Vikublaðið - 05.07.1996, Síða 10
10
vitinn
Söngvaka í
Minjasamskirkjunni
Undanfarin tvö sumur hefur Minja-
safnið á Akureyri. í samvinnu við
Listasumar, boðið upp á Söngvökur
í Minjasafnskirkjunni og hafa þær
vakið mikla hrifningu, ekki síst hjá
erlendum ferðamönnum. Þau Þórar-
inn Hjartarson og Ragnheiður Ól-
afsdóttir flytja íslenska tónlist, foma
og nýja nokkurs konar yfirlit ís-
lenskrar tónlistarsögu á þriðjudags-
og fimmtudagskvöldum frá 2. júlí -
20. ágúst. Dagskráin hefst kl. 21.00
og stendur í u.þ.b. klukkutíma.
Þessi kvöld er Minjasafnið opið frá
kl. 20:00 - 23:00 og er aðgangur að
því innifalinn í verði á Söngvöku.
Með inngangseyri er afhent efnis-
skrá á þremur tungumálum, ís-
lensku, ensku og þýsku. Þar er að
finna stutta greinargerð um íslenska
söngva í aldanna rás.
Sýning á listaverkum
eftir Nínu
Á miðvikudaginn var opnuð sýning
á olíumálverkum eftir Nínu
Tryggvadóttur í anddyri Norræna
hússins. Hér er um að ræða verk frá
árunum 1936-1967 og hafa þau
aldrei verið til sýnis áður. Verkin
eru öll í eigu Unu Dóru Copley
dóttur listakonunnar. Una Dóra hef-
ur valið verkin á sýninguna og gefa
þau gott yfirlit yfir feril Nínu. Sýn-
ingin í Norræna húsinu verður opin
daglega ffá kl. 919, nema sunnu-
daga frá kl. 12 -19. Sýningunni
lýkur sunnudaginn 14. júní.
Kortlagning
hversdagslífsms
Laugardaginn 6. júlí opnar Anna
Líndal myndlistarsýningu í Sjónar-
hóli, Hverfisgötu 12, Reykjavík.
Kortlagning hversdagslífsins er
fimmta einkasýning Önnu en hún
hefur að auki tekið þátt f íjölda
samsýninga hér heima og erlendis.
Anna stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands og lauk
ffamhaldsnámi í myndlist við The
Slade School og Fine Art í London
1990. f Sjónarhóli sýnir Anna inn-
setningar ásamt ljósmyndum. Þar
koma við sögu þekktir nytjahlutir úr
hversdagslífmu, allt frá borðbúnaði
yfir í skúringafötur. Viðfangsefni
hennar er einkalífið, hefðir og vægi
þeirra sem stýrandi afls í nútíman-
um. Sjónarhóll er opinn frá kl.
14:00 - 18:00 alla daga netna mánu-
daga. Sýningunni lýkur sunnudag-
inn 21. júlí.
í glæsilegum sýningabæklingi, sem
bæði kemur út á íslensku og ensku
eru margar myndir. Formála ritar
Susanne Eriksson og segir m.a. um
Önnu að hún sé nokkurs konar
mannfræðingur í
rannsóknarleiðangri á hversdegi
nútímans.
ATH.
Upplýsingar um
menningaratburði þurfa að
hafa borist Vikublaðinu
eigi síðar en um hádegi á
þriðjudögum.
Fax: 551-7599
H1 dæmis
VIKUBLAÐIÐ 28. JÚNÍ 1996
Kosningasigur A-flokkanna
Alþingiskosningamar 1978 eru
einhverjar allra merkilegustu
kosningar sem fram hafa farið á
íslandi. Það liggur við að telja
megi þær til pólitískrar bylting-
ar, svo mikil urðu umskiptin. Frá
kosningunum 1974 jók Alþýðu-
bandalagið fylgi sitt úr 20.924
atkvæðum eða 18,3% í 27.952
atkvæði eða 22,9%. Alþýðu-
flokkurinn fór um leið úr 10.345
atkvæðum eða 9,1% í 26.912 at-
kvæði eða 22%. Samanlagt jókst
fylgi A-flokkanna ásamt fylgi
Samtaka ftjálslyndra og vinstri
manna úr 36.514 atkvæðum
(32%) í 58.937 (48,2%). Milli
kosninga jókst því atkvæðamagn
þessara afla uni 22.423 atkvæði
eða um 61,4%. Um leið fór
þingmannatala Alþýðubanda-
lagsins úr 11 í 14 og Alþýðu-
flokksins úr 5 í 14, en Samtökin
misstu sína 2 þingmenn. í þing-
kosningunum 1974 var Ölafur
Ragnar Grímsson fyrsti varaupp-
bótarþingmaður Samtakanna og
kom nokkrum sinnum inn á
þing, en í kosningunum 1978
náði Ólafur Ragnar kjöri sem
aðalþingmaður Alþýðubanda-
lagsins og Reykvíkinga (þriðji
uppbótarþingmaður) 35 ára
gamall. Hann var í fjórða sæti
lista Alþýðubandalagsins í
Reykjavík á eftir þeirn Svavari
Gestssyni, Eðvarði Sigurðssyni
og Svövu Jakobsdóttur. Svo sem
af ofangreindum tölum má ráða
munaði ekki miklu að A-flokk-
amir næðu hreinum meirihluta á
hinu 60 manna Alþingi, vantaði
þeim til þess aðeins 3 þingmenn.
Þessir flokkar settust þó í ríkis-
stjóm í skjóli Framsóknarflokks-
ins, en sú vinstri stjóm varð
skammvinn.
Mút
kæra.
• •
Skelfingu lostnir bíða andstæð-
ingar Ólafs Ragnars Grímssonar eft-
ir því að svartasta martröð þeirra
rætist. Slegnir köldum svita setjast
þeir fyrir framan útvarps- og sjón-
varpstækin þegar fféttimar hefjast
og búast við válegum tíðindum. Þá
dreymir Ólaf Ragnar á nóttunni.
Hann stendur yfir þeim í ermalaus-
um bol og á upphandlegg glittir í
eldrautt húðflúr; blóði drifinn hamar
og sigð. Blóð byltingarinnar. Og
þeir búast við því í hveijum ffétta-
tíma að Ólafur Ragnar kasti niður
grímunni, að út úr viðtækjum þeirra
útvarps og sjónvarps berist rámur
hlátur nýkjörins forseta, lágur í
fyrstu en stígandi þar til hann skell-
ur úr tækjunum líkt og hamarshögg.
Það hvín í sigðinni. Ólafur Ragn-
ar hallar sér aftur og brosir, nasa-
vængimir þenjasþ augun pírð og
köld ..., grimm. I draumum þeirra
talar forsetinn rússnesku og þeir
skilja hvert orð. Með fisk í eyranu.
Það birtir til í myrkri martröðinni,
rauðgylltum bjarma og þeir era
staddir á Bessastöðum. Við opinn
arineld situr Ólafur Ragnar í félagi
við þijá aðra; Svavar, Hjörleif og
Steingrím J. Þeir skála í vodka: na-
strovja félagar, nastrovja. Skál fyrir
sigrinum, skál fyrir Sovét-íslandi.
Þér kann að fmnast þetta óviðeig-
andi hjá mér, kæra. En ég get ekki
stillt mig. Það er nefnilega svo að
einn af vinnufélögum mínum er
frelsaður hægrimaður. Hann las allar
greinamar hans Hannesar, allar
greinargerðir Jóns Steinars og við
lesturinn raggaði hann sér fram og
til baka, hummandi með sjálfum sér:
„já, já, já nú kemur það. Nú náum
við honum.” Hann kaus Pétur, þessi
vinnufélagi minn sem heitir Ami,
kallaður Addi. Ég hef áður í þessum
bréfstubbum mínum lýst aðdáun
minni á Pétri Kr. Hafstein þó svo að
ég hafi ekki viljað fá hann fyrir for-
seta. Og ég ber engar tilfinningar
aðrar í brjósti til stuðningsmanna
annarra forsetaffambjóðenda en
virðingu fyrir skoðunum þeirra.
Ámi, kallaður Addi, var þó meira en
þetta. Hann var ekki einatt stuðn-
ingsmaður Péturs heldur var hann
einnig stuðningsmaður rógsherferð-
arinnar, líka auglýsinganna ffægu.
Og martraðarkennd lýsingin í upp-
hafi þessa bréfs er ekki eingöngu lé-
leg tilraun mín til að smíða skáld-
legan texta heldur blákaldur vera-
leikinn í kolli Áma, sem er kallaður
Addi. Ég býst við að þeir séu fleiri
sem eins er ástatt um í sálinni þessa
dagana þó ekki séu þeir margir.
Eg er enginn stjómmálafræðingur
þó ég þykist nú vita mínu viti. Nú
7" í s— r- z— T~ 7 S? 9 to s? 9 ¥ \P
ii V IO 5 TT~ ¥ S? T5~ 9 /¥ Isr 13 T£~
IZ b 17— 10 19 ¥ V /9 20 7 // w
¥ II 9 19 ¥ 9 22 W~ ¥ 17 19 2o |9
V IO 23 l¥ 13 /é : 27 25- S? /9 r~
V JT— 7ð— ¥ )9 77— 19 19 A1 Zl / 0 '?x 9 2b
lo V II I6> ¥ T~ £ to s? 2L> IO 'Ö
/3 V /s 9 25~ s? 27- 7 25" 2é ¥ T~ 7 V
9 3— /¥ 19 > 29 7W it l¥ ¥ 30 II
31 27 2s ¥ IZ 29 29 S? 19 (d /¥ /9 V 19
Ib'' TF~ 5 V 10 T~ ¥ /3 9 T~ 2b 2o
27 1* 7 ir 7 y 9 ¥ 17 2o ¥ 2 21 /¥
¥ lo 1 1 9 i T~ lo i¥ 9 32 9
73“ w— 2JI W~ — l/i v— T~
!
Nú er Ólafur
orðinn forseti.
Hvílíkur sig-
ur! Ólafúr
var aðalmað-
urinn á bak við stofn-
un Vikublaðsins og þjóðin
hefur kosinn hann forseta. Líklega
væri nú rétt fyrir ýmsa að kíkja í
“Grænu bókiná’, útflutningsleið Ólafs.
Alþýðubandalagið lagði þessa bók
lfam í tíð hans sem fonnanns flokksins
og þótti sumum heldur hallærislegt, en
nú ættu menn að líta yfir þessa lesningu
og athuga hvað verðandi forseti á við
með útflutningsleiðinni. Skyldi það til
dæmis vera það að nota íslenska tónlist
í auglýsingum, eins og hann getði í
kosningabaráttunni? Sennilega er
Græna bótin til hjá Alþýðubandalaginu
ef menn vilja kynna sér.
Undirskriftín
Nýr forseti íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, er sterkur
persónuleiki og nýtur þess að
berjast að settu marki. Er
hér kominn friðarleiðtoginn
mikli sem Nostradamus sá
fyrir? Undirskriftin varpar
fram ímynd af erli, afrekum
og ólgusjó.
keppast þeir við stjómmáíakverúl-
antamir að skýra þessi úrslif. Draga
ályktanir, smíða kenningar og spá í
spilin. Ýmsar misgáfulegar yfirlýs-
ingar hafa verið gefnar um þessi mál
á síðustu dögum. Ég er ekki sam-
mála því að í úrslitum kosninganna
sé að finna skýr skilaboð til vinstri
manna og samfylkingarsinna. Sigur-
inn er Ólafs. Það er líka rangt að Ól-
afur eigi kjör sitt að þakka hinum
ógeðfelldu auglýsingum Í Móggan-
um og Tímanum, þær bættu stöðuna
eitthvað smávegis en Ólafur Ragnar
hefði unnið án þeirra.
Sú ályktun sem ég dreg af kosn-
ingu Ólafs Ragnars er afskaplega
stutt og einföld. Þjóðin er hætt að
kaupa kommagrýluna.
Ámi, kallaður Addi, hefur nú í
vikunni tekið upp nýja línu. „For-
setakosningamar vora ekki pólitísk-
ar kosningar og þess vegna er ekki
hægt að draga neinar pólitískar
ályktanir af þeim.” Þetta er nýja
bænin hans Adda sem heitir Ámi og
hann kyijar hana ffam og til baka út
í það endalausa, sannfærður um að
segi hann þetta nógu oft þá verði
það satt og á endanum þá fer hann
sjálfur að trúa þessu. Ég veit ekki,
það gæti verið að mig misminni. En
ég er þó ekki frá því að í síðustu
viku hafi kosningamar í huga vinnu-
félaga míns verið þær pólitískustu
sem um getur í sögu lýðveldisins,
hann talaði um samstöðu hægri
manna, lífsgildi sjálfstæðisstefnu-
nnar, EES, mikilvægi hersins og það
sem hann kallaði homstein íslenskr-
ar utanríkisstefnu eða Nató-aðild ís-
lands. Skjótt skipast veður í lofti.
Hvað sem því líður, til hamingju
með nýja forsetann kæra vinkona.
0Z/7/7 e/n/ægur
HJARTAGÁTAN
Setjið rétta stafi í reitina neðan við
krossgátuna. Þeir mynda þá
kvenmannsnafn. Lausnarorð
krossgátunnar í síðasta blaði er
HÓLMBERT.
A I T 1 12 23
Á J U 2 13 24
B K Ú 3 14 25
D L V 4 15 26
Ð M X 5 16 27
E N Y 6 17 28
É O Ý 7 18 29
F Ó Þ 8 19 30
G P Æ 9 20 31
H R Ö 10 21 32
I S 11 22