Vikublaðið


Vikublaðið - 22.03.1996, Qupperneq 11

Vikublaðið - 22.03.1996, Qupperneq 11
VIKUBLAÐIÐ 22. MARS 1996 11 Vímuvarna rúllar af st Á næstu vikum verður eínt til sér- staks fræðsluverkefnis fyrir starfsfólk grunnskóla í Reykjavík og einn dagur í hverjum skóla helgaður fræðslu- starfi í vímuvömum. Þann dag fellur hefðbundin kermsla niður á meðan kennarar og aðrir starfemenn skól- anna taka þátt í verkefhum „Vímu- vamarskólans11 sem svo hefur verið nefndur. Þennan dag verður tækifærið not- að og efnt til sérstaks starfedags í hverfum borgarinnar þar sem á boðstólum verður fjölbreytt dagskrá fyrir nemendur á öllum aldri. Verk- efiii þessu er hrint í ffamkvæmd í ffamhaldi af samþykkt borgarráðs sem sérstaklega hvatti til aðgerða í grunnskólum borgarinnar. Vímuvamarskólinn er fyrsti áfang- inn í umfángsmikilli endursldpulagn- ingu og samræmingu á forvamar- starfi í borginni sem unnið er á veg- um Vímuvamamefndar Reykjavík- urborgar. Með fræðsludegi í grunn- skólum Reykjavíkurborgar og starfe- degi í hverfum borgarinnar er lagður grunnur að samræmdu forvamar- starfi og aukinni samvinnu þeirra að- ila sem sinna bama- og unglinga- starfi. Vímuvamarskólinn er eins konar farskóli sem fer á milli grunnskól- anna í borginni og miðar að því að efla þekkingu og hæfni starfefólks til þess að beita sér í baráttunni gegn vímuefhum og vaxandi útbreiðslu þeirra meðal bama og unglinga. Vímuvamarskólinn er samstarfeverk- efrii Reykjavíkurborgar, ríldsins og fjölmargra samtaka sem teldð hafa höndum saman um skipulagningu og ffamkvæmd verkefnisins. Má þar nefna Samstarfenefiid ráðuneytanna, Bamavemdarstofu, SÁÁ, Fræðslu- miðstöð í fiknivömum, Rauða kross- inn, Forvamardeild lögreglunnar, I- þrótta- og tómstundaráð, Skólaskrif- stofu og Félagsmálastofiiun Reykja- víkurborgar. Smári leiðir list- ann fyrir vestan Smári Haraldsson framhaldsskóla- kennari og bæjarfulltrúi á Isafirði leiðir sameinaðan lista Oháðra, Kvennalista og Alþýðubandalags fyrir sveitarstjómarkosningamar sem fiam fara í nýja sveitarfélaginu á norðanverðum Vestfjörðum í maí. Svo sem kunnugt er náðu ofan- greindir aðilar saman um sameigin- legt framboð, en áður höfðu Fram- sóknarmenn og Alþýðuflokkur dreg- ið sig út úr viðræðunum. Framboðs- listi þessara þriggja aðila var sam- þykktur á fundi á Núpi í Dýrafirði sl. laugardag. Væntanleg sveitarstjóm verður sldpuð 11 fulltrúum alls. Listi Óháðra, Kvennalista og Alþýðu- bandalags er skipaður eftirfarandi fólki: 1. Smári Haraldsson, framhalds- skólakennari og bæjarfulltrúi, ísafirði. 2. JónaValgerður Kristjánsdótt- ir, fv. þingkona, Hnífedal. 3. Bergur Torfason, skrifetofu- maður, Þingeyri. 4. Lilja RafiieyMagnúsdóttir, verkalýðsfrömuður, Suðureyri. 5. Bjöm Bjömsson, bóndi og oddviti, Þórustöðum. 6. Guðrún Á. Stefansdóttir, námsráðgjafi og bæjarfulltrúi, Isafirði. 7. Bryndís G. Friðgeirsdóttir, kennari og bæjarfulltrúi, Isa- firði. 8. Jónína Emilsdóttir, aðstoðar- skólastjóri, Isafirði. 9. Bjöm Birkisson, bóndi og oddviti, Birkihh'ð. 10. Sæmundur Þorvaldssson, dún- verkandi, Ytri-Húsum. 11. Sigríður Bragadóttir, ræsti- tæknir, Isafirði. Smári Haraldsson 12. Jón Amar Sigurþórsson, í- þróttaþjálfari, ísafirði. 13. Guðmundur Björgvinsson, bifvélavirki, Flateyri. 14. Jóna Kristín Kristinsdóttir, út- gerðarmaður, Suðureyri. 15. Bjarki Rúnar Skarphéðinsson, erindreld, Þingeyri. 16. Guðni Albert Einarsson, skip- stjóri, Suðureyri. 17. Helga Björkjóhannsdóttir, forstöðumaður leikfangasafiis, ísafirði. 18. Ásdísjónsdóttir, forstöðumað- ur, Vífilsmýrum. 19. Soffi'ajónsdóttir, skrifetofu- maður, Þingeyri. 20. Ari Sigurjónsson, verkamaður, ísafirði. 21. Guðrún Sigurbjört Eggerts- dóttir, verslunarmaður, Flat- eyri. 22. Magnús Sigurðsson, þunga- vinnuvélamaður, Þingeyri. Félagsfundur ABR ABR heldur félagsfund lauqardaginn 13. apríl að Lauga- vegi 3, kl. 10.00. Dagskrá: 1. Kosning uppstillinganefndar vegna stjórnarkjörs. 2. Svavar Gestsson ræðir stjórnmálaviðhorfið. 3. Önnur mál. Stjórn ABR Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur og Gísli Ami Eggertsson æskulýðsfulltrúi hjá I I R Ieiða kennara og annað starfsfólk Breiðholtsskóla í allan sannleikaim. Mynd ÓI.Þ. Alþýðubandalagsdagar á Akureyri og í Eyjafirði Dagana 27.- 30. mars mun hópur forystumanna Alþýðubandalagsins og óháðra vera á ferð á Akureyri og í Eyja- firði. Fyrirtæki og stofnanir verða heim- sótt, fundað með sveitarstjórnarmönnum o. fl. og haldnir almennir stjórnmála- fundir. Meðal þátttakenda verða Margrét Frí- mannsdóttir, Jóhann Geirdal, Bryndís Hlöðversdóttir, Ögmundur Jónasson, Árni Steinar Jóhannsson og Steingrímur J. Sigfússon, auk heimamanna á hverj- um stað. Almennir stjórnmálafundir verða sem hér segir: Akureyn, miðvikudagskvöld 27. mars kL 20.30 á Hótel KEA. Ólafsfirði, fimmtudagskvöld 28. mars kL 20.30 á Hótel Ólafsfiröt Grenivík, föstudagskvöld 29. mars kL 20.30 í Gamla skólanum. Dalvík, laugardag 30. mars kL 14.00 í Sœluhúsinu. Alþýðubandalagið og óháðir Norðurlandi eystra Laugardagsfundir ABR Stjórn ABR heldur laugardagsfundi kl. 10-12:30 með borgarfulltrúum og þingmönnum Reykjavíkur í mars og apríl að Laugavegi 3. 23. mars Guðrún Ágústsdóttir forseti borgarstjórnar. Umrœðuefni: Endurskoðun á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar. Félagsmenn eru hvattir til að mæta. Stjórn ABR 30. mars Ögmundur Jónasson alþingism. 13. apríl Svavar Gestsson alþingism.

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.