Frjáls þjóð - 22.08.1959, Page 8
1
a
ijCaugarclacjinn 22. ágúit J959 —
FRJALS
Þ J Í5 Ð
Vandamá l haustkasn ingan n a:
Erfið framboð í sumum
iij|ia k|ördæmiiiiuiii
Kosningar þær til alþingis, sem fraiii eiga að fara dag-
ana 25.—26. október n.k. eru að bví leyti sögulegar, að þá
er í fyrsta sinn kosið samkvæmt hinni nýju kjördæma-
skipun, þar sem landinu er skipt aðeins í átía kjördæmi.
Af þessari breytingu leiðir ýmis vandamál í sambandi við
framboð, a. m. k. í fyrstu lotu. Deilur standa um það,
hvernig eigi að raða á lisíana, og svo auðvitað um það,
hverjir eigi að skipa þau sæti, sem viðkomandi flokkur
telur sér örugg í hverju kjördæmi.
Mestan vanda leiðir af því, verða Framsóknarflokkurinn
þfegar flokkarnir hafa íleiri og Sjálfstæðisflokkurinn að
þingmenn nú, kjörna sam- j horfast í augu við í sumum
kvæmt gömlu kjördæmaskip-, hinna nýju kjördæma.
uninni, en þeir hafa nokkra von
um að fá kjörna í hinu nýja
kjördæmi. En þennan vanda
Rúnlega þriðj-
ungs
Engin skýc-ing
Um alllangt skeið undan-
farið hefur í nokkrum búð-
um í Reykjavík verið hægt
að fá keypta hraðfrysta ýsu
umbúna í pökkum sem til
útflutnings væri. Fiskur
þessi er hinn ágætasti mat-
ur, enda hefur liver pakki
fram að þessu kostað kr.
8,75. Fyrir skömmu brá þó
svo við, að verðið var þegj-
andi og hljóðalaust hækkað
upp í 12.00 kr. Þessi fiskur
er ekki háður verðlagseftir-
liti, og engin skýring fékkst
á hækkuninni. En óneitan-
lega væri fróðlegt að vita,
hvað veldur slíku heljar-
stökki verðlagsins, þegar
ekki er vitað til að neinar
aðstæður hafi breytzt, svo að
réttlætt gæti hækkunina.
Tvísett á Ausiíjörðum.
Á Austfjörðum er t.d. tvísett
í þau þingsæti, sem Framsókn-
arflokkurinn hefði hlotið þar í
sumar, ef þá hefði verið kosið
eftir hinni nýju kjördæmaskip-
un. Flokkurinn hefur nú báða
þingmenn Norður-Múlasýslu,
Pál Zóphoníasson og Halldór
Ásgrímsson; þingmann Seyðis-
fjarðar, Björgvin Jónsson; báða
þingmenn Suður-Múlasýslu,
! Eystein Jónsson og Vilhjálm
Hjálmarsson, og þingmann
j Austur-Skaftafellssýslu, Pál
Þorsteinsson, eða samtals sex
! þingmenn,
Nú er allt þetta svæði eitt
og sama kjördæmi, sem kýs
j samtals fimm þingmenn. Af
þeim hefði Framsóknarflokkur-
inn hlotið þrjú nú í sumar, ef
þá hefði verið kosið eftir nýju
kjördæmáskipuninni. Flokkur-
inn hefur því tvöfalt fleiri þing-
menn nú, kjörna í hinu nýja
kjördæmi, en hann getur gert
sér vonir um að fá kosna þar
í haust.
Gert er ráð fyrir, að Páll
Zóphoníasson dragi nú skip sitt
í naust og rói ekki framar á
sollinn sæ stjórnmálanna. En
LITIÐ FRETTABLAÐ
Laugardaginn í 18. viku sumars.
Eftirsóttir fimmeyringar
sölum fyrir einhverja
Sagt er, að ýmsir
Bandaríkjamenn hér
á landi leiti nú fast
■eftir kaupum á ís-
! lenzkum fimmeyring-
um og hafi jafnvel
leitað til fyrirtækja
og verzlana í þvi
skjmi. — í>að fylg-
ir sögunni, að tilgang-
urinn með þessum
kaupum sé miður
heiðarlegur. — Séu
fimmeyringarnir
fluttir vestur um haf
og notaðir þar í sjálf-
Skólastjóra-
stöður
Talið er víst, að
skólast jórastaða hér-
aðsskólans á Laugar-
vatni verði veitt
.Benedikt Sigvaldasyni
.. kennara, enda mun
hann hafa hlotið með-
: mæli skólastjórnar.
Ekkert hefur enn
frétzt um umsækjend-
ur um skólameistara-
- embættið við mennta-
skólann á Laugar-
vatni. Umsókriarfrest-
4>r til 1. september.
verðmeiri bandaríska
mynt, sem væntan-
lega er af sömu stærð
og þyngd.
Heggur sá, er
hlífa skyidi
Langt er nú liðið
síðan sett voru upp í
strætisvagna lítil
skilti með svohljóð-
andi áletrun: Viðrceð-
ur við vagnstjóra í
akstri bannaðar. Ekki
ber þó á þvi enn, að
farið sé eftir þessum
fyrirmælum. Algeng-
ast er, að aðrir vagn-
stjórar á leið heim af
vakt sitji hjá stéttar-
bræðrum sinum og
ræði við þá án afláts.
Það er hvimleitt, að
reglur, sem settar eru
til aukins öryggis í
umferðinni, skuli
þannig þverbrotnar
einmitt af þeim
mönnum, sem einir
geta séð til þess, að
þeim sé hlýtt.
Undrun Austurríkismannsins
Hér var á ferð á
dögunum hópur 15
Austurríkismanna.
Þegar þeim hafði ver-
ið sýndur bærinn,
var þetta hið fyrsta,
sem fararstjóri þeirra
sagði: „Hvernig
stendur á því, að göt-
1 ur eru hér fullgerðar,
| eftir að húsin eru
. byggð ? Það er öfugt
' við það, sem alls stað-
'ar annars staðar tiðk-
. ast. Ég hef ferðazt
! um flest lönd álfunn-
ar og hvergi séð jafn-
vönduð hús við jafn-
lélegar götur." Fyrir-
spurn Austurríkis-
mannsins er hér með
send áfram til Gunn-
ars Thoroddsens borg-
arstjóra. Ástandið í
gatnagerðinni skyldi
þó aldréi vera að
kenna hinu einstaka
glundroðaleysi í bæj-
arstjórn, sem Reyk-
víkingar hafa búið við
undanfarna áratugi?
samt eru eftir fimm! Er gert
ráð fyrir, að þrjú efstu sætin
á framboðslistanum, sem telja
má örugg þingsæti, verði skip-
uð þeim Eysteini, Halldóri og
Páli. Verða þeir Björgvin og
Vilhjálmur þá skildir eítir í
„myrkrinu fyrir utan", hvort
sem þar verður nú „grátur og
gnístran tanna" eða ekki.
Vandamál
á Vesiíjörðum.
Sjálístæðisflokkurinn heíur
nú fjóra þingmenn á Vest-
fjörðum, en hefði hlotið þar
þrjú þingsæti í sumar, ef kosið
hefði verið eftir nýju kjör-
dæmaskipuninni. Núverandi i
þingmenn flokksins af Vest-
fjörðum eru þeir Gísli Jónsson,
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
Kjartan J. Jóhannsson og Sig-
urður Bjarnason.
Einum þessara manna verð-
ur að fórna eða flytja hann í
annað kjördæmi, þar sem hægt
væri að ráðstafa honum í ör-
uggt sæti. Margt bendir til, að
það verði annaðhvort Þorvald-
ur Garðar eða Gísli Jónsson.
Sigurður Bjarnason og Kjartan
Jóhannsson munu án efahreppa
örugg sæti á listanum. Suniir
telja, að Gísli Jónsson hafi því
aðeins gefið kost á sér til fram-
boðs í vor, að honum hafi þá
verið tryggt öruggt sæti í haust-
kosningunum — og þá allra
helzt efsta sæti listans, en eig'i
veit blaðið sönnur á því.
Sigurvegari
settur hjá ?
Fordæmi handa Reykvíkingum
Mörgum mun minmsstæö hin snarpa ádeila Bárðar Daníelssonar
verkfræðings fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar á verklegar
framkvæmdir Reykjavíkurbæjar. M.a. vék Bárður að miðalda-
vinnubrögðum þeim, senx tíðkast liér við gatnalireinsun og
gerir hana ellefu sinnum dýrari en í jafnstórum bæjunx er-
lendis, t. d. í Stafangri. Þar hafa fyrir löngu verið teknar upp
stórvirkar vélar, gatnahreinsunarbílar og sorpsugur við hreins-
uniixa. Hér á myndinni má sjá nýja gerð af sorpsugum, senx
notaðar eru við gatnahreinsun í Lundúnunx. Er vélin svo hug-
vitssamlega gerð, að bréfarusl fer í sérstakt liólf, en sandur og
ryk í annað. Lítil 1% hestafls vél knýr sorpsuguixa. — Ekki
bólar enn á því, að forráðamemx Reykjavíkurbæjar hyggist
draga lærdóm af ádeilu Bárðar í þessu efni. Á meðan borga
útsvarsgreiðendur ellefu sinnum meira fyrir gatnahreinsunina
en þörf er á.
Hvað fá þeir í staðinn?
Á Suðurlandi hefur Fram-
sóknarflokkurinn nú þrjá þing-
menn, og verður að ætla, að
engin breyting verði á því í
haustkosningunum. Þessir þing-
menn eru sinn úr hverri sýsl-
unni: Ágúst á Brúnastöðum úr
Árnessýslu, Björn sýslumaður
á Hvolsvelli úr Rangárvalla-
sýslu og Óskar Jónsson í Vík
úr Vestur-Skaftafellssýslu.
Fljótt á litið mætti því ætla,
að þeir væru sjálfkjörnir í þrjú
efstu sæti listans. Sú veiði er
þó ekki alveg gefin, þótt sýnd
sé. Veruleg tilhneiging er í þá
átt að setja Helga Bergs, ffam-
bjóðanda flokksins í Vest- _
mannaeyjum, í þriðja sæti list-
ans og setja Óskar Jónsson á
guð og gaddinn. Hljóðalaust
gengur það þó naumast fyrir t
sig, en það veikir án efa að-,
stöðu Óskars, að helztu áhrifa-
menn flokksins heima í héraði
eru honum miðlungi heilir. *
Óskar hefur það hins vegar til1
síns ágætis að hafa unnið Vest-1
ur-Skaftafellssýslu af Sjálf-1
stæðisflokknum nú í sumar og
ætti því að mega teljast eiga
allt gott skilið af flokki sínum. j
Einnig mundi það verða talið
sitja illa á Framsóknarflokkn-
um að útiloka þingmann sinn1
úr Vestur-Skaftafellssýslu,1
minnsta héraðinu innan hins
nýja kjördæmis, frá þingsetu.
Framh, á bls. 4
Svo bar við í þinglokin um
daginn, er kosið var í nefndir,
að fram komu tveir listar og
hlutu báðir jafnmörg atkvæði.;
Kommúnistar ög Framsókn'
hafa jafnan þingstyrk og Sjálf-
stæðis- og Alþýðuflokkurinn,
og höfðu flokkarnir þannig sam-
stöðu, tveir og tveir. Þetta varð
til þess, að hlutkesti varð að
ráða oddamani í fimm manna
nefndirnar. Átta sinnum var
leitað slíkra úrslita, og kom sjö
sinnurn upp hlutur kommúnista,
en jafnmargir Alþýðuflokks-!
menn féllu.
Nú höfðu Framsóknarmenn
nægan þingstvrrk til þess að
koma tveim mönnum í fimm
manna nefndir án samstöðu
með kommum, og verður því
ekki annað séð, en samstarfið
hafi miðað að því einu af hálfu
Framsóknar að gera fyrrver-
andi samstarfsflokki sínum alla
þá bölvun, sem hlutkesti megn-
aði, en kommúnistum tækifæri
til áhrifa. Varla er hægt að
segja annað en forsjónin hafi
tekið furðu vel undir illvilja
Framsóknar í garð fyrri lags-
bræðra sinna, því að þarna
missa Alþýðuflokksmenn af for-
mannssætum bæði í Útvarps-
ráði og Menntamálaráði, og er
nú eftir að sjá, hverja bitlinga
þeir geta,hrifsað sér í staðinn.
STARF FORSTJÓRA INN-
KAUPASTOFNUNAR
REYKJAVÍKURBÆJAR
er hér með auglýst laust til umsóknar.
Laun samkvæmt launasamþykkt fastra starfsmanna
Eeyk j avíkurbæ jar.
Umsóknum skal skilað í skrifstofu borgarstjóra, Austur-
stræti 16, eigi síðar en 15. september n.k.
Skrifstofa borgarstjórans í Reykjavík,
16. ágúst 1959.