Vikublaðið


Vikublaðið - 22.10.1993, Qupperneq 7

Vikublaðið - 22.10.1993, Qupperneq 7
VIKUBLAÐIÐ 22. OKTOBER 1993 Gjaldtakan er ekki réttlát Erfitt er að aðskilja röksemdir um áhrifamátt gjaldtökunnar og réttlæti hennar. I rauninni veltur allt á réttlætinu, því að það er rangt að gera breytingar í heilbrigðis- kerfinu sem valda óréttlæti, jaínvel þótt þær kunni að auka bæði árang- ur og hagkvæmni. Ef sérstakt gjald er lagt á áfengissjúklinga er það óréttlát mismunun nema þeir séu í einhverju þýðingarmildu atriði frá- brugðnir öðrum sjúklingum. Lyk- ilspurningin hér er sú hvort „á- fengissýki“ sé yfirleitt sjúkdómur eða ekki. Fáir draga það nú lengur í efa að áfengissýki sé sjúkdómur, enda renna margvíslegar rann- sóknir stoðurn undir þá kenningu. Svo aðeins eitt dæmi sé tekið, sem bendir sterklega til að áfengissýki gangi í erfðir, hefur verið sjmt fram á að ættleidd börn áfengissjúklinga eru mun líklegri en önnur til að verða áfengissýki eða annarri vímuefnafíkn að bráð, þótt þau hafi alla tíð alist upp hjá félagsforeldr- urn. Hitt orkar meira tvímælis hvort áfengissýki sé í einhverjum mikil- vægum atriðum frábrugðin öðrum sjúkdómum. Því hefur til dærnis verið haldið fram að það sé ekki hluti af áfengissýki að drekka á- fengi, ekki frekar en það er hluti af mjólkurofnæmi að drekka mjólk. Afengissjúklingurinn hafi að vísu óviðráðanlega löngun í áfengi, en hann ráði því sjálfur hvort hann láti eftir henni eða ekki. Þegar alkó- hólisti drekki sé hann að fremja lastafullt og syndsamlegt athæfi en ekki sjúklegt.<!) I þessari röksemd er algjörlega horft fram hjá því áfengissýki er ekki hara ofnæmi sem lýsir sér í ó- eðlilegum viðbrögðum líkamans við alkóhóli, líkt og mjólkurof- næmi birtist í óeðlilegum við- brögðuin líkamans við mjólkur- eggjahvítum eða mjóikursykri, heldur er áfengissýki fíkn sem brenglar hugarástand manna og sálarlíf. Áfengissýki er því í senn líkamlegur og andlegur sjúkdómur sem ofnærni fyrir mjólk eða kötmm er líkast til ekki. Það er eðilegt að gera greinarmun á líkainlegu of- næmi manns fyrir mjólk og hugar- ástandi manns en sá greinarmunur verður ekki annað en rökfimleg at- hugasemd þegar um fíkn er að ræða. Líklega er ekkert meir til marks um bráðhættu áfengissýk- innar en þegar menn ákveða að hætta að drekka á viljastyrknum einum saman. Slík barátta gegn eigin „löstum og syndum" hefur dregið margan manninn til dauða, því að vanlíðan þeirra, sem ekki átti sér lengur neina haldbæra skýr- ingu, virðist hafa svipt þá vitinu. Þess vegna er ekki nóg - og reynd- ar oft stórhættulegt - að áfengis- sjúklingur hætti hara að drekka. Hann verður að öðlast skilning á eðli sjúkdómsins, að hann er í senn líkamlegt ofnæmi og sjúkleg fíkn. Hann verður að læra að hann er haldinn sjúkdóini sem hann getur ekki sigrast á, en að hann geti hald- ið fikninni niðri með ráðum sem reynst hafa öðrum áfengissjúkling- um vel. Þau ráð eru ckki síst and- legs eðlis og miða að því að halda niðri fíkninni frá degi til dags. Slík ráðgjöf er veitt í áfengismeðferð. En jafnvel þótt horft sé fram hjá þýðingu fíknarinnar og höfðað til þess að áfengissjúklingar stuðli sjálfir að sjúkdómnum með drykkju sinni þá sýnir það enga mikilvæga sérstöðu sem réttlætir meðferðargjald. Flestir sjúkdómar nú á dögum eru þess eðlis að menn hafa áskapað sér þá með líferni sínu. Hjarta- og kransæðasjúkdóm- ar eiga til dæmis ekki síst rætur í reykinguin, óhollu mataræði og Vilhjálmur Árnason hreyfingarleysi. En yfirleitt er um að ræða flókið samspil erfða, um- hverfis og lífernis þar sem erfitt er að greina ótvírætt orsakasamhengi og meta ábyrgð einstaklingsins. Þar eð áfengisdrykkja er almennt viðurkennd venja í samfélaginu, og raunar hvatt til hennar ineð marg- víslegum hætti, er rang- látt að áfellast áfengis- sjúklinga sérstaklega fyrir að neyta áfengis. Það er sanngjörn krafa að allir borgi jafnt fyrir áhætmna sem fylgir því að neyta á- fengis, en ósanngjarnt að einungis þeir sem missa tökin á lífi sínu vegna hennar borgi fyrir áfeng- ismeðferð. Raunar hafa ið haldi uppi öflugri áfengismeð- ferð. Það leiðir af málflumingi mínum að gjaldtaka fyrir áfengismeðferð er ekki réttlætanleg með þeim rök- urn sem máli skipta í umræðu unt heilbrigðisstefnu. En ég er ekki svo bjartsýnn að gera ráð fyrir því að röksemdir af þessu tagi hafi minnsm áhrif á aðgerðir stjórn- valda. Fyrir þeim vakir sjaldnast að gera það sem er réttlætaniegt hcld- ur að hafa sitt frarn með öllum ráð- um. I þessu tilviki detmr mér helst í hug tvennt sem ráðamenn kunna að hafa í huga með þessari stefnu- breytingu. I fyrra lagi að auðveld- ara geti verið að ráðast að áfengis- sjúklingum en öðmm vegna þess að mikil vanþekking, fordómar og afneimn ríkja í samfélaginu um á- fengissýki, orsakir hennar og af- leiðingar. Ranglæti birtist oft í formi ó- sannra dóma og villandi alhæfinga um tiltekna hópa fólks. Það er hlutverk stjórnvalda að sporna gegn slíku ranglæti en ekki að ala á því eins og hér er gert. I síðara lagi er nærtæk sú skýring að ráðamönn- um lítist ekki á hve dregið hefur úr áfengissölu. Ein meginástæða þess er sú að þúsundir Islendinga hafa hætt að drekka, ekki síst fyrir til- verknað SÁA. I hörðu ári grípa menn stundum til örvæntingar- fullra aðgerða og sjást ekki fyrir. Aukin áfengissala skilar auðvitað peningum í ríkiskassann, en aukin drykkja alkóhólista veldur þjóðfé- laginu jafnharðan mun meiri skaða, ekki bara í mannlegri þjáningu og niðurlægingu heldur líka í bein- hörðum peningum. Berlín, í september 1993 Höfundur er dósent í heim- speki við Háskóla Islands. Bók hans, Siðfræði Iífs og dauða. Erfiðar ákvarðanir í heilbrigðisþjónustu, kemur út hjá Rannsóknarstofnun í sið- fræði síðar í haust. Tilvísanir (1) „Heilbrigði og réttlæti“, Vikublaðið 25. 2. 1993. (2) Kostnaður og tekjur þjóðfé- lagsins vegna áfengisneyslu árin 1985-1989. Skýrsla til Land- sambandsins gegn áfengisbölinu (Reykjavík: Hagfræðistofnun Háskóla íslands, apríl 1991), s. 33. (3) Sbr. Kristján Kristjánsson, „Sjúkdótnshugtakið og alkóhól- ismi“, Þroskakostir (Reykjavík: Rannsóknastofhun í siðfræði 1992), s. 143-155. þeir þegar greitt sinn skerf óbeint með öllu því rándýra áfengi sem þeir hafa látið ofan í sig og ríkið hirðir arðinn af. Mér virðist því að á- fengissýki hafi mikilvæga sérstöðu gagnvart öðrurn sjúkdömum, en ég fæ eklci séð að sú sérstaða réttlæti það að sérstakt gjald sé innheimt af því fólki sem þarf á áfcngis- meðferð að halda. Vegna fi'knarinnar og þeirra mannskemmda sem langvarandi og óhófleg neysla veldur virðist mér að áfengissjúklingar geti átt erfiðara með það en aðrir sjúklingar að ná tökum á sjúkdómi sínum og taka ábyrgð á eigin , bata. Meðferðargjald stuðlar ekki að slíkri á- byrgð og hún veldur ó- réttlæti. Talsmenn meðferðar- gjalds gætu samt enn leit- að eftir rökum. Þeir gætu haldið því fram að mikil- vægt sé að leita leiða til að greina á milli heil- brigðisþjónustu sem fólk greiði fyrir sjálft að veru- legu leyti og heilbrigðis- þjónustu sem fjánnögn- uð er af almannafé. I því skyni þurfi að huga að því hversu brýnn heilbrigðis- vandi manna er og í sam- anburði við aðra sjúk- dóma sé áféngissýki ekki sérlega alvarleg. Þetta held ég að sé rangt. Sýnt hefur verið fram á að á- fengissýki er stigversn- andi sjúkdómur sem get- ur á endanum gert inenn vitstola eða dregið þá til dauða. Áður en að því kemur hefur einstakling- urinn yfirleitt valdið sjálfum sér, fjölskyldu sinni og jafnvei samfélag- inu verulegu tjóni. Þessi merki áfengissýkinnar eru ckki alltaf augljós, sérstaklega ekki í samfé- lagi sem lítur á sum þeirra sem eðlilega hegð- un. Það breytir því ekki að áfengissjúklingar glata smám saman heilsu sinni til líkama og sálar og starfshæfni þeirra og samskiptahæfni fer þverrandi. Það hefur því mikilvæg fyrirbyggjandi áhrif gagnvart öðrum sjúkdómum að samfélag- Foreldrar í Reykjavík, vinsamlegast athugið eftirfarandi: Börn 12 ára og yngri mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 20.00 frá 1. september til 1. maí (vetur) og eftir kl. 22.00 frá 1. maí til 1. september (sumar) nema í fylgd með fullorðnum. Börn á aldrinum 13 til 16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 22.00 frá 1. september til 1. maí (vetur) og kl. 24.00 frá 1. maí til 1. september (sumar) nema í fylgd með fullorðnum eða um sé að ræða beina heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. AÐGANGUfí BAfíNA OG UNGMENNA AÐ DANSLEIKJUM OG ÖÐfíUM SKEMMTUNUM Börnum yngri en 16 ára Ungmenni innan 18 ára aldurs er óheimill aðgangur og dvöl á dansleikjum öðrum en sérstökum unglinga- eða fjölskylduskemmtunum sem haldnar eru af skólum, æskulýðsfélögum eða öðrum þeim sem til þess hafa leyfi. Miða skal aldur við fæðingarár. Börnum eða ungmennum innan 18 ára aldurs L" er óheimill aðgangur og dvöl á stöðum sem hafa leyfi til áfengisveitinga nema í fylgd með foreldri, öðrum forsjáraðila eða maka. Miða skal aldur við fæðingardag. Knattborðsstofur, leíktæki og spilakassar Börnum innan 14 ára l,i 0% er ekki heimill aðgangur að knattborðum, spilakössum eða leiktækjum nema mega ekki starfa á stöðum sem hafa , fyigd með forráðamönnum. leyfi til áfengisveitinga nema Miða skai aldur vjð fæðingarár. það sé liður í viðurkenndu iðnnámi. Úr lögum nr. 58, 1992, um vernd barna og ungmenna Ur lögreglusamþykkt Reykjavíkur frá 22. desember 1987. Lögreglustjórinn í Reykjavík Borgarstjórinn í Reykjavík

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.