Vikublaðið


Vikublaðið - 14.06.1996, Síða 4

Vikublaðið - 14.06.1996, Síða 4
4 VIKUBLAÐIÐ - ÞINGTIÐINDI - JUNI1996 Swiptingar i sjáwar útvegsmálum Steingrímur J. Sigfússon formaður Siávar- útvegsnefnaar skrifar Steingrímur J. Sigfósson: Sjálfsagt má deila um það hvort of langt sé gengið með samkomulaginu í þágu þess hluta smábátanna sem stunda veiðar með krókum og hafa á- unnið sér þokkalega aflareynslu, en hitt er öllu verra að það felur ekki í sér neina úrlausn til þess hluta smábátaút- gerðarinnar sem er verst settur en það eru smábátar á aflamarki. Auðvitað hefði þetta samkomulag þurft að taka einnig til sanngjamra Iagfáeringa á stöðu aflamarkssmá- báta og báta þannig að reynt væri með jöfoimaraðgerðiun að skapa á nýjan leik grundvöll fyrir útgerð hefðbimdinna báta og vertíðarbáta. Fyrsta verkefiii sjávarútvegsnefiid- ar á þessu þingi var að fjalla um lagfæringu á lögum um stjóm fisk- veiða þar sem handvömm hafði orðið við afgreiðslu málsins í breytingatillögu stjómarmeiri- hlutans á síðastliðnu vori. Næstu þingmál sem fram komu og vörðuðu málefni sjávarútvegsins vom fiumvarp til laga um umgengni um auðlindir sjávar og frumvarp um breytingu á Iögum um vinnsluskip. Bæði þessi frumvörp urðu að lögum og tóku talsverðum breytingum í meðförum Alþingis. Hið svokallaða „Umgengnisfrumvarp" heitir nú; „Lög um umgengni um nytjastofiia sjávar". Er í því fólgin viðleitni til að bæta umgengni um auðlindina og festa í sessi eftirlit með því að réttar leikreglur séu virtar hvað varðar með- ferð afla, vigtun, aðgreiningu í teg- undir o.s.ffv. Breytingin á ákvæðum um vinnslu- skip er fyrst og ffernst effirgjöf á þeim kröfúm sem settar voru í lög 1992 um að þau skyldu hirða allan úrgang, hausa, bein, afskurð og annað sem til fellur við vinnslu um borð. Á sínum tíma var talið eðlilegt að gera dl nýrra skipa kröfúr um að þau gætu uppfyllt þessa skyldu en eldri skipum, sem höfðu vinnsluleyfi þegar lögin voru sett 1992, var veittur að- Iögunartími ril 1. september 1996. Er skemmst ffá því að segja að þessi að- Iögunartími hefúr í raun og veru ekk- ert verið nýttur. Utgerðin bjó sig ekki undir það á nokkum hátt að mæta þessum breytingum. Jafnvel hefúr heyrst að nýju slripin sem hafá búnað um borð til mjölvinnslu hafi eklri einu sinni notað þann búnað. Fullyrt er að milrið vanti uppá að vinnsla úrgangs- ins svari kostnaði, hvað þá að hag- kvæmt sé að ráðast í kostnað við breytingar á eldri slripum, sem þar á ofán eru iðulega í miklum vandræð- um að koma fyrir fúllnægjandi vinnslubúnaði. Það eru effir sem áður vonbrigði að horfið skuli ffá þeirri „nýtingarstefnu" og bættu umgengni sem lögin frá 1992 mörkuðu. Niður- staðan er sú að ráðherra er, með lög- unum, veitt heimild til að veita und- anþágur ffá þeirri skyldu að koma með allan úrgang að landi í reglugerð. Þriðja stjómarffumvarpið er svo hið margumtalaða ffumvarp um breytingar á lögum um stjóm fisk- veiða, að stofni til samkomulag sem sjávarútvegsráðherra gerði við Lands- samband smábáta um sókn krókabát- anna. Um það samkomulag, og þó eklri síður aðdraganda þess, mætti ýmislegt segja. Fréttir um samkomu- lagið birtust skyndilega í fjölmiðlum og í ljós kom að ekkert samráð hafði verið haft við aðra aðila innan útvegs- ins. Varð af því mikill hvinur og und- irtektir vom vægast sagt slæmar t.a.m. hjá Landssambandi íslenskra útvegs- manna. Fæstir mótmæla þó því að nauð- synlegt var að grípa til ákveðinna ráð- stafana gagnvart sókn krókabátanna sem ella hefði stórskerst á næsta ári með mun færri róðrardögum. Á þetta var bent vorið 1995 af stjómarand- stöðunni en á hana var eklri hlustað þá. Sjálfsagt má deila um það hvort of langt sé gengið með samkomulaginu í þágu þess hluta smábátanna sem stunda veiðar með krókum og hafa á- unnið sér þokkalega aflareynslu, en hitt er öllu verra að það felur eklri í sér neina úrlausn til þess hluta smábáta- útgerðarinnar sem er verst settur en það em smábátar á aflamarld. Auðvit- að hefði þetta samkomulag þurff að taka einnig til sanngjamra lagfæringa á stöðu aflamarkssmábáta og báta þannig að reynt væri með jöfiiunarað- gerðum að skapa á nýjan leik grund- völl fyrir útgerð hefðbundinna báta og vertíðarbáta. Nokkur togstreita var milli stjóm- arflokkanna um máfið og svo virðist sem ekki hafi bara skort á samráð við aðrar greinar innan sjávarútvegsins heldur líka milli stjómarflokkanna. Oþarfi er að taka ffam að í samræmi við þau vinnubrögð sem rílrisstjómin almennt tíðkar var eklri minnsta sam- ráð haff við stjómarandstöðuna um þetta mál. Frumvarpið hefúr nú verið lögfest nánast óbreytt. I fjórða lagi má nefna ffumvarp til laga um veiðar utan landhelgi, svo- nefnt „Uthafsveiðiffumvarp“, sem lagt var ffam núna á vordögum. Frumvarpið er að stofni til drög sem Uthafsveiðinefndin hafði unnið og sent ráðherra með bréfi þegar hún slrilaði af sér fyrir nokkra. Frumvarp- ið felur í sér að settar era tilteknar reglur um sókn utan efnahagslögsög- unnar og gefur það ráðherra heimild- ir til að leyfisbinda og takmarka slíka sókn þegar samið hefur verið um veiðar á alþjóðlegum hafsvæðum. Al- menna reglan er eftir sem áður að sókn á úthafið er ffjáls. Frumvarpið geymir einnig ákveðna leiðsögn um það hvemig fara skuli með veiðiheim- ildir sem myndast á grunni afla- reynslu á alþjóðlegum hafevæðtun og er meginreglan sú að veiðireynsla slripanna myndar grunn til úthlutun- ar. Þá er að finna í ffumvarpinu ákveðin heimildarákvæði til þess að skerða á móti úthafekvóta sem úthlut- að er innan lögsögu. Loks má nefiia svonefnt frumherja- ákvæði sem gerir ráð fyrir þeim möguleika að úthluta tilteknu magni til þeirra sem hófú veiðar á viðkom- andi hafevæði. I ffumvarpinu er kafLi um effirlit og heimildir til gjaldtöku til að standa straum af kostnaði við eftirlit sem um kann að semjast á al- þjóðlegum hafevæðum. Er sá kafli umdeildur, enda ástæða til að vera á varðbergi gagnvart tilhneigingum, t.d. Kanadamanna og fleiri þjóða, til gífurlegs og iþyngjandi eftirlitsfarg- ans með tilheyrandi kostnaði fyrir út- gerðina. Framvarpið náði eklri ffam að ganga að öðra leyti en því að lög- festar vora tilteknar heimildir til gjaldtöku vegna eftirlitskosmaðar. Frumvarp Alþýðubanda- lagsmanna Helsta mál stjómarandstöðunnar, sem kom til kasta sjávarútvegsnefnd- ar, var ffumvarp sem greinarhöfúnd- ur og Kristinn H. Gunnarsson era flutningsmenn að og tekur til þriggja efnisþátta í stjómkerfi fiskveiða. I fyrsta lagi að endtu-skoða þá dag- setningu sem í lögum er og bindur hendur sjávarútvegsráðherra til að endurskoða úthlutun veiðiheimilda í þorslri á hverju fiskveiðiári við 1. apr- íl. Þessi dagsetning stendur óheppi- lega af sér miðað við t.d. niðurstöður úr togararalli og fiskveiðiráðgjöf Haf- rannsóknarstofnunar. Sjávarúvegs- nefiid varð sammála um að breyta þessu og var það afgreitt með breyt- ingatillögum í tengslum við króka- bátamálið. I öðra lagi er í ffumvarpinu lögð til breyting á svonefndri 50% reglu sem kveður á að annað hvert ár skuh slrip nýta að lágmarki 50% af sínum veiði- heimildum sjálff. Þetta ákvæði var á sínum tíma hugsað sem ákveðinn hemill á Ieigubrask með heimildir og til þess að tryggja að slrip á þurra landi væra eklri gerð út árum saman í þeim skilningi að þau leigðu ffá sér allar veiðiheimildimar. En ákvæðið er þannig úr garði gert að það telcur til nýtingar á öllum veiðiheimildum skipa í heild í þorskígildum tahð en ekki til hverrar tegundar, sem virkar þannig að með millifærslum er í raun og vera afar auðvelt fyrir skipin að ná þessu marki svo ffemi að þau séu yfir höfúð haffær. Viðurlögin era hins vegar þau að náist elriri þetta 50% mark a.m.k. annað hvert ár þá missir skipið veiðileyfi og allar veiðiheimild- ir sínar á einu bretti. Að mati flutn- ingamanna er nær að binda þetta við hverja tegund fyrir sig og þá viðurlög- in sömuleiðis. I þriðja lagi er svo í ffumvarpinu á- kvæði um að endurskoða skuh allt úr- eldingarregluverlrið og í milhtíðinni draga úr kröfúm um úreldingu á móti endumýjun loðnuslripa eða nótaslripa ef þau era búin fullkominni tækni til gæðameðhöndlunar á hráefiú. Ljóst er að sá hluti flotans er tilfinnarJega úreltur bæði hvað aldur snertir en einnig tæknilegan búnað til meðferð- ar á hráefni og jafnvel veiðitækni. Teljandi era á fingrum annarar hand- ar þau skip í íslenska nótaslripaflotan- um sem búa yfir tækni til að kæla hrá- efni í tönkum og flytja þannig há- gæðavöra að landi og fæst þeirra er búin til veiða með flotvörpu. Sú htla endumýjun sem nú á sér stað í flotan- um gerist með kaupum Islendinga á gömlum nótaskipum ffá Noregi, Skotlandiogvíðar, sem þar er nú ver- ið að slripta út fyrir ný og glæsileg slrip. Hins vegar að gömul íslensk skip sem mörg hver er þegar búið að lengja, breikka og hækka, teygja og toga á alla enda og kanta, era gerð upp. Úthafsveiðar Áður var gerð grein fyrir ffumvarpi því til laga sem Alþingi hefur verið að fjalla um úthafeveiðar. Það tekur mið af úthafeveiðisamningnum svonefnda sem undirritaður var á síðasta ári í New York. Sá sanmingur er að stofni til viðbót við hafréttarsamninginn og tekur í raun við þar sem reglum haf- réttarsamningsins lýkur, við ytri mörk efnahagslögsögu ríkja. Uthafeveiði- samningurinn er rammi um meðferð mála á úthafinu sem ríki eiga síðan að nýta til að koma sér saman um stjóm og meðferð mála. Samningurinn sem slíkur leysir eklri úr deilumálum í hverju einstöku tilviki heldur er fyrst og ffemst rammi til að vinna slík mál eftir. Mikil og hröð þróun hefur orðið í úthafeveiðum Islendinga á síðustu árum og slripta þær nú orðið umtals- verðu máh í okkar sjávarútvegi og þjóðarbúskap. Áætlað er að á þessu ári geti aflaverðmæti utan efnahagslög- sögu orðið 7-8 milljarðar króna eða einhverstaðar á bilinu 12-15% af heildaraflaverðmæti íslenska flotans. Munar um minna og verða þær radd- ir sem á sínum tíma töluðu gegn þess- um veiðum og vildu jafnvel banna mönnum að halda til veiða á umdeild- um svæðum eins og í Barentshafi býsna sérkennilegar í ljósi þessara staðreynda. Af einstökum úthafeveiðisvæðum er það að ffétta að á síðasta vetri náð- ist samkomulag urn uppslriptingu veiðiheimilda á Reykjaneshrygg inn- an NEAFC, Norðausturatlantshafe- fiskveiðinefndarinnar, og er hlutur Is- lendinga sæmilegur út úr því sam- komulagi, þó í rýrari kantinum. Nið- urstaðan var sú að hafa ffjálsa sókn eða „ólympískar veiðar“ á Reykjanes- hrygg af hálfú íslenskra slripa á þessu ári en líklegt verður að telja að kvóta verði skipt niður á slrip fyrr en seinna. I öðra lagi var óvænt gert innan NAFO, svæðisstofnunarinnar sem fer með fiskveiðimál í vestanverðu Atl- antshafinu, samkomulag um að tak- marka sókn á rækjumiðinu á Flæm- ingjagrunni. Sú niðurstaða kom mönnum í opna skjöldu hér heima og endaði með því að íslensk stjómvöld létu undan þrýstingi og mótmæltu samkomulaginu, og það sama gerðu reyndar Rússar. Áffam er því á þessu ári ffjáls sókn á rækjumiðinu á Flæm- ingjagranni og fjöldi íslenskra slripa þar við veiðar en búast má við að aff- ur verði gerðar tilraunir til að koma þar á fiskveiðistjóm á næsta ári. I þriðja lagi er svo hinn víðfrægi síldarsamningur milli Islands, Fær- eyja, Noregs og Rússlands sem efiiis- lega var gengið ffá á leynifúndi ís- lenskra og norskra ráðherra í London. Síðan vora sviðsettir sam- ráðsfúndir hér heima og samninga- fúndur í Osló í kjölfarið. Hlutur ís- lands er slakur í þessum samningi og upphafeprósenta okkar samkvæmt samningnum er aðeins liðlega 17%. Samkomulagið náðist fyrst og ffemst sökum þess að Islendingar og Færey- ingar gáfu verulega eftir af þeim kvóta sem þeir höfðu einhliða ákveðið sér, Norðmenn héldu sínum hluta að mestu leyti en Rússar bættu við sig. Einungis reynslan getur skorið úr um það hversu vel þessi samningur reyn- ist okkur en mesta hættan sem í hon- um er fólgin er, eins og áður sagði, hin lága byrjunarprósenta í ljósi þess að við hljótum að ætla okkur a.m.k.

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.