Vikublaðið


Vikublaðið - 11.10.1996, Qupperneq 5

Vikublaðið - 11.10.1996, Qupperneq 5
VIKUBLAÐIÐ 11. OKTOBER 1996 Konui* og laun 5 ForsetadóttiPii í framhnimni Maureen E. Reagan, dóttir Repúblikanans Ronaids Rcagan lyrrum forseta Bandaríkjanna, flutti fyrirlestur i Ráðhúsi Reykjavíkur sl. föstudag sem bar yf- irskriftína „Women s Quiet Conflict: A Report from the Front" og að því loknu svaraði hún fyrirspurnum úr sal. Fundarstjori var Þórunn Sveinbjarnardóttir stjórnmálafræðingur, en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri fiutti stutt inngangserindi. Maureen er þekkt sem stjórnmálaskýrandi og fjölmiðlakona í Bandaríkjunum og mun vera eftirsóttur fyrirlesari. Hún hefur tekið þátt í stjórnmálum á síðustu þremur áratugum og gegnt trúnaðarstörfum fyrir RonMhlil/onQflnl/lfinn Maureen E. Reagan: Hefur ferðast víða og talað við mikið af frægu fólki. Fyrirlesturinn sóttu um 40-50 kon- ur og tveir eða þrír karlar. A meðal karlanna var tíðindamaður Viku- blaðsins, sem átti von á lærdómsrík- um fyrirlestri og greiningu á þróun kvenfrelsisbaráttunnar í heiminum og i Bandaríkjunum með sundurliðuðu mati á því hvað hefði áunnist og hvað ekki. Sá fyrirlestur kom hins vegar ekki. Megnið af fyrirlestri Maureen var „egó-centrísk“ ferðalýsing í léttu hjah þar sem hún lýsti því hvemig hún heíði reddað hinu og þessu, aðal- lega með samtölum við aðrar frægar konur og fræga karla, í Nairobi, Mosambique, Uganda eða annars staðar. Hún hafði auðheyrilega gam- an af því að tala um samskipti sín við konur og karla í toppstöðum og nefhdi gjaman nöfh þekkts fólks sem hún hefði talað við um hitt og þetta (name dropping). Hún fór hins vegar lítið út í þróun einstakra baráttumála. 35 ára konur rekast á glerþak Maureen byrjaði á því að rifja upp að hún hefði komið hingað til lands í júlí 1986 og síðan sagði hún í löngu máli frá því að það hefði komið í hennar hlut að segja forseta Zambíu frá því að utanríkisráðherra Banda- ríkjanna gæti ekki hitt hann því hann væri að fara á leiðtogafund á íslandi. Þá lýsti hún því hvað hún hefði ver- ið að gera í Affíku og víðar. Hún sagði frá stofnun kvenrannsóknamiðstöðva í Bandaríkjunum og hvemig þar væri lögð mikil áhersla á að hvetja konur til að fara út í atvinnurekstur. Hún sagði frá því hvemig hún hefði búið til hug- takið' „fátnily' issúes‘r til að fá karl- menh'til'að rá:ða málefni kt'enna og fjölskyldunnar, en bætti við að hug- takið hefði verið skrumskælt og nú væri talað urn „fatnily values“. Hún nefndi að víða hefði komið bakslag í kvenrétrindabaráttuna vegna aðlög- unarerfiðleika, þ.e. þegar árekstur verður milli hlutverka konunnar á vimiumarkaðnum og á heimilinu. En hún sagði að í dag stæðu allar dyr opnar fyrir konur og að því þyrfti að skila rækilega til yngri kynslóðanna. Eirtnig nefndi hún að margar kontir hefðu rekist á „glerþak“ í kringum 35 ára aldurinn; þá sjá þær leiðina að auknum metorðum en komast ekld lengra. Og hún sagði að það væri hennar verk og hennar lílca að ýta konunr í gegnum þetta þak. Allt væri þetta endalaus barátta og stundum svo erfið að það þyrfti að horfa aftur til frumbaráttunnar til að sannfærast um að eitthvað hefði áunnist. Og hún bætti því við að í sjálfu sér væra konur aðeins einni kynslóð frá því að glutra öllu niður; upprennandi kynslóð kvenna yrði að taka við kyndlinum annars væri allt unnið fyrir gíg. Eins og faðir minn gerði Svo sagði hún frá því hvemig hún hefði fyrir sitt eigið tilstilli mótað kvennaráðstefnuna í Nairobi árið 1985, hvemig hún hefði mótað form og umræðu ráðstefnunnar. Og hvem- ig hún hefði bragðist ókvæða við þeg- ar Santeinuðu þjóðimar tóku upp á því að loka skrifstofu hjá sér sem hefði það hlutverk að hvetja þjóðir til að senda konur sem fulltrúa á fundi Sameinuðu þjóðanna. Að erindinu loknu tóku við um- ræður og fyrirspumir. Meðal þess sem þá kom ffarn hjá Maureen Reag- an var að það væri erfitt að vera með- mælt fóstureyðingum í Repúblikana- flökknum þegar flokkurimi væri ein- dregið gegn fóstureyðingum, en svo reyndi hún að sannfæra hlustendur um að í raun væri Demókrataflokkur- inn ekkert frjálslyndari í þessurn efn- um, þegar á hólminn væri komið. Og hún sagði að Demókrataflokkurinn hefði færst yfir á miðju stjómmálanna en Repúblikanaflokkurinn hefði því miður færst yfir til hægri í stað þess að halda sér á sínum stað - eins og faðir hennar hefði gert. Og hún sagðist hafa það á tilfinn- ingunni að þegar fólk kæmi í kjörklef- ana og færi að hugsa sig vel um þá kæmust áreiðanlega mjög margir að þeirri niðurstöðu að Chnton Banda- ríkjaforseti væri „siðferðilega heftur“ og að það væri ekki rétt að kjósa hann. Hún rökstuddi þetta ekki nánar, né færði ffam rök fyrir því að Dole væri betri kostur. Konur sem óttast um öryggi sitt Maureen sagði líka að ástæðan fyr- ir því að konur í Bandaríkjunum styðja Clinton ffekar en Dole væri sú, að konur óttist niðurskurð/lokun á ríkisstofnunum, óttist þá um öryggi sitt. Sem hlýtur að teljast afar athygl- isverð stjómmálaskýring. Ragnhildur Vigfúsdóttir, sem kynnti sig sem atvinnufemínista, spurði Maureen hvenær Repúblik- ánaflokkurinn myndi tilnefna konu sem forsetaefni. Við því hafði Maureen ekkert svar annað en að benda á að forsetaefni væra yfirleitt valin úr hópi ríkisstjóra eða þing- manna og því þyrfti að fjölga konum í þeim hóp, þannig að úr einhverju væri að velja. Einna helst mátti á henni sldlja að það væri svo mikið af hæfileikaríkum karlmönnum til stað- ar að hæfileikaríkar konur kæmust illa að. Hildur Jónsdóttir, jafhréttisfúlltrúi, kom með tvær fyrirspumir og í svör- um Maureen kom meðal annars ff arn að konur gæm með árangursríkum hætti beitt vinnulöggjöfinni og dóm- stólum til að þrýsta á um jafnrétti, en hún sagði líka að vinnulöggjöfin gengi of langt í sumum efnum, t.d. þegar ekld væri hægt að reka augljós- lega vanhæfan starfemann. Þá upp- lýsti hún að Bandaríkin hefðu ekki staðfest kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna (CEDAW) vegna þess hversu valddreifð stjómsldpan Bandaríkjanna væri; ekld væri hægt að sldkka einstök ríld til að gera hvað sem er - sáttmálinn hæfði ekld stjóm- skipan landsins. Eins og karlmönnum er gjarnt Þótt fyrirlestur Maureen E. Reag- an hafi verið í hæsta máta yfirborðs- kenndur þá virtust áheyrendur nokk- uð sammála um að hún hefði konúð því til skila hversu margt hefði áunn- ist á aðeins einum áratug eða svo. Fyrirlesturinn var hins vegar langt frá því að vera dænúgerður fyrirlesmr urn kvennabaráttumál. Einna helst rná segja að þama hafi talað mann- eskja með ffægt eftimafn um hvemig hún hefði ferðast um heiminn, verið í ffamlínunni, stjómað ráðstefnum og talað við frægt fólk. Eins og mörgum karlmanninum er gjamt að tala. fþg Stytting vinnutíma án lækkunar launa Fyrsta þingmál Alþýðubanda- Iagsins og óháðra á nýhöfhu löggjafarþingi er tillaga til þingsályktunar um styttingu vinnutíma án lækkunar launa. Til- laga þessi kemur í kjölfár og er lögð ffam í ljósi skýrslu ffá forsæt- isráðherra um mismuninn á lífs- kjörum á Islandi og í Danmörku, en skýrsla sú, sem unnin var af Þjóðhagsstofriun, kom ffam að beiðni þingflokks Alþýðubanda- Iagsins og óháðra. Hér verður ekki farið náið út í nið- urstöður skýrslunnar, en urn þær hef- ur ítrekað og náið verið fjallað. í stærstu dráttum kom þar fram, aðal- munurinn á lífskjöram hér og í Dan- mörku felst í lágu tímakaupi á Islandi, gríðarlegri yfirvimtu til að vinna það upp og af öllu þessu leiðir minni tími fyrir fjölskylduna og heimilin. Þing- flokkurinn telur allt of langan vinnu- tíma vera undirrót margvíslegra fé- lagslegra vandamála hér á landi, enda hafa lág laun og langur vinnutími veruleg áhrif á stöðu fjölskyldunnar í íslenslcu samfélagi. Sjálf tillaga þingflokksins til þings- ályktunar er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefhd sem hafi það hlutverk að gera tillögu að áætlun til þriggja ára um raunveralega styttingu vinnutímans á íslandi, þannig að í lok áætlunartíma- bilsins verði vinnutínúnn hér á landi ekki lengri en er að jafhaði meðal þeirra þjóða sem við helst beram okktu saman við, t.d. í Danmörku og/eða á öðram Norðurlöndum. Jafhffamt verði tekið til athugunar að skipta upp vinnu milli fólks sem verði liour í ai' draga úr atvinnuleysi og stytta v nnutíma. Þeir aðilar sem kallaðir verði til samstarfs um þetta verkefhi verði AI- þýðusamband Islands, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Kennara- samband Islands, Bandalag háskóla- manna, Fármanna- og fiskimanna- samband Islands, Samband ísl. sveit- arfélaga, Vinnumálasambandið og Vinnuveitendasamband Islands. Á- ætlun þessi verði unnin tmdir forystu forsætisráðuneytisins. Við gerð áætlunarinnar verði við það núðað að launatekjur lækld ekki þrátt fyrir styttri vinnutíma. Nefiidin skili niðurstöðum sínum fyrir lok ársins 1997“. I greitiargerð tneð tillögnnni segir tneðal annars: „Umræða um málefni fjölskyld- unnar hefur verið alrnenn og óljós. Þess vegna hafa verið teknar ákvarð- anir í skattamálum og atvinnumál- urn, heilbrigðismálum, trygginga- málum og menntamálum, sem hafa kippt stoðum undan afkomu margra fjölskyldna í landinu. Aðalvandi fjölskyldnanna er ekki einstaka aðgerðir heldur og því mið- ur röð ákvarðana núverandi stjóm- valda, þar sem verið er að traðka nið- ur frumkvæði, vilja og orlcu almenn- ings; gleggst dæmin í þeim efhum era jaðarskattarnir. Nú styttist í að [vinnutímatilskipun Evrópusambandsinsj taki gildi hér á landi þar eykst þrýstingur á styttingu vinnutímans og því er núkilvægt að fundnar séu leiðir til að stytta vinnu- tímann án þess að það hafi neikvæð áhrif á ráðstöfunartekjur heimilanna. Það kemur m.a. frarn í skýrslunni um samanburð á kjöram fólks á Islandi og í Danmörku að vinnutínú ein- stakra hópa hér á landi er allt upp í 51 stund á viku að jafhaði en nær ekki 40 smndum í Danmörku. Þrátt fyrir þetta núkla vinnuálag nær íslenskur launamaður ekki sömu ráðstöfunartekjum á mánuði og sá danski. Við þetta verður ekki unað. Hér verður ekki mótuð raunhæf fjöl- skyldustefna ef ekki er teldð á þessum vanda. Taxtalaun verða að vera meg- inuppistaða i tekjum heinúlanna. Því verður að ná þessu markmiði og með bættu skipulagi innan fyrirtækja og aukinni framleiðrú þeirra ætti það að vera unnt. Tillaga þessi er ekki aðeins mikil- væg frá almennu félagslegu sjónar- miði; hún er einnig núkilvægur þátt- ur í tillögum Alþýðubandalagsins um heildstæða at\tinnustefhu.“

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.