Frjáls þjóð - 13.12.1958, Side 1
JÓLABLAÐ 1958
irtÝrt'eowoie'::
' ' '
í Þjóðminjasafninu í Reykjavík er varðveitt
haglega útskorin hurð, sem komin er frá kirkj-
unni á Skarði á Landi og hefur sennilega verið
þar fyrir altarisskáp. Brynjólfur Jónsson, bóndi á
Skarði, sem uppi var um 1600, mun hafa skorið
hurðina.
Myndin hér að ofan sýnir efri hluta hurðar-
innar. Yzt til hægri liggur Jesús í jötunni. María
liggur á gólfi, og Jósef stendur hjá. Enn fremur
sjást höfuð asna og uxa, og tveir englar svífa yfir.
í miðju er Símon og Anna, og heldur Símon á
Jesú. Nöfnin Símeon og Anna eru skorin á stoð-
ina til vinstri. Yzt til vinstri er sýnd skírn Jesú,
og er skorið nafnið Jórdan á bylgjurnar, sem
Kristur stendur niðri í upp að miðju. Yfir svífur
dúfan. Ofan og neðan við alla myndina er svo-
felld áletrun: Jesu Christi fæðingar-, umskurðar-
og hans skírnarfígúrur. Matt. 3, Luc. 3.
Myndin er birt hér með góðfúslegu leyfi Þjóð-
minjasafnsins í Reykjavík.
EFNI jólablaðsins m. a
Jólahugleiðing eftir séra Braga Friðriksson. i? Rabb um örnefni eftir Hermann Pálsson lektor. Frá Hvallátrum og Látra-
bjargi eftir Eggert H. Kristjánsson. Kímilegir spekingar, endurminningar Francis Bulls prófessors. Taflmennirnir frá Ljóð-
húsum. Útigöngukona, saga frá Skotlandi, eftir Ronald MacdonaJd Douglas. + Leikir um jólin, heilabrot o. fl,
Verðlaunamyndgáta og verðlaunakrossgáta.
Jólamynd frá Skarði á Landi
Verð í lausesölu 10 krónur