Vikublaðið


Vikublaðið - 14.06.1996, Side 7

Vikublaðið - 14.06.1996, Side 7
7 helstu saman VIKUBLAÐIÐ - ÞINGTIÐINDI - JUNI1996 Ahugamálin og þingmálin fforu Bryndís Hlöðversdóttir hefur í störf- um sínum sem nýbakaður þingmaður einbeitt sér að vinnumarkaðs- og j afnr éttismálum Bryndís Hlöðversdóttir lögfiræð- ingur kom inn á Alþingi sem nýliði fyrir ári síðan en hefur Iátíð æ meir að sér kveða eftir því sem liðið hefiir á 120. löggjafarþingið. Vmnumarkaðsmál, réttindi launa- fólks og jafnréttismál hafa verið í sviðsljósinu, en það voru einmitt sérstök áhugamál hennar áður en hún var kjörin á þing. „Eg hef sjálfsagt verið heppin að áhugamálin og þörfin á umfjöllun um þau féllu saman enda þótt við höfum ffekar verið í vöm en sókn í réttindamálunum. Það er styrkur af því að vera vel heima á þeim sviðum sem til utiiræðu em og það em ekki mjög margir sem sinna vinnumark- aðsmálunum markvisst, en það er bæði flókinn og erfiður málaflokkur. Ég hef svo ásamt fleiri konum á AI- þingi verið að sinna ákveðinni grunn- vinnu í jaíhréttismálum og reynt að hafa eftirlit með því að settum mark- miðum sé framfylgt." Orð og efndir í sambandi við slíka eftirfylgju má nefna fyrirspum um firamkvæmd Is- lendinga á sáttmálanum um afnám allrar mismtmunar gagnvart konum. Hann leggur ákveðnar ffamkvæmda- skyldur á hendur ríkinu. Það er sem- sagt ekki bara spumingin um að lög- leiða heldur er einnig skylt að ffam- kvæma. Fulltrúi íslenskra stjórnvalda kom fyrir eftirlitsnefnd til þess að svara spurningum urn ffamkvæmdina og í ljós kom að fjölmörg atriði þarf að laga hér á landi að sögn Byndísar. „Dæmi um það er sú staðreynd að efni sáttmálans og ákvæði jafnrétt- islaga virðast ekki vera íslenskum dómumm sérlega kunnug. Af þessu og ýmsum öðmm atriðum mætti draga þá ályktun að ffæðslu í jafnrétt- ismálum væri ábótavant á Islandi. I ffamhaldi af þessu var Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra spurður hvemig hann hygðist bregðast við þessum ábendingum. Hann lýsti áhuga sínum á að boða til fundar um hvemig rétt væri að taka á málum, enda hafa konur nokkrar áhyggjur af úrlausnum dómara í jaftiréttismálum sem til kasta dómstóla koma. Það þýðir ekki að setja lög sem leggja bann við mismunun á kynferði, en láta síðan viðgangast að stúlka fái að- eins 70% af örorkubótum drengs á sama aldri. Þar rekast á lagatúlkun og ákvæði alþjóðasamnings sem Islend- ingar hafa gengist undir.“ Brottfall kvenna úr íþróttum Bryndís lagði ásamt fleiri konum ffam tillögu til þingsályktunar um stefnumótun í íþróttum stúlkna og kvenna. Þessi tillaga var samþykkt í menntamálnefnd og síðar sem 'álykt- un Alþingis en hún gerir ráð fyrir skipun nefndar í samráði við Ung- nrennafélag íslands og Iþróttasam- band íslands sem hafi það hlutverk að vinna að stefnumótun á þessu sviði, sérstaklega með ttilliti til brottfalls kvenna úr íþróttum sem er áberandi. Mjög mildlvægt er að mati Bryn- dísar að tryggja aðkomu kvenna sem eru virkar í íþróttum að þessari stefnumótun stjómvalda. íhlutun í innri mál ASÍ „I stóm málunum, sem verið hafa í brennidepli á þessu þingi, Iiggur ljóst fyrir að okkur í stjómarandstöðu- flokkunum hefúr ekld teldst að koma vitinu fyrir ríldsstjórnina og setja þessi mál inn í þann fárveg samáðs sem þau vom í. Mér þykir þetta mið- ur, ekld síst vegna þess að fullur vilji var fyrir hendi til þess að fjalla um löggjöf er varðaði stéttarfélög og vinnudeilur í alvöru og vinna að betra skipulagi með það að markmiði að auðvelda kjarasamninga og stytta samningsferlið. Það gerist hinsvegar fyrir fljótfæmi og yfirlýsingagleði að þessum góða vilja er spillt, og máhð unnið áfram af meirihluta Alþingis í fullu ósætti við alla verkalýðshreyf- inguna. Hér er verið að brjóta niður þá hefð að lög um innri málfifni stéttar- félaga og samtaka atvinnurekenda séu því aðeins sett að um þau ríld góður ffiður meðal aðila vinnumark- aðarins. Þetta hefur verið grunnur- inn að þríhliða samstarfi ríkisstjóma og aðila vinnumarkaðarins á Norð- urlöndum. Nú er með lögþvingun búið að spilla andrúmslofdnu og ffumvarp til laga sem átti að auðvelda gerð kjara- samninga hefur snúist upp í and- hverfu sína, breikkað bihð milli aðila og lagt steina í götu kjarasamninga sem ffamundan em í haust. Ymis atriði vom felld út úr ffum- varpinu um stéttarfélög og vinnu- deilu, m.a. þau sem að áhti Laga- stofnunar HI stóðust eldd alþjóða- samþykktir, en ekki þurfti lagaáht til þess að sjá þá ágalla. Énn em þó í lög- unum vafaatriði, sem vafasamt er að fai staðist. Alvarlegast er þó að laga- setningin er í sjálfu sér gróf íhlutun í innri málefni Alþýðusambands Is- lands.“ Sambandið við kjósendur Bryndís segir að sér hafi komið skemmtilega á óvart hvað það sé ffóðlegt og oft á tíðum skemmtilegt að eiga hlut að umræðum í þingsal um ákveðin málefni. Shkar umræður séu miklu betri en orðsporið sem af þeim fer. Hún flutti jómffúarræðu sína í eldhúsdagsumræðum strax á vorþingi eftir kosningar og hefur síð- an teldð vaxandi þátt í umræðum. Hinsvegar er margt í vinnusldpulagi þingsins og starfsháttum sem er ó- þægilegt fyrir þá sem vilja vinna skipulega og markvisst að málum. ,fylér er það líka hugleildð að ná tök- um á því að halda sambandi við kjós- endur í Reykjavík, en þar held ég að við þingmenn höfuðborgarinnar séum í nokkrum vanda. Það er eðli- legt að við höfúm landið allt sem okkar verkssvið, en oft finnst manni þingmenn annarra kjördæma gera sér lífið full einfalt með opinskáu hagsmunapoti fyrir sín kjördæmi. Það kemur mér til að mynda á óvart í störfum mínum í fjárveitinganefnd að kynnast því að styrldr til menning- armála fara nær einvörðungu annað en á höfuðborgarsvæðið." Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður um ríkisQármálin: Minna í ríkisrekstur meira í Sl færslur og stofhframkwæmdir Kostnaðurinn við skuldir rikis- sjóðs er slíkur að halda mætti uppi atvinnu fyrir alla atvinnulausa í landinu ef ekki þyrftí að greiða alla þessa fjármtmi í skuldahítina. Hreinar skuldir ríkisins námu 195.3 milljörðum króna í árslok 1994. Nokkuð hefúr dregið úr skuldasöfnuninni en hún er þó enn miltil. I þessu sambandi má minna á okkar afstöðu í vetur þegar fjár- lagatillögumar byggðust á því grundvallaratriði að hallinn á ríkis- sjóði minnkaði en ykist eklti. Það má því segja að það sé þverpóhtísk samstaða um þessi mál; spumingin er bara hvemig á þeim verður tek- ið. Þar höfúm við aðrar áherslur en stjómarflokkamir. Hrein skuldastaða ríltissjóðs í árs- lok 1994 svaraði til þess að ffamtíðar- skatttekjum nærfellt tveggja ára hefði verið ráðstafað. Samkvæmt þessu era fjármagns- gjöld umfram fjármunatekjur 9,5 milljarðar króna. Fjárhæð þessi svarar til um fjórðungs af heildarlaunagjöld- um A-hluta ríkissjóðs á árinu 1994 eða með öðram orðum kostnaðii við 4.600 ársverk. Þ=tta er svipúð upp- hæð og varið var til allra samgöngu- mála í landinu á umræddu ári og af svipaðri stærðargráðu og fé til orku- mannvirkja. Þetta kemur ffam í skýrslum yfir- skoðunarmanna ríkisreiknings og Ríkisendurskoðunar sem lagðar vora ffam í desember síðastliðnum. Við sjáum af þessu að hér er komið í óefni. Verjum millfærslukerfið Útgjöldum ríkisins er skipt í þrennt, það er að segja í: a) almennan rekstur, b) tilfærslur milli þjóðfélagshópa, c) fjárfestingar. Undanfarin ár hefur veirð reynt að hamla gegn útgjaldaaukningu hins opinbera með niðurskurði á mihi- færslu og fjárfestingum b og c lið. Kostnaðurinn við almennan rekstur, a, hefur hinsvegar ffemur farið vax- andi heldur en hitt. Þetta getur ekld verið seskileg þróun út ffá sjónarmiði samhjálpar og ffamfára í atvinnumál- um. Við viljum verja velferðarkerfið, það er millifærslumar ffá þeim sem era aflögufærir til þeirra sem þurfe á viðbót að halda við sínar tekjur, hvort sem það er tímabundið eða varanlega. Við viljum líka halda uppi fjárfesting- arstiginu hjá þjóð sem þarf að glíma við mörg ffamtíðarverkefni og efla at- vinnulíf um land allt. Ríkið í ábyrgð en ekki rekstri Landsfúndur Alþýðubandalagsins fjallaði um ríkisfjármálin í vetur. Það er okkar skoðun að við hljótum óhjá- kvæmilega að staldra við og fara sldpulega yfir ríkisreksturinn. Það þarf að endurmeta hlutverk ríkisins og ákveða hvaða þjónustu við ætlum að veita hinu opinbera og þá hvemig. Þar kemur til greina að mínu mati að gera þá breytingu að hverfe ffá stofnanafyrirkomulagi að einhverju leyti og halda inn á þá braut að ríkið ábyrgist þjónustuna en sinni henni ekld sjálft. Markmiðið er að lækka kostnaðinn en veita áffam þá þjón- ustu sem við ædum ríkinu að standa undir með sköttum okkar. Hugmyndir Alþýðubanda- lagsins Hugmyndir Alþýðubandalagsins um breytingar á ríkiskerfinu komu meðal annars ffam á landsfúndi Al- þýðubandalagsins síðasdiðinn vetur, en hafe reyndar oft verið ræddar á vettvangi flokksins áður. I stefnu Al- þýðubandalagsins felst meðal airnars • hallalaus ríkisbúskapur • skattbyrði aukist ekki en breytt skattakerfi • uppstokkun ríkisútgjalda • aukið sjálfetæði ríldsstofúana • valddreifing í opinberum búskap Með því að fylgja þessum mark- núðum mætt draga úr almennum út- gjöldum ríkissjóðs, en samt stuðla að því að þjónustan sldlaði sér betur og markvissar til einstaklinganna. Við leggjum áherslu á stefúumörkun og fegleg sjónarmið í stað tilviljunar- kenndra áhlaupa í niðurskurði á rflds- útgjöldum. Jafúffamt viljum við beina athyglinni að margvíslegum nýjung- um og tilraunum með aðferðir sem víða um lönd hafe sldlað í senn spam- aði í ríkisútgjöldum og betri þjónustu fyrir almenning og einstaklinga, m.a. í heilbrigðismálum. Útfæra þarf stefnuna Við þurfúm að halda áffam við að útfæra þá stefnu sem þama er brydd- að upp á og endursldpuleggja velferð- arkerfið til að smðla að auknum jöfn- uði. Ahersla okkar hlýtur að vera á aukinn jöfnuð, sterkari stöðu einstak- Iinganna og á að þjónustan sé mark- viss - en ekld á ríkisrekstursinn sem slíkan. Fjárveitingar til fjárfestinga í vega- og samgöngumálum og öðram stofn- framkvæmdum í landinum hafa verið of lágar og þar verður að bæta úr ef vel á að vera. Það verður hinsvegar ekki gert með almennri hækkun skatta og þessvegna er okkur nauðug- ur einn sá kostur að breyta til í rekstri ríkisins: (a) efvið ædum okkur að halda til- færslum og jöfnun félagslegra aðstæðna (b) auka fjárfestingar (c) og jafúa halla ríldssjóðs þegar fr am í sældr. Jafnffamt verðum vify að leggja áherslu á að sú fjárfesting sem þegar er um að ræða skili árangrj fyrir þjóð- arbúið og að vel sé ferið qjeð þá fjár- muni sem veittir era til framkvæmda hverju sinni.

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.