Vikublaðið


Vikublaðið - 05.07.1996, Qupperneq 3

Vikublaðið - 05.07.1996, Qupperneq 3
VIKUBLADIÐ 5.JULI 1996 Þriðja sfðan ANDSKOTAR... „Með samstöðu tókst verkalýðshreyíingunni og stuðningsmönnum hennar, innan Alþingis sem utan, að hrinda alvarlegustu atlögun- um. I ljós kom að fyrirhugaðar laga- breytingar voru ekki aðeins árás á rétt- indi launafólks og samtök þess heldur brutu þær í bága við alþjóðasamninga. Lagafrumvarpið í heild var illa unnið og vanhugsað af hálfu stjómvalda. [...] Stjómvöld em að auka miðstýringu og minnka áhrif einstakling- anna á eigin mál. Hvers vegna? Ottast stjómvöld réttmætar kröfur Iaunafólks um bætt kjör? Þótt Alþingi hafi nú lögfest leifamar af fmmvarpi ríkisstjómarinnar er málinu ekki lokið af hálfú launafólks.“ Vinnan, fréttablað ASÍ f bakspeglinum „Það var aðeins einn maður sem var aktífúr í þessu, en það var Björgólfur Guðmunds- son, og það var alveg sama hvaða rök við Páll Bragi [Kristjónsson] komum með, við vorum skotnir í kaf af Björgólfi. Þetta varð síðan þannig, að sú áædun sem gerð var hljóðaði upp á svipaða fjárhæð og bráðabirgðaupp- gjörið þ.e. kr. 55 milljónir. Við Páll Bragi vomm báðir á Íieirri skoðun að þetta væri of ágt metið.“ - Úr skýrslu Þórðar H. Hilmars- sonar í Hafskipsmálinu 1986. Útvegsbankanum var sýnt upp- gjör Hafskips 1984 meö tapi upp á 55 milljónir eða um 200 milljónir á núvirði, en raunveru- legt tap var á bilinu 400 til 450 milljónir króna á núvirði. Úr alfaraleið Til þess er plottað „Þeir semmuna ASI-þingin í áratugi minnast þess kannski að svó langt gekk að stjóm- málaflokkamir höfðu sína er- indreka á hótelherbergjum á þingstað þegar mildð þótti við liggja. Höfðu þeir þá það hlutverk, hver um sig, að fylgja því fast eftir og vera til ráðlegginga . og samráðs um að þeúra fylgismenn yrðu kjömir í áhrifastöður og ítök yrðu sem mest í stjóm sam- takanna - þá á kostnað póli- tískra andstæðinga. En þetta er löngu liðin tíð og leiddi að lokum til þess að í stað þessara vinnubragða og tilheyrandi á- taka komust menn að þeirri niðurstöðu að réttara væri að hafa þama jafnvægi - eins konar kvóta. En menn hafa líka séð að skynsamlegra er að hafa jafnvægi á fleiri sviðum. [...] Málamiðlvmum um póli- tískar skoðanir; um búsetu þess fólks sem kjörið er í mestu áhrifastöðurnar; um það frá hvaða landssambönd- um fulltrúar í æðstu stjóm koma; um eitthvert ásættan- legt jafnvægi milli kynja. Um þetta snýst plottið.“ Jón Karlsspn þingforseti nýaf- staðins ASÍ-þings í Vinnunni Nesjavallavirkjun og auk- inn ójöfnuður „Reykjavíkurborg knýr nú um að fá að virkja til raforku- framleiðslu á Nesjavöllum. Stjórnarformaður veitustofn- unar borgarinnar, framsókn- armaðurinn Alfreð Þorsteins- son, hefur beitt sér fyrir því að Reykjavík hefji undirbúning að framkvæmdum við þessa gufuaflsvirkjun með það að markmiði að borgin eigi hana Vikublaðstölur Fyrir 80 árum, 1916, fór greiðsla um hvort taka skyldi upp þegnskyldu- vinnu hér á landi (Þctta er sama árið og Alþýðuflokk- urinn, Alþvðusatnbandið og Framsóknarflokkurinn urðu til). Ekki var kosn- ingarétturinn viðamikill, en gild atkvæði voru 12.329. Þau féllu á þann veg að 1.016 vildu þegn- skylduvinnu eða 8,2% en 11.313 höfnuðu tiliögunni eða 91,8%. Mannfjöídi á Islandi 1. deseraber 1916 var 89.819. Þú [Hallgrímur Jón- asson forstjóri Iðn- tæknistofiiunar] virðist halda að Orkustofiiun vei*ji á þriðja hundrað millj- ónum króna af ríkis- fé árlega í einhvers- konar óskilgreindan „rekstur“, í stað skil- greindra verkefna. Hvarflar það virki- lega að þér að yfir- rnenn stofininarinn- ar í iðnaðarráðu- neytinu myndu líða henni slíkt þó ekki kæmi nú annað til? Þetta lýsir furðulegri vanþekkingu og raunar barnaskap. Sannleikurinn er sá að Orkustofnun stendur i fremstu röð meðal ríkis- stofnanaí verkefiia- hundinni stjórnun og ráðstöfun fjár- imiua. Kostnaður hvers verkefnis er gerður upp sérstak- lega og er kostaður við húsnæði og skrifstofuþjónustu þar að fúlíu talinn með. Jakob Björnsson orkumálastjóri i Púlsinum, frétta- blaði Iðntæknistofn- Nesjavöllum. [..,] Við þe form er margt að athuga. Reykjavík sem á meira en 40% eignarhlut í Landsvirkj- un hyggst fara framhjá því fyrirtæki og sniðganga þannig lögboðna verðlagningastefnu þess. Sú stefna hefur verið homsteinn þess árangurs sem náðst hefur í jöfnun raforku- verðs frá því um 1980.“ Hjörleifur Guttormsson í Austur- landi, Neskaupstað íslenskan í hættu - en ekki bráðri hættu „Auðvitað er [íslenskan] alltaf í hættu en hún er ekki bráðri hættu. [...] Þegar keyrt er milli Akureyrar og Reylqa- víkur er alltaf viss hætta á að keyra út af. Það þýðir þó ekki að í hvert sinn sem þessi leið sé farin keyri menn út af.“ Kristján Árnason formaður is- lenskrar málnefndar i Degi, Ak- ureyri Fiskur út, atvinnuleysi inn „1200 toim flutt óunnin frá Eyjum í júní. Á sama tíma eru 50 - 60 manns á atvinnuleysis- skrá.“ Fimmdálkafyrirsögn á forsíðu Frétta, Vestmannaeyjum u Umræða að utan Samkvæmt skýrslu leyni- þjónustunefadar þings- ins eru starfsmenn að- hundruð atvik (a.m.L 100 þúsund á ári) á erlendri grund sem brjóta lög viðkomandi ríkja og gætu hvorttveggja valdið Bandaríkjunum álits- hnekki og stofaað velferð erlendra samstarfsmanna leyniþjónustunnar í hættu. Ædar CIA þá að draga úr starfsemi sirtni á erlendri grund? Varla. Nefadin leggur til að að- gerðardeildin haldi er- lendri starfsemi óbreyttri. The Nation, Bandaríkjunum P ó I ití skt I e s m á I Prospect Júh' 1996 Efnahagsleg nauðsyn heldur latmunum okkar niðri, væru þau hærri myndi íslenska at- vinnulífið ekld vera sam- keppnisfært við údönd og þá yrði voðinn vís. Við verðum að lækka skatta fyrirtækjanna, alþjóðavæðing fjármagnsins knýr á um það og við verðum að sætta okkur við niðurskurð opinberrar þjónustu vegna lægri skatttekna. Stjómmál eru í þvingu hagfræðinnar og þjóðrfld ofurseld lögmáltim markaðarins. Þetta eru sjónarmiðin sem Vinnuveitendasambandið og báðar rfldsstjómir Davíðs Oddssonar hafa haldið að okkur undanfarin ár en þau em endurvarp hugmynda sem era engiísaxneskar að uppruna og hafa verið mót- andi um skeið. Þessar hug- myndir eiga í vök að verjast og í nýjasta tölublaði breska tímaritsins Prospect em tvær greinar sem útskýra hvers vegna og hvað muni líklegast gerast í framhaldinu. David Marquand ræðir pólitískar og hagfræðilegar forsendur fyrir frjálshyggj- unni sem Thatcher og Reag- an gerðu að ríkjandi hug- myndafræði á síðasta áratug. Kennisemingar hugmynda- fræðinnar vom einkavæðing og alþjóðavæðing með ó- hindmðu flæði fjármagns og þjónustu. Ekki eru þetta nýjar hugmyndir. Marquand, og raunar fleiri, benda á að á síð- asta hluta 19. aldar vora uppi svipuð viðhorf. Þá hét slag- orðið frjáls verslun og átú að bæta allra hag. Frjáls verslun var kynnt sem efnahagsleg nauðsyn á líkan hátt og ffjáls- hyggjan í dag. Formælendur hugmyndaffæðinnar sögðu frjálsa verslun sjálfsprottíð fyrirkomulag og vimuðu til Adams Smith máli sínu til stuðnings, rétt eins og ffjáls- hyggjumenn gerðu á áttunda og níunda áramgnum. En þannig gerðust kaupin ekki á eyrinni. Frjáls verslun varð að veraleika undir lok síðusm aldar vegna þess að öflugt ríkisvald, breska heimsveldið, gerði hana að forgangsverk- efai enda var ffjáls alþjóða- verslun hagsmunamál breskra ffamleiðenda. Undir merkjum ffjálsrar verslunar óx misrétti iðnaðar- þjóðfélaga hröðum skrefum og samkeppnin leiddi til spennu í alþjóðasamskipmm. Akurinn var plægður fyrir öfgastefaur, fasisma og kommúnisma, og tvær heimsstyrjaldir. Effir seinni heimsstyrjöld varð til þjóðarsátt í flestum þjóðríkjum Vesturlanda sem hélt í stórum dráttum ffam á m'unda áratuginn. John Lloyd gerir grein fyrir bakslagi ffjálshyggjunnar; öfgakennd- ur popúlismi (Buchanan í Bandaríkjunum, Le Pen í Frakklandi) og vemdarstefna sem bimar á þróunarríkjun- um. Lýðræðið stendur ekki traustum fómm og þeir Marquand og Lloyd spá því að valið muni standa á milli ffjáls markaðar og ffjáls sam- félags. FJOLMIÐLAR Framboð og ímynd Forsetakosningar á íslandi em einstakar í tvennum skilningi. Langt er á milli þeirra og vegna þess þagnarhjúps sem alla jafhan umlykur embættið eru almenningur og fjölmiðlar óviðbúnir að ræða um inntak þess og eðli. Þessar aðstæður em kjörlendi fyrir almannatengla og ímyndasmiði sem leika æ stærra hlutverk í opinberri umræðu. Almannatengillinn þarf að að „lesa“ vit- und kjósenda eins og hún er á þeim tíma sem kosningabaráttan hefst og hjálpa frambjóðandanum að laga sig að tíðarandanum. I þingkosningum er málið flóknara, bæði koma fleiri að og samfelldari saga liggur að baki, ffammistaða stjómar/stjómarandstöðu o.s. frv. Bakgrunnur þessara kosninga var staða Islands gagnvart umheiminum. I sjálfu sér þarf það ekki að koma á óvart. Við erum sérstaklega viðkvæm fyrir á- liti útlendinga („How do you like Iceland?" em ferðamenn, þjóðhöfðingjar og poppstjömur spurðar enn þann dag í dag) og utanríldsmál hafa orðið tilefhi til innanlandsóeirða, sbr. herstöðvarsamningurinn og inngangan í Nató. Tengsl við aðrar þjóðir og ríkjasamtök eru til umræðu og verða það í fyrirsjáanlegri ffamtíð. Þjóðin er tvíátta eins og hún hefur alltaf verið gagnvart útlöndum en þó töluvert þroskaðri en þegar hún kaus herstöðvarandstæðinginn Vigdísi Finnbogadóttur til forseta fyrir sextán ámm. Frambjóðendurnir og ímyndasmiðir þeirra virtust átta sig misvel á megin þema kosningabaráttunnar. Pémr Hafstein virtist til að mynda ekki átta sig nógu snemma á því að málsskotsrétturinn var í huga þjóðarinnar mikilvægur öryggisventill ef ríkisstjóminni dytti einhver vitleysa í hug í samningum við er- I lend ríki. 1 upphafi barátm sinnar gerði Pémr lítið úr starfi forsetans á erlendri grund og gaf einangrunar- hyggju sterkt undir fótinn sem er ekki alveg í takt við þá sannfæringu þjóðarinnar að landinu þarf að koma á ffamfæri í tíma og ótíma í útlöndum til að það gleymist ekld. Framboð Guðrúnar Agnars- dóttur keyrði mjúka línu og passíva, þó hún væri hörð á máls- skotsréttinum. Slagorðið fyrst þjóðlegur, svo alþjóðlegur var snomrt. Akkilesarhæll hennar var að þjóðin átti bágt með að trúa því að Guðrún sé í stakk búin til að reka útþenslupólitík, t.a.m. í Smugudeilunni og í markaðssókn í íjarlægum álfum. Olafur Ragnar Grímsson og hans menn stóðu sig best í meginþema kosn- ingabaráttunnar. Enda höfðu þeir lengstan aðdraganda. Utflutningsleið Al- þýðubandalagsins var lögð fratn fyrir þremttr árum.

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.