Frjáls þjóð - 22.08.1959, Blaðsíða 3
cJLauyardaýinn 22. ácjúiL /9-5 9
þjóð
r AFGREIÐSLA:
INGÓLFSSTRÆTI 8
SÍMI 19985
PÓSTHÓLF 1419
Cftgefandi:
ÞjóOvarnarflokkur Islands.
Ritstjóri:
Jón Helgason, slmi 1-6169.
Framkvæmdarst jóri:
Jón Á. GuOmundsson.
Askriftargjald kr. 9.00 á mánuði,
árgjald 1959 kr. 108.00.
Verð i lausasölu kr. 3.00.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Lærisveinar Machiavellis
3
Frakkar finna auðæfi í Sahara
fnni í eyðimörkuni Sahara, 600 km fyrir simnan Algler, er
* borg, sem er kölluð Hassi Messaoud (Hinn blessaði brunnur).
I>ar eru miklar olíulindir, sent ef til vill eiga eftir að gera Frakk-
Iand að forysturíki enn á ný.
T lok síðasta mánaðar kom
hingað til lands í boði
Háskólans kunnur þýzkur
stjórnmálamaður og prófess--
or, Carlo Schmid, varaforseti
sambandsþingsins í Bonn og
einn höfuðleiðtogi vestur-
þýzkra jafnaðarmanna.Flutti
hann fyrirlestur við Háskól-
ann um ítalska rithöfund-
inn Machiavelli, sem kallað-
ur hefur verið „kaldrifjað-
asti refur, sem stungið hef-
ú ur penna á blað“, en boð-
skapur Machiavellis var sá,
að í stjórnmálum giltu engin
siðalögmál, sem á öðrum
sviðum mannlífsins væri
reynt að halda í heiðri: al-
mennt siðgæði kæmist þar
ekki að og tilgangurinn
einn helgaði meðalið. Þessi
boðskapur Machiavellis hef-
j ur haft mjög mikil áhrif á
ýmsa stjórnmálamenn ver-
aldarsögunnar og verið leið-
arljós óprúttnustu einræðis-
lierra heimsins, allt frá
Filippusi II. Spánarkonungi
og Napóleon til þeirra Hitl-
ers og' Stalíns.
I ★
að, sem Islendingum má
þykja athyglisverðast
um fyrirlestur prófessors
Schmids, er þó ekki greinar-
gerð hans fyrir kenningum
Machiavellis — slíkt má lesa
í handbókum og söguritum
— heldur inngangsorð fyrir-
lesarans, sem hann beindi
sérstaklega til íslendinga.
] Þeir, sem fyrirlesturinn
( sóttu, segja, að undirfurðu-
| legur svipur hafi komið á
I marga þá stjórnmálaskör-
[ unga, sem á hlýddu, þegar
prófessorinn hóf mál sitt
j með þessum orðum: „Það
kann að þykja undarlegt, að
þýzkur prófessor skuli halda
fyrirlestur á íslandi um við-
horf Machiavellis, har sem
Island er vígi demókratískra
erfðahugmynda og rótgróins
siðgæðis á öllum sviðum
opinbers starfs, en Machia-
velli aftur á móti boðberi
samvizkulausrar kenningar,
sem afneitar öllu siðgæði í
stjórnmálum.“
★
kki verður hér úr því
skorið, hvoi't veslings
Carlo Schmid hefur hug-
myndir sínar um hið „rót-
gróna siðgæði á öllum svið-
um opinbers starfs“ á fs-
j landi frá íslenzkum vinum
I sínum og jábræðrum — eða
hann hefur sjálfur smíðað
j sér þær eftir almennum lík-
' um: hingað út á hjara heims
hafi stjórnmálaspillingin,
, sem rekja má til Machia-
; vellis, með engu móti getað
' borizt, og pólitískt siðgæði
j hljó.ti að vera ríkjandi í hinu
} fámenna sarr|félagi elztu
] jý.ðfæðisþíóðaf ‘ heims, En
hvort heldur er, verður að
virða hinum þýzka prófessor
það til vorkunnar, að hann
hefur ekki áttað sig á því,
hve rik ítök og trausta fót-
festu stjórnmálarefurinn
Machiavelli hefur þegar náð
á yztu mörkum hins byggi-
lega heims, eins og allir ís-
lendingar mega svo áþreif-
anlega sanna.
★
ða ætla menn, að prófess-
or Carlo Schmid hefði
komizt svo fagurlega að orði
um pólitískt siðgæði íslend-
inga, ef honum hefði t.d.
verið kunnugt uni feril
flokksbræðra sinna í Al-
þýðuflokknum íslenzka
síðustu misserin: stofnun
Hræðslubandalagsins, þar
sem þingmenn flokksins
reyndu ásamt Framsókn að
krækja sér í meirihluta á
alþingi með því að auka
ranglæti hinna úreltu kosn-
ingalaga, sem flokkurinn
hafði frá öndverðu talið eitt
helzta baráttumál sitt að fá
numin úr gildi — yfirlýsing-
una um brottflutning her-
liðsins, sem svikin var við
fyrsta tækifæri og ekki
imprað á síðan — svardaga
formanns flokksins um, að
aldrei yrði mynduð stjórn
með kommúnistum og svik
þess loforðs ásamt tilheyr-
andi sendiherraembætti
handa formanninum o. s.
frv. endalaust. Eða svo að
einstök dæmi séu nefnd: —
Hefði prófessor Carlo
Schmid gefið íslendingum
hið fagra siðgæðisvottorð,
ef honum hefði verið kunn-
•
ugt um, að einn ákveðnasjú
og sannfærðasti hernáms-
sinni þessa lands frá upp-
hafi vega, Guðmundur í.
Guðmundsson, lét sig ekki
muna um það að ganga til
kosninga 1956 undir því
merki, að hann ætlaði að'
reka bandaríska herinn úr
landi, ef hann næði kosn-
ingu — og hefði síðan ekki
minnzt á efndir þess lof-
orðs — eftir að tilgangi.num
var náð: að klekkja á Þjóð-
varnarflokknum, sem heils
hugar barðist í því máli? Og
hvað um vottorðið, ef Carlo
Schmid hefði þekkt til fer-
ils Ffiðjóns Skarphéðinsson-
ar, sem lét maddömu Fram-
sókn kjósa sig á þing 1956
— í innilegu bandalagi um
að misnotaúrelta kjördæma-
sldpun — og settist síðan á
rniðju kjörtímabili í ríkis-
stjórn í því skyni að berjast
fyrir réttlætismáli og slátra
þeirri sömu gömlu mad-
dömu?
★
n það þarf svo sem ekki
að tíunda feril Alþýðu-
flokksins eins. Eflaust hefðu
Fyrir fjórum árum var Hassi
Messaoud lítilfjörleg vin í eyði-
mörkinni. Nú eru þar 5000 íbúar,
og borgin spannar næstum 90
ferkm af eyðimörkinni. Enn
eru þar engar konur, kirkjur eða
bænahús, en þar eru þrjú hótel,
tvö kvikmyndahús og tvær sund-
laugar. Flugvöllurinn er nógu
stór til að þrýstiloftsflugvélar
geti lent þar. Þar eru 24 einka-
fyrirtæki, meðal annars þvotta-
hús og gosdrykkjaverksmiðja. Á
milli húsanna eru grænar lóðir,
og gróðrarmoldin hefur verið
flutt alla leið frá Algier á flutn-
ingabifreiðum. 1 þeim borðstof-
um, þar sem starfsfólkið borðar,
ganga hvítklæddir þjónar um
beina og maturinn er eins og á
beztu veiíingahúsunum í Paris
að fjölbreytni.
Kalifornía Frakklands.
Prakkar eru hugfangnir af Sa-
* hara. Meir en milljón
franskra fjölskyldna hafa lagt fé
í oliufyrirtækin í Sahara, og í
mánuði hvei’jum sækja þúsundir
ungra Frakka um atvinnu i Sa-
hara-eyðimörkinni. — Frönsku
blöðin tala um Sahara sem Kali-
forníu Frakklands og maðurinn,
sem hefur verið driffjöðrin í
öllu þessu Jacques Soustelle, hef-
ur sagt, að þessi eyðimörk muni
fyrr en seinna verða Frakklandi
jafn mikilvæg og Kyrrahafs-
ströndin var fyrir austurströnd
Bandaríkjanna á ákveðnu tíma-
bili. Soustelle hefur einnig sagt,
tvær grímur runnið á Carlo y
Schmid, ef hann hefði þekkt !
til Þorvalds Garðars Krist- »
jánssonar og fleiri póli- !
tískra stráka Sjálfstæðis- !
flokksins, hins strangheið- *
arlega „flokks allra stétta“.
Og hvað hefði prófessorinn
sagt, ef hann hefði haft
hugarflug til að láta sér
detta í hug, hvernig stjórn-
málasiðgæðið er og hefm'
verið á bæ gömlu konunnar
í Skuggasundi — að ekki sé
minnzt á tvíbýlið við
Tjarnargötu — þar sem ann-
ar ábúandinn hylur sig í
sauðargæru ..Alþýðubanda-
lagsins“, en hinn gekk til
sambýlisins með rýtinginn í
erminni, reiðubúinn að reka
hann í sambýlismanninn
„imián frá“?
★
ei, það er óþarft að rekja
þessa sögu lengur fyrir
íslenzka lesendur. Og læri-
sveinar Mac.hiavellis á Is-
landi geta glatt sig við það,
að prófessor Carlo Schmid
er horfinn til Þýzkalands,
sæll í Sinni barnatrú á
„Ultima Thule“, ..vígi demó-
kratískra erfðahugmynda og
rótgróins, siðgæðis á öllum
sviðurn opinbers starfs“ —
og' þeir geta haldið óáreittir
áfram að feta í fótspor
meistarans — eftir að sak-
laus einfeldningur sunnan
úr Rínarbyggðum ýfði
óþægilega upp samvizku-
kaunin eina kvöldstund.
að það verði hér í eyðimerkur-
löndum Sahara, sem örlög
franska lýðveldisins verði ráðin.
Fjög'ur fet undh’
yfirborði jarðar.
Kð undanförnu hafa franskir og
" innfæddir verkamenn unnið
að því að leggja olíuleiðslu frá
Hassi Messaoud til hafnarbæjar
í Algier, sem heitir Bougie. Píp-
urnar eru 24 þumlungar í þver-
mál og eru ekki eftir nema 29
km af vegalengdinni, sem er
665 km löng. Gert er ráð fyrir,
að verkinu verði lokið í þessum
mánuði. Til þess að vernda
leiðsluna fyrir skemmdarverkum
er hún grafin 4 fet undir yfir-
borð jarðar mestan hluta leiðar-
innar. Fyrir þremur vikum
setti franski yfirhershöfðinginn
20.000 manna her til að reka upp-
reisnarmenn frá þeim slóðum,
sem leiðslan á að liggja um. Frá
upphafi næsta árs á leiðsl-
an frá Hassi Messaoud að flytja
hvorki meira né minna en 4,500
þúsund tonn af olíu til strandar
og í árslok 1960 á að vera hægt
að auka magnið með byggingu
nýs skipalægis og olíugeyma upp
í 14 milljónir tonna á ári.
Ekki er sagan öll með þessum
áformum. Fyrir árslok 1960 á
einnig að vera komin leiðsla frá
Edjelé-svæðinu til La Skhira á
Túnisströnd og sú leiðsla á að
flytja 10 milljónir tonna á ári.
Framtíðardraumar
Soustelles.
að er engum vafa undirorpið,
að þetta hlýtur að valda
straumhvörfum í efnahagsmál-
um Frakklarids, enda hefur
Soustelle sagt eitthvað á þá leið.
að franska ríkið hafi eytt ,,um 20
milljónum tonna af olíu á ári, og
á næstu árum mun eyðslan fara
upp í 36 millj. tonn á ári, en þá
munum við geta dælt milli 30—50
millj. frá Sahara." Það er spá
Soustelles, að Frakkland muni
brátt verða aðalolíuveitandi Vest-
ur-Evrópu t. d. með leiðslu yfir
Miðjarðarhafið til Spánar og sið-
an alla leið til viðtakenda. Einnig
er ráðgert að leggja 36 þuml-
unga víða leiðslu frá Marseille til
Karlsruhe, en sú olía yrði flutt
sjóleiðis yfir Miðjarðarhafið.
Frá íi§kiðjuveri
ríkisins
Þeir, sem eiga í geymslu fisk eða önnur
matvæli í frystihúsi voru og ekki er sérstak-
Iega geymt í leiguskapnum, sem samið hefur
verið um, eru beðnir að sækja þau fyrir 1.
september n.k. Ef það hefur ekki venð
gert fynr þann tíma verða þau fjarlægð á
kostnað eigenda.
F. h. Fiskiðjuvers ríkísins
Bæjarútferð Reykjavíkur.
G I P S
þilplötur
fyrirliggjandi.
Marz Tradíng Co, h.f.
Klapparstíg 20. - Sími 17373.
SMURSTÖDIN SÆTUN 4
Selur allar tegundir smurolíu.
Fljót og góö afgreiðsla. - Sími 16227