Vikublaðið


Vikublaðið - 22.10.1993, Side 4

Vikublaðið - 22.10.1993, Side 4
4 Menningln VIKUBLAÐIÐ 22. OKTOBER 1993 Iár hlaut bandaríska skáldkonan Toni Morrison náð fyrir aug- um sænsku akademíunnar - bókmenntaverðlaun Nóbels féllu henni í skaut. Utnefningin vaktí ó- venju litlar deilur, um hana ríkti eindrægni enda hefur Morrison löngu sannað gildi sitt sem stór- brotínn rithöfundur. Svo mjög að nú eru tólf ár síðan mynd hennar birtist á forsíðu bandaríska viku- ritsins Newsweek. Við það tæki- færi spurði hún: „Ætlið þið virki- lega að setja mynd af miðaldra, gráhærðri, litaðri konu á forsíðu blaðsins?" Það að hún er svört kona - af- komandi þræla hefur auðvitað áhrif á ritverk hennar. I þeim er reiði hinna útskúfuðu en líka tónlist svertíngjanna; sögur hennar eru Ijóðrænar og skrifum hennar hefur verið líkt við suður-ameríska töfraraunsæið. Rætur Morrison liggja þó umffam allt í þeirri sagna- hefð sem svartar konur í Bandaríkj- Ingibjörg Stefánsdóttir unum hafa skapað. Líta má svo á að með þessu sé verðlaunanefndin að vekja athygli á grósku í bókmennt- um minnihlutahópa í Bandaríkjun- um. Sjálf segist Morrison vona að verðlaunin segi eitthvað um það sem hefur verið að gerast í bók- menntum svartra Bandaríkja- manna og að þau færi sönnur á að þær séu ekki lengur á jaðrinum heldur hafi eitthvað það fram að færa sem komi öllum við. Fyrsti svarti Banda- ríkjamaðurinn semfier Nóbel í bókmenntum Toni Morrison er ekki aðeins Heiðurslaun Brunabótafélags Islands 1994 Stjórn Brunabótafélags íslands veitir einstaklingum heiðurslaun samkvæmt reglum, sem settar voru árið 1982, í því skyni að gefa þeim kost á að sinna sér- stökum verkefnum til hags og heilla fyrir íslenskt samfélag, hvort sem er á sviði lista, vísinda, menningar, íþrótta eða atvinnulífs. Reglurnar, sem gilda um heiðurslaunin og veitingu þeirra, fást á skrifstofu BÍ að Ármúla 3 í Reykjavík. Þeir sem óska að koma til greina við veitingu heiðurslaunanna árið 1994 þurfa að skila umsóknum til stjórnar félagsins fyrir 15. nóvember 1993. ÉBRUnBBálBFÉlBC Í5UWD5 fyrsta svarta konan sem fær bók- menntaverðlaun Nóbels heldur líka fyrst bandarískra svertíngja til þess að hljóta þessi eftírsóttu verð- laun. Það segir kannski meira en margt annað um stöðu svartra kvenna í bandarískum bókmennt- um nú. Sjálf get ég ómögulega munað eftír neinum bandarískum svertingja, karlkyns, sem hefur gef- ið út góða skáldsögu nýlega. Hins vegar man ég eftir mörgum svört- um skáldkonum. Hver svarta skáldkonan á fætur annarri hefur kvatt sér hljóðs með einu snilldarverkinu eftír annað. Eins og alltaf um aðrar bylgjur en þær sem tengjast íþróttum eða skemmtanaiðnaði þá var þessi end- urreisn í bókmenntum svartra kvenna lengi að ná ströndum Is- lands. En hún kom, kannski einmitt í kjölfar kvikmyndar Steven Spielbergs; „The Color Purple“ eða Purpuraliturinn eftír samnefiidri sögu skáldkonunnar Alice Walker. Árið 1986 kom su bók út í íslenskri þýðingu og í kjölfarið bækur eftir Gloriu Naylor, Mayu Angelou og - Toni Morrison. Það var skáldsagan Astkær (Beloved) sem kom út hjá Forlaginu í íslenskri þýðingu Úlfs Hjörvars árið 1987, þá alveg glæný. Það er því ekki hægt að segja annað en að íslensk- ir bókaútgefendur hafi verið vel með á nótunum. Til marks um þá virðingu og þann orðstlr sem svartar konur í Bandaríkjunum hafa getíð sér fyrir ritstörf sín má minna á athöfiiina þegar Bill Clinton var settur í embætti sem forseti Bandaríkjanna - þá las ein ofantalinna kvenna, Maya Angelou, ljóð Toni Morrison er ekki aðeins fyrsta svarta konan sem hreppir hók- rnenntaverðlaun Nóbels, heldur líka fyrst handarískra blökku- manna. Hún er bœði sögð arftaki sagnameistarans Williams Faidkner og skrifa í <ett við suður-ameríska töfi araunsæið. En mik- ilvægast af öllu; hún hefur fundið rödd svartra kvenna. eftir sig í athöfii sem sjónvarpað var beint um allan heirn. Tvöfóld kúgun Svört kona er í tvöföldunt skiln- ingi á jaðri hinnar ráðandi bók- menntahefðar sem er bókmennta- hefð hvítrar millistéttrar. Fyrst sem svertingi og síðan sem kona. I bók- menntaheiminum eru konur nefni- lega enn minnihlutahópur. Svört kona hlýtur því að tilheyra minni- hlutahópi á tvöfaldan hátt og verð- ur fyrir tvöfaldri kúgun - sem svertingi og sem kona. Þegar svart- ar konur ætluðu að túlka reynslu sína á blaði, þá áttu þær fáar fyrir- myndir. Þær neyddust til þess að Tilkynning Byggðastofnun á hlutabréf í eftirtöldum fyrir- tækjum miðað við árslok 1992. Hlutabréf stofn- unarinnar eru til sölu ef viðunandi verð fæst að mati stjórnar stofnunarinnar. Fyrirtæki Bær hf., Kirkjubæjarklaustri (hótelrekstur) Fiskeldi Eyjafjarðar (lúðueldi) Folda hf., Akureyri (ullariðnaður) Jöklaferðir hf., Flöfn (ferðaþjónusta) Límtré hf., Flúðum (iðnfyrirtæki) Póls-Rafeindavörur hf., Isafirði (iðnfyrirtæki) Samverk hf., Hellu (glerverksmiðja) Silfurstjarnan hf., Öxafjarðarhreppi (fiskeldi) Þörungaverksmiðjan hf., Reykhólum (þangmjölsverksmiðja) Hlutafé Byggða- stofnunar 10.000 15.586 94.651 8.000 64.865 5.000 30.000 18.226 50.215 4.500 17.450 7.500 11.244 25.000 85.000 12.500 33.000 Frekari upplýsingar gefa fyrirtækjasvið Byggða stofnunar stofnunar Reykjavík og skrifstofur Byggða- Akureyri, Egilsstöðum og ísafirði. Byggðastofnun Rauðarárstig 25 - 105 Reykjavík - Sími 91-605400. Bréfsími 91-605499 - Græn lína 99-6600. nota verkfæri, tungumál, form sem ekki hentaði efninu. I kringum 1920 blómstruðu bókmenntir svartra í þeirri bylgju sem kölluð hefur verið The Ilarlein Renaissance, Endurreisn Harlem, en enn voru konur því sem næst ósýnilegar eða öllu held- ar þöglar. Rödd þeirra heyrðist ekki. Sarnt skrifuðu þær. Þær höfðu verið að gefa út bækur allt frá 1860, það er rétt fyrir Þrælastríðið. Arið 1950 fékk svört kona, Gwendolin Brooks, hin virtu Pulitzerverðlaun í bókmenntum fyrir ljóðabókina „Annie Allen“. Brooks er ásamt Zoru Neale Hurston fyrst svartra skáldkvenna til þess að hljóta nokkra viðurkenn- ingu. Þrátt fyrir það var þeim sleppt þegar fjallað var um skáld- skap svertingja í Bandaríkjunum. Gömul saga og ný og hefur ekki aðeins átt við um svartar konur heldur flestar þær konur sem hafa gerst svo djarfar að ætla að gerast rithöfundar. Þeim var sleppt úr bókmenntasögunni. Það hefur svo verið hlutverk femínískra bókmenntafræðinga að finna, endurheimta og endurmeta verk sem hefur verið kastað frá sem einskis virði. Þessi endurheimtu verk eru einmitt þau sem að þær skáldkon- ur sem fylgja í fótspor sporgöngukvennanna Heildar- hlutafé 40.173 hafa orðið fyrir áhrifum ffá. Tónlistin Toni Morrison hefur verið sögð arftaki sagnameistarans WiIIiams Faulkner sem hlaut Nóbelsverð- launin árið 1949. Það er hins vegar enginn vafi á því að hún hefur orð- ið fyrir áhrifum ffá fyrirrennurum sínum, konunum sem ruddu braut- ina og þá ekki sfst frá Zoru Neale Hurston. Skáldkonu sem tókst að finna sína eigin rödd, finna þann tjáningarmáta sem vantaði til þess að lýsa lífi svartra, lífi sem átti svo ákaflega fátt sameiginlegt með því lífi sem hvíta fólkið lifði. Hún leit- ar mikið til þjóðsagna og beitir sér- stökum rithætti til þess að lýsa tal- máli svertingjanna. Hún lýsir tón- list svertingjanna, dansinum, ryt- manum. Jazzinn, undirspil frásagn- arinnar í nýjustu bók Morrison, ,Jazz“ sem kom út árið 1992, er arffaki þessa rytma. A sama hátt skrifar Morrison í hefð affó/amer- ískra bókmennta og þá ekki síst bókmennta svartra kvenna. Að skrifa um það sem máli skiftir En um hvað skrifar Toni Morri- son? Til hvers skrifar hún? Í grein sem birtist í safni greina um svartar skáldkonur segir hún um skáldskap „...Ef eitthvað af því sem ég skrifa, hvort sem það er skáldsaga eða eitthvað annað, er ekki um þorpið eða samfélagið eða um þig, þá er það ekki um neitt. Eg hef engan áhuga á því að leggjast í ein- hvers konar einkaæfingar ímynd- unaraflsins ... verkið verður að vera pólítískt.... Mér finnst bestu skáld- verkin vera pólítísk. Þau eiga að geta verið bæði pólítísk án alls vafa og um Ieið óendanlega falleg." Kannski er þama komin ástæða þess að bókmenntir minnihluta- hópa, bókmenntir svartra kvenna þar á ineðal, vekja svona mikla at- hygli nú. Þetta er rödd sem ekki hefur heyrst áður. Sjónarhom sem hefur vantað og það sem meira er: Þetta er rödd þess sem hefur eitt- hvað að segja, liggur inikið á hjarta. Við, þessi velhöldnu, hvítu, evr- ópsku, höfum kannski ekkert svo ofboðslega mikið að segja. í skáld- skapinn hefur vantað lífsháskann, hann hefur ekki verið fyrir hendi. Þess vegna hafa rithöfundar okkar lagst í „einkaæfingar ímyndun- araflsins" en við, lesendur þeirra, leitað annað - í töffaraunsæi suð- ur-amerískra bókmennta, til Eg- yptalands, Arabíu, Pakistan og í endurreisn bókmennta svartra kvenna í Bandaríkjunum. Kvenna sem ekki aðeins hafa eitthvað að segja, heldur hafa Iíka fundið leið- ina til þess að segja það. Munið áskriftarsíma Vikublaðsins - 17500

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.