Vikublaðið - 12.11.1993, Side 3
VIKUBLAÐIÐ 12. NOVEMBER 1993
Sameiginlegt framboð á borðinu!
v
Isíðustu viku, nánar tíltekið
þann 3/11 1993, boðaði hópur
ungs fólks tíl opins fundar um
framboðsmál félagshyggjuaflanna í
næstu borgarstjómarkosningum.
Til fundarins var boðið fulltrúum
allra flokka og samtaka sem staðið
hafa að framboðum til borgar-
stjórnar á síðustu ámm, annarra en
Sjálfstæðisflokksins og var þetta í
fyrsta sinn sem þessum aðilum
gafst tækifæri til að ræða þessi mál
saman fyrir opnum tjöldum við
kjósendur sína. Það olli því tals-
verðum vonbrigðum að fulltrúar
Framsóknarflokksins og Samtaka
um kvennalista mættu ekki til
fundarins, þrátt fyrir yfirlýsingar
þeirra um hið gagnstæða fyrir
fundinn. Um fjarvem þeirra þarf
ekki að hafa mörg orð.
Var Páll á öðrum
fundi?
Einn af gestum fundarins var
blaðamaður Vikublaðsins Páll Vil-
hjálmsson. Það var því af nokkurri
eftirvæntingu sem ég náði í Viku-
blaðið mitt síðastliðinn föstudag
enda taldi ég víst að þar yrði nokk-
uð sagt frá þeim fróðlegu umræð-
um sem áttu sér stað á fundinum.
Og vití menn, - forsíða blaðsins var
meira og minna öll undir fundinn
lögð, fimm dálka stríðsfyrirsögn,
þriggja dálka mynd og ítarlegar
endursagnir af umræðum fundar-
ins. Hér virtíst því vel að verki
staðið en það verður að segjast eins
og er að það tók mig nokkurn tíma
að átta mig á því að hér væri virki-
lega um sama fundinn að ræða.
Ekki eingöngu vegna fyrirsagnar-
innar sem var í engum tengslum
við niðurstöður fundarins heldur
og vegna þeirra fjölmörgu ffétta-
punkta sem ekki komu fram í frá-
sögn blaðsins en komu fram á
fundinum sjálfum.
Um síðir sannfærðist maður um
að hér væri komin frásögn Páls
Villhjálmssonar af sama fundi og
undirritaður stjórnaði og upplifði
vægast sagt á allt annan hátt en
blaðamaðurinn.
Fimm fulltrúar hlynnt-
ir sameiningu
Þrátt fyrir fjarveru Framsóknar
og Kvennalista voru mættír til
fundarins fulltrúar fimm fyrrver-
andi framboðsaðila tíl borgar-
stjórnar. Vikublaðið nefnir ein-
ungis þrjá en auk fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins, Arna Þórs Sigurðs-
sonar, Alþýðuflokksins, Sigurðar
Péturssonar og Nýs vettvangs,
Guðrúnar Jónsdóttur, tóku til máls
þau Kjartan Jónsson, Grænu fram-
boði og Kristín Sævarsdóttir frá
Flokki mannsins. Allir áttu fulltrú-
ar þessir það sameiginlegt að lýsa
því yfir á fundinum að þeir teldu
sameiginlegan lista heppilegasta
kostinn fyrir næstu kosningar!
Þetta var í raun kjarninn í umræð-
um fundarins og í fyrsta sinn sem
þessi afstaða kemur fram með jafh
afgerandi hætti frá þessum fimm
aðilum samtfmis. Auðvitað höfðu
menn sínar efasemdir um fram-
kvæmdina og talsverður tími fór í
að ræða gallana á hugsanlegu sam-
floti þessara framboðsafla.
Einn þessara galla og kanski sá
veigamestí var sá að Alþýðuflokk-
urinn simr í óvinsælli og félags-
hyggjufjandsamlcgri ríkisstjórn um
þessar mundir. Af þeim sökum lýstí
Arni Þór því yfir á fundinum að
sameiginlegt ffamboð Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks kæmi
ekki tíl greina en bættí því einnig
Hrannar
Björn
Arnarsson
við - sem einhverra hluta vegna fór
ffamhjá blaðamanni Vikublaðsins-
að kæmu fleiri ffamboðsaðilar
formlega að sameiginlega ffam-
boðinu sneri málið öðruvísi við, -
þá væru allir möguleik-
ar opnir til skoðunar.
Það er því með öllu
óskiljanlegt hvernig
blaðamaður Viku-
blaðsins fær það út að
sameiginlegt ffamboð
ininnihlutaflokkanna
hafi verið blásið af á
þessum fundi. Niður-
staðan var þveröfug.
Sameiginlegt framboð
þessara fimm fyrrver-
andi framboðsaðila
liggur á borðinu hafi
menn á því minnsta
áhuga og sá áhugi var
yfirlýstur af fulltrúum
allra framboðsaðilanna
á þessum fundi.
Eitt til átta
framboð?
Á fundi þessum kom
einnig fram hjá fulltrú-
um Nýs vettvangs,
Græns framboðs og
Flokks mannsins að í
þeirra röðum er fullur
hugur á að láta til sín
taka í næstu borgar-
stjórnarkosningum.
Þannig kom það skýrt
fram að náist ekki
breið samstaða um
sameiginlegan lista
með þessum öflum
innanborðs munu þau
bjóða fram við hlið
hinna hefðbundnu
framboða fimmflokks-
ins. Blaðamanni Viku-
blaðsins þykir þáð að
vísu ekki tíðindum
sæta að boðað sé tíl
framboða tíl borgar-
stjórnar en aðrir sem
sátu fundinn gera sér
eflaust ljóst að mistak-
ist þessum fimm aðil-
um að sættast á sam-
eiginlegan lista stend-
ur félagshyggjufólk
frammi fyrir sex, sjö,
átta eða fleiri framboð-
um við næsm borgar-
stjórnarkosningar.
Það þarf ekki að fjöl-
yrða um möguleika
þess frainboðakraðaks
á að fella meirihluta
Sjálfstæðisflokksins í
kosningunum, þeir eru
auðvitað engir, en eigi
talsmenn framboðanna
að geta réttlætt slíkt
valdaafsal fyrir kjós-
endum sínum hljóta
þeir að leggja fram gild
rök um málefnalegan
ágreining þessara að-
ila. Þetta á auðvitað
líka við um Framsókn-
arflokkinn og Samtök
um kvennalista en
hingað til hefur ekki
heyrst orð ff á þeim um
málefnalegan ágrein-
ing við aðra framboðs-
aðila félagshyggjuaflanna. Er sér-
hyggja þessara flokka virkilega orð-
in svo mikil að flaggið og bókstaf-
urinn er tekið framyfir málefhin og
árangur í starfi? Hversvegna í
ósköpunum neita fulltrúar þessara
flokka að ræða málin fyrir opnum
tjöldum?
Nú er lag
Stríðsfyrirsögnin í síðasta Viku-
blaðinu um að „sameiginlegt fram-
boð minnihlutaflokkanna væri
blásið af‘ byggist á algerum mis-
skilningi. Það var e.t.v. táknrænt
fyrir feilpústið í ffásögninni að
undirritaður sem stjórnaði fundin-
um var sífellt sagður Jónsson í
þessari grein. Mér er ekki kunnugt
um að hafa verið rangt feðraður og
afþakka þessa tílraun Vikublaðsins
tíl að ættfæra mig upp á nýtt.
Það er mun meiri áhugi á upp-
stokkun flokkaffamboðanna og
nýjum pólitískum áherslum við
stjórnun Reykjavíkur heldur en
flokksvélarnar hafa haldið. Það má
líka sjá af jákvæðum yfirlýsingum
Guðrúnar Ágústsdóttur og Sigur-
jóns Péturssonar undanfarna daga
að skilningur fer vaxandi innan Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík á
þeirri pólitísku undiröldu sem er
fyrir hendi. Ungir jafnaðarmenn,
ungt fólk í öllum flokkum, Nýr
Vettvangur, Alþýðubandalags-
rnenn, Grænt ffamboð, Flokkur
mannsins og valkostafólk innan
Framsóknar og Kvennalista er að
tala saman. Viðræður fara núna
ffam á ýmsum stigum og vilji alls
áhugafólks um nýjar vinstri áhersl-
ur við stjómun borgarinnar er
ótvíræður. Nú er lag.
Höfundur er ffamkvæmda-
stjóri og fulltrúi Nýs
vettvangs í atvinnumálanefnd
Reykjavíkurborgar.
Athugasemd
Blaðamaður biðst afsökunar á að
hafa farið rangt með föðurnafn
Hrannars í umræddri grein í
síðasta tölublaði.
Ný ríkisbréf án
verbtryggingar til
tveggja ára brjóta blab
í sögu verbbréfaútgáfu
á Islandi
Enn kemur ríkissjóður með nýjung á fjármagnsmarkað - ný ríkisbréf án
verbtryggingar með föstum nafnvöxtum og lánstíma til tveggja
ára í stað 6 og 12 mánaða áður.
Nýju ríkisbréfin eru fyrsta skrefið í þá átt að bjóða sparifjáreigendum
traust ríkisbréf án verðtryggingar, til lengri tíma. Óverðtryggð
ríkisverðbréf njóta sífellt meiri vinsælda, enda hefur verðbólga verið lág
undanfarin ár, stöðugleiki í efnahagsmálum mikill og allt bendir til að svo
verði áfram.
Nýju ríkisbréfin eru því góður möguleiki fyrir þig til al> losna úr
vibjum verbtryggingarinnar, treysta verðbréfasafn þitt enn frekar og
njóta um leið góðrar ávöxtunar, dreifa áhættunni og auka fjölbreytni
ríkisverðbréfa í eignakörfunni.
Nýju ríkisbréfin verða seld með útboðsfyrirkomulagi og verður fyrsta
útbobib mibvikudaginn 17. nóvember. Hafðu samband við
verðbréfamiðlarann þinn eða starfsfólk Lánasýslu ríkisins sem aðstoðar
þig við tilboðsgerðina og veitir þér nánari upplýsingar.
Taktu þátt í ab skapa markab meb óverbtryggb verbbréf á
íslenskum fjármagnsmarkabi. Vertu með í tilboðinu 17. nóvember.
LANASYSLA RIKISINS
Hveifisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40