Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 20.11.1954, Blaðsíða 2

Frjáls þjóð - 20.11.1954, Blaðsíða 2
2 FRJÁLS ÞJÓÐ • Laugardaginn 20. nóvember 1954. yWWWWWV^MWAVWWUVWWWWWWVVWVVWWVWWVVVWVyVWiWtfVWWVWWVW ^JJiÁja ocf Ldátnl (Hugleiðing um Matt. 22, 15— 22). I -Það var spurt í skammsýni öfundar og liaturs. Það var svarað af djúpsæi kærleikans. Spurt í þvi skyni að flækja og fella, svarað til þess að leið- beina og blessa. Spurt að vandlega yfirveguðu ráði af djúpfundnum, mannlegum klókskap. Svarað umsvifa- laust, án undirbúnings, af tær- um, guðlegum vísdómi. Jesús frá Nazaret og menn- irnir — ein lítil mynd af sam- skiptum lians og þeirra, ein- kennandi, yfirgripsmikil. En á undan þeirri spurningu og þvi svari, sem er þunga- miðja guðspjallsins, er hermd játning spyrjendanna. Þeir segja við Jesúm: Meistari, vér vitum, að þú ert sannorður og kennir Guðs veg. Líka táknræn mynd og víð- tæk. Þannig tala mennirnir, þannig tölum vér, lika þú, sem ekki venur komur þinar í kirkju og ekki vilt að jafnaði láta orða þig við neinn krist- indóm. Þú veizt líka, að hann er sannorður og kennir Guðs veg, segir það jafnvel oft. Innst í vitund þinni, innar en allt annað, leynist altari, sem honum er helgað, þessum meistara. Og þótt þú spyrjir liana aldrei til vegar i alvöru og leitir aldrei i einlægni ráða i sannleiksorði hans, þá ertu ekki sæll á þeim vegi, sem þú gengur, því að sá, sem þar liefur leiðsögn, er. ckki meist- ari þinn, og það veiztu, þótt ekki sé nema i hugboði, sem ekki verður að vissu fyrr en á stundu skelfingarinnar í vegleysunni. Og vér, sem förum i kirkju og viljum játa og rækja kristna trú, vér lútum honum og segj- um með sérstákri áherzlu: Meistari, vér vitum, að þú ert sannorður og kennir Guðs veg í sannleika. En livernig fylgjum vér þessum meistara, hvernig spyrjum vér hann til vegar, livernig förum vér eftir því, sem hann kennir? Vér vitum, en hvar er viljinn, spyrjum, en hvernig hlustum vér, heyr- um, en hvernig hlýðnumst vér? Jesús frá Nazaret og menn- irnir, sagan af samskiptum þeirra og hans. Guðspjallið er augnabliks- mynd, sem bregður leiftri yf- ir þá sögu, sem i heild er skráð i guðspjöllunum og lauk á Golgata. En svo fellur leiftrið yfir miklu stærra svið, yfir mannlífssöguna síðan, einnig kirkjusöguna, og yfir þann þátt, þann örsmáa þátt þeiri-ar sögu, sem er mín ævisaga og þín, yfir samtíðina, liðandi stundu, jörðina í dag. Vér vitum — engir hafa mælt þessi orð hreyknari rómi og svip en sú kynslóð, sem nú lifir og sú næsta á undan. Ekki ófyrirsynju. Eng- ir vissu meir. Og þrátt fyrir allt fráfall frá kristinni trú liafa fleiri menn vitað deili á vissum atriðum liennar á þessari öld en nokkru sinni áður i sögunni. Hefur það ekki meira að segja orðið vel metin tizka að tala um „meist- arann frá Nazaret“? Menn þekkja orðin: „Allt, sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yð- ur, það skuluð þér og þeim gjöra,“ vita margir, að þessi ummæli hafa verið kölluð „lífsreglan gullvæga", viður- kenna flestir, að það væri sjálfsagt gott að fara eftir þessu, segja jafnvel, að þetta sé hið eina af öllu þyi, sem (prestarnir segja og jafnvel aðrir meiri spekingar, er sé nokkurs virði. En hvað svo? Mennirnir i guðspjallinu með játningu varanna: Vér vitum, að þú ert sannorður og kennir Guðs veg, þeir yfir- gáfu meistarann og gengu burt. Skömmu siðar horfði Jesús tárvotum augum yfir borg þeirra og sagði: Ef þú hefðir vitað, hvað til friðar heyrir, en nú er það hulið sjónum þinum. Sjá, þeir dag- ar munu koma, að óvinir þin- ir munu leggja þig að velli og börn þín og ekki skilja eftir stein yfir steini, vegna þess Dansiagakeppni S.K.T. 1955 S. K. T. hefur ákveðið að efna til 6. danslagakeppni sinnar snemma á nsesta ári. Frestur til áð senda nótnahandrit er að þessu sinni tirdO. jaiiúar næstkomandi. S.K.T. hefur látið fjölrita nokkur af kvæðum þeim, sem bárust Danslaga- keppninni, og gefur kost á að semja lög við þau. Kynnið ykkur reglur keppninnar. Pósthólf keppninnur er 501, Reykjavík. Aðalf undur SAMLAGS SKREIÐARFRAMLEIÐENDA verður haklinn föstudaginn 3. desember næstkomandi í fundarsal L í. Ú. í Hafnarhvoli og hefst kl. 10 f.h. Dagskrá samkvæmt lögum sanilagslns. Sa ne líf «./.v.v (fvírte iat að þú þekktir ekki þinn vitj- unartíma. Það er til mynd af þingi stórvelda. Þar sitja þeir á rökstólum, höfðingjar og leið- togar þjóðanna, og tcfla um örlög hnattarins. í salargætt- inni er Kristur, en hann er á leiðinni út úr þinghöllinni. Og undir myndinni standa orðin: Hann fékk ekki að vera með. Enginn situr á rökstóli slíkra þinga, sem ekki kannast við það í orði, að lifsreglan, sem ég nefndi, sé gullvæg. En hvað vegur liún í reynd á móti því gulli, sem barist er um á málþingum og vigvöll- um? I.otningin fyrir meistar- anum dugir skammt — þeir fara sína leið og.hann sína, eins og i guðspjallinu. Og sjá, þeir dagar munu koma .... Og vér.kristnir menn, kirkj- an. Vér vitum. Vér erum þess um komnir að kenna heimin- um lög guðsríkisins. Vér kunnum Fjallræðuna, kunn- um kærleiksboðorð kristin- dómsins, segjum og skrifum þrátt og titt: Komið og lærið þessi lög, breytið eftir þessari ræðu. Vér vitum .. En hvað gildir Fjallræðau meðal vor sjálfra? í sam- skiptum kristinna bræðra? Vér getum kennt stórveld- um þann sannleika og Guðs veg að gjalda ekki illt með illu, heldur rétta hægri kinn, ef vér erum slegnir á vinstri. En gerum vér þetta sjálfir? Er lífsreglan gullvæga í fullu gildi í samstarfi kristinna bræðra? Er þar einlæg og bróðurleg viðleitni til þess að skilja, er það ríkjandi afstaða til hins kristna bróður, að vér „afsökum hann, tölum vel um hann og færum allt til betri vegar“ — svo að nú sé þokað iir liæðum Fjallræð- unnar og blátt áfram vitnað í Lúther? Vér vitum og kennum og lútum Kristi sem meistara, tökum undir hver með öðrum orð hans: Einn er yðar meist- ari, en þér eruð allir bræður. En hvað er þetta meira en orð? Var ekki einu sinni sagt við lærifeður útvaldrar þjóðar: Guðs riki mun frá yður tekið verða og gefið þeim, sem bera ávöxtu þess? Sigurbjörn Einarsson. Mikilvægur ígripaiðnaður — Framh. af 1. síðu. tvídefni fyrír um það bil 120 milljónir króna, og bar af var meira en helmlngurinn seldur til Bandaríkjanna fyrir fjórar milijónir dollara. Á Suðureyj- um voru ofnir fimm milljónir metra af þessum efnum, aðal- lega á Lewiseyju, þar sem 60% íbúanna hafa meiri og minni atvinnu af þessum iðnaði, fjöl- margir í ígripum frá síldveið- um og öðrum störfum, er háð eru árstíðum. En athyglisverðast er, að þetta er að langmestu leyti heimilisiðnaður, bví að það er krafa Harrisfélagsins, að efnin séu úr skozkri ull, sem sé „spunnin, lituðogfullunn- in á Suðureyjum hinum ytri, og dúkarnir handofnir af eyjarskeggjum á heimilum þeirra sjálfra.“ Ástæðan til þessarar kröfu er sú, að megináherzla er lögð á gæði dúkanna og fegurð, sem tryífgir sölu þeirra. Með handvefnaði má fá þá marg- breytni um gerð og mynztur, sem ekki svaraði kostnaði, ef dýrar, sjálfvirkar vélar væru notaðar, og með mismun- andi þenslu og áslætti getur góður vefari gefið voðinni persónulegan svip. Það eru að vísu ekki upp- gripalaun, sem menn hafa af þessum ullariðnaði, en þó 460— 640 krónur á viku. Og þess er að gæta, að þetta er vinna, sem hægt er að grípa til, þegar hlé verður á annarri vinnu, svo sem sjósókn eða búskaparönn- um. Nú er þessi iðnaður í upp- gangi á eyjunum, og í Storno- way er rekinn sérstakur tækni- skóli, þar sem kennt er allt það, er að vefnaðinum og meðferð ullarinnar lýtur. Spuni og litun. Mest af ullinni er spunnið í vélum í sérstökum iðntúnum, en þó er einnig talsvert spunn- ið á rokka að gömlum hætti. Mjög mikið af þræðinum er jurtalitað, þótt einnig séu notuð önnur litarefni, og með þeim hætti fást skærir, fagrir og Sannleikurinn er sagna beztur. Höfum til sölu: 60 bifreiðar 6 manna, 35 bifreiðar 4ra manna, 20 sendiferðabifreiðar, 10 jeppabifreiðar. Vanti yður bifreið þá leitið til olckar, við gefum yður sannar upplýsingar um bifreifearnar. — Tökum bifreiðar í umboðssölu. RfreðasaÍM Klapparstig 37, Sími 82032. S WJWWWWV.VAV.WWWVWVWWWWVWWWW Undirritið kröfuna um uppsögn h&rstöðvasamningsins fágætir litir. Eru í þessu skyni notaðar ýmsar skófir, mosi, jurtarætur, ber og aðrir jurta- hlutar. Þeir, sem fastheldnastir eru á gamlar venjur, láta jafn- vel dúkana liggja í keytu til að fá á þá réttan litblæ og þétta þræði. En að því búnu eru dúk- arnir þvegnir og þæfðir og loks þurrkaðir yfir móeldi, svo að þeir fái í sig ilman, er fylgir klæðinu æ síðan. Enn má geta þess, að Harris Tweed-félagið lætur setja sérstakt vörumerki með orðunum „Harris Tweed“ á alla dúka félagsmanna, og er það vörumerki orðið heims- frægt. íslenzkur ullariðnáður. Enginn vafi er á því, að við getum gert okkur ullina stór- um verðmætari en hún er enn, og auk þess látið hana veita mikla vinnu á vissum tímum árs, þegar atvinnuskortur er í stórum landshlutum. Vefnaður, svipaður þeim, sem hér hefur verið lýst, er ein leiðin til þess. En fleiri leiðir eru áreiðanlega til. Islenzka ullin hentar mjög vel í hlífðarföt, gólfteppi og margt fleira. Nýlega lýsti Júlíana Sveinsdóttir list- málari því í útvarpi, hve vel hún væri fallin til verðmæts listvefnaðar, og alveg vafa- laust mætti afla markaðar erlendis fyrir prjónaðan sportfatnað úr íslenzkri ull. En um þetta allt mim gilda, að vinnan verður að vera vönduð, fegurð í mynztrum og allri gerð. Það er trygg- ingin fyrir góðu verði og tryggum markaði. En list- rænum árangri er ekki hægt að ná, nema um sé að ræða handgerða muni, sem fólk leggur í sál sína, ef svo má segja. Asíustyrjöld — Framh. af 1. síðu. þeirra Bidaults í París 23. apríl. Þegar Bidault fór fram á hern- aðarþátttöku Bandaríkjanna, fékk hann það svar, að það ylti á Englendingum. Daginn eftir kom Radford til Parísar. Þar sagði hann Eden, að forsetinn myndi snúa sér til Bandaríkja- þings á mánudaginn — daginn, sem Genfarráðstefnan átti að hefjast — og biðja um heimild til íhlutunar, ef Englendingar vildu samþykkja það. Árásin á Díen Bíen Fú gæti hafizt á mið- vikudaginn, bætti hann við. Það var þá, að Eden hélt snögglega til Lundúna á ráð- herrafund, er boðaður var í skyndi. Óttinn við, áð Genfar- ráðstefnan færi út um þúfur og allsherjarstrið skýlli á í Asíu, knúði Englendinga til þess að hafna ráðagerðum um, að þeir veittu siðferðilegan stuðning til „sameiginlegra átaka“, er þó áttu að vera einhliða íhlutun Bandaríkjanna. Það virðist hafa forðað styrjöid, að Bandarikja- þing vildi ekki vera eitt um ákvörðtinina og Englendingar vildu alls ekki eiga' hlut aði þessu.“

x

Frjáls þjóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.