og LÍÚ. Alþýðuflokk- urinn setti það sem meginskilyrði fyrir þátttöku í núverandi ríkisstjóm að ný lög yrðu sett um fiskveiði- stjómun á kjörtímabilinu. Það fyrir- heit sem staðfest var með stofnun hinnar svokölluðu tvíhöfðanefndar hefur nú verið svikið. Það verður ekki hreyft við kvótakerfinu á þessu kjörtímabili. Hinir svokölluðu „sægreifar" fá áfram að styrkja stöðu sína. Morgunblaðið hefur undir fomstu Styrmis Gunnarssonar verið fremst í flokki þeirra sem gagnrýnt hafa kvótakerfið á undanfömum misser- um. Það reynir nú að hugga sig við að í leiðinni hafi verið ákveðið að ein af tekjulindum hins svokallaða Dav- íðssjóðs verði veiðiheimildagjald sem lagt verði á eftir 4 ár, fiskveiði- árið 1996-1997! Svo mikið er Morg- unblaðinu í mun að breiða yfir sigur kvótakerfisins að reynt er að gera þessa lítilfjörlegu gjaldtöku að höf- uðatriði í efnahagsaðgerðum ríkis- stjómarinnar. Hún er sett í risafyrir- sögn á forsíðu Morgunblaðsins sem hingað til hefur nær eingöngu verið lögð undir stórfréttir utan úr heimi. Kristján Ragnarsson gerir hins vegar lítið úr þessu gjaldi og segir: „Eg met friðinn svo mikils og sam- komulagið, að ég tel að þetta sé ásættanlegt fyrir okkur. Þetta þýðir það að Hagræðingarsjóður er lagður niður og þessi sala hans með veiði- heimildir legst af. Við fáum þeim veiðiheimildum úthlutað héreftir án gjalds og fáum auk þess fjögurra ára aðlögunartíma fyrir þeirri gjaldtöku sem á að hefjast haustið 1996.“ Þetta sé lítilfjörleg ^reiðsla fyrir að festa kvótakerfi LIÚ í sessi. Niðurstaða ríkisstjómarinnar um óbreytt kvótakerfi knýr á um það að allir gagnrýnendur kvótakerfisins taki nú höndum saman og setji fram tillögur um nýja fiskveiðistefnu. Sjávarútvegsráð Alþýðubanda- lagsins hefur á undanfömum mánuð- um unnið að tillögugerð um nýja fiskveiðistefnu. Það starf mun halda áfram og á næstu vikum mun Al- þýðubandalagið efna lil umræðu- funda um fiskveiðistefnuna þar sem öllum þeim sem vilja breytingar á kvótakerfi LÍÚ og ríkisstjómarinnar verður boðið að taka þátt. Forystumenn Alþýðubandalagsins munu á næstunni eiga viðræður við fjölmarga aðila sem lýst hafa síðustu daga áhuga á því að mæta þessari nið- urstöðu ríkisstjómarinnar um óbreytt kvótakerfi með öflugri umræðu og markvissri kröfu um breytingar. Áskriftarsími Vikublaðsins er 17 500 Áskriftargjald Vikublaðsins er kr. 1000 á mánuði Lífeyrisþegar fá 20% afslátt Námsmenn fá 20% afslátt 1 HAFIO SAMBAND íÁSKRIFTARSÍMA 91-17500

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.