Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 15.12.1962, Blaðsíða 11

Frjáls þjóð - 15.12.1962, Blaðsíða 11
:í 'I i; ! í HATTURINN Persónur: Hinrik og kona hans. Hinrik: (Tilbúinn að fara út með skjalatösku i hendinni og hattinn á höfðinu). Vertu sæl, elskan mín. Nú þarf ég að flýta mér. Ég ætla að hringja heim til þín, svo að þér leiðist minna, meðan ég et í burtu. (Litur fram i dyrnar). En hvar er hatturinn minn, sem alltaf á að hanga þarna á snaganum? Hvað hef ég oft sagt þér það? Ja, reglan á þessu heimili. Konan: En góði Hinrik.... Hinrik: Já, góði, góði. Það er hægt að segja það. En ég er ekki góði, þegar búið er að týna hattinum mínum, og ég er að verða of seinn á skrifstofuna. Þér væri nær að finna hattinn minn en að standa og segja bara góði, góði. Konan: Lofaðu mér að komast að til að segja það, sem ég ætla að segja. Hinrik: Já. Nú ætti ég að lofa þér að komast að að segja það sem þú ætlar að segjal En mér finnst þú venjulega hafa óþarflega mikið að segja Og þeg- ar þú ert búin að fara með hattinn minn á heimsenda eða kannske lengra, þá hef ég ekki tíma til að standa hér og hlusta á það, sem þér þóknast að segja. Konan: Hlustaðu á mig, maður. Hinrik: Já, hlusta. Einmitt það. Nú á ég bara að hlusta! Og hvað á ég lengi að hlusta? Líklega þangað til við erum bæði komin undir græna torfu! Ekki verður þú fyrr búin, ef þú færð að komast að og j ég læt það eftir þér að hlusta. Konan: Já, en góði Hinrik. Þú hefur . . . . Hinrik: Nei, ég hef ekki týnt honum. Það hefur þú gert! En nú er nóg komið. Ég er orðinn alltof seinn. Þú ætlar kannske að láta mig fara hattlausan og láta mig verða að athlægi? , Kanan: En Hinrik. Hatturinn er .... Hinrik: Ekki á sínurn stað! Var það ekki það, sem þú ætlaðir að segja? En ]rú þarft ekki að segja mér það. Ég veit það vel. Og ég veit vel, að óreglan með hlutina hérna á heimilinu gerir mig grá- hærðan áður en varir. Mig vantar bara spegil til að sjá, hvort ég er ekki þegar orðinn það Konan: Já, Hinrik minn. Þarna komstu með bað. Þig vantai einmitt spegil. Fyrst ég hef aldrei getað komizt lil að segja þér, hvar hatturinn er, þá er bezt að ég sýni þér það. (Sýnir honum i spegil.) Hinrik: Já, þarna ertu lifandi komin. Þarna hefur þú látið hann. Það var sannarl^ga þér líkt að láta hann á svona vitlausan stað! (Snarast út i fússi). ENDIR Jólainnkaup því fyrr, því betra fyrir ydur, fyrir okkur ,af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá” ATLI M'Alt Vantar yður bíl? Ef ekki — þá má alltaf notast við 180 þúsund krónur núna fyrir jólin. Við bjóðum yður ein- stakt tækifæri að eignast glæsilegan ópelcaravan fyrir aðeins 25 krónur. Vinningar í happdrætti okkar eru tveir ópelbílar, hvor um sig aö verðmæti 180 þúsund krónur. Annar bíllinn er blár með hvítum toppi, hinn hvítur með bláum toppi. Notið þetta einstaka tækifæri til að reyna heppnina og láta 25 króna seðil breytast i splunkunýjan ópel- caravan-bíl. — Dregið á Þorláksmessu. Happdrætti Framsóknarflokksins Sími 12942. __________________________________________________________________________________________________________________________________________________ Frjáls þjóð — Iaugardaginn 15. desember 1962. J J

x

Frjáls þjóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.