Vikublaðið - 22.10.1993, Page 11
VTKUBLAÐIÐ 22. OKTOBER 1993
11
Sviðsljós
Rithöndin
Ert duglegur að
afla skoðunum
þínum fylgis
Mynd: Ól.Þ.
Á landinu bláa
Jónas Árnason er heldur betur í
sviðsljósinu um þessa helgi.
Hörpuútgáfan er að koma á
markaðinn með bók sem inniheld-
ur úrval úr bókum Jónasar.
Þetta er afmælisbók, en Jónas
varð sjötugur í vor leið. Olafur
Haukur Arnason bjó bókina til
prentunar og ritar formála um höf-
undinn og gildi verka hans.
I tilefni af þessu verður haldin
skemmmn sem hefst í Borgarleik-
húsinu næstkomandi mánudags-
kvöld kl. 20:30.
Kynnir á skemmmnni verður
sveimngi Jónasar, Flosi Olafsson.
Þeir Gísli Halldórsson, Jón Sigur-
björnsson og Þorsteinn Gunnars-
son flytja þar saman þátt sem birt-
ist í afmælisbókinni „Ljós í Viðeyj-
arstofu?“ Jón Hjartarson les úr
öðrum þætti sem þar birtist: „A
ferð með Þórbergi.“ Baldvin Hall-
dórsson les upp kvæði og þuluna
„Fuglinn sigursæli."
Svo verður rnikið sungið af lög-
um úr ýmsum áttum sem Jónas
hefur gert texta við. Þar koma við
sögu Ríó Tríóið, Anna Pálína
Árnadóttir, Guðrún Gunnarsdótt-
ir, Ragnheiður Arnardóttir, Aðal-
steinn Ásberg Sigurðsson, Heiðar
Gíslason, söng- og skemmtifélagið
Samstilling, Alafosskórinn undir
stjórn Helga R. Einarssonar, - og
að lokum syngja þeir saman nokkur
lög Helgi R. og Jónas Árnason og
fá fólkið í salnum til að taka undir í
viðlögunum.
Það komust miklu færri að en
vildu í vor þegar haldin var
skemmmn í Borgarleikhúsinu í til-
efni sjötugsafmælis Jónasar. Sú
skemmmn var látin heita „Á land-
inu bláa.“
Afmælisbókin ber sama titil, og
sömuleiðis skemmmnin á mánu-
dagskvöldið kemur.
Sala aðgöngumiða að skemmt-
uninni er hafin í Borgarleikhúsinu.
Skriftin þín lýsir miklum hæfi-
leikamanni, en þú ert rólegur
og læmr lítið yfir þér hvers-
dagslega. Þér er jafh lagið að vinna
með höfði og höndum og flest
virðist liggja opið fyrir þér. Þú hef-
ur sköpunarhæfileika, vilt helst
vinna eitthvað skapandi. Þá viltu
helst vera í kyrrð og ró. En þú get-
ur líka snúið út annarri hlið, til
dærnis haldið ágætar ræður og ver-
ið duglegur að afla skoðunum þín-
uin fylgis. Þú memr mjög mikils
hið barnslega og einfalda í tilver-
unni og þér leiðist innst inni yfir-
borðsmennska nútímans.
En ekki er víst að þú gerir þér al-
veg grein fýrir þessu. Þú hefur
násmgáfur og stjórnunarhæfileika í
góðu lagi. Ert oftast vingjarnlegur
og hlutlaus í daglegri umgengni.
Þú kynnir að hafa verið veikur fyr-
ir freistingum hverskonar, en lík-
lega er það tímabil liðið. Þú virðist
á réttri hillu sem fjölskyldufaðir, en
mátt þó vara þig á að verða ekki of
háður þínum nánustu, þannig að
þú sért eins og á flæðiskeri án
þeirra.
Þú virðist varkár og hagsýnn, en
flækir þó ekki málin að óþörfu,
Þórarinn Tyrfingsson yfirlteknir á
Vogi ogformaður SAA.
heldur gengur í það sem gera þarf.
Þú virðist hafa leitandi huga, gætir
verið eða eiga eftir að vera í dul-
speki. Þú átt óhjákvæmilega að eiga
auðugt líf.
Góða framtíð.
R.S.E.
/^ÍMÍ 06 "teíti t tei|cnir^9r: Bjami f{mr?Uym
Kunningi minn einn tilheyrir
þessari undarlegu tegund
manna sem telur að náin
tengsl við náttúrana og allt það er
henni tilheyrir sé á einhvern hátt
göfugra eða betra en það sem til-
heyrir blessuðu malbikinu. Sjálfur er
hann borinn og barnfeddur borgar-
búi en kýs að afheita upprana sínum
á þennan hátt. Honum þykja mín
viðhorf vera „úrkynjunarmerki" eða
eitthvað enn verra. I ljósi þess að
hann er viðskiptafræðingur þykja
mér þessar athugasemdir koma úr
hörðustu átt.
En til þess að sýna og sanna heiin-
inum hvílíkt náttúrabarn hann sé
notar hann allar hinar klassísku að-
ferðir. Hann er að sjálfsögðu í skóg-
ræktarfélagi og persónulega ábyrgur
fyrir fleiri mgum vindbarinna hrísla,
sem hingað og þangað um landið
eru til ama og óþæginda öðram en
hungraðum rollum.
Fjölskyldan á að sjálfsögðu að taka
þátt í vitleysunni og hvorki kona né
börn fá yfirleitt að njóta helganna.
Sjái hann börnin fyrir framan sjón-
varpstækið eða konuna uppi í sófa
með bók er eins og allt umsnúist hjá
þessum annars dagfarsprúða manni.
Hann rífur fram lopapeysur og húf-
ur og rekur allt liðið á fætur. Sé ein-
hver í heilum sokkum verður við-
komandi að skifta og fara í götótta
lopasokka því öðruvísi er maður ekki
nógu náttúrulegur. Síðan útí bíl og
upp í Heiðmörk ef ekki liggur fyrir
að planta einhverjum trjám þar sem
áður var notalegt lyng og mói. Þeg-
ar allir era orðnir kaldir, blautir og~
hraktir þykir honurn sem skyldun-
um við náttúrana sé fullnægt og aft-
ur er haldið heim. Börnin grátandi
yfir að hafa misst af barnatímanum
og konan krossbölvandi yfir væntan-
legu kvefi og blöðrubólgu. En hann
er ánægður. Það er sko ekki úrkynj-
unin í þessari ijölskyldu!
Til að fullkomna kvalræðið hefúr
vinur minn síðan leigt sér garðholu
til að rækta þar kartöflur og kálteg-
undir ýmsar. Snemma vors er síðan
haldið af stað með söng í hjarta og
bros á vör til að fara að yrkja jörðina.
Nú kann vinurinn að sjálfsögðu ekk-
ert á þetta þannig að útsæðið er ým-
ist óspírað eða hálfmyglað af of-
spíran, auk þess sem hann gleymir
alltaf að kaupa áburð. En niður skal
þetta og auðvitað á öll fjölskyldan að
taka þátt. Sldtt með það þó konan
brjóti neglurnar, krakkarnir stingi
gaflinum í lappirnar á sér og sjálfur
sé Hnur minn ffá vinnu í hálfán
mánuð á eftir sökum bakverkja. Það
jafnast ekkert á við hin nánu tengsl
við náttúruna.
Þær fáu helgar sumarsins sem
ekki fara í skógræktarferðir er nú
hægt að nota til að reyta arfa. Það er
sama hversu oft og vandlega er reytt,
alltaf er allt á kafi þegar haustið
nálgast og tími kominn til að ná"“"
uppskeranni í hús. Yfirleitt kemur
nú lítið meira upp en sett var niður
enda er það aukaatriði. Tengslin við
moldina, dralluna er það sem máli
skiptir. Kálinu reynir hann síðan að
pranga inn á vini og kunningja því
bömin hans þvemeita að éta eitt-
hvað sem dregið hefur verið upp úr
moldinni. Sjálfur er hann heldur
ekki ýkja spennmr fyrir afúrðinni þó
svo hann mvndi fvrr kjósa Alþýðu-
bandalagið en játa það að honum
finnst kálið nauðvont.