Vikublaðið


Vikublaðið - 22.10.1993, Blaðsíða 3

Vikublaðið - 22.10.1993, Blaðsíða 3
VIKUBLAÐIÐ 22. OKTOBER 1993 KINKA¥AMNwlN MAFSnMMKI Einkavæðingu hefnr borið hátt hér á landi um nokkurt skeið vegna einkavæðingar- áforma stjórnvalda. Þau áform sem þar eru uppi eru á þann veg að BSRB hefur sett við þau stór spurningamerki. BSRB heíur reynt að sporna gegn því að einkavæðing renni í gegn gagnrýnislaust. I þessu skyni hafa samtökin fengið til landsins erlenda fyrirlesara sem hafa sérstaklega kynnt sér opinber- an rekstur og reynslu af einkavæð- ingu, efht hefur verið til funda og ráðsteína um skipulagsform í opin- berum rekstri, gefhir hafa verið út bæklingar og boðið til umræðu í blöðum með greinarskrifum, allt til að reyna að brjóta upp fábrotna og einhæfa urnræðu og opna augu manna um þá miklu hagsmuni sem eru í húfi. Einkavæðing og sam- hengi hlutanna Garðar Vilhjálmsson, starfsmað- ur Iðju, gagnrýnir vinnubrögð og afstöðu BSRB. I grein sem hann ritaði nýlega í Vikublaðið og ber yfirskriftina „Einkavæðing er um- ræðuhæP segir hann að í stað þess að heyja varnarbaráttu gagnvart einkavæðingu ættu samtök „á borð við BSRB að vera í fararbroddi þess að ná fram aukinni hagræðingu og ábyrgðarvæðingu innan fyrirtækja en gera um Ieið þá kröfu að starfs- fólk fái aukin áhrif og njóti ávaxta stöðugrar framþróunar....“ Auðvit- að er hægt að skrifa upp á allt þetta eitt og sér. Spumingin er hins veg- ar jafnan um samhengi hlutanna. Nú vill svo til að þetta er nánast orðalagið í tilboðum samninga- nefndar ríkisins gagnvart aðildarfé- lögum BSRB á dögunum en til- boðin byggðust á því að horfið yrði að verulegu leyti ffá kauptaxtakerfi, en ábata- og bónusgreiðslur þess í stað látnar vega þyngra. Mikil um- ræða um þetta hefur farið ffam bæði á vettvangi BSRB og innan aðildarfélaga bandalagsins. Afstaða til þess að breyta kaupkerfinu í þessa vem hefur verið breytileg eftir félögum innan bandalagsins, en sum þeirra hafa þegar gert til- raunir í þessa átt eða lýst vilja sín- um til þess. Innan okkar vébanda em þó allir á einu máli um að fara hægt í sakirnir hvað snertir bónus- eða ábatagreiðslur. Svarthvít umræða? Garðari Vilhjálmssyni þykir um- ræðan hafa verið of svarthvít og nefnir sem dæmi Búnaðarbankann og Póst og síma. Þar sé rætt um einkavæðingu eða opinberan rekst- ur. „í umræðunni um þessi fyrir- tæki hefur ekki mikið borið á ffjó- um umræðum sem miðuðu að því að breyta fyrirtækjunum með hag- kvæmni, auknu aðhaldi og betri þjónustu í huga...“ Hér er talað af vanþekkingu um þá umræðu sem fram hafa farið innan þessara stofnana um leiðir til þess að bæta kjörin, stuðla að hag- kvæmni í rekstri og bættri þjón- ustu. En hvað snertir hina svart- hvítu umræðu, sem Garðar nefnir svo, urn einkavæðingu Pósts og síma eða annarrar þjónusm sem verið hefúr í umræðu upp á síðkastið þá hafa menn einfaldlega staðið frammi fyrir tillögum eða lagafrumvörpum sem gera ráð fyrir einkavæðingu. Við þessu hefur þurft að bregðast og, það hefúr BSRB vissulega gert og fært ffam mjög ítarleg rök fyrir máli sfnu. Mér þykir þess grundvallarmis- skilnings gæta, ekki aðeins hjá Garðari Vilhjálmssyni heldur mörgum sem unt einkavæðingu fjalla, að hún snúist fyrst og ffemst um innra rekstrarform; svara eigi kröfum um einkavæðingu með ffumkvæði urn breytt rekstrarform. En einkavæðingin er fyrst og síðast spurning um peningahagsmuni og völd sem ráðast af eignarhaldi. Af- leiðingin af einkavæðingu er hins vegar oftar en ekki breytt innra skipulag og rekstrarform, sem mótast af því markmiði að hámarka gróða, en í flestum tilvikum hefúr það þýtt færra starfsfólk og lakari kjör fyrir hinn almenna starfs- mann. Stjórnendur og meistarar bónuskerfanna hafa hins vegar margir hagnast. Samábyrgð eða mark- aðsvæðing Einkávæðing er angi af stærra máli; markaðsvæðingu þjóðfélags- ins. Þeir sem skrifa upp á slíka markaðsvæðingu vilja breyta sam- félaginu úr samstöðu- og samá- byrgðarafli sem byggir á því að hver taki ábyrgð á öðrum yfir í samfélag einstaklinga þar sem eig- ingirni og gróðafíkn er virkjuð og vandamál hvers og eins einkavædd. í þeirri umræðu sem frarn hefur farið innan BSRB hefur það sjón- armið verið uppi að ekkert óeðli- legt sé við að fyrirtæki stundi sam- keppni á markaði þar sem sam- keppni verður við komið. Þvert á móti sé það hin eðlilega megin- regla. Hins vegar séu þættir í sam- félaginu, svo sem heilbrigðisþjón- ustan, menntun, margvísleg örygg- issvið og hluti samgöngukerfisins sem allir þegnarnir verði að hafa jafnan aðgang að. Það komi ein- faldlega ekki til greina að setja slíka starfsemi á markað og gera hana háða sveiflum hans og þeirri mis- munun sem á markaði viðgengst. Hér er tekist á um grundvallar- viðhorf. Þótt samtök launafólks séu í vörn nú uin stundir er það síður en svo lausn að kasta grundvallar- sjónarmiðum um jöfnuð og félags- legt réttlæti fyrir róða í þeirri von að unnt sé að sigra þá sem vilja koma hér á þjóðfélagi mismununar með því að taka upp þeirra merki og berjast á þeirra forsendum. Slíkt ber vott um fullkomna uppgjöf. A okkar forsendum Það sem verkalýðshreyfingin þarf að sameinast uin er að taka á þeim þjóðfélagsmeinum sem hirt- ast okkur með einum eða öðrum hætti næsmm dag hvern og bera vott vaxandi misskiptingu í þjóðfé- laginu. Ohóf, bruðl og skefjalaus græðgi margra þeirra sein hafa búið um sig, hvort heldur er í einkafyrirtækjum eða opinberum stofnunum, ætti að verða verka- lýðshreyfingunni hvatning til sóknar. Krafa um ráðdeild með fjármuni, ekki síst opinbert fé, hef- ur verið sem rauður þráður bæði í kröfugerðum BSRB og frainlagi á vegum samtakanna til þjóðmála- umræðunnar almennt enda velkjast menn ekki í vafa um það að sam- hengi er á milli lífskjara almenns launafólks annars vegar og hins að fara vel með fjármuni og skipu- leggja alla atvinnu- og þjónusm- starfsemi á hagkvæman hátt. En einkavæðingin er ekki spurn- ing um tæknilegar lausnir eða út- færslur eins og skilja má á um- ræddri grein í Vikublaðinu. Einka- væðing snýst um hagsmuni og þann hugmyndagrundvöll sem reisa á eitt samfélag á. Atökin um einkavæðingu eru því að megin- uppistöðu hagsmuna- og hug- myndabarátta. Eins og að framan greinir teljum við ekki vanþörf á umræðu um einkavæðingu. í þeim skilningi er „Einkavæðing um- ræðuhæP. En meginmáli skiptir að frá hendi samtaka launafólks sé reynt að hafa áhrif á þessa umræðu, þannig að hún fari fram á okkar forsendum og byggi á þeirn við- horfum og gildum sem við teljum mikilvæg. Frá þessu teljum við að samtök launafólks eigi ekki að hörfa. Þar á bæ eigi það ekki að vera til umræðu að gefast upp. Uppgjöf sé hreinlega ekki um- ræðuhæf. Höfundur er formaður BSRB Hér er tekist á um grundvallar- viðhorf. Þótt samtök launafólks séu í vörn nú um stundir er það síður en svo lausn að kasta grundvallarsjónarmiðum um jöfnuð og félagslegt réttlœti fgrir róða.... Lýðveldisafmælisins minnst með úrsögn úr NATO Oddný Vestmann kjörin nýr formaður kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Austurlandi Um þrjátíu kjörnir fulltrúar sátu að- alfund kjördæmisráðs Alþýðu- bandalagsins í Austurlandskjör- dæmi á Höfn í Hornafirði helgina 9. til 10. október síðasdiðinn, en auk þeirra sátu fundinn gestír frá Verðandi, samtökum ungs alþýðubandalags- og félagshyggju- fólks ásantt Steingrími J. Sigfússyni, vara- formanni flokksins. Oddný Vestmann var kjörin formaður kjördæmisráðsins í stað Björns Vigfússonar, en með henni í fram- kvæmdastjórn ráðsins eru Erlendur Stein- þórsson og Gíslunn Jóhannsdóttir. A fund- inum voru samþykktar reglur unt verklag við skipun framboðslista Alþýðubanda- lagsins á Austurlandi í komandi alþingis- kosningum og kosin þriggja manna upp- stillinganefnd sem í eiga sæti þau Björn Vigfússon, Anna Þóra Pétursdóttir og Smári Geirsson. Varað við reglugerðametinu I stjórnmálaályktun fúndarins er m.a. bent á að stjórnarstefna ríkisstjórnar Al- þýðuflokks og Sjálfstæðisflokks ætli að reynast þjóðinni dýrkeypt. Óheft mark- aðslögmál hafi engan vanda leyst og afleið- ingin sé m.a. háir raunvextir, gjaldþrota- skriða, greiðsluþrot einstaklinga og vax- andi atvinnuleysi og misskipting í þjóðfé- laginu. Taldi fúndurinn að á flestum svið- um gangi Alþýðuflokkurinn sýnu lengra til hægri en Sjálfstæðisflokkurinn. I ályktun- inni er minnt á að samningurinn um EES er uppsegjanlegur með árs fyrirvara. Kjör- dæmisráðið telur samninginn geta haft háskalegar afleiðingar fyrir sjálfstæði og efnahag þjóðarinnar og því þurfi að losa ís- Iand sem fyrst úr viðjum hans. Því sé brýnt að íslendingar festíst ekki til langframa í neti reglugerða og tilskipana frá Brussel sem endi með þátttöku í Evrópubandalag- inu. Tilraunir krata fordæmdar Þá bendir fundurinn á að vegna ákvæða búvörusamnings frá því í rnars 1991 hafi sparast milljarðaútgjöld fyrir ríkissjóð og bændur hafi axlað aukinn kostnað og rneiri ábyrgð en áður. Standa eigi við ákvæði samningsins og veita nauðsynlegt svigrúm til aðlögunar í landbúnaði. Tilraunir Al- þýðuflokksins til að knýja frarn breyttar reglur unt innflutning búvara eru for- dæmdar. Kjördæmisráðið telur að það sem mestum sviptingum valdi í sjávarútvegi sé varanleg tilfærsla á kvóta með sölu skipa milli byggðarlaga og flumingur á vinnslu úr landi yfir í frystitogara. Hvatt er til að möguleikar smábáta til veiða innan sann- gjarnra takmarkana verði ekki skertir og að rannsóknir á íslenskum hafsvæðunt og á- hrifum veiðarfæra efldar. Sömuleiðis er hvatt tíl að ríkið styðji þjónustugreinar á landsbyggðinni, s.s. ferðamálasamtök og upplýsingamiðstöðvar ferðamála í hverjuin landshluta í því skyni að tryggja skipulega dreifingu ferðaþjónusm með tilliti til æski- legrar byggðaþróunar. Spumingum um umhverfis- röskun osvarað Kjördæmisráðið telur að setja eigi um- hverfismál í öndvegi og harmar að alltof litlu fjármagni sé varið til þeirra. A Austur- landi sé brýnt að gera átak í náttúruvernd og uinhverfismálum, s.s. varðandi frá- rennslismál, sorpeyðingu og mengun frá fiskimjölsverksmiðjum. Þá telur ráðið stór- um spurningum um hugsanlega umhverf- isröskun ósvarað vegna ráðgerðrar nýtingu vamsfalla til orkuframleiðslu og hvemr til að skoðun umhverfisþáttanna hafi forgang við undirbúning og mat á virkjanaáform- um og þegar raflínustæði vcrða valin. I samgöngumálum er in.a. hvatt til gaum- gæfilegrar umræðu um jarðgöng og að Austfirðingar samræmi sjónarntið sín í því rnáli. Þá telur kjördæmisráðið rétt að at- hugun fari frain hið fyrsta á framtíðarvega- sambandi milli Ausmrlands og Norður- lands með öruggunt heilsársvegi um byggðir á Norðausmrlandi og um Vopna- fjörð með jarðgöngum undir Hlíðarfjöll. Kjördæmisráðið telur að enn sem fyrr sé aðild Islands að NATO í fullri andstöðu við hagsmuni þjóðarinnar og sama gildi um þau skref sem stigin hafa verið til að tengja landið hernaðararmi Evrópubanda- lagsins. í lokaorðum álykmnarinnar segir að besta gjöf sem þjóðin gæti fært sjálfri sér á 50 ára afmæli lýðveidis væri að hrista af sér tengslin við hernaðar- og efnahags- bandalög. Vinnubrögð í sameiningar- málinu gagnrýnd Á fundinum var ennfremur gerð sérstök samþykkt um sveitarstjómarmál þar sem kjördæmisráðið lýsir sig hlynnt endur- skoðun á skipan sveitarstjórnarmála með áherslu á breytta skiptingu valds og verk- efúa milli ríkis og sveitarfélaga. Hinsvegar telur ráðið vinnubrögð félagsmálaráðu- neytisins við undirbúning að stækkun sveitarfélaga hafa verið óheppileg. Mark- mið sameiningar sveitarfélaga eigi að vera að gera þau hæfari til að sinna núverandi og nýjum verkefnum. Því sé það fráleitt að á sama tíma komi ríkisvaldið ffam með til- lögur um að draga úr þjónusm á lands- byggðinni með því að leggja niður embætti svo sem sýsluskrifstofur og draga svo úr fjárveitingum til annarra stofnana að þær geta ekki sinnt verkefnum sínum.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.