Vikublaðið


Vikublaðið - 11.10.1996, Qupperneq 2

Vikublaðið - 11.10.1996, Qupperneq 2
2 VIKUBLAÐIÐ 11. OKTÓBER 1996 Útgefandi: Tilsjá ehf. Ritstjóri og ábm.: Páll Vilhjálmsson Fréttastjóri: Friðrik Þór Guðmundsson Þúsundþjalasmiður: Ólafur Þórðarson Auglýsingasími: 552 8655 - Fax: 551 7599 Ritstjórn og afgreiðsla: Laugavegur 3 (4. hæð) 101 Reykjavík Sími á ritstjórn: 552 8655 - Fax: 551 7599 Útlit og umbrot: Leturval Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðjan hf. Góðærið og Kfskjörin Það var athyglisvert að fylgjast með umræðum um lífskjör- in, sem ffam fóru sl. mánudag að beiðni Alþýðubandalagsins. Leiðtogar stjómarflokkanna héldu því blákalt frarn að víst væri góðærið komið til launafólksins. Davíð Oddsson er sannfærður um að Islendingar hafi það bara nokkuð gott. Og Halldór Asgrímsson dró ffam Morgunblaðsgrein sem rök- stuðning fyrir því að Islendingar séu hamingjusamasta þjóð í Evrópu. Einn þingmanna Framsóknarflokksins, Isólfur Gylfi Pálmason, gaf í skyn að þjóðin væri sek um bmðl. Og annar þingmaður Framsóknarflokksins, Unnur Stefánsdóttir, hélt því ffam að geigvænleg skuldastaða heimilanna stafaði að stómm hluta til af andvaraleysi. Stjórnarherramir virðast blindir fyrir þeirri staðreynd að kjaramisrétti fer vaxandi og að stór hluti þjóðarinnar lifir við fátæktarmörk á meðan aðrir hópar njóta ávaxtanna af ffjáls- hyggjustefnu ríkisstjómarinnar. I umræðunum sagði Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins: „Alltof stór hópur fólks býr við alltof langan vinnudag, léleg laun og sífellt versnandi skuldastöðu heimilisins, sem oft leiðir til upplausnar fjölskyldum. Þessu fólki hefur um langan tíma verið gert að bera þyngstu byrð- amar í þjóðfélaginu og þær em alltaf að þyngjast þrátt fyrir fögur fyrirheit“. Þá sagði Margrét: „Hér búa mjög margar fjölskyldur við hreina fátækt. Hér er fólk sem ekki hefur efini á þeirri læknisþjónustu sem það í raun þyrfd á að halda. Hér býr ungt fólk sem veigrar sér við að ná í lækni heim til veikra barna vegna þess að það á ekki fyrir þjónustunni. Hér em böm með langvarandi erfiða sjúkdóma og aðstandendur þeirra sem fá ekki þá þjónustu sem þeir eiga í raun lögboðinn rétt á. Hér er fólk sem hefur ekki efni á að senda börn sín til mennta. Og tmgt fólk sem ekki hefur efni á að mennta sig. Hér er fólk sem getur ekki látið aldraða foreldra sína njóta þeirrar umönnunar eða lífsgæða sem þeir ættu rétt á eftir að hafa skilað löngum vinnudegi. Hér er fólk sem á ekki þak yfir höfuðið eða hefur aðgang að húsnæði, sem samræmist fjár- hagsstöðu þess. Hér er stór hópur fólks sem hefur misst allt sitt. Hér er fólk sem engar stoftianir eða heimili í þessu vel- ferðarþjóðfélagi sinna, það sefur úti og í yfirgefnum bygging- um. Hér er félagslegt húsnæðiskerfi sem átti að sinna sérstak- lega þeim sem búa við lökust kjörin en gerir það ekki lengur. Stór hópur fólks nær ekki því tekjulágmarki sem þarf tdl að kaupa húsnæði í félagslega kerfinu. En verður þess í stað að fara í dýrar leiguíbúðir. Vandamálin eru óteljandi. Og hér er ekki um að ræða lítinn afmarkaðan hóp þjóðfélagsþegna. Það búa margir við ótrúlega léleg kjör í þessu landi“. Og ástæða er til að undirstrika orð Sigríðar Jóhannesdóttur í umræðunum, en hún sagði meðal annars: „Eg hef kynnst fjölskyldum þar sem báðir foreldramir leggjast á eitt og vinna allt það sem býðst. Börnin líða vegna þess hve mikið er ætlast tdl að þau bjargi sér sjálf og hafi ofan af fyrir sér í fjarveru for- eldra og samt ná endar ekki saman og í fyllingu tímans þarf fólk að sjá á bak húsnæði sem það hefur lagt hart að sér við að eignast. Eg hefi kennt börnum sem ævinlega hafa verið út- undan þegar skólinn stendur fyrir einhverju sem þarf að borga fyrir t.d. leikhúsferðum og fyrir tveimur tdl þremur ámm vom svo mörg böm sem sitja þurftu heima í þeirri einu leikhúsferð sem skipulögð var árlega á vegum skólans að við kennararnir ákváðum að leggja leikhúsferðir niður.“ A allt þetta em stjórnarherrarnir blindir. Þeir draga upp meðaltalshagffæði og hamingjutölffæði sem er úr taktd við allan raunvemleika. Vonandi munu augu þeirra opnast á næstu vikum og mánuðum. Hagkvæmni og lífs- háski vinstrimanna Aðalfundur Birtíngar - Framsýnar á þriðjudag var átakalaus þrátt íyrir væntingar um annað. Spennan myndaðist með því að Einar Karl Haraldsson, einn aðalhvatamanna að stofnun Birtingar og hugmynda- fræðingur að Framsýn (félögin voru sameinuð á síðasta ári), var settur á dagskrá fundarins til að ræða sam- vinnu jafhaðar- manna. Einar Karl var, eins og lesendur Vikublaðsins vita, framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins þangað til fyrir nokkrum vikum. Núna er hann verk- efhisstjóri fyrir nýj- an þingflokk jafhað- armanna, sem þing- flokkar Alþýðu- flokks og Þjóðvaka stofhuðu til fyrir þingbyrjun. Með Margréti Frímannsdóttur, Bryndísi Hlöðvers- dóttur, Arthúr Morthens, Árna Þór Sigurðsson, Gísla Gunnarsson og fleiri á aðalafundin- um mátti búast við sjónarmun á „að- ferðum og leiðum" eins og það heitir á rósamáli vinstri- manna þegar þeir rífast eins og hundur og köttur um sameiningu. En það gekk ekki eftir. Einar Karl var síðastur á dagskránni og hvorki það sem hann sagði né það sem á undan hafði gengið varð til þess að ýta við fundarmönnum. Skilningur Alþýðubandalagsmanna virtist vera sá að Einar Karl væri að hjálpa kröt- um og Þjóðvakafólki að ná saman og þegar sá verkþátmr væri kominn í höfh yrðu nýju stjómmálasamtökin viðræðuhæf. Einar Karl sagði að með sameiningu þingflokka Alþýðu- flokks og Þjóðvaka væri í raun búið að taka ákvörðun um að Alþýðu- flokkurinn byði ekki fram undir eig- in nafni í næstu kosningum. (Og auðvitað þarf ekki að taka ffam að Þjóðvaki er búinn að vera). Ef rétt er farið með hafa gerst meiri pólitísk d'ðindi en flestir gera sér grein fyrir. En einhvern veginn er ólíklegt að Alþýðuflokkurinn noti áttræðisaf- mælið til að leggja sjálfan sig niður. Ekki er Einar Karl í vafa um að Þjóðvaki hafði töluvert upp úr krafs- inu. - Merkilegt er að Þjóðvaki gerði þetta í heilu lagi, enginn ætti að gera lítið úr því. Þjóðvaka tókst að selja sig nokkuð dýrt. Komið var í veg fyr- ir að flokkurinn væri lagður niður og Þjóðvaki náði ffam samkomulagi um að ráðist yrði í verkefhið um samstarf jafhaðarmanna, sagði Einar Karl, og hélt áfram. - Ég er bjartsýnn á það að innan d'ðar, eftír flokksþing Alþýðuflokks- ins, fari af stað frjóar viðræður tun samstarf jafhaðarmanna. Skoðana- kannanir sýna að mögulegt er að vinna bæði fylgi ffá Framsóknar- flokknum og Sjálfstæðisflokknum. Hvorttveggja er nauðsynlegt tíl að ná árangri. En hver voru rök Einars Karls fyr- ir sameiningu vinstrimanna, eða jafhaðarmanna eins og hann kýs að kalla þá? Jú, þau voru framreidd í fernu lagi. Fyrst nefndi hann að valdapólio'sk þörf væri fyrir nýjum flokki. Núverandi ríkisstjórn væri mynduð til átta ára og nái stjórnar- andstaðan ekki saman er eins víst að stjórnin sitji tvö kjörtímabil, ef ekki lengur. í öðru lagi meirihlutapólid'k. Sigrar Röskvu í Háskólanum, meiri- hlutí Reykjavíkurlistans og núna síð- ast forsetakjör Ólafs Ragnars sýndi að engin ástæða væri fyrir félags- hyggjufólk að lúta að litlu. Þá er það hagkvæmni stærðarinnar. Stjórn- málastarf sé dýrt og litlu flokkarnir væru aumari en smæstu verkalýðsfé- lög. í fjórða lagi er staða flokkanna veik, mælt á flokkslegan mælikvarða. Allt er þetta rétt hjá Einari Karli. Hængurinn er sá að rökin sem hann d'undaði eru teknókrad'sk hag- kvæmni. Þau höfða til forystumanna ffemur en til flokksmanna og hafa enga skírskotun til almennings. Eðli- legt er að þingmönnum og pólid'sk- um skipuleggjendum eins og Einari Karli þyki dauflegt yfir að htast á vinstri vængnum. En þorri almennings lætur sér fátt um finnast þótt stjórnmálamönnum leiðist. Til að alþjóð taki við sér þarf pólid'skar hugmyndir sem hvorttveggja í senn greina brýnan samfélagslegan vanda og bjóða fram lausn. Óg þeir sem halda að fyrst eigi að stofna flokka og síð- an leita að sniðughm hugmyndum fara vilhr vegar. Slíkur flokkur yrði hrúgald og engum gleðigjafi einfaldlega vegna þess að mestur d'm- inn færi í það að tryggja að þessi eða hinn fái ekki stöðu og áhrif umfram ein- hvem annan. I stjórnmálin, sér- staklega vinstripóh- tíkina, þarf lífsháska. Ekki þreytulegt nudd og þvarg held- ur þarf að taka á- hættu með nýjum hugmyndum um stöðu íslensks samfé- lags og ffamd'ð þess. Það þarf að brjóta upp hugsunarhátt makráðugrar stöðnunar og hleypa nýju lífi í pólid'ska umræðu; leggja ffam nýjar tílgátur og prófa þær við veruleikann. Hér er hægara urn að tala en í að komast og andspænis hugmyndafá- tækt og viðhorfinu „við höfum reynt þetta áður” er auðvelt að láta sér fall- ast hendur og leita á náðir tæknilegra lausna eins og Einar Karl boðáðí. Hættan við þá leið er áð hhignun og vandræðagangur vinstrimanna verði enn meiri en ella. Sjónarmið þeirra sem segja „við höfum engu að tapa, lemjum vinstriflokkana saman og látum skeika að sköpuðu,” taka ekki með í reikninginn að stjórnmálakerf- ið í heild hefur staðið sig þokkalega. Meginhlutverk stjórnmálakerfis í lýðræðisríld er að sjá ríkinu fyrir stöðugu stjórnarfari og heilbrigðum stjórnarháttum. Gamla fjórflokka- kerfið, með seinni d'ma viðbótum, hefur í það stóra og heila skilað sínu. Maður getur verið sammála þeirri skoðun að gamla kerfið sé koniið að fótum ffam en samt sem áður gert þá kröfu að pólid'skar hugmyndir verði tmdanfari endurnýjunar á flokka- kerfinu. Breyting breytingarinnar vegna eru ekki trúverðug stjórnmál. Páll Vilhjálmsson En þorri almennings lœtur sérfátt umfinnast þótt stfórnmálamönnum leiðist. Til að alþjóð taki við sér þarf pólitískar hugmyndir sem hvorttveggja í senn greina brýnan samfélags- legan vanda og bjóða fram lausn. Og þeir sem halda að fyrst eigi að stofna flokka og síðan leita að sniðugum hugmyndum fara villir veg- ar. Slíkur flokkur yrði hrúgald og engum gleði- gjafi einfaldlega vegna þess að mestur tíminn fceri í það að tryggja að þessi eða hinn fái ekki stöðu og áhrif umfram einhvern annan. í stjórnmálin, sérstaklega vinstripólitíkina, þarf lífsháska. Ekki þreytulegt nudd og þvarg held- ur þarf að taka áhættu með nýjum hugmynd- um um stöðu íslensks samfélags ogframtíð þess. Það þarf að brjóta upp hugsunarhátt makráðugrar stöðnunar og hleypa nýju lífi í pólitíska umrœðu; leggja fram nýjar tilgátur og prófa þœr við veruleikann. Pólitízkan Tvær grírnur renna á krata Fyrsta skoðanakönnunin eftir samein- ingu þingflokka Alþýðuflokks og Þjóðvaka gefur flokkunum tveim tíu þingmenn en saman hafa þeir ellefu. Fylgissveiflan til Alþýðuflokksins virðist koma, samkvæmt skoðanakönnun DV, einkum frá Þjóðvaka og SJálf- stædisflokknum. Alþýðuflokks- menn em ekki ýkja hrifnir og sumir fara ekki dult með óánægju sína með sam- einingu þingflokkana. Lúðvík Bergvinsson hefur opinberlega sagt að ekki séu það stórtíðindi þótt þessir flokkar legðu saman í eitt. Öss- ur Skarphéðinsson minnir þá sem á vilja hlusta að hann hafi í sum- ar skrifað blaðagrein þar sem sagði að sameining þingflokka væri tilgangslaus. Eftirmaður Jóns Bald- vins gæti orðið kona Jón Baldvin Hannibals- son mun að öllum likindum hætta sem formaður Alþýðuf lokksins á landsþingi flokksins í næsta mánuði. Nokkrir arftakar koma til greina. Sig- hvatur Björgvinsson er tal- inn líklegastur. Hann á stuðning Jóns Baldvins vísan og yngri mennirnir sem renna hýru auga til embættisins, Öss- ur Skarphéðinsson og Guðmundur Árni Stef- ánsson, gætu leikið biðleik og stutt Sighvat. Bið er ekki Rannveigu Guðmundsdóttur þóknanleg. Sem formaður þingfiokks jafnaðar- manna, hvorki umdeild eins og Össur né með pólitískar hremmingar á bakinu eins og Guðmundur Ámi, höfðar hún til varkárra krata sem skynja að tímamót eru í nánd og vilja ekki leggja á tæpasta vað. Prófkjör tijá Reykja- víkurlistanum? Á aðalfundi Birtingar-Fram- sýnar sagðist Árni Þór Sig- urðsson borgarfulltrúi hlynntur því að prófkjör yrði viðhaft til að velja á lista Reykjavíkurlistans fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Arth- úr Morthens varaborgarfulltrúi var á sömu skoðun en Guðrún Ögmundsdóttir borgarfulltrúi, sem var gestur fundarins, hafði efa- semdir.

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.