Vikublaðið


Vikublaðið - 11.10.1996, Síða 12

Vikublaðið - 11.10.1996, Síða 12
Halldór gagnrynir Kúbustefnu í svari sínu við fyrirspum Stein- gríms J. Sigfussonar, þingmanns Al- þýðubandalagsins og óháðra, sagði Halldór Asgrímsson utanríkisráð- herra að það ætti að afnema við- skiptaþvinganir á Kúbu og að Island styddi ekld aðgerðir Bandaríkjanna í þeim efnum. Halldór sagði að hann teldi stefhu Bandaríkjanna gagnvart Kúbu vera óskynsamlega og að henrú væri nauðsynlegt að breyta, enda væri viðskiptabann úrelt bar- áttutæki. Steingrímur fagnaði því að Halldór væri í þessu máli ekki eins fylgispakur við Bandaríkin og í sum- um öðmm málum og undirstrikaði að ný löggjöf í Bandaríkjunum heimilaði jafnvel að refsa öðmm ríkjum fyrir að eiga viðskipti við Kúbu og það fæli í sér dæmalausan og fáheyrðan hroka og yfirgang. Borgarbúar geta skooab Höfba í tilefni af 10 ára afmæli leiðtoga- fundarins í Höfða hefur verið á- kveðið að gefa borgarbúum kost á að skoða Höfða. Um er að ræða helgamar 12. og 13. október og 19. og 20. október. Þessa dagana verður Höfði opinn frá kl. 11 til 17. Þeim sem áhuga hafa á skoðunarferð um Höfða er bent á að þeir geta þurft að sýna biðlund ef aðsókn verður ó- venju mikil á einhverjum tíma dags- ins. Starfsfólk Árbæjarsafns mun sjá um leiðsögn um húsið og á klukku- stundarffesti verða fyrirlestrar um sögu hússins. Framkvæmdastjóri LIN á móti árs- skýrslum Björn Bjamason menntamálaráð- herra gat í fyrirspumartíma á Al- þingi með engu móti gefið skýring- ar á því hvers vegna engin ársskýrsla LIN hefði litið dagsins ljós ffá því að núverandi ffamkvæmdastjóri tók við. Umræddur ffamkvæmdastjóri heitir Láms Jónsson, fyrrum þing- maður Sjálfstæðisflokksins, en for- maður stjómar er Gunnar Birgis- son, leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Það var Guðný Guð- bjömsdóttir, Kvennalista, sem spurði um þetta og benti hún á að hér væri um að ræða sjálfstæðan og umsvifamikinn opinberan sjóð og því ástæða til að spyrja menntamála- ráðherra hvort honum þætti eðlilegt að engin ársskýrsla væri gefin út. I allri umræðu um lánasjóðsmál væri enda grundvallaratriði að allar upp- lýsingar liggi fyrir og öll gögn til- tæk. En Bjöm kom af fjöllum og kvaðst ætla að kanna málið. Ingibiörg óhress meb Arnarholts- málib Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra hefur hellt sér yfir stjóm Reykjavíkurborgar og sagt, að þegar samkomulag borgarinnar, heilbrigð- isráðherra og fjármálaráðherra um rekstur sjúkrahúsa var gert, hafi borgin ffamreitt rangar tölur. í svömm sínum við fyrirspum Ög- mundar Jónassonar á Alþingi kvaðst Ingibjörg ætla að „kalla fulltrúa borgarinnar á sinn fund“ vegna þessa. Hún sagði að samkomulagið hefði gert ráð fyrir óbreyttum rekstri og að því hefði lokun Amar- holts komið sér á óvart. Ögmundur sagði óviðunandi þegar geðsjúkum væri úthýst vegna samdráttar og lokana. Allt rask skapi óöryggi hjá sjúklingunum. Og hann sagði dæmigert að tala um rangar tölur og loka deildum. Hartn minnti á að rík- isstjómin væri fjárhagslega ábyrg gagnvart Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Fjárlaqafrumvarp gagnrýnt Stjómarandstöðuþingmenn gagn- rýndu fjárlagaffumvarp ríldsstjóm- arinnar fyrir næsta ár harðlega í um- ræðum á Alþingi nú í vikunni. Með- al annars benti Steingrímur J. Sig- fússon á að áætlanir fyrir tekjur rík- isins væra vafasamar. Hann sagði að skýring a afgangi ríkissjóðs væri á- ætluð veltuauking í ár, sem ffam- reiknuð er sem forsenda tekjuaukn- ingar á næsta ári og þá kæmi ffam afgangur á pappímum, en það væri sýnd veiði en ekki gefin. Gert er ráð fyrir að virðisaukaskattur skili þrem- ur milljörðum króna meira árið 1997 en á þessu ári eða aukist um 6,9%, talsvert umffam áætlaðan vöxt í efnahagslífinu. Skýringin geti ekki verið önnur en sú að virðis- Vikublaðið 552 8655 aukaskyld velta eigi að aukast enn meira en þjóðarffamleiðsla. Óvar- legt er að gefa sér að einkaneyslan verði á næsta ári sama og á síðustu mánuðum, sagði Steingrímvu-. Hann efaðist um að efnahagur heimilanna gæti staðið undir því til langffama að þessi aukna neysla héldist. Skuldastaða heimilanna sé allt önn- ur og mikið verri en verið hefur. Hann efaðist því um að forsendum- ar á bak við útreikningana um tekju- aukningu ríkissjóðs gætu staðist. Býrð þú svo vel að hafa eignaskiptayfirlýsingu? Við viljum vekja athygli á, að samkvæmt lögum um fjöleignarhús þarf að vera fyrir hendi þinglýst eignaskiptayfirlýsing (eignaskiptasamningur) fyrir öll fjöleignarhús eigi síðar en 1. janúar 1997. í mörgum tilvikum liggur fullnægjandi yfirlýsing þegar fyrir og þarf þá ekki að hafastfrekar að. í öðrum tilvikum kann hún að vera úrelt, miðað við núverandi eignaskipan í húsinu, eða hreinlega ekki fyrir hendi. Er til eignaskiptayfirlýsing fyrir húsið þitt? Efþú ert í vafa um hvort svo sé má leita upplýsinga hjá sýslumannsembættum. Er hún fullnægjandi? Ef eldri þinglýst yfirlýsing er til staðar er vissara að fara yfir hana og ganga úr skugga um hvort hún sé í samræmi við núverandi eignaskipan íhúsinu. Ef hún erröng eða ekki til þarf húsfélagið að bæta úr því. Hverjir útbúa eignaskiptayfirlýsingar? Hópur manna hefur löggildingu í gerð eignaskiptayfirlýsinga fyrir fjöleignarhús. Nánari upplýsingar fást hjá Húsnæðisstofnun, húsnæðisnefndum sveitarfélaga og félagsmálaráðuneytinu. • Hvað svo? Eftir að eignaskiptayfirlýsing hefur verið samin þurfa eigendur að undirrita hana. Þá þarfað koma yfirlýsingunni til byggingarfulltrúa til staðfestingar og loks að láta þinglýsa henni hjá sýslumanni. Hvað getur gerst eftir 1. janúar 19977 Ef fullnægjandi eignaskiptayfirlýsingu vantar eftir 1. janúar 1997 getur það valdið töfum í fasteignaviðskiptum, þar sem hún er gerð að skilyrði fyrir þinglýsingu á eignayfirfærslum, svo sem afsölum, samkvæmt lögum um fjöleignarhús. C§b HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS I 1 - vinnur að velferð í þúgu þjóðar

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.