Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 22.08.1959, Side 7

Frjáls þjóð - 22.08.1959, Side 7
FRJALS ÞJDÐ — oCauaarífaairtti 22. áaúií Í959 7 Menninprskilyrði - Framh. af 5. 'síðu. stjóri var ófvllstur, en þó tölu- vert drukkinn. Eftir nokkrar árangurslausar tilraunir til þess að koma skips- bátnum innbyrðis, réðu þeir af að binda hann aftan í skipið og taka hann upp, þegar betur stæði á. Með akkerið gekk held- ur betur, því þar lagði vindan til kraftana. Þó mátti það ekki tæpara standa, því þegar það kom upp úr sjó voru ekki eftir á þilfari nema þrír menn, skip- stjóri, ég og einn háseti, sem oltið hafði um og lá þar flatur og steinsofandi. Hinir höfðu allir skriðið ofan í hásetarúmið, og þurfti ekki að búast við, að \ nokkur þeirra liti út þaðan næstu tólf tímana.“ Þessu næst lýsir hinn danski maður ferðalaginu, sem gekk heldur skrykkjótt til að byrja með, einkum reyndist erfitt að fá kyndarana til að kynda tog- arann um nóttina. Að morgni gekk allt betur, því að þá risu skipverjar úr rotinu. Þó segir Drachmann, að löngum hafi verið glatt á hjalla á leiðinni. „Skipverjar, þar á meðal skipstjóri og stýrimaður, héldu að mestu leyti til frammi í há- setaklefa. Þar sátu þeir, skömmuðust, drukku og spil- uðu. Það voru engar smáupp- hæðir, sem spilað var um. En það verð ég að segja þessum hálfvilltu mönnum til hróss, að við mig voru þeir hver öðrum betri. Þeir réðu mér blátt á- fram til þess, að taka ekki þátt í fj árhættuspilinu, sögðu, að það yrði aðeins til þess, að ég tapaði öllum peningum mínum, þeir væru vanari og slungnari og spiluðu betur. Oft sá ég eins og blika á gullið í soranum. Þrátt fyrir allan ruddaskap og ómenningu höfðu þessir menn visst siðaskyn og Voru hvergi nærri sneyddir öllum göfugum tilfinningum. Það var fyrst og fremst ömurleiki og innihalds- leysi lífs þeirra, sem varnaði oft hinum betra manni að njóta sín. Þegar við komum til Hull, fór ég með nokkrum skipverj- um til og frá um borgina, til að kynnast betur lífi því, er þeir lifðu. Þeir gengu á milli ill- ræmdustu og sóðalegustu kránna, lentu hvað eftir annað í rimmum og slagsmálum og sluppu ekki allir með heilu skinni. En mér var óhætt í fylgd þessara manna. Skipverj- ar mynduðu eins konar lífvörð í kringum mig, og það var næsta átakanlegt að sjá, hve annt þeir létu sér ura, að mér yrði ekkert að grandi, hversu fullir og ruddalegir sem þeir annars urðu. Mér er þetta eft- irminnilegt, því það var eins og, lifandi dæmi þess, hve mik- ið þarf til að drepa með öllu hinar göfugri hvatir úr manns- sálinni. Ég er þess fullviss, að í öllum þessum mönnum bjó undir niðri þrá til að lifa betra og hamingj ufyllra lífi. Hefðu þeir búið við önnur skilyrði til menningar, er líklegt, að flestir þeirra eða allir hefðu orðið nýt- ir borgarar." Þetta eru orð hins danska manns. Svo er hamingjunni fyrir að þakka, að íslenzk sjómannastétt hefur aldrei komizt niður á það stig ómenningar, sem nú var lýst og orðið hefur hlutskipti fiskimanna víða um heim. Öld- um saman var sjómennska að- eins stunduð hér síðari hluta vetrar, vor og haust, og þá af mönnum, sem unnu landbún- aðarstörf annan tíma ársins. Þessir menn bjuggu við svjpuð menningarskilyrði og öll önnur alþýða landsins, enda skáru þeir sig að engu leyti úr. Þess eru mörg dæmi, að greindir al- þýðúménn hotuðu landlegurn- ár til bókmenntastarfa að gömlum, íslenzkum hætti, þrátt fyrif érfiðá aðstöðu. Þeir afrit- uðu handrit í sjóbúðunum, hag- yrðingafhix ortu rímur, kvæði og stökur, og allur fjöldinn las bækur sér til dægrastyttingar og fróðleiks. Það var fyrst á 19. öld, þegar sérstök sjómanna- stétt í eiginlegri merkingu þess orðs fór að myndast, sem sú hætta vofði yfir, að sjómenn hér yrðu andlegir öreigar. Til þess hefur þó aldrei komið. Hins skal ekki dyljast, að nokkurt drabbaraorð hefur farið af ís- lenzkum sjómönnum, en þó hygg ég, að það sé sízt meira nú en það var fyrir 30—40 ár- um. Frásagnir gamalla manna af sjómannalífinu í landlegum hér við Faxaflóa um aldamótin síðustu, eða á skútutímunum, eru sumar hverjar heldur dap- urlegar. Einkum var það ofsa- fenginn drykkjuskapur og fylgifiskar hans, sem háði sjó- mönnunum og þjakaði stéttina tilfinnanlega. Ég hef heyrt sög- ur af því, að skipstjórar hafi orðið að láta smala krárnar og jafnvel bera skipverja fram í skipsbátinn, þegar léggja skyldi af stað. Og þess voru dæmi, að af tuttugu manna áhöfn voru ekki nógu margir verk-jskiPum 1 millilandaferðum og færir til að létta akkerum, en með ströndum fram. íslenzka til þess þurfti fjóra til fimm farmannastéttin er ekki stór menn. Varð því að láta skip- enn Þá. en Þar er gott mannval. verja sofa úr sér vímuna um , Fai'menn hafa yfirleitt góðan borð, áður en viðlit þótti að j tíma til lestrar, og margir halda af stað. Ég hygg, að í Þeirra, er ég þekkj. eru vel þessu efni hafi orðið mikil j menntaðir og prýðilega hugs- breyting til batnaðar. Efast ég andi menn, gæddir l íkri á- fyllilega um, að íslenzkir sjó- j byrgðarti]finningu i stuttu menn drekki yfirleitt meira nú ,máli góðir þjóðfc lagsþégnár. en margar aðrar stéttir þjóð-jSumir hafa notað tímann til félagsins. Hitt er rétt, að stund-. síálfsnáms og abað sé/ stað- um ber meira á drykkjuskap I góðrar þekkingar, þótt skipu- þeirra en annarra manna, eink- lagslaust hafi slík: sjálfsnám um þar sem þeir koma margir Jverið fram til þess, svo auðýélt saman til að stytta sér stundir sem mtti þó að vera að koma við skál eftir langar fjarvistir. J Þar einhverri skipan á, emá og Svo er það til dæmis, þegar ( kráít verður aö vikíð. Sörstak- mörg skip liggja inni á Siglu- ieSa þykist ég haía veitt því firði um síldarvertíð eða land- athygli, að margir vt>V<.ior.,r og legudagar eru að vetrinum í loftskeýtafhenti éru víðicsnir og Vestmannaeyjum og á Suðui-- nesjum. málagarpar, sem fjálglegast töluðu um „hetjur hafsins“ og „hermenn íslands“ urðu ólíkt seinni til að bæta með raunhæf- um aðgerðum starfskjör og menningaraðbúð sjómanna. Því að sannast að segja hefur ekki verið búið þann veg að sjó- mönnunum íslenzku, að það gerði þeim auðvelt fyrir að lifa heilbrigðu og mannsæmadi lífi. Ég á hér ekki fyrst og fremst við launakjörin. Um það efni hefur oltið á ýmsu. Hafa sjó- menn alloft borið mikið úr býtum, en stundum lítið, og er það að vísu eitt þeirra verk- efna, sem fyrir liggur, að jafna á milli, draga úr áhættunni og auka afkomuöryggið. Þetta at- riði mun ég þó ekki gera hér frekar að umræðuefni, en minni aðeins á það, því sann- leikurinn er sá, að nokkurn veg- inn trygg afkoma er einn af hornsteinum menningarinnar, og þá fyrst eru góð menningar- skilyrði sköpuð, þegar óttanum við skortinn hefur verið bægt á brott. En þó að ekki sé mikið að marka öll faguryrðin um ís- lenzku sjómennina, sem stund- um eru fram borin með því of- forsi, að manni getur orðið flök- urt af, hygg ég það sannast sagna, að miðað við allar að- stæður eigum við enn þá trausta og tiltölulega heil- brigða sjómannastétt. — Ég sagði enn þá, því að eng- in vissa er fyrir því, að svo verði jafnan í framtíðinni, ef ekki er eitthvað verulegt gert af þjóðfélagsins hálfu til að skapa sjómannastéttinni auk- in menningar- og þroskaskil- yrði. Dæmin eru deginum ljós- ari frá öðrum löndum, þar sem sjómennirnir voru á hvað lægstu stigi allra þjóðfélags- þegna, fátækastir, drykkfelld- astir og umkomulausastir. Farmenn eru þeir menn nefndir, sem sigla á flutninga- í Það er orðin mikil tízka nú hin síðari árin, að ausa ís- lenzka sjómenn lofi og hrósyrð- um, einkum á sjómannadaginn og aðra tyllidaga. Ekki veit ég hversu mikil alvara býr að baki skálaræðunum sumum hvérjum, én hitt hefur þó stund- um viljað sanhast nokkuð átak- aniega, að sumir þeir stjóm- áhugasamir um almenn' mál. Sama má raunar segj;. ýmsa skipstjóralærða mcnn í síðari hluta <j ■''-<.ar þess- arar mun ég Teltasi: við að draga nokkrar á ictanir af þessum hugleiðingb n, gera grein fyrir skipulöoðu menn- ingarstarfi meðal nc ••skra far- manna og benda á nokkur viðfan&ééfní tU athugunar og whréðUí n. SkáMsögur á góðu verði Eftirtaldar skáldsögur eru mjög ódýrar miðað við núgild- andi bókaverð. Margar þeirra fást ekki lengur hjá bóksölum, enda ýmsar þeirrá á þrotum. □ Anna Jórdan. Spennandi saga um heitar ástir tilfinninga ríkra persóna eftir M. Brinker Post. — 298 bls. Ib. 58.00. □ Auðiegð og konur. Ein af allra skemmtilegustu skáldsög- um Bromfields. — 418 bls. Ób. 35.00. □ Brúðarleit. Ákaflega spennandi og viðburðarík saga eftir Ií. J. White. Verður einna helzt jafnað til „Sigurvegarans frá Kastilíu“. 366 bls. Ib. 72.0«. □ Désirée. Hin heillandi skáldsaga Annemarie Selinko um dóttur silkikaupmannsins, æskuunnustu Napóleons, sem siðar varð drottnmg Svíþjóðar og formóðir sænsku kon,- ungsættarlnnar. — 316 bls. Ób. 63.00. □ Systurnar Lindeman. Sptnnandi ástar- og örlagasaga eftir Synnöve Christensen. — 428 bls. Ib. 110.00. □ Drottningin á dansleik keisarans. Heillandi ástarsaga eftir hinn heimskunna finnska rithöfund Mika Waltari. — 246 bls. i stóru broti. Ób. 25.00, ib. 37.00. □ Gleðisögur. Bráðskemmtilegar sögur um ástina og mann- legan breyskleika eftir snillinginn Balzac, prýddar fjölda ágætra mynda. — Ób. 25.00, ib. 35.00. □ Hershöfðinginn hennar. Söguleg skáldsaga um ástir og ör- lög í óveðrum mikillar borgarastyrjaldar eftir Dapline du Maurier, höfund ,,Hebekku“ — 472 bls. Ób. 35.00. □ Hertogaynjan. Saga um unga og fagra hertogaynju, sem var helzt til ástgjörn og tilfinningaheit. — 228 bls. Öb. 39.00, ib. 58.00. □ Hulin fortíð eftir Therésa Charles. Spennandi, dularfull og áhrifarik skáldsaga, sem mun lesandanum seint úr minni líða. — 264 bls. Ib. 98.00. □ Katrín Mánadóttir. Söguleg skáldsaga eftir Mika Waltari, áhrifamikil og spennandi, 266 bls. í stóru broti. Ib. 75.00. □ Kona manns. Hin viðkunna og bersögla ástarsaga Mobergs. Á þrotum. — Ób. 25.00. □ Lars í Marzhlíð'. Spennandi sveitalífssaga frá Svíþjóð eftir Bernhard Nordh. — Ób. 30.00, ib. 45.00. □ Silkikjólar og glæsimennska. Spennindi saga eftir Sigur- jón Jónsson. — 279 bls. Ób. 12.00, ib. 20.00. □ Sumardansinn. Heillandi saga um ungar ástir eftir P. O. Ekström. Hlaut sænsku verðlaunin í norrænni skáldsagna- keppni, og kvikmynd gerð eftir sögunni, hefur hlotið al- þjóðlega viðurkénningu og farið mikla sigurför. — 218 bls. Ib. 60.00. □ Svo ungt er lifíð enn. Heillandi saga frá Kina um ungan amerískan lækni, starf hans og einkalíf, eftir Alice T. Hobart. — 243 bls Ób. 25.00, ib. 35.00. □ Lppreisnin á Cayoite. Hörkuspennandi saga, sem sannar- lega hentar ekki taugaveikluðu fólki. — 224 bls. Ób. 18.00. □ Við skál í Vatnabyggð. Nútímasaga frá Bandarikjunum, dularfull og spennandi. — Ób. 8.00. GULU SKÁLDSÖGURNAR. Léttar og skemmtilegar skáldsögur til tómstundalesturs, afar vinsælar. Eftirtaldar sögur fást enn: □ Þyrnivegur hamingjunnar eftir Stark. Öb. 20.00, ib. 29.00. □ Gestir í iVIiklagarði eftir Kástner. — Ób. 20.00, ib. 29.00. □ Brækur biskupsins I—II eftir T. Smith. — Ób. 32.00. □ LTigfrú Ástrós eftir G. Widegren. — Öb. 20.00, ib. 29.00. □ Kæn er konan eftir G. Segercrantz. — Ób. 15.00, ib. 25.00. □ Ást barónsins eftir G. Segercrantz. — Ób. 20.00, ib. 29.00. □ Elsa eftir Jan Tempest. — Ób. 20.00, ib. 29.00. □ Skógardisin eftir Sigge Strak. — Ób. 26.00, ib. 39.00. □ Ég er ástfangin eftir Maysie Greig. — Ób. 28.00, ib. 40.00. □ Ung og saklaus eftir Ruby M. Ayres. Ób. 26.00, ib. 39.00, SKÁLDSÖGUR Frank G. Slaughters. Af hinum vinsælu og eftirsóttu skáldsögum Slaughters fást þessar enn, af sumum þó aðeins örfá eintök: □ Ást en ekki hel. — 332 bls. Ób. 50.00. □ Dagur við ský. — 372 bls. Öb. 50.00. □ Fluglæknirinn — 280 bls. Ib. 65.00. □ Erfðaskrá hershöfðingjans. — 280 bls. Ib. 70.00. □ Líf i læknis hendi. — 481 bls. Ib. 85.00. □ Þegar hjartað ræður. — 280 bls. Ób. 50.00, ib. 70.00. Klippið auglýsinguna úr blaðinu og merkið X í ferhyrn- inginn framan við nöfn þeirra bóka, sem þér óskið eftir. Und- irstrikið ib„ ef þér óskið eftir bókunum í bandi. — Ef pönt- un nemur kr. 300.00 eða meira.gefum við 15% afslátt frá ofan- greindu verði. — Kaupandi greiðir sendingarkostnað. Gerið s\-o vel að senda mér gegn póstkröfu þær bækur, senn merkt er við ' «"=r!vsingunm Hér að ofau. Nafn................................................... Heixnili.............................. ................ UékamaTkaður Iðunnar SkeggjagÖfcu f. — PóSthólf 561. — Reykjavík. — Sími 12921

x

Frjáls þjóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.