Vikublaðið - 29.11.1996, Qupperneq 4
VIKUBLAÐIÐ 29. NÓVEMBER 1996
Pabbavæn
fæðingadeild
Spjallað við Sólveigu
Þórðardóliur bæjarfulltrua
AB í Reykjanesbæ
Það er ekki heiglum hent að ná
sambandi við Sólveigu Þórðar-
dóttur ljósmóður og hjúkrun-
arfræðing, deildarstjóra á fæð-
ingar- og kvensjúkdómsdeild
Sjúkrahúss Suðurnesja og bæj-
arafulltrúa Alþýðubandalags-
ins og óháðra þar í bæ. Klukk-
an ellefu að kvöldi var hún loks
komin heim eftir langan vinnu-
dag. Tilefni símtals til hennar
er nýsamþykkt feðraorlof
(fæðingarorlof) bæjarstarfs-
manna, sem hún átti hvað
mestan þátt í að koma á, en í
hógværð sinni lagði hún mikla
áherslu á samvinnu og sam-
starf allra sem að málinu komu
og sérstaklega samstarfsmanni
sínum og kollega Jónínu San-
ders formanni bæjarráðs. Þeg-
ar við spurðum hana hvort
hún ynni mikið sagðist hún
vera í svona 120% starfl. Bæj-
arpólitíkin tekur sinn tíma,
sérstaklega þegar menn eru í
meirihluta. Það er hún reyndar
ekki nú, en samt eru alltaf næg
verkefni. með góðum vilja og
jákvæðu hugarfari samstarfs-
manna sinna tekst að komast
yfir hlutina. Okkur lék forvitni
á að vita svolítið um barnsfæð-
ingar í bænum.
„Það er ekkert metár hjá okkur núna,
en við höldum okkar hlut. Það fylg-
ist að góðærið og bameignimar. Svo
verður fjölgun þegar stórir árgangar
fara að eignast böm. Fyrir 4-5 ámm
var líka nokkuð um það að eldri kon-
ur væm að eiga böm. Mér sýnist
þetta ár ætla að verða svipað og síð-
asta ár.”
Hvernig hefur ykkur í Alþýðu-
bandalaginu gengið í bæjarpólitík-
inni?
Við lögðum upp með stefnu okkar
flokks og Grænu bókina. Annars
höfum við þurft að brjóta „prinsip”
vegna þess gífurlega atvinnuleysis
sem verið hefur hér í Suðumesjum
undanfarin ár og lagt mikla peninga í
atvinnumálin, og þar á meðal þurft
að veita bæjarábyrgðir. Við búum
við allt önnur skilyrði nú en áður.
Við leggjum eins og alltaf aðal-
áherslu á mannúðar- og fjölskyldu-
mál og svo það sem upp kemur
hveiju sinni, því tökum við á. Það
hefur staðið mikil barátta um D-
álmu sjúkrahússins. Við leggjum
áherslu á að bæta aðtöðuna og búa
betur að sjúkrahúsinu. Fyrrverandi
formaður okkar Ólafur Ragnar og
Guðmundur Bjamason þáverandi
heilbrigðisráðherra vora búnir að
ganga frá ágætum samningum sem
við héldum að stæðu fullkomlega, en
Ingibjörg hefur breytt þessu og þó að
gerðir hafi verið nýir samningar þá
eram við í einskonar skrúfstykki í
sambandi við reksturinn. Þó við sýn-
um einna lægstan rekstrarkostnað er
það ekki nóg, því vinnuálagið hér er
einna mest. Mér finnst nú að í þess-
um málum sem öðram eigi menn að
gefa rétt.
En samstarfið á vinstrivængnum?
Það hefur gengið vel. Við látum allt
dægurþras lönd og leið eins og hægt
er og lítum frekar á okkur eins og
einhverskonar þjóðstjóm, enda höf-
um við mörg og mikilvæg verkefni
að fást við, sem reynslusveitarfélag.
Ertu ekki ánægð að hafa fengið
þetta feðraorlof í gegn?
Jú, mér þykir vænt um að hafa feng-
ið það samþykkt. Af ellefu bæjarfull-
trúum era fimm konur og þar af tveir
hjúkranarfræðingar. Þannig að við
gátum vel byggt á okkar reynslu.
Þegar þetta var lágt fram skrifuðu
karlamir bara undir, enda er þetta
þverpólitískt mál og það náðist um
þett mjög góð samstaða. Við vorum
að skoða jafnréttisáætlun bæjarins,
sem er nokkuð góð og mér fannst
gott tækifæri til að bæta við jafnrétti
feðra til að annast bömin sín fyrstu
vikumar. I þessu felst að starfsmenn
bæjarins fá full laun í hálfan mánuð
burt séð frá fæðingarorlofi móður.
Þetta er í anda framvarps Ögmundar
Jónassonar og Steingríms J. Sigfús-
sonar og mér finnst þetta mikil sigur
fyrir málstað nýbakaðra foreldra. í
starfi mínu kynnist ég þessu mæta
vel og konur hafa sagt við mig að
þær vildu gjama að menn þeirra
lærðu jafn mikið um þessi mál og
þær. Það er mjög mikilvægt að feður
kynnist bömum sínum strax við fæð-
ingu. Gangi það eftir þrjá fyrstu dag-
ana, sinna þeir þeim betur það sem
eftir er ævinnar. Kannanir sýna að
drengir sem ekki njóta umhyggju
föður síns strax frá upphafi eiga það
til að verða ofbeldishneigðir og
lenda frekar í erfiðleikum. Við höf-
um þetta orðið þannig hjá okkur að
það er opið fyrir feður hér á fæð-
ingadeildinni frá kl. 10 - 10 þannig
að þeir eiga að geta séð í augun á
bömum sínum og tekið þátt í öllu
l sem viðkemur ungbömum, ekki bara
að baða þau.
óþ
Vinnutimi anno 1905
Við fáum eftirfarandi frásögn lán-
aða úr TR-fréttum, riti Trésmiða-
félags Reykjavíkur, þar sem farið
er 90 ár aftur í tímann og umræða
rifjuð upp um styttingu vinnutím-
ans.
„Hinn 20. febrúar 1905 var á fé-
lagsfundi lesið bréf frá Iðnaðar-
mannafélaginu þess efnis, hvort
Trésmiðafélagið vildi ekki beita
sér fyrir stytlingu vinnutíma úr 1 1
klst. i 10 klst. á dag. Um mál þetta
urðu miklar umræður á nokkrum
fundum. Voru ntenn sammála um
nauðsyn þess aö stytta vinnutím-
ann en þó því aðeins að dagkaupið
héldizt óbreytt. en það var þá 4 kr.
fyrir 11 tíma vinnu.
A fundi 2. marz lýsti Magnús
Blöndahl trésmiðameistari því
yfir, að hann hefði ákveðið að láta
smiði sfna framvegis vinna 10
tíma á dag fyrir óbreytt daglaun. A
næsta fundi gaf Bjarni Jónsson
húsgagnasmíðasmeistari samskon-
ar yfirlýsingu. Brátt fóru aðrir að
dæmi þessara manna. Náðist þessi
kjarabót því fram með tiltölulega
auðveldum hætti og átakalaust.”
Hvar eru Magnúsar og Bjarnar nú-
tírnans? Einhvers staðar á fundi að
tala unt framleiðni?
Eitthvað fyrir Björn?
I sjálfu sér er Kalda stríðinu lokið í hugum allra nema
manna á borð við Björn Bjamason. Hann er sérlegur
áhugamaður um fortíðardrauga og um stofhun „heima-
vamarliðs” sem kunnugt er. Hann er líka mikill áhuga-
maður um Bandaríkin og hefur ósjaldan skroppið á Bil-
derberg-fundi víða um heim.
Maður verður einhvern veginn að gera ráð fyrir því að
umfjöllunarefnin haft breyst í tímans rás hjá Bilder-
berg. Að nú sé talað um aðra hluti og í öðram tón en
þegar Bjami Benediktsson, Geir Hallgrímsson, Hörður
Sigurgestsson og Davíð Oddsson voru virkastir í þeim
klúbbi.
En eitt hefur ekki breyst og það er sú staðreynd að mik-
ið er framleitt af stríðstólum. Og þau eru hægt að
kaupa. Við rákumst t.d. á fróðlegar auglýsingar í
bandarísku tímariti, þar sem er verið að kynna nýjustu
útgáfuna af Sikorsky herþyrlunni (sem Boeing er með-
framleiðandi að). Þetta er greinilega mikill kostagripur,
með öflugum skotvopnum og nýjustu njósnatækjum,
vél sem getur á augabragði sveigt 180 gráður, ef ekki ,
360 og getur „fundið” skotmark á innan við 10 sekúnd-
um. Vélin er kölluð Comanche, væntanlega í höfuðið á
indíánaþjóðflokki. Af einhverjum ástæðum, sem okkur
er ókunnugt um.
í annarri auglýsingu er Northrop Gramman að auglýsa
orrastuþotu af gerðinni F/A-18E/F Homet, sem sam-
kvæmt kynningunni er sérlega árangursrík drápsvél og
fær um að bera hvers kyns vopn utan á sér. Northrop-
fyrirtæki þetta er annars undirverktaki McDonnell
Douglas flugvéla- og vopnaframleiðendanna frægu.
Hvað segir þú um þetta, Bjöm? Hvers vegna að ein-
skorða sig við björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna
þegar þvilfk kostaboð era í gangi? Það er ástæðulaust
að láta það hefta sig þótt múrinn sé fallinn og engar
sovéskar fiugvélar eða kafbátar á ferð í námunda við
ísland. Hvar er gamli, góði Bilderberg-fílíngurinn?
TamonW* btush wats wfl be ii»«rt and unptt.tteL
íhe U.S. Arrrry needs a balouidhcí, twn-cr-a-tíim
<*rth a skir of spaut a$jc ccrrpcslles, ar- uféy d steatn tec~
oquipmcnt thal can memorwtt nn nrti'e batttefiew m * maKw
And, cA cou-se the req.nsAe Uvpvmr.
The machtrw ts Comanrhe thc u.S. Arrry* 2tst-c
Stkoreky and Boeing
aí»Mncet«tUði u
, t>J B IW’B ot eli
is pattft
§ynited
Teelinologies
Olís' Carrtar Prall & Whilney
Böðvar Bjarki Pétursson
forstöðumaður Kvikmyndasafns ís-
lands og formaður félags kvik-
myndagerðarmanna
Hvaða bækur og rithöfundar
hafa haft mest áhrif á pólitískar
skoðanir þínar?
Án efa Bréf til Lára eftir Þórberg
Þórðarson. Ég las hana á viðkvæm-
um aldri, 13 ára gamall. Bókin þótti
skyldulesning hjá minni fjölskyldu
og var haldið að bömum. Ahrif
hennar vörðu svo meðvitað og
ómeðvitað fram að falli Berlínar-
múrsins.
Nefndu eina kvikmvnd, bók ieik-
rit, (jóð, lag eða tónverk sem þú
vilt að allir lesi, sjái, heyri.
Mig langar að nefna kvikmynd.
Kvikmyndin Fómin sem Anclrei
Tarkovsky gerði í Sviþjóð 198þ
kemur fyrst upp f hugánn. Eg sá
myndina í Tónabíói'sálugá óg 'hfm
hafði slík áltríf á mig, að ég lagðist
í rúmið og lá í tvo daga. Bæði var
að skilaboð myndarinnar vora
áhrifarfk og eins var kvikmynda-
gerðin göldrótt. Það liðu mörg ár
áður en ég þorði að horfa á mynd-
ina aftur, en ég gerði það hins vegar
fyrir nokkrum mánuðum. Þrátt fyrir
að ég legðist ekki í rúmið, þá fann
ég að ekkert hafði dregið úr kraftin-
um. Þetta er mynd sem allir verða
aðsjá.
Hver hafði mest áhrif á.þjg í
æsku? •
Ég ólst upp hjá móður minui og
ömmu og þær höfu auðvitað báðar
tnikil áhrif á mig. Það var þó ekki
fyrr en við lát.ömmu minmn fyrir
nokkram áram að ég áttaði mig á
hversu mikill áhrifavaldur hún var.
f gegnum hana fékk ég beint sam-
band við gamla íslenska sveitasam-
félagið og þá heimspeki setn þar
var við lýði. Af öðram áhrifavöld-
um í æsku þá mælti telja ntarga
sterka og sérstæða karaktera í stór-
um frændgarði.
Hvaða stjórnmálamanni lífs eða
liðnum hefur þú mest álit á?
Hér hef ég ekkert svar. Af núlifandi
stjómmálamönnum treysti ég mér
ekki til að setja neinn á stall. Hitt er
annað mál að ég hef ágætis álit á
stjómmáhunönnum og trúi því að
þeir ræki vel störf sín. Þeir era
svona sitt á hvað í uppáhaldi hjá
mér og gengur sú skoðun þvert á
alla flokka.
Af erlendum stjómmálamönnum þá
hef ég alltaf haldið upp á Katrínu
miklu í Rússlandi. þótt ferill hennar
ýrði endasleppur.
Ef þú gætir farið á hvaða tíma
sögunnar sem er og dvaiið þar í
24 tíma. Hvert færirðu og hvers
vegna?
Ætli ég tnyndi ekki vilja eyða ein-
um sólarhring á meðalstóra ís-
lensku sveitaheimili, kannski vestur
í Dölum, um miðja 18. öldina. Mig
hefur alltaf langað að fá tilfmningu
fyrir þessu kyrrstæða þjóðfélagi.
Það mætti vera vetur og ég tæki
þátt í gegningum. Um kvöldið
kæmi síðan kvæðamaður í heim-
sókn og héldi uppi fjörinu á vök-
unni.
Hjá hverjum leitarðu ráðlegginga
í mikilvægum málum?
Ég er nú að vafstra í mörgu og því
misjafnt hvert ég leita. í praktískum
persónulegum málum þá leita ég
alltaf til Skúla frænda míns. Hann
hefur báða fætur á jörðinni og kann
þá list að rökræða til niðurstöðu.
Ef þú mættir setja ein lög hver
yrðu þau?
Ég ntyndi setja ný kvikmyndalög,
sem myndu kveða á unt uin skipu-
lagsbreytingar og stóraukin framlög
til Kvikmyndasjóðs og Kvikmynda-
safns íslands.