Vikublaðið


Vikublaðið - 12.11.1993, Side 9

Vikublaðið - 12.11.1993, Side 9
VIKUBLAÐIÐ 12. NOVEMBER 1993 S^ftrnmáliii Þingsályktunartillaga frá Alþýðubandalaginu: Sfld er verðmæt- ari sem matur Þeir sem vinna síld til mann- eldis fá ekki nægilegt hrá- efni til að þeir geti framleitt upp í samninga. Jóhann Arsælsson þingmaður Alþýðubandalagsins kynnti í vik- unni þingsályktunartillögu um að ríkisstjómin skipi þriggja manna nefhd til að móta stefnu um nýt- ingu síldarstofna við Island. Gert er ráð fyrir að nefndin geri tillög- ur um það hvernig megi nýta síld- ina betur til manneldis, enda skap- ar sú vinnsla meiri atvinnu og hærri gjaldeyristekjur en síldar- mjöl. í umræðum á Alþingi var tekið undir sjónarmið Jóhanns og þau Bjöm Bjarnason þingmaður Sjálf- stæðisflokks og Anna Olafsdóttir Bjömsson þingkona Kvennalista lýsm sig fylgjandi þingsályktunar- tillögunni. Röskvukynslóðin vanda- mál fyrir flokkana Ungt félagshyggjufólk sem starfar saman undir merkjum Röskvu í Há- skóla íslands er orðið vandamál fyrir flokkana á vinstri kanti stjórnmálanna. Olafur Ragnar Grímsson rifjaði það upp á haustþingi kjördæmisráðs Al- þýðubandalagsfélaganna í Reykja- vík að fyrir 30 áram hefði stúd- entapólitíkin verið skipulögð sam- kvæmt flokkakerfinu þar sem hver flokkur tengdist ákveðinni stúd- entahreyfingu. Um 1970 tók þetta að breytast þegar vinstrisinnaðir námsmenn Verðandi vill kvennalista Vérðandi, samtök ungs alþýðubandalagsfólks og óflokksbundins fé- lagshyggjufólks, samþykkti eft- irfarandi ályktun á félagsfundi sínum sem haldinn var síðasta laugardag: Félagsfundur Verðandi hald- inn 6. nóvember 1993 telur afar brýnt að félagshyggjufólk neyti þeirra sóknarfæra sem bjóðast í næstu sveitarstjórnarkosning- um. Til að svo megi verða er mikilvægt að breið samstaða fé- lagshyggjufólks myndist um að fella meirihluta Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Megi það verða til að sam- eina félagshyggjufólk í Reykja- vík, leggur Verðandi til að fé- lagshyggjuflokkamir bjóði Samtökum um kvennalista að listi félagshyggjufólks verði „kvennalisti" eða a.m.k. að öll öragg sæti verði skipuð konum og að kona verði borgarstjórn- arefni listans. Alþýðubandalagið í Ólafsvík Mótmæla flutningi Hafró frá Ólafsvík A ðalfundur Alþýðubanda- /\ lagsfélags Olafsvíkur, -L- AJialdinn 7. nóvember 1993, mótmælir harðlega þeirri ákvörðun sjávarútvegsráðherra að fera útibú Hafrannsóknar- stofnunar frá Ólafsvík til Stykk- ishólms og krefst þess að sú á- kvörðun verði tafarlaust aftur- kölluð og að útibú Hafrann- sóknarstofnunarinnar í Ólafsvík verði starfsrækt í Ólafsvík eins og verið hefur og heimild er fyrir samkvæmt lögum frá Al- þingi. Grænn hagvöxtur Miðvikudaginn 17. nóvember n.k. gengst uinhverfis- málahópur Verðandi fýrir um- ræðufundi um „grænan hag- vöxt“. Rætt verður um forsend- ur hagvaxtar og hugsanlegar breytingar á hagvaxtarhugtak- inu með hliðsjón af aukinni vit- und og urnræðu um umhverfis- rhál. Framsögumenn verða Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Al- þýðusambandi Islands, Björn Guðbrandur Jónsson, lífffæð- ingur og umhverfisffæðingur og Guðni Niels Aðalsteinsson, hagffæðingur hjá Vinnuveit- endasambandi íslands. Fundur- inn verður haldinn í veitinga- stofunni í Tæknigarði við Dun- haga og hefst kl. 20.30. Allir era velkomnir. skipulögðu sig í Verðandi, Félagi vinstrimanna og síðar í Röskvu sem hefur fest sig í sessi og náð glæsilegum árangri. - Fólk finnur ekki rök fyrir því hvers vegna það eigi að skipta sér á Framsóknarflokkinn, Kvenna- listann, Alþýðuflokkinn og Al- þýðubandalagið þegar það kemur úr Háskólanum. Eg verð var við vaxandi óþol gagnvart þessum að- stæðum, sagði Ólafur Ragnar Grímsson og taldi nauðsynlegt að ræða málið ítarlega, þótt ekki væri í sjónmáli nein ein lausn á þessu vandamáli. Ályktun Kvennalistans um atvinnumál Atvinnuleysi á íslandi er nú meira en nokkra sinni og kem- ur ekki síst niður á ófaglærðu starfsfólki og konum. I lok ágúst vora 2700 konur atvinnulausar og 1980 karlar. Þá jókst langtímaat- vinnuleysi meðal kvenna um 19% í sumar en minnkaði um 11 % meðal karla. I þessum tölum endurspegl- ast sú staðreynd að ráðstafanir rík- isstjórnarinnar í atvinnumálum hafa fyrst og ffemst komið körlum til góða. Af einum milljarði sem ædaður var tíl atvinnusköpunar í tengslum við gerð kjarasamninga varði ríkisstjórnin rúmlega 900 milljónum til þess að skapa störf fyrir karla, en 80 milljónum til at- vinnuuppbyggingar fyrir konur. Varanlegt vinnnafl en ekki varavinnuafl Með þessari misskiptingu sýnir ríkisstjómin störfum kvenna og því ffumkvæði sem þær hafa sýnt í at- vinnumálum algert virðingarleysi. Eigi fjármagn til atvinnuuppbygg- ingar og nýsköpunar að nýtast kon- um jafnt sem körlum verða konur að eiga hlut að málum þegar því er úthlutað. Um allt land hafa konur reynt að takast á við samdrátt og at- vinnuleysi með eigin atvinnusköp- un án þess að njóta fyrirgreiðslu frá stjórnvöldum og lánastofnunum. Kvennalistinn leggur áherslu á að konur verði ráðnar til atvinnuráð- gjafar í öllum landshlutum og að því fé sem ríkið ver til atvinnumála verði úthlutað í samráði við þá sem starfa að þessum málum um land allt. Þá skorar Kvennalistinn á stjórnendur banka og sjóða að kanna möguleikana á því að koma á fót sérstökum lánaflokkum fyrir konur í atvinnurekstri. Kvennlist- inn mótmælir þeirri tílhneigingu að konur eigi öðram fremur að liðka tíl á vinnumarkaði og draga úr vinnu utan heimilis þegar atvinna ininnkar. Þá eiga þær að mæta sparnaðinum í opinberri þjónustu með aukinni ólaunaðri vinnu á heimilunum. Kynskiptur vinnu- markaður getur ekki gengið án vinnu kvenna og konur era kornnar á vinnumarkaðinn til að vera. Þær era varanlegt vinnuafl en ekki vara- vinnuafl. Við þær efhahagsaðstæð- ur sem nú era í þjóðfélaginu mega konur ekki láta sjálfskipaða vörslu- menn sektarkenndar kvenna segja sér hvað er þeim og bömum þeirra fyrir bestu. Konur verða að gæta réttar síns. Verkalýðshreyfingin að falla a tíma Efrir áratuga baráttu era íslensk- ar konur ennþá með rúmlega 50% lægri tekjur en karlar. Konur hafa ítrekað leitað eftír stuðningi verka- lýðshreyfingarinnar en án sýnilegs árangurs. Getu- og viljaleysi henn- ar tíl að takast á við launamisrétti kynjanna virðist algert. Kvennlista- konur vilja standa vörð um verka- lýðshreyfinguna og félaglega á- vinninga hennar en hljóta um leið að vara alvarlega við því skeytingar- leysi sem þar ríkir um hagsmuna- mál kvenna. Verkalýðshreyfingin er að falla á tíma og þvf brýnt að hún taki starfshætti sína og stefhu- mörkun tíl alvarlegrar endurskoð- unar. Frá árinu 1988 hefur kaup- máttur rýrnað urn 20% og stórir hópar fólks hafa laun sem ekki hrökkva fyrir brýnustu nauðsynj- um. Kvennlistínn mótmælir slíku siðleysi sem viðgengst með blessun ríkisvalds og samtaka atvinnurek- enda. Það jaðrar við þrælahald að nýta alla orku fólks og greiða því laun sem ekki er hægt að lifa af. Kvenmannslausar at- vinnunefndir íslendingar standa andspænis því að móta atvinnustefnu tíl ffam- tíðar. Kvennalistinn ítrekar að sú stefna verður að taka mið af um- hverfinu og nýtingu þeirrar fjár- festíngar, reynslu og þekkingar sem fyrir er í landinu. Enn og aftur bendum við á þá óþrjótandi mögu- leika sem felast í smáfyrirtækjum af ýmsum toga. Við eigum að nýta okkur hagkvæmni smæðarinnar og smðla að samvinnu íslenskra fyrir- tækja í samkeppni þeirra við er- lenda ffamleiðendur. Konur hafa í því efni mikilli þekkingu og reynslu að miðla. Hvorttveggja er þó for- smáð af þeipi stjómvöldum sem skipa nefnd tíl að móta stefnu um nýsköpun f atvinnulífi án þess að ein einasta kona komi þar að verki. Þessu verður ekki unað lengur. Konur hvar sem þær starfa eða standa í flokki verða að sameinast gegn slíku gerræði. Við konur verðum að tryggja að ekki verði ffamhjá okkur gengið við mótun nýrrar aldar. Millifyrifsagnir eru blaðsins Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa í 1. flokki 1989 1. flokki 1990 2. flokki 1990 2. flokki 1991 3. flokki 1992 Innlausnardagur 15. nóvember 1993. 1. flokkur 1989: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 777.161 kr. 77.716 kr. 7.772 kr. 1. flokkur 1990: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 686.137 kr. 68.614 kr. 6.861 kr. 2. flokkur 1990: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.356.818 kr. 135.682 kr. 13.568 kr. 2. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.261.194 kr. 126.119 kr. 12.612 kr. 3. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.565.677 kr. 1.113.135 kr. 111.314 kr. 11.131 kr. Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands Suðurlandsbraut 24. cSg húsnæðisstofnun ríkisins LJ HÚ5BRÉFADEIID • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 69 69 00 Aðalfundur Aðalfundur Alþýðubandalagsfélags Garðabæjar og Bessastaðahrepps verður haldinn í Safnaðarheimil- inu Kirkjuhvoli þriðjudaginn 16. nóvember n.k. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Kosning fulltrúa á landsfund Alþýðubandalagsins. 3. Ólafur fíagnar Grímsson formaður Alþýðubanda- lagsins kynnir tillögur í atvinnu- og efnahags- málum. 4. Önnurmál. Stjórnin Foreldrar barna ítann- réttingum, athugið Foreldrar barna í ttannréttingum, athugið að Tryggingastofnun tekur ekki þátt í greiðslu tannréttingakostnaðar barna ykkar eftir 31. desember nk., nema meðferðin falli undir alvarleg tilvik (flokk 1). Kostnaður sem til fellur eftir næstu áramót verður því aðeins greiddur að Tryggingastofnun hafi áður sam- þykkt 65-100°/o endurgreiðslu. Aðrir þurfa að bera kostnað af tannréttingum barna sinna sjálfir. Reikningar, sem heimilt verður að endur- greiða verða áfram afgreiddir hjá sjúkra- tryggingadeild Tryggingastofnunar, Tryggva- götu 28 í Reykjavík, og hjá umboðum hennar utan Reykjavíkur. TRYGGINGASTOFNUN ^7 RÍKISINS f-

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.