Frjáls þjóð - 31.10.1968, Blaðsíða 5
JÓHANN J. E. KÚLD:
Vanræktur fiskistofn af Islendingum
(ÞRÓUN GRÁLÚÐUVEIÐANNA í NOREGI)
Bmi|m-eru fiskveiðar okk
ar ekki komnar á það stig,
að við leggjum okkur fram
um að hagnýta alla umtals-
verða fiskistofna í hafixni
krimgum landið. Ég mun
gesa einn þessara fiski-
séofna að nmtaisefni í þess
ari grein, þó ég hafi áður á
öðrum vettvangi vakið at-
hygii á honum, svo mikils
verðnr sem hann er. Þetta
er grálúðu fiskistofninn.
Þó grálúðan sé nú orðin
umtalsverður nytjafiskur
og góð markaðsvara, þá eru
göngur hennar í hafínu
ennþá lítið kannaðar og um
stærð stofnsins vita menn
litið. Hinsvegar vita menn
að húh er úthafsfiskur sem
heldur sig að jafnaði á
miklu dýpi. Það er t. d. al-
gengt að veiða hana á 325
faðma dýpi. Þessa fisks gæt
ir því Mtið sem ekkert í
venjulegri veiði fiskiskipa,
en hana er að finna neðst í
landgrunnshalianum við
djúpálana, svo og neðst í
haiia neðansjávarhryggja í
Norður-Atlantshafi.
Sá eini íslendingur, sem
mér er kunnugt um, að
stofnað hafi til grálúðu-
veiða hér við land, var Ósk
ar heitinn Halldórsson út-
gerðarmaður. Hann fékk
Ólafsfjarðarbáta til að
stunda þessar veiðar á ájr-
unum rétt fyrir síðustu
heimsstyrjöld.
Óskar keypti grálúðuna
af bátunum og pækilsalt-
aði hana í síldartunnur. —
Veiðin var stunduð í svo-
nefndum Eyjafjarðarál
með venjulegri fiskilínu.
Aflinn var mikill og hefði
óefað orðið framhald á þess
um veiðum, ef heimsstyrj-
öldin hefði ekki brotizt út,
sem lokaði markaðnum
sem var í Hollandi.
Ég efast ekkert um, að
Óskar hefði tekið aftur upp
þann þráð, viðvíkjandi grá
lúðumarkaðnum sem slitn-
aði með stríðinu, ef honum
hefði orðið lengra lífs auð
ið, svo mikill framtaksmað
ur var hann.
Fyrir fyrri heimsstyrj-
öldina voru grálúðuveiðar
dálítið stundaðar frá Norð-
ur-Noregi og verkunin var
pækilsöltun í tunnum, en
markaðurinn í Norður-
Rússlandi. Með styrjöldinni
1914—18 og í endalok henn
ar með byltingunni, þá lok
aðist þessi markaður og tap
aðist alveg.
Ef rannsakaðar eru fiski-
skýrslur Norðmanna á ár-
unum í kringum 1930, þá
kemur í ljós að grálúðuafli
þeirra leikur frá 80 smá-
lestum upp í 150 smálestir
eftir árum.
Ekki er mér hinsvegar
kunnugt um hvar þessi afli
var seldur á þeim árum,
ekki er þó ótrúlegt að hann
hafi farið á innanlands-
markaðinn.
Á síðari stríðsárunum,
þegar feitmetisskortur
gerði vart við sig í Noregi,
þá er farið að veita grálúð-
unni sérstaka athygli, sem
einum allra feitasta og holl
asta fiski og veiðarnar aukn
ar eftir því sem aðstæður
leyfðu á þeim tíma. í stríðs
lokin er grálúðuafli Norð-
manna orðinn í kringum
1400 lestir. /
Það sem gerst hefur síðan.
þróun norskra grálúðu-
veiða hefur hinsvegar orð-
ið sú, á síðasta hálfum öðr-
um áratug að veiðarnar
hafa farið vaxandi og ný
hagnýting aflans komið til
og á ég þar við flökun grá-
lúðunnar og hraðfrystingu.
Árið 1965 er grálúðuafli
Norðmanna 15.066 smálest
ir og talinn að verðmæti
upp úr sjó n. kr. 14.567
þús. Þetta var met aflaár
í grálúðuveiðum Norð-
manna.
Árið 1967 er grálúðuafli
Norðmanna 14.600 smálest-
ir og nú á þessu ári um
mánaðamótin sept.—okt. er
aflinn kominn upp í 13.690
smálestir á móti 9.871 smá
lest á sama tíma í fyrra. —
Útlit er því fyrir, að Norð-
menn slái öll sín fyrri afla-
met á grálúðuveiðum á því
herrans ári 1968.
Á síðustu árum hafa einn
ig Kanadamenn farið að
veita grálúðunni athygli og
eru byrjaðir að nytja þenn-
an fiskistofn. Stærsti mark
aður Norðmanna fyrir hrað
fryst grálúðuflök er í Þýzka
landi.
Það er hinsvegar rétt að
taka það fram, að pækil-
söltun grálúðunnar sem er
elzta verkunaraðferð þess-
ar fisktegundar hún hefur
haldið velli við hlið hrað-
frystingarinnar og mun ef-
laust gera enn um langa
framtíð.
Á síðustu árum hafa
Norðmenn lagt mikið fjár-
magn og vinnu í rannsókn
ir á grálúðustofninum, því
þeim er vel ljóst að hér er
um þýðingarmikinn fiski-
stofn að ræða, hvað hrað-
frystiiðnaði þeirra við kem
ur og svo annarri fiskverk-
un. Enda er það svo, að
sum hraðfrystihús í Norð-
ur-Noregi hafa að talsverð-
um hluta byggt afkomu
sína í hagnýtingu á grá-
lúðu, hin síðustu ár, yfir
sumar- og haustmánuði árs-
ins.
Hvað er þá hráefnisverð
grálúðunnar til fiskvinnslu
stöðva?
Samkvæmt gildandi verði
norsku, á vinnslufiski frá
14. okt. sl. þá er grálúðu-
verði til veiðiskipa í Nor-
egi n. kr. 1.25 fyrir kg af
slægðri og hausaðri grá-
lúðu eða í ísl. kr. 10.00
fyrir kg. Til samanburðar
má geta þess að 1. flokks
stórþorskur var greiddur á
sama tíma, með n. kr. 1.44
til ísunar og söltunar en
n. kr. 1,39 til frystingar,
miðað við hausaðan og
slægðan fisk. Eða í ísl. kr.
11.52 og 11.12. í aðra verk
un var verðið sama og á
grálúðunni n. kr. 1.25 fyrir
kg. eða ísl. kr. 10.00 fyrir
kg-
í þessum verðsamanburði
er hinsvegar nauðsynlegt
að athuga, að verðið er í
fyrsta lagi það sama á grá-
lúðunni í hvaða verkun sem
hún fer, n. kr. 1.25 ísl. kr.
10.00 fyrir kg. Og í öðru
lagi, þá er haus og slóg
grálúðunnar mikið minni
hundraðshluti af heildar-
magni fisksins heldur en
af þorski, svo óvíst er,
hvort verðið er í raun og
veru hærra, þorskverðið
eða grálúðuverðið.
Ég álít að það sé full-
komlega tímabært að ís-
lenzkar fiskiðnaðarstöðvar
fari að hugleiða þær stað-
reyndir sem hér hafa vérið
settar á pappír. íslenzkir
möguleikar á þessu sviði
eru sjálfsagt svipaðir og
möguleikar annarra þjóða,
ef við höfum atorku til að
nota okkur þá.
Það er því orðið aðkall-
andi, að grálúðumið í nánd
við ísland séu fundin, rann
sökuð og kortlögð. Slíkar
rannsóknir hafa verið fram
kvæmdar í stórum stíl í
þágu norskra fiskveiða nú
um nokkurra ára skeið,
með ágætum árangri, eins
og vaxandi grálúðuafli gef-
ur til kynna. Grálúðuna er
einungis hægt með góðum
árangri að fiska á línu,
önnur veiðarfæri henta þar
ékki, á því sviði getum við
sparað okkur tilraunir og í
þess stað gengið til verks
með veiðarnar. Eins og
fram kemur í aflaskýrslum
Norðmanna þá hefur grá-
lúðuveiðin verið örugg og
jöfn síðustu árin, síðan far-
ið var að sinna þessari veiði
fyrir alvöru, og rannsóknir
gerðar 1 þágu veiðanna.
Með vaxandi hagnýtingu
þessa fiskistofns hefur
Norðmönnum tekizt að gera
þrennt í senn. í fyrsta lagi
að auka fjölbreytni sinna
fiskvéiða. í öðru lagi að
Framh. á bls. 7.
URTÖLULIST
Ætli það þekkist nokk-
urs staðar nema hér á landi
að stjórnvöld stundi kerf-
isbundið að telja þjóðinni
trú um, að hún standi nú
frammi fyrir nærfellt óyf-
irstíganlegum erfiðleikum?
Framámenn stjórnarflokk-
anna hafa nú um langt
skeið varla lokið í sundur
munni til annars en mikla
fyrir fólki efnahagsörðug-
leikana, og hefur sannan-
lega verið beitt margs kon
ar blekkingum til þess að
gera meira úr þeim en
efni standa til. Sé rétt á
málin litið, kemur í ljós, að
framleiðsla þjóðarinnar hef
ur aldrei verið meiri en nú,
ef frá eru talin tvö eða þrjú
einstök aflaár að undan-
förnu.
Af úrtöluáróðri stjórnar-
flokkanna getur aðallega
leitt tvennt. Hann getur
valdið óeðlilegri varkárni í
fjárfestingu og ' stuðlað
þannig að óþarfri efnahags
kreppu og atvinnuleysi.
Hann getur einnig orðið til
að auka verulega brott-
flutning fólks úr landi. Er
að því mikill og augljós
skaði, enda hætta á, að þeir
fari fyrst, sem hafa hlotið
verulega menntun og eru
því betur búnir undir að
taka við störfum í öðrum
löndum.
Ekki mun það þó vera
ætlun stjórnarflokkanna að
magna efnahagskreppu eða
koma af stað landflótta.
Allur þessí úrtöluáróður er
vafalaust settur af stað til
að reyna að bjarga eigin
skinni, þegar kemur að því
að greiða þann víxil, sem
þjóðin var óvitandi látin
taka fyrir alþingiskosning-
arnar síðustu. Fyrir því er
allt annað látið víkja. í
annan stað mun svo ætlun-
in að uppmála ástandið sem
alvarlegast, áður en kem-
ur að því að semja um inn-
göngu í Fríverzlunarbanda-
lagið og koma í veg fyrir,
að fólk geti tekið afstöðu
til þeirra mála út frá rétt-
um forsendum.
Hér þarf greinilega að
taka í taumana. Auðvitað
væri það hlutverk stjórnar-
andstöðunnar að leiðrétta
missagnir stjórnarflokk-
anna um þetta éfni. En
hætt er við, að hún vérði
þár til lítils gagns. Hún
hefur þegar lengi spillt fyr-
ir sér með innantómum og
neikvæðum áróðri, og nýt-
ur ekki þess trausts, að á
hana sé hlustað. Er þá
spurningin, hvort ekki megi
einhvers staðar finna hóp
manna, sém ekki er ríg-
bundinn stjórnmálaflokkun
um og getur leitt hið rétta
í ljós um efnahagsmálin á
einfaldan og skýran hátt. Á
slíkum hóp þurfum við nú
að halda, áður en skamm-
sýni stjórnarflokkanna leið-
ir okkur í ógöngur. — gk.
Frjáls þjóð — Fimmtudagur 31. október 1968
V
r