Frjáls þjóð - 22.10.1960, Page 6
Förum að
Framh. af 3. síðu.
heilbrigt atvinnulíf svo sem
matvælaframleiðsla fyrir
hungraðan og þurfandi heim
hefur borið lægra hlut í
samkeppninni um vinnu-
aflið við fulltrúa djöfuls og
dauða, sem hafa, auk ann-
ars, með höndum haft upp-
skipun drápstækja í land
þjóðar, sem aldrei hefur bor-
ið vopn á granna sína, né
troðið illsakir við neina aðra
þjóð að fyrra bragði síðan á
víkingaöld.
Með því að leyfa þessum
drápstækjum landvist hafa
íslendingar í raun réttri ögr-
að þeirri þjóð, sem telur víg-
vélunum stefnt gegn sér, á
) furðulega andvaralausan
j hátt.
Bandaríski herinn á ís-
j landi, sem um skeið hefur
j verið nefndur varnarlið, er
! því enginn verndari, heldur
j ógnvaldur. Allt bendir til,
i að virki þeirra á Miðnesheiði
i hlyti að leiða yfir allan
) þorra fslendinga sömu örlög
i og íbúar Hírósíma urðu að
j lúta 1945, ef til nýrrar styrj-
aldar drægi milli stórveld-
anna, enda hafa Rússar ný-
lega hótað að skjóta á
j hverja þá herstöð eða flug-
I völl, sem sendi frá sér
j njósnflugvél yfir land
j þeirra. Hvaðá tryggingu
i getum vér haft fyrir því, að
f slíkt yrði ekki gert frá
Keflavíkurflugvelli, meðan
bandaríski herinn hefur
j hann á valdi sínu? Og hvað
j þá, ef heimsstyrjöld skylli á?
Nýlega var ég viðstaddur
vígslu ungra hjóna. í fag-
I urri ræðu lagði presturinn
í áherzlu á gildi heiðarleik-
í ans og hreinleikans í hjóna-
bandinu. Og hann ráðlagði
ungu h(jónunum að hafa
Krist að leiðtoga sínum í líf-
inu. Síðu-Hallur vildi hafa
Mikael að fylgjuengli, af því
að hann launar allt bezt, sem
vel er gert. Sagt er, að
bandaríski herinn sé vernd-
ari vor. Hvernig hefur sá
f verndari gegnt hlutverki
j sínu? Hefur hann launað bezt
I allt, sem vel er gert? Höfum
S vér ástundað heiðarleika og
hreinleika í skjóli hersins,
verndara vors og eins konar
fylgjuengils í nærfellt 20 ár,
og þó vel það, ef brezka her-
setan er talin með — eins og
piæsturinn hvatti ungu hjón-
in til að gera í lífi sínu?
Ég hygg, að enginn, sem til
f þekkir geti svarað með góðri
f samvizku nema á eina lund.
\ Aldrei hefur heiðarleiki í við-
! skiptum átt eins örðugt upp-
| dráttar. Gjaldeyrisprettir,
1 gróðabrall og vinnusvik hafa
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmi
Eg undirr.... óska hér
að FRJÁLSRI ÞJÓÐ.
vaðið uppi. Aldrei hefur
fólki verið hegnt grimmileg-
ar fyrir heiðarleika, ráðdeild
og sannsögli en þessi 20 ár,
m. a. með því að gera spari-
fé þess verðlaust og skrökva
að því með fláttskap og
blekkingum um raunveru-
lega orsök hersetunnar, sem
er fégirnd, og leyna það
spillingunni. Ein af verstu
afleiðingum hersetunnar er
sú, að vér erum orðin óheið-
arleg og ósannsögul þjóð.
Bilið á milli boðorðanna og
breytninnar hefur aldrei
verið svo breitt sem nú. Vér
höfum logið oss undan
skylduskatti, eigi aðeins til
yfirvaldanna heldur og gagn-
vart fósturjörðinni og fram-
tíð hennar, hvert í kapp við
annað. Oss er metnaðarmál
að svipta náunga vorn sæmd-
inni, unz hann er öllum
heiðri rúinn. Vér foreldrar,
uppalendur og kennimenn
hvetjum börn og unglinga til
heiðarlegs lífs, hreinleika og
orðheldni, en brjótum sjálf
þessi boðorð á blygðunar-
lausan hátt. Þessi flærð og
lygi, undanbrögð og þögulu
svik eru þeir eiturormar sem
naga rætur þjóðarmeiðsins
meira en flest annað. Og all-
ir hafa þeir klakizt út í
skjóli hersins.
Tungan er í stöðugri hættu,
eigi aðeins vegna ofríkis
enskunnar í útvarpinu frá
Keflhvík, söng og talmynd-
um, heldur og sökum æ
minnkandi orðauðgi ungu
kynslóðarinnar. Þegar born-
ir eru saman hæfileikar
æskufólks nú á dögum til að
skilja íslenzku og klæða
hugsanir sínar í íslenzkan
búning — þegar þeir eru
bornir saman við málkunn-
áttu fólks á sama aldurs-
skeiði fyrir 10—20 árum, er
afturförin augljós og ískyggi-
leg. Orsakirnar eru m. a. sí-
aukinn reyfaralestur, mann-
skemmandi amerískar kvik-
myndir og nauðaómerkilegt
dægurlagasöngl á kostnað
gullaldarbókmennta og sí-
gildra Ijóða, sem fæstir ung-
lingar lesa framar né læra.
Afleiðingar þess eru eigi að-
eins málspjöll, heldur og
rýrnun heilbrigðs metnaðar,
svæfing samvizkunnar, glöt-
un íslendingseðlisins, er
stafar af skefjalausu flóði
hinna erlendu áhrifa, dekri
við ódyggðirnar og van-
rækslu við að þroska á-
byrgðartilfinningu og þegn-
skap hjá þeim ungu, fyrst
og fremst með góðu fordæmi.
Allt þetta má rekjja til her-
námsins og hersetunnar.
með eftir að gerast áskrifandi
(Nafn)
(Heimili)
FRJÁLS ÞJÓÐ,
Pósthólf 1419,
Reykjavík.
4
Fyrir nókkrum árum átti
ég tal við þingeyskan bónda,
sem ólst upp á bæ í Bárðar-
dal, þar sem hollt var and-
rúmsloft, en fátækt ríkti.
Mývetningar voru oft gest-
komandi á bænum, á leið úr
og í kaupstað, og höfðu frá
mörgu að segja, m. a. því
hvernig þeir brutu ísinn ber-
féettir í votengjunum á
haustin. Þeir voru svo glað-
ir, að sveinninn ungi, sem
hlýddi hugfanginn á sögur
þeirra og hlátra, varð af-
huga búferlaflutningum til
Vesturheims, sem voru þá
mjög í tízku: Hann langaði
miklu meira upp í Mývatns-
sveit. Nú fyrir hittast aldr-
ei svona lífsglaðir menn,
eins og öldungurinn lýsti
Mývetningum 19. aldar. Mér
virðist þeirri sönnu lífsgleði
hafa stórhrakað s.l. 20 ár,
þrátt fyrir allt skemmtana-
farganið. Ég kenni það stríð-
inu og hersetunni sérstak-
lega.
Ég hóf mál mitt með því
að minna á hina fögru frá-
sögn Njálu um Síðu-Hall,
þegar hann kaus sér Mikael
að fylgjuengli. Vér höfum
farið öfugt að: kosið oss ann-
an fylgjuengil: stríðsguðinn
Mammon, persónugerving á-
girndarinnar, því að gull-
þorstinn hefur ávallt verið
orsök styrjalda. í Njálu er
líka önnur frásögn af Halli,
ekki síður falleg: Hann lagði
son sinn ógildan, þegar allt
virtist í óefni komið og
horfði til varanlegs ósættis
milli brennumanna og and-
stæðinga þeirra á alþingi
árið 1012. Þessi fagra fórn
Halls leiddi til sátta og frið-
ar.
Vér íslendingar getum
líka fært fórn í þágu friðar-
ins. Hún er sú að afsala oss
héðan af öllum stríðsgróða
og segja upp hervarnarsamn-
ingnum við Bandaríki Norð-
ur-Ameríku. Vér missum við
það nokkurt gull. En með
því að fórna þessu gulli, los-
um vér um þá hlekki, sem
smíðaðir voru frelsi íslands
1941, 1949 og 1951. Þetta
getum vér aðeins gert með
því að verða aftur hlutlaus
þjóð. Þeirri stefnu fylgja nú
þær þjóðir, sem friðarvinir
binda mestar vonir við.
Förum að ráðum Einars
Þveræings, sem varaði hér-
landsmenn við að ljá erlend-
um valdhafa fangstaðar á
sér. Förum að ráðum Þor-
geirs Ljósveningagoða, sem
með fortölum sínum fékk
hinar andstæðu fylkingar á
alþingi árið 1000 til að sætt-
ast á það að hafa einn sið,
ella mundu þeir slíta frið-
inn, og væntanlega einnig
standa berskjaldaðir gegn
erlendri íhlutun. Förum að
dæmi Halls af Síðu, sem
kaus sér engilinn Mikael til
fylgdar. „Hann skal meta
allt það, sem þú gerir, bæði
gott og illt, og er svo misk-
unnsamur, að hann metur
allt það meira, sem vel er
gert.“ Þessi engill er ímynd
góðrar samvizku. Hallur a£
Framh. á 5. síðu.
Tvær bifreiðar til söhi
Verðtilboð óskast í tvær bifreiðar, rússneskan jeppa,
smiðaár 1957 og 5 manna Skoda bifreið smíðaár 1955.
Bifreiðarnar verða til sýnis austan við Sjómanna-
skólann kaugardaginn 22. þ.m. kl. 13—10.
Tilboðum sé skilað í skrifstofu Veðurstofunnar,
Sjómannaskólanum fyrir miðvikudaginn 20. þ.m.
Veðurstofa Islands.
Skó&zðomin þurfa.
koðSa, op góScLÍœrfu
BRAUÐOSTUR
m /a~ C(/ á/n/\
Prjáls þjáð — Laugardaginn 22. október